Vísir - 14.04.1976, Side 2

Vísir - 14.04.1976, Side 2
( Á Akureyri: ) V y ...✓ Hvað myndir þú gera ef þú fyndir 60 litra spirabrúsa út á lóð? Anna Guöný Aradöttir, menntaskólamær: Þjóta út á lóð og sækja hann. Snorri Bergsson, nemi: Ég hugsa að ég myndi drekka innihaldið svona í rólegheitum. Eirar Björnsson, skrif- stofumaður: Hella inni- haldinu niður. Steindór Gunnarsson, lögf ræðingur: Ég fer ekkert að tjá mig um það. Anders Hansen, kennari: Ég myndi koma honum í verð í hvelli. Halldór Blöndal, kennari: Afhenda hann lögregl- unni. vism Alnafni erkiengilsins í þjónustu Flugleiða Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða, og íslaug Aðal- steinsdóttir deildarstjóri i farskrárdeild standa við eitt hinna nýju tækja. örvar Sigurðsson og Roger Meiling skýra út hvernig það vinnur. hins vegar orðið um eða yfir 80% með hinu nýja kerfi. Reykjavik verður miðstöðin Svona tölvukerfi varðandi bókanir hafa verið viða á Flugleiðaskrifstofum er- lendis. New York skrifstofan var fyrst tengd þessu kerfi árið 1972. Siðan var á siðasta sumri tekin upp slik tölvubókun á skrifstofum félagsins i London, Frankfurt og Paris. t sumar er i ráði aö tengja skrifstofur og flugvallaraf- greiðslu i Luxemborg við Gabriel. Þar með verða allar skrifstofurnar varðandi Amerikuferðirnar komnar inn I slikt kerfi. í október verður farskrár- deildin i Reykjavik orðin miðstöð allrar farskráningar Flugleiða. Minnugur heili i Atlanta Þegar farþegi pantar far sendir starfsmaður Flugleiða skilaboðin til Atlanta i Banda- rikjunum þar sem stór heili er varðveitir allar upplýsingar varðandi farskrána segir á augabragði tilum hvort sæti séu laus. Þar sem svo mörg félög eru i samstarfi verður samstundis hægt að afla upplýsinga um flugáætlanir annarra flugfélaga. Þannig getur maður sem er að koma frá Japan, pantað þar strax á nokkrum sekúndum, far allaleiö hingað til lands og einn- ig far með Flugleiðum um island. Ennfremur er hægt með aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara að panta hótel- herbergi viðs vegar um heim- inn. —EKG Flugleiðir hafa tekið i notkun nýtt tölvukerfi við bókanir. Tilkoma kerfisins gerir það að verkum að bókanir verða auðveldari, afgreiðsla fljótari, sætanýting meiri og tengsli við önnur flug- féiög nánari, eins og íslaug Aðalsteinsdóttir deildarstjóri i far- skrárdeild komst að orði er hún kynnti hina nýju skipan fyrir fréttamönnum. Tölvukerfi þetta er i daglegu tali nefnt Gabríel einsog erki- engillinn sjálfur. Tölvan er eign SITA sem er alþjóðlegt hluta- félag I eiguflugfélaga og annast fjarskiptaþjónustu fyrir flug- félögin. Kerfi þetta er hið lang stærsta sinnar tegundar I heim- inum ef undan eru skilin þau sem eru I þágu hernaðar. Þrjár sekúndur i stað fimm tima Kostirnir við hið nýja kerfi eru miklir. Aður tók það þrjár til fimm klukkustundir að gefa upplýsingar um far, en með til- komu hins nýja tölvukerfis tek- ur það aðeins nokkrar sekúnd- ur. Þetta gerir þaö ennfremur að verkum aö sætanýting veröur mun betri. Sætanýting hjá Flug- leiðum yfir Atlantshafið ernúna mjög góð að sögn Flugleiða- manna, eða um 76%. Hún getur Mikla þjálfun þarf við hin nýju tæki og hefur verið unniö við það af kappi að undanförnu. Vopnaþjónusta póstsins Öðru hverju berast fréttir af Klúbbmálinu svonefnda m.a. I þá vcru, að þegar Einar Ingi- mundarson, sýslumaður i Hafnarfirði, neitar um endur- teknar frestanir á uppboði vegna söluskattsskuldar, sem stofnað var til I Klúbbhluta- félagi, sem á ekki veitingahúsið lengur, þá snúa hinir visu lög- fræðingar sér til hæstaréttar um réttmæti neitunar Einars við siðustu frestunarbeiðni. Verður þvi enn hlé á uppgjöri málsins á meðan hæstiréttur fjallar um frestunina. Hjá öðrum er bara lokað, þegar söluskattur fæst ekki greiddur, og þvi erfitt að safna til stórfelldra skulda, hvað þá að slíkar söluskatts- skuldir standí ógreiddar meðan á stórfelldum frestunarleik stendur. En hæstiréttur landsins hefur haft i fleiru að snúast vegna annarra mála, sem tengd hafa verið eigendum Klúbbsins. Ilann hefur þráfaldlega á undanförnum mánuðum orðið að taka til meðferðar kærur út af framlengdu gæsluvarðhaldi. Má til sanns vegar færa aö beit- ing gæsluvarðhalds i þeirri mynd sem nú cr geti orkað tvi- mælis, og mál þurfi meiri rann- sóknar við af raunverulegri leynilögreglu áður en til sliks varðhalds kcmur. Og dæmi eru um, að sá sem hefur orðið mannsbani i hreinni nauðvörn (Ólafsvik) er látinn sitja óheyri- lega iengi I gæsluvarðhaldi löngu eftir að málið er upplýst. Enginn er til að kæra þá með- fcrð til hæstaréttar. Vegna vcnju i málsrannsóknum getur hæglega farið svo að saklausir menn sitji um skamma hrið i gæsluvaröhaldi og er það illt mál. En það verður að treysta þvi að rannsóknarmenn séu starfi sinu vaxnir og æðsti dómstóll landsins sé næg trygging fyrir réttmæti gæsluvarðhalds. Það hefur þó ekki komið i veg fyrir mikinn almannaróm, þar sem eins eitt morgunblaðanna hefur þráfaldlega verið að rifja upp einn þátt umræðunnar og getur enginn lifandi maður séð hverju sú stöðuga upprifjun þjónar. En þótt opinberlega sé ekkert látiö uppskátt um gang málsins, þá hafa þó tvær fréttir birst i blöðum, sem hljóta að vekja at- hygli. Annars vegar er nokkur staðfesting á ferðum tiltekinnar stúlku frá Keflavik morguninn eftir að Geirfinnur hvarf þar sporlaust. Verður ekki annað séð en stúlkan fari með rétt mál um ferðir sinar umræddan morgun. Hins vegar er svo frétt Morgunblaðsins um, að einn hinna fjögurra, sem sitja I gæsluvarðhaldi út af hvarfi Geirfinns, hafi fengið sendar tvær skammbyssur I pósti frá Bandarikjunum, en byssur þessar á hann að hafa pantað sér á ferð þar vestra nýlega. Nú er þrennt hægt að gera með skammbyssur. Það er hægt að skjóta i mark með þeim. Það cr hægt að verja lif sitt með þeim. Og það er hægt að drepa fólk með þeim. Ekki þarf að taka fram að innflutningur af þessu tagi er ólöglegur, a.m.k. hefur ekkert heyrst um að upp- taka póstssendingarinnar hafi verið kærð til hæstaréttar. Svarthöfði sitt sýnist hverjum, meðan þögn rikir um það sem er að gerast innan veggja fangelsisins við Síðumúla. Litlar sem engar um- ræður hafa orðið um máiið i blöðum allra siðustu vikurnar, enda hljóta blaðamenn að vcrða að sætta sig við að biða upplýsinga lögmætra aðila. Að-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.