Vísir - 14.04.1976, Page 7
Andófsmenn fyrír rétt í Sovét
Tveir af helstu andófs-
mönnum Sovétrikjanna
eiga að koma fyrir rétt i
dag, annar i Siberiu,
hinn i Moskvu. Hvor um
sig er sakaður um að
breiða út óhróður um
rikið.
Eölisfræðingurinn, Andrei
Tverdokhlebov, átti að koma fyr-
irréttinn iMoskvu á þriðjudaginn
og sömuleiðis Krimskagatartar-
inn og þjóðernissinninn Mustafa
Dzhemilvyov i Omsk, en mála-
ferlunum var frestað.
Dr.Tverdokhlebov erformaður
Sovétdeildar Amnesty Inter-
national. Hann var tekinn fastur i
april sl. ár fyrir að dreifa visvit-
andi fölskum áróðri um rikið.
—Sovésk yfirvöld viðurkenna
ekki félagsskapinn og lita á al-
þjóðlegu samtökin sem fjand-
samleg Sovétrikjunum. (Am-
nesty International starfar að þvi
að fá pólitiska fanga látna lausa,
hvar sem er i heiminum.)
Dzhemilyov, sem er 31 árs að
aldri, hefur eytt flestum full-
orðinsárum sinum i fangelsum og
þrælafangabúðum. Hann hefur
helgað sig baráttunni fyrir þvi að
þjóð hans fái að snúa heim úr út-
legðinni til Krimskaga.
Báðir menn eiga yfir höfði sér
allt að þriggja ára fangelsi fyrir
þær sakir, sem þeir eru nú bomir.
Andrei Sakharov friðarverð-
launahafi, flaug til Omsk siðasta
þriðjudag, en snéri til Moskvu
aftur þegar málaferlunum var
frestað. Hann segir, að dómarinn
hafi neitað sér um að heimsækja
Dzhemilyov, sem væri i einangr-
un á sjúkradeild. Tartarinn hefur
verið i hungurverkfalli sfðan i
fyrrasumar.
t Moskvu var áheyrendum vis-
að frá réttinum á þriðjudaginn og
sagt, að dómarinn i málinu gegn
Tverdokhlebov væri veikur. — En
ýmsir vildu setja frestun málsins
i samband við heimsókn Olof
Palme, forsætisráðherra Sviþjóð-
ar, sem þá var staddur i' Moskvu.
Þriðji andófsmaðurinn veröur
sennilega dreginn fyrir rétt i
höfuðborg Lettlands i dag, Vilni-
us. Það er hinn 35 ára gamli
Vaiery Maresin. Hann neitaði i
desember að vitna gegn lif-
fræðingnum Sergei Kovalev, sem
dæmdur var til sjö ára vistar i
þrælafangabúðum fyrir áróöur
gegn Sovétrikjunum.
börn fá aukn-
ar bœtur
Vestur-þýska stjórnin skýrði
frá þvi i gær, að hún mundi vilja
greiða 50 milljónir marka i sjóð
þann, sem settur var á laggirn-
ar til aö greiða bætur börnum,
er hefðu fæðst fötluð af völdum
lyfsins thalidomide.
Þetta stækkar sjóðinn upp i
200 mUljón mörk og gerir það að
verkum, að unnt er að hækka
örorkubætur til 2,450
vestur-þýskra fórnarlamba
lyfsins um 25%.
Visindamenn vildu kenna
thalidomide, sem framleitt var i
Þýskalandi og sett þar á mark-
að undir nafninu „countergan”,
um það, að fjöldi barna fæddist i
V-Þýskalandi, Bretlandi og öðr-
um Evrópulöndum mUli 1959 og
1962 illa fötluð. Onnur skýring
fannst ekki á fyrirbærinu en, að
mæður þeirra höfðu tekið inn
thalidomide á meðgöngutiman-
um.
Bonnstjórnin ákvað að auka
framlagið i sjóðinn til að vega
upp verðbólgumun
1972 stofnaði lyfjaverksmiðj-
an Grunenthal i Achen þennan
Thalidom ide-sjóð með 100
milljón marka framlagi, en með
þvi skilyrði, að opinbera legði
jafnt að mörkum. Var þá fallið
frá málsókn á hendur fyrirtæk-
inu.
Sandra Good t.v. og Susan Murphy koma til réttarhaldanna i Sacramento i gær. Merkiö sem þær geta
með fingrinum er merki Manson-fjölskyldunnar. Good hlaut 15 ára fangelsisdóm, en Murphy 5 ára.
MANSON
STÚLKUR
DÆMDAR
TIL
LANGRAR
FANGELSIS-
VISTAR
Hin 27 ára gamla Sandra
Good úr „fjölskyldu” fjölda-
moröingjans, Charles
Manson, var i gær dæmd í 15
ára fangelsi í Kaliforniu. Hún
hafði sent i pósti hótunarbréf
til fólks, sem hún sagði
„menga jörðina”.
Herbergisfélagi hennar,
Susan Murphy, fékk fimm ára
fangelsi.
Báðar voru teknar fastar i
nóvembersiöastliðnum, tveim
mánuðum eftir að þriðji
herbergisfélaginn, Lynette
Fromme, var dæmd fyrir að
sitja um lif Fords forseta.
Fromme fékk lifstiðarfang-
elsi.
A meðan á réttarhöldum
Fromme stóð, sendi Sandra
Good 70 embættismönnum i
Bandarikjunum og konum
þeirra bréf. 1 bréfunum sagði
hún að dauðinn biði þeirra.
Úrkomuleysi
á Bretlands-
eyjum
Bretar vitanaumast hvaðan á þá
stendur veðrið. Vanir einhverri
rigningarmestu veðráttu álfunn
ar horfir nú til þess, að þeir verði
að gripa til vatnsskömmtunar i
sumar vegna langvarandi
þurrka.
Slikir þurrkar hafa ekki komið
á Bretlandseyjum siðan á árum
frelsisstriðs Bandarikjanna.
„Við þurfum 25 sm daglega
úrkomu næstu tvo eða þrjá
mánuði til þess að vinna upp
vatnsskortinn. Annars er hætt við
að illa fari — ekki aðeins fyrir
landbúnaðinum, heldur einnig á
öðrum sviðum,” sagði dr. Hans
Morth, aðstoðarforstöðumaður
veðurfræðideildar Austur-Angliu-
háskóla.
Sumstaðar á Mið-Englandi
hafa yfirvöld þegar gripið til
sérstakra ráðstafana vegna
vatnsskorts. Garðslöngur hafa
verið bannaðar, sömuleiðis bila-
þvottur. Menn eru jafnvel farnir
að safna vatni i vatnsgeyma við
heimahús sin til að hafa eitthvað
upp á að hlaupa, ef skrúfað
verður alveg fyrir.
Stærstu borgir, eins og London,
Manchester og Birmingham eru
hinsvegar svo vel i sveit settar, að
þær búa við lindir, sem endast
munu þeim i allt sumar, þótt ekki
komi deigur dropi úr lofti.
Bretlandseyjar hafa raunar
siðustu fimm árin búið við
þurrka, eða minni úrkomu en
nokkru sinni fyrr á svo löngum
tima. Einkanlega siðustu þrettán
mánuði. Ellefu þeirra voru langt
undir meðaltalsúrkomu.
„Siðan byrjað var að halda
úrkomuskýrslur 1780, hefur ekki
komið svo langur þurrkakafli,”
segir dr. Morth.
Bretar eiga það sameiginlegt
með Islendingum, að veðrið er
eitt uppáhaldsumræðuefni þeirra,
og hefur þetta ástand gefið þeim
gott tilefni til.
1 GJAFAVÖRUR [
/\ Opið laugardag fyrir póska kl. 9-12
TEKK^KRIST/LLT
Laugavegi 15 sími 14320
..... ■■imiiinirnmn——^
Handskorinn kristall
Mótaður kristall.
Litaður kristall.
24 carata gylling á kristal.
italskir munnblásnir vasar.
Litaðar glervörur.
Handmálaðir postulínsvasar.
Postulinsvasar sem má mála.
Postulínsstyttur, handmálaðar.
Hvitar tékkneskar styttur.
Keramik frá Glit.
Brúðargjafir,
afmœlisgjafir,
fermingagjafir
og aðrar
tœkifœrisgjafir
Kynnið ykkur
mikið og fallegt
gjafaúrval