Vísir - 20.04.1976, Síða 1

Vísir - 20.04.1976, Síða 1
„Sigli ekki viljandi á varðskip" # Fyrsta viðtalið við freigátukaptein sem birtist í íslensku blaði Sjá bls. 3 Bretar komnir austur á ný! Frá Óla Tynes um borð i freigátunni Gurkha i morgun. „Við erum nú um það bil að koma út á aust- fjarðamið með 20 tog- ara. Þeir voru út af Vestfjörðum þegar við komum að íslandi á sunnudaginn, en vegna lélegrar veiði var sam- þykkt með atkvæða- greiðslu að færa sig austur eftir. Togurunum til verndar eru freigáturnar Gurkha, Naiad, Anadromeda og Galatea. Þá eru dráttarbátarnir Euroman og Rollicker einnig hér á ferð. Það er þvi siglt i skipalest austur eftir og Ægir er i humátt á eftir okkur. Það hefur verið frekar rólegt slðan við komum á íslandsmið á sunnudaginn. Varðskipin virðast almennt vera inni. Ægir skaut þó upp kollinum i gær og sigldi út og suður, að þvi er virtist án sér- staks tilgangs. • Bresku skipherrarnir eru hins vegar orðnir mjög varir um sig þegar Þröstur Sigtryggsson skip- herra er annars vegar. Þeir hafa oftar en einu sinni rekið sig á að hann „notar stórt hafsvæði”. Hann virðist alltaf stefna eitthvað út i bláinn, en svo á hann það það til að birtast allt i einu þegar verst lætur, klippa á eitt eða tvö troil en halda svo áfram sinni sakleysislegu og stefnulausu sigl- ingu þegar freigáturnar koma æðandi. Skipherrarnir eru mjög tortryggnir þegar Þröstur stefnir út í bláinn. Naiad er þvi eins og limd upp við Ægi núna. Klukkan er nú um 10 og það er búist við að togararnir hefji veiö- ar i eftirmiðdaginn. Ægir skokkar á eftir togara- og freigátuhópnum og Naiad svo á eftir varðskipinu.” Frétt þessa sendi blaðamaöur Visis um loftskeytastöö i Bret- landi vegna þess að loftskeyta- menn á Siglufjarðarradió neita að afgreiða simtöl viö freigáturnay.— Bann á fréttir Vísis frá miðunum Loftskeytamenn neita að af- greiða simtöl blaðamanns Visis frá freigátunni Gurkha, við rit- stjórnina i Reykjavik.'Þegar Óli - Tynes blaðamaður hafði sam- band við Siglufjarðarradió i morgun, tjáði loftskeytamaður honum að haldið yrði fast við fyrri yfirlýsingar loftskeyta- inanna um að hafa engin viðskipti við breska togara eða herskip. Eina ráð Óla var þvi að láta kalla upp fjarskiptastöð i Bret- landi, og hringja þaðan til Visis. Þar sem stöðin sinnir ekki „coll- ect” simtölum, gekk floti hennar hátignar i fjárhagslega ábyrgð fyrir þvi að reikningurinn yrði greiddur. „Við töldum ekki ástæðu til að breyta út af í þessu tilfelli” sagði Bjarni Harðarson loftskeytamað- ur á Siglufirði, þegar Visir hafði samband við loftskeytastöðina i morgun. Loftskeytamenn hér, á Nes- kaupstað, Homafifði og ísafirði gerðu með sér samþykkt i upp- hafi þorskastriðsins að sinna ekki breskum togurum eða herskipum nema i neyðartilfellum” sagði Bjarni. „Við teljum ekki að út af þvi eigi að breyta, þótt íslenskur blaðamaður eigi I hlut. Enda telj- um við að bretarnir séu þannig að koma sjónarmiðum sinum áfram, og við viljum ekki hjálpa til við það.” Viðtal Óla Tynes við skipherr- ann á freigátunni Gurkha, á bls. 3 i blaðinu i dag, var sent um Reykjavikurradió. Þar, ogi Vest- mannaeyjum náðist ekki sam- staða um þetta bann á bretana, og þvi afgreiða stöðvarnar bresku skipin. Hins vegar eru slæm skil- yrði nú að ná til Reykjavíkur frá miðunum fyrir norðan land. Óli Tynes blaðamaður sagði i Spírorannsókn fyrir norðan Rannsókn Geirfinns- málsins svonefnda hefur uppá siðkastið beinst að nýjum smyglmálum, einkum fyrir norðan. Fyrir páska fóru rannsóknar- lögreglumenn frá Reykjavik norður. Þeir yfirheyrðu hóp manna á Sauðárkróki og einnig munu þeir hafa tekið til yfir- heyrslu menn frá Blönduósi. Yfirheyrslur þessar standa i sambandi við spirasmygl fyrir norðan fyrr i vetur, sem talið er að flutt hafi verið suður. Heim með gull, silfur og brons frá NM í júdó íslenska landsliðið I júdó vann til silfurverölauna á Noröur- landamótinu i Sviþjóð um helgina. Einstaka keppendur unnu einnig gull, silfur og bronsverðlaun á mótinu, og komu þvi heim . úr þcssari frægðarför hlaðnir góðmálmi. Sjá nánar iþróttir i opnu, ogeinnig á bls. 10, 11 og 14. morgun, að sér fyndist þessi af- staða loftskeytamannanna óskilj- anleg. Fréttasendingar hans frá miðunum gætu ekki flokkast sem þjónusta við breta. Sagðist hann vonast til að loftskeytamennirnir skildu þetta, og gerðu sjálfa sig ekki að ritskoðurum á fréttir. Þess má geta, að loftskeyta- mennirnir eru að brjóta alþjóða- lög með þvi að neita að veita þessa þjónustu. Hótaði að skjóta á lögregluna • Svœldur út með táragasi • Sjá baksíðu A LAUNASKRA AN VINNU Jón Ormur Halldórsson skrifar grein um niðurlœgingu efnahagslífs Sjá bls. 9

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.