Vísir - 20.04.1976, Blaðsíða 24
VfSIR
Þriðjudagur 20. apríl 1976.
Aðeins 1 útkall
hjó slökkviliði
Páskarnir voru með rólegasta
móti hjá slökkviliði Reykjavikur-
borgar. A fimmtudag var eitt
útkaU og siðan þá hefúr ekkert
verið.
I þessu eina tilfelli reyndist
aðeins um smávægilega óheppni
að ræða, i sambandi við eldavéi,
og varð ekkert alvarlegt úr þvi.
Reykvikingar hafa þvi farið
varlega með eldinn þessa
dagana. _ea
5 ó slysadeild
Árekstur varð rétt austan við
Litlu Kaffistofuna á páskadag.
Þar mættust tveir fólksbilar á
veginum, og mun annar hafa
farið út á öfugan vegarkant,
þegar ökumaður missti stjórn á
honum. Lentu bilarnir saman og
voru fjórir úr bilnum fluttir á
slysadeild. Tveir reyndust
ómeiddir en tveir hlutu minni-
háttar meiðsl.
Þá varð slys i Stekkjabakka i
Breiðholti sama dag. Bill lenti á
ljósastaur og slasaðist farþegi i
framsæti, á höfði. —EA
Ökuferðir
enduðu með
ósköpum
Tveir piltar stálu bíl og end-
uðu i árekstri, 2 stúlkur voru
réttindalausar á léttu bifhjóli
og lentu á bil og ölvaður öku-
maður ók bifreið sinni á tvo
stöðumæia og braut þá niður
og hafnaði á Ijósastaur. Alt
þetta skeði aðfaranótt sunnu-
dagsins i Reykjavik.
Strákarnir tveir stálu bil i
Fossvogi og brugðu sér i öku-
ferð um bæinn. Þeir ætluðu
siðan að skiia bilnum aftur á
sama stað, en ökuferðin end-
aði þá ekki betur en svo, að
þeir lentu i árekstri á mótum
Réttarholtsvegar og Bústaða-
vegar. Skemmdir urðu á báð-
um bilum en engin slys á fólki.
Stúlkurnar tvær fengu létta
bifhjólið lánað i stutta öku-
ferð. Voru þær ágætlega bún-
ar, meö hjálma og annað til-
heyrandi en ökuferðin varð
lengri en búist hafði verið við.
Endaði hún i Alfabakka, þar
sem þær ætluðu aö beygja inn
á Stekkjarbakka. Beygjunni
náðu þær ekki og lentu á bil.
Meiðsli voru litil.
Loks tók svo ökumaður
nokkur Bakkus undir stýri
með sér i bil sinum. Eitthvaö
gekk þeim illa að aka i sam-
einingu eins og við var að bú-
ast. Billinn fór fyrst á tvo
stööumæla og braut þá niður
og hafnaöi siðan á ljósastaur.
Þetta skeði ofarlega á
Laugarveginum. — EA
Þurftu að beita tára-
gasi gegn innbrotsþjóf
sem hótaði að skjóta á vegfarendur
Sjaldgæft er, að hér á landi
þurfti lögregla að beita táragasi
til þess að ráða niðurlögum
óeirðaseggja, en til þess ráðs
þurfti að gripa I Reykjavik
aðfararnótt föstudagsins ianga
tii þess að yfirbuga 19 ára pilt.
Hafði hann um nóttina brotist
inn i tvær verslana borgarinnar,
annars vegar hljóðfæraverslun-
ina Rin, þar sem hann olli stór-
tjóni, og hins vegar verslunina
Sportval við Hlemm Laugavegi,
en erhann var kominn þangað,
var lögreglan kvödd á vettvang.
Var þá pilturinn búinn að stór-
skemma nokkrar byssur, en auk
þess virtist hann hafa mikinn
áhuga á hnifum, sem til sölu eru
i sportvöruversluninni.
Pilturinn hafði i hótunum við
vegfarendur og virtist ekkert á
þvi að yfirgefa innbrotstaðinn.
Fólk, sem þarna dreif að og var
sumt að koma af dansleikjum,
var heldur ekki á þvi að hverfa
af vettvangi, og varð lögreglan
að gripa til þess ráðs að
fjarlægja suma með valdi þar
sem hætta var talin á, að piltur-
inn i búðinni kynni að skjóta
nærstadda eöa kasta að fólkinu
hnifum. Hafði hann ógnað lög-
reglumönnum meö haglabyssu,
sem honum haföi tekist að ná i, j
þótt skotvopnin séu öll fest niður
með keðjum. Auk þess kastaði
hann tveimur hnifum að lög-
reglumönnunum, en þeir sluppu
við þær sendingar. Aftur á móti
skárust tveir þeirra talsvert i
'átökum við piltinn, er hann kom
loks út úr búðinni, — eftir að
lögreglan hafði varpað inn til
hans táragassprengjum. Var
hann þá enn með haglabyssu og
hnif.
Pilturinn var úrskurðaður i
allt að 30 daga gæsluvarðhald og
honum gert að sæta geðrann-
sókn.
innbrotsþjófum tókst
að losa byssurnar þó þær
væru læstar með keðju.
Eins og sjá má lágu
byssurnar eins og hráviði
um allt.
Á litlu myndinni sést
skotgat þar sem maður-
inn virðist hafa verið að
reyna hæfni vopnanna.
Ljósmynd Loftur
Innanlandsflug úr skorðum vegnaveðurs:
Hundruð manna komust
seint í póskoferðirnar
Miklar truflanir hafa orðið á
innanlandsfiugi undanfarna
daga. Komust margir af þeim or-
sökuin mun seinna en þeir ætluðu
sér til þeirra staða sem þeir hugð-
ust dvelja á um páskana. í
morgun var flugið enn ekki komið
i eðiiiegan gang og biðu um 1000
manns á isafirði og i Vestmanna-
eyjum eftir flugveðri. —________
Á skirdag lá innanlandsflug að
miklu leyti niðri vegna hvass-
viðris og snjókomu viða á landinu
ogkomusthvorki stórar né smáar
flugvélar leiðar sinnar fyrr en
seint og um siðir. Aætlunarvélar
Flugfélags Islands komust til
dæmis ekki til Akureyrar fyrr en
seint á skirdagskvöld, en til
ýmissa annarra staða var hvorki
hægt að fljúga á skirdag né föstu-
daginn langa. Þannig biðu til
dæmis á fjórða hundrað manns
eftir fari til ísafjarðar á laugar-
dagsmorguninn.
Flug Vængja gekk erfiðlega
fyrir helgina, en i gær var flogið
samkvæmt áætlun þrátt fyrlr að
erfið flugskilyrði tefðu nokkuð
fyrir.
1 gær var flogið samkvæmt
áætlun hjá Flugfélagi íslands á
alla staði innanlands nema til
Isafjarðar og Vestmannaeyja, en
þar hamlaði hvassviðri og þoka
tlugi. I dag eru áætlaðar 8 íerðir
til þessara staða ef veðurskilyrði
batna. —SJ/ÓR
Skúrinn vift Hvaleyrarbraut, þar sem mafturinn brann inni.
Maður brann inni
Maður brann inni þegar kvikn-
aöi I skúr viö Hvaleyrarbraut 36
aftfaranótt laugardagsins. Ekki
var vitaft um manninn i skúrnum,
en lik hans fannst siftar. Maftur-
inn var 52ja ára gamall og hét
Guftmundur Arni Valgeirsson.
Hann var fráskilinn, en lætur eftir
sig 8 uppkomin börn.
Þarf að hafa lögregluvörð
við heiðarnar?
BÍLSTJÓRAR LEGGJA Á HEIÐAR OG FJALL-
VEGI KEÐJULAUSIR 0G Á SUMARHJÓLBÖRÐUM
Starfsmenn vegaeftir-
lits Vegagerðar ríkisins
hafa velt því fyrir sér
siðustu daga> hvort ekki
sé þörf á að hafa lög-
regluvörð við heiðar og
fjallvegi/ þegar veður-
útlit er tvisýnt, til þess að
banna bílstjórum að
leggja á þessa fjallvegi,
ef bilar þeirra væru ekki
nægilega vel búnir til
aksturs í snjó og ófærð.
Virðist þetta vera orðin
nauðsyn eftir þá reynslu
sem fékkst á Holtavörðu-
heiði fyrir páskana.
Milli fjögur og fimm hundruð
manns lentu í hrakningum á
Holtavörðuheiði á skirdag og
föstudaginn langa vegna mikils
vetrarrikis á heiðinni og ill-
viðris. Mikil bilalest komst yfir
heiðina á um það bil sólarhring,
en nokkra bila varð að skilja
eftir, meöal annars vegna þess,
hve illa þeir voru búnir til
aksturs i snjó.
t bilalestinni voru milli 80 og
90 bllar, stórir og smáir, og tók
það snjóruöningstæki vega-
gerðarinnar nær 20 klukku-
stundir að brjótast yfir heiðina á
undan lestinni norður yfir
heiðina. Holtavörðuheiði er
hæst yfir sjó um 390 metra, en
vegalengdin yfir heiðina mun
vera um það bil 30 kílómetrar.
1 mörgum fólksbilanna, sem
lagt höfðu á Holtavörðuheiði var
fólk með smábörn, og dæmi
voru um aö bilarnir væru á
sumarhjólböröum ánkeðja eða
annars útbúnaðar til aksturs I
snjó.
Allmargir bilar voru tepptir á
öxnadalsheiði á skirdag og urðu
bilstjórar og farþegar að láta
fyrir berast i björgunarskýli á
heiðinni, þar til á föstudaginn
langa, er hægt var að brjótast
yfir heiðina.
Þaö var um klukkan 04.25 sem
tilkýnning barst um eld i skúrn-
um. Hafði lögreglan átt leið
framhjá og rauk þá úr honum.
Vissi þá enginn um manninn.
Guðmundur Arni var skráður
til heimilis á staðnum og hafði
þar aðstöðu til þess að stunda
bilaviðgerðir. Hann mun þó hafa
dvalist öðru hverju hjá ættin^j-
úm.
Eldsupptök eru ókunn.
Rafmagn mun ekki hafa verið á
skúrnum og ekki var vitað um
nein hitunartæki. Svo viröist þó
sem eldurinn hafi komið upp i
herbergi þvi sem maðurinn svaf i
þegar þetta skeði. — EA
Fœðingardeild
Sólvangs lokað
Bæjarstjórn Hafnarf jarftar
ákvaö á fundi sinum s.l. þriftju-
dag aft ieggja fæftingardeiid Sól-
vangs niöur, þrátt fyrir mótmæli
370 hafnfirskra kvenna.
Aftur á móti var samþykkt á
fundinum tillaga þess efnis, að
bæjarstjóra yrði falið að kanna
möguleika á að hafnfirskar konur
fái fæðingarhjálp i sérstökum til-
vikum i heimabæ sinum, Hafnar-
firði, til dæmis á St. Jósefsspitala.
— SJ