Vísir - 21.04.1976, Side 1
Gleðilegt
sumar!
Líkur á samningum við
breta hafa ekki aukist
— sagði utanríkisráðherra í viðtali við Vísi í morgun
,,Ég tel ekki neinar likur á
samningum við breta. Til þess
þarf gjörbreytt afstaða að koma
fram hjá þeim” sagði Einar
Ágústsson utanrikisráðherra er
Visir leitaði i morgun álits hans á
ummælum Roy Hattersleys um
fiskveiðideilu breta og Islendinga
I gær.
,,Hins vegar hefði ég viljað að
Hattersley hefði fyrr verið eins
samvinnuþýður og hann virðist
nú vera” sagði Einar Agústsson.
Þá var utanrikisráðherra
spurður álits á gangi hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Hann kvað ekki enn komið i ljós
hversu alvarlegur bakslagur
hefði orðið á ráðstefnunni. Hins
vegar væri sú töf sem orðið hefði
mjög tilfinnanleg fyrir okkur is-
lendinga og væri okkur mikil von-
hrigði. —sj
VIsi barst þessi simamynd frá bresku freigátunni Ghurka i morgun. Óli Tynes blaðamaður ræðir þarna við skipherrann á Ghurka, hinn 39 ára
gamla Tim Lee. Myndin er tekin i brúnni á Ghurka. Myndin var slmsend frá Ghurka til loftskeytastöðvarinnar Portishead I Bretlandi.
Þaðan var hún simsend til tslands. Ljósm: Jim VValker
Neita einnig að afgreiða
fréttirnar á Neskaupstað
Loftskeytamenn i Nes-radió á
Neskaupstað neituöu I morgun
að verða við tilmælum um að
afgrciða simtal blaöamanns
Visis frá freigátunni Ghurka,
sem nú er á miðunum fyrir
austan land.
Visir pantaði samtal við Óla
Tynes blaðamann, en loft-
skeytamennirnir sinntu beiðn-
inni ekki. Þeir bera fyrir sig
sömu ástæðu og loftskeytamenn
á Siglufirði, að þeir afgreiði
samtöl við bresk skip ekki nema
i neyðartilfellum.
Beiðnin um samtalið liggur
fyrir óbreytt. Búast má við að
póst- og simamálastjórn skipi
loftskeytamönnunum i dag að
afgreiða samtalið. Samkvæmt
alþjóðareglum sem Póstur og
simi hefur samþykkt, verður
stofnunin að sinna samtals-
beiðninni.
Fyrst um sinn verður Visir að
hafa samband við blaðamann
sinn um loftskeytastöð i Portis-
head í Bretlandi. En það er
mjög dýrt, og tal brenglast
mjög við að fara alla þessa
vegalengd, fyrst um talstöð til
Bretlands, og þaðan um si'ma-
streng til Islands.
—ÓH
Afmœlis-
dansleik-
ur hjá
breta-
drottn-
ingu
Það var kátt I Windsor-
kastala Elisabetar drottn-
ingar i gærkvöldi, þar sem
haldinn var dansleikur I tilefni
fimmtugsafmælis drottningar
i dag.
Rúmlega 500 gestir sátu boð
drottningar I kastalanum, þar
sem svipaðar veislur hafa
verið haldnar I meira en 300
ár.
Meðal þessara gesta voru
systir drottningar, Margrét
prinsessa, og Snowdon lávarð-
ur, hennar maður, þótt þau
hafi slitið samvistum fyrir
löngu.
Áður en dansleikurinn hófst
hafði drottningin sérstakt
kvöldverðarboð fyrir 60
vildarvini og vandamenn. —
En menn veittu þvl eftirtekt,
að James Callaghan, hinn nýi
forsætisráðherra breta, sást
aldrei allt kvöldið. — Stóð
veislan til kl. 3.15 I nótt.
Sjá bls. 8
Svart-
o/íu-
notkun
hryggi-
leg
mistök
„Krafan er auðvitað
sú að þessir menn
verði stoppaðir áður
en þeir vinna millj-
ónatjón" — þetta
segir Halldór Þor -
bergsson vélskóla-
kennari um Svart-
olíunefnd í viðtali
á bls. 2
SÍMSTÖÐVARSTJÓRINN Á SIGLUFIRÐI AND- - **
VÍGUR ÁKVÖRÐUN LOFTSKEYTAMANNANNA *.»