Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 4
4 Styrkir tii háskólanáms í Búlgaríu Búlgörsk stjórnvöld hafa tilkynnt aö þau bjóði fram i nokkrum iöndum er aðild eiga að UNESCO fjóra styrki til háskólanáms i Búlgariu háskólaárið 1976—77. Ekki er vit- að fyrirfrain hvort einhver þessara styrkja muni koma i hiut íslendinga.— Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til náms i búlgörsku, búlgörskum bókmenntum, listum og sögu og eru veittir til sex mánaða námsdvalar. Styrkfjár- hæðin er 120 levas á mánuði. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi áður en styrk- timabil hefst og hafa góða þekkingu á búlgörsku, frönsku, ensku, þýsku eða rússnesku. Umsóknir um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum prófskirteina, vottorði um tungumálakunnáttu, meðmæl- um og heilbrigðisvottorði skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 3. mai nk. Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 13. april 1976. Laust embœtti er forseti íslands veitir Prófessorsembætti i lögfræði við lagadeild Háskóla Is- lands er laust til umsóknar. Gert er ráð fyrir að kennslu- greinar verði á sviði fjármunaréttar eða réttarfars. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknarfrestur er til 15. mai n.k. Umsækjendur um prófessorsembættið skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vlsindastörf þau er þeir hafaunnið,ritsmíðarogrannsóknir,svo og námsferil sinn og störf. Menntamálaráöuneytið 12. april 1976. ffl Húseigendur athugið: Við viljum hérmeð vekja athygli á, aö allar breytingar á húsum, bæði á notkun þeirra og útliti, eru háðar sérstöku samþykki byggingarnefndar. Einkum skal benda á, að við að breyta giuggumhúsa, t.d. fella niður pósta.breyta þau oft mjög um svip, og ber þvl skýlaust að sækja um leyfi til þeirra breytinga. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu byggingar- fulltrúa, Skúlatúni 2, 2. hæð. Byggingarfulltrúinn i Reykjavik. Vélritarar Viljum ráða vana vélritara, ekki unnið á vöktum. Gott kaup. Uppl. hjá verkstjóra, ekki i sima. Prentsmiðjan Oddi hf. Bræðraborgarstig 7. Nauðungaruppboð, annað og síðasta á hluta i Rjúpufeili 46, þingl. eign Gisla Garðarssonar fer fram á eigninni sjálfri föstudag 23. apríl 1976 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nouðungaruppboð, annað og siðasta á hiuta i Hjaltabakka 28, talinni eign Skafta Guðjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudag 23. april 1976 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð, annað og siðasta á hluta I Ferjubakka 4, talinni eign Jó- hanns Þorsteinssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudag 23. april 1976 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik Miðvikudagur 21. april 1976 vism Laugarásbió ..Jarðskjálftinn” Bandarisk, 1975. Ungur jarðsk jálf ta- fræðingur spáir því að innan skamms muni ógurlegur jarðskjálfti verða i Los Angeles, sem valda muni ægilegu tjóni og drepa fjölda manns. Hann vill að fólki verði tilkynnt um þetta og það flutt umsvifalaust á brott. Viðbrögð annarra manna eru sein, þeir trúa þessum unga manni varla og óttast auk þess að ofsahræðsla grípi um sig, sem valdið geti enn meiri óskunda en jarðskjálfti sem engin trygging er fyrir að verði. Skömmu síðar verður kippur, sem mælist 9,9 stig á richter- kvarða. Brýr brotna, hús hrynja og fólkið veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hamfarirnar eru hrikalegar og sérstaklega vel gerðar, það er sjaldnast að augað greini, hvernig tækninni er beitt til að skapa þessar hamfarir. En einn galli er þó á þvi að sjá myndina hérna og það er vönt- unin á lágtiönihátölurum, sem hafa framkallað titring I kvik- myndahúsum erlendis og segja mér fróðir menn, sem séð hafa Stóru hraðbrautirnar i Los Angelcs hrynja og sprungur myndast i jörðina um leið og borgin jafnast við jörðu I jarðskálfta sem er 9,9 stig á richterkvarða. JARDSKJALFTIl myndina erlendis að áhrif þau sem hún hefur á kvikmyndahús- gesti hér, séu ekki nándar nærri þau sömu og erlendis. Þessa hátalara var hægt að fá leigða, en leigan var Laugarásbiói of- viða. Auk hamfaranna fylgjast menn með nokkrum einstak- lingum i Los Angeles, hvernig þeir bregðast við skjálftunum og alls konar vandræðum þeirra i einkallfinu sem magnast við hvern kipp. Þekktir leikarar fara þar með aðalhlutverk og ferst það vel úr hendi, sérstak- lega Ava Gardner, sem leikur sálsjúka, kokkálaða eiginkonu. 1 '■■% Ofsahræðsla gripur um sig með- al ibúanna en menn reyna að bjarga eigin skinni. A þessari mynd sést þegar fólk I stórri skrifstofubyggingu reynir að komast út úr henni. Allir bjarg- ast úr húsinu, enda Chariton I Heston sem sér um björgunar- y aðgerðirnar. Þó finnst undirriluðum myndin gjalda þess söguþráðar sem | spunninn er I hana, hún hefði | orðið raunverulegri ef meiri I heimildarmyndarstíll hefði ver- j ið á henni og leikarar ekki eins þekktir. En kaninn tekur enga áhættu, þegar óhemju verðmæti e.r um að tefla og til þess að koma i veg fyrir það að myndin seljist ekki eru þessir frægu leikarar notaðir til að laða að \ menn. Eins og allir vita er Jarð- skjálftinn eða Earthquake ein þeirra hamfaramynda, sem svo vinsælar uröu á siðustu árum, mynd i sama flokki og Poseidon, , Jaws og Towering Inferno, sem enn er ósýnd hér en verður væntaniega innan skamms á boðstólum. Að öllu samanlögðu á Jarð- skjálftinn allt gott skilið og fær þvi þrjár stjörnur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.