Vísir - 21.04.1976, Page 6

Vísir - 21.04.1976, Page 6
Miövikudagur 21. april 1976 vxsm Umsjón: Guömundur Pétursson Kamal Junblatt, leiðtogi vinstri manna i Líbanon, varaði hægrimenn við þvi á blaðamannafundi í gær, að annaö hvort kysu þeir frið, eða stæöu augliti til auglit- is við byltingu. brátt fyrir yfirlýst vopnahlé i BeirUt. hai'a bardagar milli hægri og vinstri öfgaafla haldið áfram. A.m.k. 113 manns voru drepnir eða fundust dauðir á götum borg- arinnar i gær. brjár vikur eru nú siðan vopnahléi var lýst yfir. Junblatt spurði hvers vegna Franjieh forseti hefði ekki enn gefið yfirlýsingu um að segja af sér emba'tli forseta. t>á gaf Jun- blatt i skyn að forsetinn, hægri- menn og leyriiþjónustur annarra landa. jrar á meðal Israel, gætu verið að undirbúa að skilja við forsetaembættið i rúst, og landið á barmi glötunar. Junblatt sagði að vinstrimenn mundu notfæra sér slikt ástand, og lýsa yfir nýju stjórnkerfi i Libanon. ..Hægrimenn verða þvi nú að velja milli friðar og byltingar” sagði Junblatt, án þess þó að skýra nánar hvers konar byltingu hann ætti við. Hann hefur þó áður sett fram hugmyndir sinar um úrbætur. bær felast m.a. i breyt- ingum á skiptingu valdáembætta milli trúarbragðahópa. SPRENGDU VÍNBÚÐINA Sprengja sprakk í gærmorgun í þeirri frægu vinbúð „Dixie" í Jacksonville í Flórída. Svo öflug var spreng- ingin, að ekkert stóð uppi eftir af útveggjum utan blá- hornið, sem sést hér á myndinni. Brak og glerbrot þöktu götuna margar húslengdir til hverrar áttar. Portúgalskir kommúnistar sigurvissir Alvaro Cunhal, leið- togi portúgalskra kommúnista, ávarpaði 45 þúsund manna úti- fund i Lissabon i gær- kvöldi og hvatti til þess að menn sameinuðust um að kjósa kommún- ista i þingkosningunum næsta sunnudag. Sagði hann þaö einu leiðina til þess að koma á vinstrisinnaöri meirihlutastjórn. Um leið gagn- rýndi hann stefnu jafnaðar- manna. t kosningaundirbúningnum hafa kommúnistar lagt allt kapp á að vinna meirihluta i þinginu, minnugir ósigranna i kosningun- um i fyrra, þegar jafnaðarmenn fengu flest atkvæði. Búist er við að jafnaðarmenn missi eitthvað af sinu fyrra fylgi i þessum kosningum. Hafa þeir lýst þvi yfir, að þeir muni fara i stjórnarandstöðu, ef þeir fá ekki hreinan meirihluta, sem dugi tii þess að mynda stjórn án annarra flokka. Danir lána egyptum til að kaupa vélar Anker Jörgensen, forsætisráð- lierra Panmerkur, er á förum i dag i fimm daga heimsókn tii Kgyplalands, þar sem hann mun hitta að máli Anwar Sadat lorseta. Sadat forseti mun gera Jörgensen grein fyrir, hvernig háttar nú til með sambúð egypta og sovétmanna og hver sé vilji kairóstjórnarinnar til friðar- samninga við ísrael. Jörgensen mun undirrita samning um 40 milljón danskra króna vaxtalaust’ lán rikissjóðs dana til egypta. — Danir hafa áður lánað þeim þrfvegis samtals um 110 milljón danskar krónur eða 3080 milljónir ísl. kr. Féð rennur til kaupa á dönskum vél- um til iðnaðar egypta. Skattar Fords Gerald Ford bandarikjafor- seti greiddi 42% af tekjum sin- um 1975 i skatta til Michigan- rikis, þar sem hann hefur lög- heimili. bað eru sömu skattar og hann greiddi árið, sem Richard Nixon sagði af sér og Ford varð forseti. — Skattarn- ir eru dregnir jafnharðan af kaupi hans (200 þúsund doll- urum og risnu (50 þúsund doll- urum). Kodúkmyndavél sem framkall- ar samtímis Eastman Kodak-fyrirtækið hefur nú eftir sjö ára tilraunir og rannsóknir, sem hin mesta leynd hefur hvilt yfir, komiö fram með nýja myndatökuvél, sem framkallar lítmyndir samtimis. — Er þetta fyrsti raunverulegi keppinauturinn, sem Rotaroid-Land mynda- vélin eignast. Kodak-vélin, sem vinnur eftir svipuðum lögmálum og Polaroid. tekur litmyndir, sem siðan framkallast utan vélarinnar á örfáum minút- um. — Myndavél þessi verður fáanleg i Kanada i næsta mánuði og i Bandarikjunum i júni. ódýrasta gerð hennar mun kosta 53.50 dollara. Páskablessun Páls páfa Að venju á páskadag söng páfi messu á Péturstorginu i páfa- garöi. Eftir messu birtist Páll páfi á svölum Péturskirkju og blessaði mannsafnaðinn, en tugir þúsunda höfðu hlýtt á messu páfa.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.