Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 21

Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 21
m visra Miövikudagur 21. april 1976 s 21 KM • Ur kveri jóns Jacobssonar, * . V” ,. 1 sem gefið var út árið 1920 Om umrœðuefni Það mun þykja kyn- legt, að menn skuli geta komist i þrot á viðræðuefni innan um allan þann aragrúa af samtalsef num sem bókmentir, vis- indi, listir og daglegt lif hafa upp á að bjóða, en samt er það svo, enda er ,,svo margt sinnið sem skinnið,” og það er einmitt eitt aðalein- kenni góðrar um- gengnisgáfu að hafa giögt auga á, hvað sér- hverjum henti bezt i samtali og viðræðum. Fjölhæfi og fróðleiks- fýsn eru ágætir eigin- leikar, sem koma i beztu þarfir i þessum efnum, þvi að af öllu má of mikið gera, og þótt það sé ágætt að vera góður búmaður, visindamaður, skáld o.fi., þá getur þó orðið hvimleitt að heyra menn jafnan vera að tala um sjálfa sig og sin áhugamál. Hrókaræð- ur i veizlum eða viðtali um búnað eða visindi, listir, skáldskap eða stjórnmál geta verið góðar, þarflegar og skemtilegar, þegar menn eru i sinum hóp, en afar svæfandi og hjáleitar innan um fólk, þar sem hver er af sinu sauðahúsi, eða menn jafnvel fráhverf- ir þvi, sem um er talað. Það hlýtur t.d. að hafa verið dauf skemtun fyrir vesalings vinnu- fólkið á prestsetrinu hérna um árið, þegar blessaður sveita- presturinn var að þylja upp fyrir þvi latnesku málfræðina hans Mad- vigs — þvi til skemtun- ar á vökunni! Fjölhæfir, liprir og smekkvisir menn munu jafnan geta fund- ið eitthvert það umtals- efni, sem henti þeim, er þeir eiga tal við i þann og þann svipinn, enda er úr mörgu að velja, svo eru þau mörg orðin viðfangsefnin i mann- legu lifi, og svo hrað- fleygar fréttirnar úr veröldinni, að eitthvað af þvi hlýtur flesta að fýsa að heyra, sem ekki eru andlegir þorskar, tildurdrósir eða mold- vörpur. Þau umtalsefni eru til, sem varlega skal með fara, svo sem stjórnmál og einkum trúmál, menn eru oft svo logheitir i stjórn- málaskoðunum sinum, að tæplega er nærri þeim komandi, svo að ekki kvikni i þeim, og um trúmál ætti helzt aldrei að ræða i sam- kvæmum. þvi( að þau eru mörgum 'svo við- kvæmt og hjartfólgið atriði, að litið ógætilegt orð getur oftlega orðið að þitrum og særandi brandi. í viðræðum kemur sér vel að vera sem viðlesnastur og fjöl- fróðastur. Þeir, sem vilja bera af öðrum i viðræðum og um- gengni, ættu þvi að kynna sér sem bezt góð blöð og einkum fræð- andi timarit almenns efnis, með þvi að á mannfundum ber margt á góma, sem gott er að bera eitt- hvert skynbragð á, og ,,oft er sá i orðum nýt- ur, sem iðkar mentun kæra, en þursinn heimskur þegja hlýtur, sem þrjózkast við að læra,” og „forsiglaðir” munnar verða leiðin- legir, þegar til lengdar lætur. Hæfilegur stutt- leiki i orðum og and- svörum með skýrleik i máli er perla — hnoss, sem er þvi miður alt of fáum gefin, enda þarf sérstaka gáfu og mikla mentun til að koma sem allra mestu efni fyrir i sem allra fæst- um og þó vel völdum orðum. En það eitt er ekki nægilegt, að kunna að vekja athygli manna á orðum sinum. Menn verða einnig að temja sér að hlýða með at- hygli á tal annara, einnig þótt þeir telji sig það engu varða, þvi að eftirtekt er bæði kurteisisskylda, og svo aflar hún einnig vin- sælda. Barnastjarnan er að verða að stórstjðrnu Hayley Mills var einu sinni björt barnastjarna. Heittelskuð um allan heim, en þó sérstaklega hjá þeim í Walt Disney kvikmyndaverinu, því þangað velti hún aðskilj- Hayley MillS' meö soninn rjirictian anlegum milljónum doll- ara. Hún þótti strax í æsku góð leikkona og átti ekki langt að sækja það, því hún er dóttir hins á- gæta breska leikara John Mills. En jafnvel barna- stjörnur vaxa úr grasi og nú er Heyiey orðin hús- móðir og mamma með | öllu tilheyrandi. Hún | hefur þó ekki lagt Ieik- | listina á hilluna og gengur i ekki síður vel en þegar | hún var yngri að árum. Hún hefur leikið í fjölmörgum kvik- myndum og leikritum' og þykir á leið með að verða' frábær í dramatískri túlkun. — i— ...og á yngri árum meöan hún hakkaði i sig kleinuhringi fyrir framan kvikmyndavélar Walt flisney. . 7 lítra r á 100 km Þetta er ekkert sérstakt tilboS, heldur eðlileg benzíneyðsla á 50 ha SSOLF sem keyrður er á leyfilegum hámarkshraða á sæmilegum vegi, en ef þér akið í borgarumferð þá er eyðslan um 8 I. er ekki aðeins sparneytinn, hann er rúmgóður 5 manna bíll með stórt farangursrými og stórar lúgudyr að aftan. BSOLF er með diskahemla að framan, Radial dekk, hita í afturrúðu, rafknúna rúðusprautu. öryggisgler, Rúllu-öryggisbelti, höfuðpúða á framsæti, hlífðarpönnu undir vél, sterkari höggdeyfum, þvottekta leðurlíki á sætum, hurðaspjöldum og toppi. £SO£Fþarf aðeins eina uppherzlu á ári eða við 1 5 þús. km. akstur. Nú er það SSOLÉF, sem slær í gegn. /Ov HEKLAhf Laugavegi 1 70—172 — Simi 21240

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.