Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 21. april 1976 vísm Sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur með ýmsu móti Sumargjöf og skátar sameina krafta sína Ilátiðahöid Barnavinafclags- ins Sumargjafari tilcfni sumar- dagsins fyrsta verða að þessu sinni i samvinnu við skátafélög- in i Reykjavik. Verður dagskrá- in þvi nokkuð frábrugðin þvi sein verið hefur undanfarin ár. Farið verður i skrúðgöngur frá fjórum stöðum i borginni og munu skátar verða i broddi fylkingar i þeim öilum. Cti- skemmtanir verða við Austur- bæjarskóla og inniskemmtanir i Fellahelli, Árbæjarskóla og Austurbæjarbiói. Skrúðgöngur: Kl. 10:15 Gengið verður frá gatnamót- um Álftabakka og Stekkjar- bakka að Breiðholtsskóla, en þar verður skátamessa kl. 11. Lúðrasveitir Arbæjar- og Breið- holtsskóla og Lúðrasveit verka- lýðsins leika fyrir göngunni. A skátamessunni mun Páll Gisla- son, skátahöfðingi, predika og séra Lárus Halldórsson þjóna fyrir altari. Einnig verður skátamessa i Neskirkju og mun ská'tafélagið Ægisbúar fara i skrúðgöngu um hverfið fyrir messuna. Kl. 13:00 Gengið verður frá Hólahring að Fellaskóla. Framfarafélag Breiðholts III og iþróttafélagið Leiknir sjá um gönguna ásamt skátafélaginu Haförnum. Kl. 14:00 Gengið verður frá Sjómanna- skólanum um Stakkahlið, Flókagötu og Egilsgötu að Austurbæjarskólanum og Kl. 14:15 verður gengið frá Hljóm- skálagarðinum um Sóleyjar- götu, Hringbraut og Barónsstíg að Austurbæjarskólanum. Fyrir þessum tveim skrúðgöngum munu Lúðrasveit Reykjavikur, Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitir Arbæjar- og Breiðholtsskóla leika. Útiskemmtanir: Skátafélögin i Reykjavik verða með s.k. Tivolidag við Austurbæjarskólann og hefst hann um kl. 15. Einnig verður þar leikvöllur fyrir yngri börnin og St. Gerogsgildið verður með kakó- og pönnukökusölu á svæð- Kl. 16:30 heldur St. Georgsgildið kvöld- vöku við Austurbæjarskólann og verður hún með skátasniði. Inniskemmtanir: 1 Fellahelli sýnir Leikbrúðu- land tvö leikrit um meistara Jakobkl. 15:00. Sýningin verð- ur svo endurtekin i Arbæjar- skóla kl. 16:00. Nemendur úr Fósturskóla Is- lands halda barnaskemmtun i Austurbæjarbiói og hefst hún kl. 13:30. Börnin komast á hest- bak Hestamannafélagið Fákur verður með hesta á athafna- svæði sinu við gamla skeiðvöll- inn milli kl. 3og 4 siödegis. Þá fá börn 10 ára og yngri að skreppa á hestbak. Loks má geta þess að Sumar- gjöf verður að venju með merkja- og fánasölu á sumar- daginn fyrsta. Verða merkin og fánarnir afhent sölubörnum i barnaskólum borgarinnar um morguninn. _ sj. Ákvörðunin byggð á samþykkt loftskeyta manna sem gerð var fyrir rúmum mánuði „Það er varasamt aö veita nokkrar undanþágur varöandi viöskipti viö bresku skipin viö landiö og maöur veit ekki hvaö geturfylgtá eftir,"sagöi Bjarni Haröarson. loftskeytamaður hjá Siglufjarðarradfói I gær, er hann var spurður um ástæöur þess að hann neitaöi blaöa- manni Vísis scin er um borö i brezku freigátunni Gurkha um þá þjónustu aö fá aö senda fréttapistil i gegnum loftskeyta- stööina til blaösins. ,,Ég tók þessa ákvörðun i morgun i samræmi við sam- þykkt sem loftskeytamenn hér gerðudyrir rúmum mánuði um að neita breskum togurum og aðstoðarskipum þeirra um þjónustu hér", sagði Bjarni. Fréttamaður Visisr spurði hvort ekki horfði öðru visi við þegar i hlut ætti fulltrúi islensks fjölmiðils sem áður hefði verið um borð í islensku varðskipi til þess að lýsa landhelgisstriðinu okkar megin frá og væri nú að kynna hér hina hlið málsins, heldur en ef þarna hefði verið um að ræða aðstoð eða upp- lýsingamiðlun til bretanna úr landi. Bjarni kvað þetta auðvitað vera matsatriði, en aö svo komnu máli teldi hann vera rétt að neita þeirri þjónustu sem Visir hefði farið fram á. Simafulltrúinn sammála loftskeytamönnunum Þá ræddi Visir við Guðlaug Karlsson, simafulltrúa á Siglu- firði, og kvaðst hann stýðja samþykkt loftskeytamannanna og vera sammála Bjarna um að varlega yrðí að fara i að gera undantekningar um loftskeyta- þjónustu við bresku skipin. Hann sagði eirfnig að loft- skeytamenn á Siglufirði væru ekki einir um þá ákvörðun að sinna ekki almennri þjónustu við bretana, þvi að sviþaöar ákvarðanir hefðu verið teknar i Neskaupstað, Höfn i Hornafirði, tsafirði og Raufarhöfn. Hjá öðr- um strandstöðvum hefði hins vegar ekki náðst samstaða um málið. Simstöðvarstjórinn andvigur ákvörðuninni Haukur Jóhannesson, stöðvarstjóri Pósts og sima á Siglufiröi sagðist hafa komiö samþykkt ioftskeytamannanna á framfæri viö yfirmenn sina þegar eftir aö hún hefði verið gerð, en sér hefði ekki verið til- kynnt um afstöðu Pósts- og simamálastjóra til málsins. Aftur á móti kvaöst hann per- sónulega vera andvigur þessari ákvörðun loftskeytamannanna og taldi hana i raun ekki hafa neitt gildi, þar sem ekki væri full samstaða meöal loftskeyta- manna hjá öilum stöðvum landssimans um máliö. Stöðvarstjórinn sýndi frétta- manni Visis ályktunina sem undirmenn hans gerðu 11. mars s.l., en þar segir að starfsmenn loftskeytastöðvarinnar TFX teiji ekki rétt að veita breskum togurum þjónustu á Siglufirði á meðan þeir brjóti islensk lög „nema i neyðar- og öryggistil- felium”. Þá segir þar að sama gildi um aðstoðarskip togar- anna og segjast loftskeyta- mennirnir einungis munu sinna öryggis- og neyðarviðskiptum við þessi skip frá 12. mars 1976. Beðnir að endur- skoða afstöðu sin Guðlaugur Karlsson, sima- fuiltrúi, sagði að hringt hefði verið til sín frá Gufunesradiói eftir að fréttst hefði um að blaðamanni Visis i bresku frei- gátunni hefði veriö neitaö um fyrirgreiðslu hjá loftskeytastöð- inni á Siglufirði og verið mælst til þess að siglfirðingarnir endurskoðuðu afstööu sina. Þeir hyggðust ræða málið, en ólik- legt væri að þeir skiptu um skoðun. Tvisvar valdið bretum erfiðleikum undanfarið Er Bjarni Harðarson, loft- skeytamaður, var að þvi spurð- ur hvort á samþykktina heföi reynt gagnvart þjónustu við breta að undanförnu, sagði hann að tvisvar sinnum vissi hann til þessaðorðiðhefði aðsenda skip til Bretlands af íslandsmiðum vegna þess að ekki hefði verið hægt að fá leiðbeiningar varð- andi viðgerð i gegnum islenska loftskeytastöð. Hins vegar hefðu verið gerðar undantekningar um þjónustu við breskt að- stoðarskip á dögunum þegar það hefði tekið þátt i björgunar- aðgerðum vegna norsku sel- veiðiskipanna sem föst voru i is norður af landinu. „i lagi þótt breskar strandstöövar hætti þjónustu við islensk skip” Þá spurði Visir þá Guðlaug og Bjarna hvort þeir teldu ekki að það gæti komið sér illa fyrir is- lenska sjómenn og íarmenn ef loftskeytamenn hjá strand- stöðvum á Bretlandseyjum hættu að veita þeim þjonustu. Þeir töldu það ekki mundu valda erfiðleikum og sagði Bjarni i þessu sambandi að hann hefði haft tal af loftskeyta- mönnum á þeim flutningaskip- um sem mest sigldu frá Islandi til Englands og teldu þeir það vera ,,allt i lagi þótt breskar loftskej'tastöðvar hættu þjón- ustu við islensku skipin. Þau gætu auðveldlega náö sambandi við önnur lönd, eins og t.d. Þýskaland." -OR/SJ Atvinnuleysi hjá múrurum „Atvinnuhorfur múrara á næsta vetri eru ennþá verri en þær voru s.l. haust. Þó hafa um 20% af félagsmönnum Múrara- félags Reykjavikur verið at- vinnulaus meiri hluta vetrar, eða milli fimmtfu og sextiu manns,” sagði Kristján Haraldsson formaður múrara- félagsins i viðtali viö Visi. „Astæðurnar eru þær að lóða - úthlutunum hefur fækkað mjög verulega, og einnig hefur verið dregið úr öllum opinberum framkvæmdum. Við höfum óskað eftir þvi við borgaryfirvöld og riki að úr þessu verði bætt með þvi að flýta frágangi lóða til bygging- ar. Möguleikar eru á að lóðum i Hólahverfi verði flýtt, þannig að það skapi atvinnu fyrir múrara næsta vetur. Við höfum einnig óskað eftir þvi að flýtt yrði fjármögnun til úthlutunar húsnæðismálalána og að geðdeild Landspitalans og fleiri bygginar fengju þá fjár- mögnun að unnt væri aö hefja múrvinnu. Ennþá er allt óljóst i þessum málum, að visu verður ástandið nokkuð gott i sumar, en næsti vetur er ennþá mjög óálit- legur,” sagði Kristján Haralds- son. —EB SUMARBINGÓ Multiple Sclerosis félag íslands heldur bingó i Sigtúni á sumar- daginn fyrsta (á morgun) kl. 20.30. Húsið opnaðkl. 19.30. Meðal fjölda glæsilegra vinninga eru ferðir til sólarlanda, fjöl- breyttar innanlandsferðir, ferðabúnaður, rafmagnstæki, mynda- vélar, vatnslitamynd, sjónvarpsborð og margt, margt fleira. Allur ágóði rennur til tækjakaupa i endurhæfingarstöð Sjálfs- bjargar að Hátúni 12 i Reykjavik. Multiple Sclerosis félag íslands

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.