Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 24
VISIR Miövikudagur 21. april 1976 Símsvarinn gefur allar upplýsingar um skíðalönd- in og fœrðina Heilisheiðin var ekki alltaf sem best yfirferðar um hátiðarnar og var þvi mikið hringt i vissa aðila til þess að forvitnast um færðina og skiðalöndin. Nú þarf fólk hins vegar aðeinsaðhringja á einn stað, sem gerir þvi hlutina öllu auðveldari, ef fara á upp i skiðalöndin. Komið hefur verið upp sim- svara sem gefur allar upp- lýsingar um skiðalöndin, færðina og allt sem fólk þarf að vita. Og siminn er 85568. — EA Saknað síðan 8. apríl 23ja ára gamals manns, Kristófers Óskars Baldursson- ar, hefur verið saknað frá þvi 8. april. Hefur ekkert til hans spurst siðan. Kristófer mun aðallega nota nafnið Óskar Baldursson. Hann býr i Torfufelli 35. Siðast þegar vitað var um hann mun hann hafa verið klæddur bláleitum mittisjakka og var i brúnum ökklaháum reimuðum skóm. Hann er 186 cm á hæð með skollitað stutt hár. Þeir sem einhverjar upplýsingar gætu gefið um ferð- ir Óskars eru beðnir um að snúa sér til rannsóknarlögreglunnar i Reykjavik. — EA Á slysadeild eftir órás manns síns Kona var flutt á slysadcild i nótt eftir að hafa orðið fyrir árás eiginmanns sins. Reif hann utan af henni fötin og mun siðan hafa slegið hana i andlitið. Konan var nefbrotin og fleiri áverkar voru á andliti hennar. Ekki náðist til manns- ins. _EA Átök við skemmti- staðina Það er ekki ósjaldan sem til átaka kemur við skemmtistaði. Það henti I gærkvöldi i Klúbbn- um og við Þórskaffi. I Klúbbnum lenti dyravörður i átökum við gest hússins, og urðu skemmdir á fötum dyra- varðarins. Ekki munu hafa orð- ið nein meiðsli. Við Þórskaffi lentu tveir i átökum. ölvun var i spilinu, og var annar fluttur i fanga- geymslur. — EA Þessa mynd tók Jim i morgun þegar verið var að landa úr Hjörleifi. FYRSTA LÖNDUN TOGARA A GRANDAGARÐI Hjörleifur landaði þar í morgun „Þessi fyrsta iöndun Hjörleifs markar timamót að þvi leyti að þetta er I fyrsta skipti sem fiski- skip landar I vesturhöfninni” sagði Ragnar Júliusson, for- maður útgerðarráðs Bæjarút- gerðar Reykjavikur, i samtali við Visi i morgun, en þá var ver- ið að landa i fyrsta skipti úr hin- um nýja togara Bæjarútgeröar- innar, Hjörleifi. „Bæjarútgerðin hefur lagt áherslu á að fá Bakkaskemm- una til kældrar fiskmóttöku fyrir Reykjavik, þar sem hægt væri að landa fiskinum beint i hús i staö þess að flytja hann á milli með vörubilum. Með þvi móti mætti ná mun betri nýt- ingu úr þeim afla sem á land kemur. Við gerum okkur vonir um að fá skemmuna á næstu vikum. Það er unnið að þvi núna að rýma hana og flytja til þau kaupskipafélög sem hingað til hafa haft afnot af henni. Þá verður kominn grundvöllur fyrir þvi að vesturhöfnin verði framtiðarstaður fyrir togara og fiskiskip.” —SJ Óvissa í atvinnumálum siglfirðinga Öðru frystihúsinu lokað um mánaðamótin? Eigendur hraðfrystíhússins isafoldar, sem er annað stærsta atvinnufyrirtækið á Siglufirði, liafa ákveðið að hætta rekstri fyrirtækisins um næstu mánaðarmót, en hjá þvi hafa unnið 70-100 manns. Frystihúsið skortir hráefni og að sögn eigenda eru ástæðurnar þær að engar efndir hafa orðið á loforðum þingmanna norðurlandskjördæmis vestra og annarra ráðamanna um fyrirgreiðslu til skipakaupa, og einnig að stjórn Þormóðs ramma h/f hefur tekið ákvörðun um að láta ekki ísafold i té neinn hluta af afla skuttogara fyrirtækisins. Rikissjóður á mikinn meiri- hluta hlutafjár Þormóðs ramma, sem bæði stundar út- gerð og fiskvinnslu, og hafa ráðamenn þjóðarinnar þvi talið að þeir gætu ráðið nokkru um það hvernig rekstrinum væri háttað og hvaða stefna rikti varðandi ráðstöfun aflans, en stjórnin segist fyrst og fremst hugsa um eigin hag, og rekstrargrundvöll fyrirtækisins með þessari ákvörðun sinni. Er þvi allt i óvissu um framtið hraðfrystihússins Isafoldar og atvinnumöguleika þess fólks sem þar hefur starfað. Um þetta mál verður nánar fjallað i Visi á föstudaginn og þar kynnt þau sjónarmið sem komu fram i viðtölum frétta- manns Visis við talsmenn ísafoldar og Þormóðs ramma á Siglufirði. —ÓR/SJ Jarðskjálftamœlar umhverfis Vatnajökul „Okkur hefur vantað fleiri stöövar til að geta fylgst nægi- lega vel ineð jarðskjálftum i eystra gosbelti, frá Mýrdals- jökli norður i Mývatnssveit. Eins og er höfum við engan jarðskjálftamæli sunnan fjalla austar en á Kirkjubæjar- klaustri,” sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur hjá Raunvis- indastofnun lláskólans. ,,Nú er hafinn þriðji áfangi áætlunar um landsnet sem byrj- að var á árið 1973. I fyrri áföng- um voru settarupp mælistöðvar á suðurlandi og norðurlandi og nú á að bæta við mælum á suð-austurlandi. Það er áætlað að umkringja jarðskjálftasvæði Vatnajökuls i þessum áfanga. Vfeindanefnd Natolandanna hefur veitt styrk að upphæð 10.000 bandarikja- dala til tækjasmiði i þennan áfanga. Þetta er i þriðja sinn sem visindanefndin veitir styrk til þessarar starfsemi,” sagði Páll. Auk mælistöðvanna við Vatnajökul er i ráði að taka upp þrjár stöðvar á vestanverðum Reykjanesskaga og setja þær niður á austanverðum skagan- um til að staðsetja betur skjálftavirkni austan Kleifar- vatns, i Bláfjöllum og Hengli. Þá er ráðgert að koma upp stöð við Snæfellsjökul á þessu ári og senda merki hennar til Reykjavikur. Einnig er talið æskilegt að bæta við tveimur stöðvum á Suðurlandi, annarri nálægt Selfossi og hinni i ná- grenni Skarðs á Landi. -SJ Vörugjald eða söluskattur? - ÞINGFLOKKARNIR FÁ TILLÖGUR UM NÝJA SKATTLAGNINGU EFTIR HiLGI Stefnt mun að þvi að þing- flokkarnir geti eftir helgi tekiö til umræðu tillögur rikisstjórn- arinnar um nýja skattlagningu vegna aukinna útgjalda rikis- sjóðs. Engar upplýsingar hafa fengistum það, hversu mikið fé talið er vanta til þess að endar nái saman. Ný skattlagning mun fyrst og fremst fara til þess að standa undir auknum launaútgjöldum i kjölfar kjarasamninganna og auknum kostnaði við landhelg- isgæslu og hafrannsóknir. Sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem Vísir hefur fengið um mál þetta, hefur enn ekki verið metið tií fulls ,hversu mikið fé þarf i' raun og veru til Landhelgisgæslunnar og Hafrannsóknarstofnunarinn- ar. Umræður hófust um þessa nýju skattlagningu i rikisstjórn- inni fyrir páska — eins og Visir hefur áður greint frá. Talið er að þessi skattlagning verði að öllum likindum i formi vöru- gjalds eða söluskatts. Ákvarðanir um þetta efni munu að einhverju leyti haldast i hendur við ákvarðanir Seðla- bankans um hækkun vaxta, sem Visir greindi einnig frá fyrir páska. —ÞP

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.