Vísir - 21.04.1976, Side 7
SKOÐUN LURIES
mann
Leikarinn Richard Burton
hefur undirritað samning um
að leika i nýrri mynd um
særingamanninn , The
Exorcisl.
Samninginn við Warner
Brothers kvikmyndafélagið
undirritaði Burton i gær. Hann
kemur til með að leika aðal-
hlutverkið i nýju myndinni, á
móti Lindu Blair, sem lék
aöalhlutverkið i fyrri mynd-,
inni um særingamanninn, og
sýnd hefur verið hérlendis.
Nýja myndin á að heita:
,,The Heretic: Exorcist II”.
Þetta er fyrsta kvikmyndin
sem Burton leikur i eftir að
hafa um nokkurt skeið leikið á
sviði i New York, i leikritinu
Equus. Kvikmyndataka fer
fram i Bandarikjunum, Róm
og Afriku.
Svœfíngarlyfið
drap dýralœkninn
Breskur dýralæknir lét lifið,
þegar hann sprautaði sjálfan sig
óvart með svæfingarlyfi, sem
hann ætlaði að gefa hesti.
Atburðurinn átti sér stað i sið-
ustu viku. Dýralæknirinn Ian
Denley ætlaði að fara að gelda
fola. Þegar hann ætlaði að
stinga sprautunni með svæf-
ingarlyfinu i hann, fældist fol-
inn. Sprautan stakkst i staðinn i
siðu Denleys, og eitthvað af
svæfingarlyfinu Immobilon fór i
blóð hans. Denley mun hafa
hlaupið að bil sinum, til að ná i
móteitur. En hann var of seinn.
Lyfið var fljótt að verka, og er
talið að Denley hafi dáið á innan
við tveimur minútum. Hann
fannst látinn sitjandi i bil sin-
um, i aðeins seilingarfjarlægð
frá móteitrinu. Svæfingarlyfið
Immobilon er u.þ.b. 10 minútur
að verka á hesta, en mun skem-
ur á menn.
Einn verst klæddi maður ársins.
Burton á að
leika sœringa-
Mótmœli
á páskadag
Þúsundir gyðinga fóru i mót-
mælagöngu á páskadag um héruð
á vesturbakka Jórdanárinnar til
stuðnings kröfum um, að israels-
stjórn láti ekki landsvæðið af
hendi. Hægrisinnar efndu til
göngunnar, en yfirvöld i Israel
hafa oft átt erfitt með að hafa
hemil á þeim róttækustu til hægri,
sem stundum hafa numið land i
óþökk stjórnvalda á hernumdu
svæðunum.
i
Rœndu 335 mffljónum
f veðbanka f Ástralfu
Sex ræningjar
vopnaðir vélbyssum
ruddust inn i veðbanka i
Melbourne i morgun,
þegar greiða átti út
veðmálavinninga
páskakappreiðanna. —
Höfðu þeir á brott með
sér á milli 1,5 og 3 millj.
dollara (um 335 til 670
millj. isl. kr.).
Lögreglan setti upp vega-
tálma við allar leiðir, sem liggja
út úr borginni, en þetta mun
vera stærsta rán, sem framið
hefur verið i Astraliu.
Ræningjarnir, sem voru með
grimur, fóru upp á aðra hæð
veðbankans til þess að sækja
peningana, en þegar þeir fóru,
tóku þeir lyftuna úr sambandi,
og varö þeim ekki veitt eftiríör
fyrst um sinn. — Vegfarendur
lirðu einskis varir.
1 veðbankanum voru um
fjörutiu manns, sem ræningj-
arnir héldu i skefjum, meðan
þeir sópuðu saman pening-
unum. óvenjumikið fé var i
bankanum þennan dag, þvi aö
þrennar kappreiðar voru yfir
páskahelgina og átti að gera
þær allar upp i dag.
Skipuðu ræningjarnir öllum
að leggjast i gólfið, hirtu seðla-
búntin og stungu þeim i sekki,
en slitu siðan alla sima úr
sambandi, áður en þeir fóru
niður i lyftunni. — Hótuðu þeir
að skjóta hvern þann, sem sýndi
mótþróa eða reyndi að veita
þeim eftirför.
Rrftun samnings
þjónar aðeins
flugrœningjum
— segir utanríkisráðuneytið bandaríska
Utanrikisráðuneyti Banda-
rikjanna svaraði i gær
yfirlýsingu Castros forsætisráð-
herra Kúbu, um að hann mundi
rifta samningi um varnir gegn
flugránum, ef ekki yrði hætt að
ráðast á kúbanska fiskibáta.
Utanrikisráðuneytið sagði að
slikt þjónaði engum nema
alþjóðlegum hryðjuverka-
mönnum.
Ráðuneytið sagðist hafa full-
vissað Kúbu sl. föstudag um að
rannsókn á árásinni á kúbanska
fiskibátinn væri i fullum gangi.
Enn hefur þó ekki sannast
hverjir voru að verki. Samtök
kúbanskra útlaga, með aðsetur i
Bandarikjunum, hafa lýst sök-
inni á hendur sér.