Vísir - 22.05.1976, Síða 3
vism Laugardagur 22. mal 1976
3
Þannig fœrðu
hœrri vexti!
Nokkuð hefur á því
borið eftir að innláns-
vextir voru hækkaðir að
fólk áttar sig ekki á þvi,
að til þess að fá 22%
vexti af eins árs bók,
þarf það að verða sér úti
um svonefndan vaxta-
aukareikning.
Siguröur Gústafsson, yfir-
maður sparisjóðsdeilda i Lands-
bankanum, tjáöi Visi að nokkrir
teldu að ef þeir ættu ársbók gengi
það sjálfkrafa fyrir sig fyrir að fá
hina hærri vexti.
Svo væri þó alls ekki. Fólk
1
þyrfti að verða sér úti um stofn-
skirteini vegna vaxtaauka-
reikningsins. Siðan fengi það sent
heim reikningsútskrift likt og
gert er með ávisanareikning.
Reikningsútskriftin sýnir allar
hreyfingar á bókinni.
Astæða þess að þetta gengur
svona fyrir sig er meðal annars
sú að sögn Sigurðar að bankann
vantar nánari upplýsingar um
viðskiptamenn sina. Nefndi hann
sem dæmi að ekki hefði verið beð-
iðum nafnnúmer þó menn opnuðu
bók. Og i sumum tilfellum væru
bækurnar ekki skráðar á nafn,
heldur hétu þær eitthvað.
Siguröur sagði að þrátt fyrir
nefndan misskilning heföi ekki
borið á mikillióánægju viðskipta-
vina. — EKG
VESTFIRÐIR:
Vertíðin svipuð
og síðasta ór
Vertiðaraflinn i Vest-
firðingafjórðungi var
mjög svipaður i ár og
hann var i fyrra. Fram
til 11. mai, lokadags-
ins, höfðu komið á land
á Vestfjörðum 27.142
lestir, 128 tonnum
meira en i fyrra.
Þessivertíð var mjög hagstæð
fyrir linubátana á Vestfjörðum.
Heildarafli þeirra að þessu sinni
varð rúmar 12 þúsund lestir eða
um 45% vertíðaraflans. Til
samanburðar má þess geta að i
fyrra var línuaflinn tæp 9.700
tonn. Eins og fram hefur komið
áður i Visi I samtali við einn
skipstjóra lmubáts frá Vest-
fjörðum, var þetta ein jafnbesta
llnuvertiðin um áraraðir.
Afli togara á Vestfjörðum
dróst saman um þúsund tonn,
miðað við i fyrra. Heildarafli
togarana var nú 10,900 lestir,
sem er um 40% vertiðaraflans.
Sömu sögu er að segja um
netaaflann. Hann dróst einnig
saman og var að þessu sinni tæp
fjögur þúsund tonn.
Aflahæsti togarinn á Vest-
fjörðum á þessari vertíð varð
Guðbjörg með 1.798 lestir, af
linubátum varð Kristján Guð-
mundsson aflahæstur með 797
lestir og Garðar aflahæstur
netabáta með 971 tonn.
Gæftir voru nokkuö sæmileg-
ar á vertiðinni. En eins og vlðast
annars staðar á landinu lágu
róðrar niðri vegna verkíallsins.
—EKG
STYRKJA GÆSLUNA:
Nafn sjóðsins
er Hliðskjálf
„Helga Larsen kom til
mín með hugmynd að
þessum sjóði í mars
siðastliðnum. Tími hefur
þó ekki gefist fyrr en
núna til að ganga frá
formsatriðum í sambandi
við hann," sagði Selma
Júlíusdóttir þegar Vísir
hafði samband við hana
vegna sjóðs, sem stofnað-
ur hef ur verið til styrktar
Landhelgisgæslunni.
Selma er formaður sjóðsins
en varaformaður er Óskar Ind-
riðason. Ritari er Sveinbjörg
Guðmarsdóttir og gjaldkeri
Guðmunda Helgadóttir. Þær
Selma, Sveinbjörg og Guð-
munda eiga allar eiginmenn,
sem starfa á varðskipunum.
Meðstjórnandi er Bára Þórðar-
dóttir og mun hún hafa umsjón
með þvi að hugsanlegum fram-
lögum landsmanna verði vel
varið. „Laugardaginn 8. mai
stofnuðu vandamenn land-
helgisgæslumanna félagið Ýr og
mun það starfa með sjóðnum að
einhverju leyti,” sagði Selma
ennfremur.
Sjóðurinn hefur hlotið nafnið
Hliðskjálf. Dómarasæti óðins
bar þetta heiti til forna og er það
valið nú til samræmis við goða-
og gyðjunöfn skipa Landhelgis-
gæslunnar. Stofnendur sjóðsins
eru Helga Larsen á Engi sem er
75 ára að aldri og dótturdóttir
hennar Helga Bergmann, en
hún er aðeins 6 ára. Helga Berg-
mann er dóttir Siguröar Berg-
mann, háseta á Tý. Stofnfé
sjóðsins er 36 þúsund krónur.
Markmið hans eru að stuðla að
aukinni menntun allra land-
helgisgæslumanna i landhelgis-
gæslu og björgunarstörfum, og
betri aðstöðu og tækjabúnaði
fyrir Landhelgisgæsluna.
Tekjur sjóðsins veröa frjáls
framlög og fjáröflunarleiðir,
sem sjóðsstjórn hefur samstarf
um hverju sinni með hjálp
landsmanna. Stjórnarmenn
taka við framlögum og einnig er
þeim veitt móttaka i Sparisjóði
Vélstjóra, þar sem fé sjóðsins er
varðveitt.
— AHO
■
Sólskinsdagur á Islandi jafn-
ast á viö fimm annars staðar,
segja sumir. Það gerir vist tæra
loftið. Aðminnsta kosti fóru a 11-
ir sem vettlingi gátu valdið út I
blfðviðrið sem var i Reykjavik á
fimmtudaginn. Loftur tók þá
myndirnar hérna á siðunni i
Vesturbæjarlauginni, en þar
var þá fjöldi fólks að sóla sig.
Það voru jafnt austurbæingar
sem vesturbæingar, þvi að
Laugardalslaugin var lokuð
vegna viðhalds.
Nú vona allir að veðrið verði
eitthvað þessu likt um helgina.
Ef veðurfræðingarnir okkar
hafa rétt fyrir sér i þetta sinn,
eru þó ekki miklar likur á að
vonirnar rætist. Spáð er hægri,
austlægriátt með 8-10 stígahita
og skúraleiðingum.
— SJ/Ljósm: Loftur
Norrœn fiskmólaróð-
stefna hér ó landi
Norræn fiskimálaráðstefna
verður haidin hér á landi dagana
17. til 19. ágúst. Slikar ráðstefnur
eru haidnar annað hvert ár til
skiptis á Noröurlöndunum. Siðast
var slik ráðstefna haldin hér á
landi árið 1966.
Að sögn Þórðar Ásgeirssonar
skrifstofustjóra i Sjávarútvegs-
ráðuneytinu er búist við 150
manns erlendis frá. Þá er talið að
Islendingar sem ráðstefnuna
sækja geti orðið um 60. Þeir sem
sækja ráðstefnuna standa allir
framarlega i sjávarútvegi landa
sinna. Verður ýmist um að ræða
einstaka embættismenn, fulltrúa
samtaka innan sjávarútvegsins
og menn frá hinum ýmsu sjávar-
útvegsfyrirtækjum.
Ráðstefnan mun standa yfir i
þrjá daga frá 17. til 19. ágúst. Þó
ekki sé endanlega búið að ganga
frá öllum dagskráratriðum liggur
það fyrir að fyrsti dagurinn fer i
fyrirlestrahald. Þar á meöal
munu tveir Islendingar ræöa um
ástand Islenska fiskstofnsins og
nýtingu nýrra fisktegunda.
Aðrar norðurlandaþjóðir munu
leggja til einn eða tvo fyrirlesara.
Siðari tvo dagana munu siöan
starfshópar vinna að hinum ýmsu
verkefnum. — EKG
Nýr ritari
rithöfunda
Nýr ritari var kosinn á aðal-
fundi Félags islenskra rithöf-
unda, sem haldinn var 19.
þessa mánaöar. Gisli J Ast-
þórsson baðst undan endur-
kjöri og var Indriöi G. Þor-
steinsson kosinn i hans stað.
Að öðru leyti var stjórnin
endurkjörin og skipa hana nú
eftirtaldir.
Jenna Jónsdóttir formaður,
Indriði Indriðason gjaldkeri.
Meðstjórnendur, Sveinn
Sæmundsson og Ragnar Þor-
steinsson og varamenn þeir
Jón Björnsson og Þorsteinn
Thorarensen. —EKG