Vísir - 22.05.1976, Síða 7
7
vism Laugardagur 22. mal 1976
„Maður hrekkur nú bara IKCT við svona spurningu! ”
„Ég ætti kannski að fara að selja Visi” — Palla var boðið aö skoöa
Blaðaprent, þar sem verið var að prenta VIsi.
— Okkur finnst þú vera dálitið
skritinn, þú veist. Af hverju ertu
það?
„Ég skrítinn? Ég er sko
1 ekkert skrítinn. Mér f innst
sumtfólk skrítið, skrítnara
en ég. Til dæmis mamma
hans Óla. Hún segir að
konan uppi sé ferlegur
asni, og svo er hún alltaf að
bjóða henni í kaffi. Aldrei
býð ég ösnum í kaffi. Það
finnst mér sko að vera
skrítinn."
Veit allt um
fátœktina og
vondu kallana...
— Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Pulsur með öllu. Lika
kjúklingur með sósu og
ananas. Æðislegur hjá
Sirrí."
— Finnst þér Islenskir krakkar
hafa það gott?
,, Já, f lestir. En það er af
því að ég veit svo mikið um
heiminn. Þess vegna veit
ég allt um fátæktina og
vondu kallana, sem hugsa
ekkert um fólkið."
„Eina kellingu á Islandi
ætti sko að gera eitthvað
við. Það er kellingin sem
vildi ekki leigja konu íbúð,
af því að krakkarnir
hennar eiga svertingja
fyrir pabba. Svoleiðis
kelling er sko alger
sveppur."
„Ef ég hefði verið
vondur við krakka af því
að hann á útlendan pabba,
hefði mamma sko flengt
mig. En svona fullorðið
fólk, svei mér þá."
„Ég er rekinn í
háttinn svo
snemma..."
— Hvað ætlaröu að gera I
sumar?
,Pabbi ætlar að reyna að
koma mér í sveit. Ég sagði
honum að auglýsa bara
eftir sveitaplássi fyrir
sérlega stilltan og þægan
og þjóðkunnan dreng. En
hann vildi það ekki."
— Heldurðu að það sé
mögulegt að þú getir verið oftar I
sjónvarpinu?
„Það veit ég ekki.
Mennirnir í sjónvarpinu
ráða því. Einn heitir Jón
Þórarinsson. Hann býr líka
til lög. Spurðu hann."
— Hvað horfirðu helst á i
sjónvarpinu?
„Ég horfi eiginlega
ekkert á sjónvarp, ég er
rekinn í háttinn svo
snemma. Annars má ég
heldur ekkert vera að því.
Og Stundina okkar horfi ég
aldrei á. Ha, ha, ha."
„Les margt
stórmerkilegt
í Vísi"
— Hvað lestu I Vísi?
„Bara allt. Maður les
margt stórmerkilegt í Vísi.
Kona missir kjöt úr poka.
Maður lærbrotnar.
Slökkviliðið gabbað tvisv-
ar. Æsifréttir, maður
minn."
— Kanntu að synda?
„Maður hrekkur nú bara
i kút við svona spurningu."
— Hvert er uppáhaldsdýrið
þitt?
„Játvarður".
— Þú heitir Páll Vilhjálmsson
fullu nafni. Ertu skýrður I höfuðið
á einhverjum?
„Ég held að presturinn
haf i sett vatnið á höf uðið á
sjálfum mér, ha, ha, ha,
ha..."
Okkur fannst við hafa
tafið Palla nóg, enda sól og
besta veður úti, og Palli
kann ágætlega við sig í
slíku veðri. En einu vildi
hann bæta við:
„Veistu hvað Vísir og
Dagblaðið eru kölluð? Ha?
Stóri vísirinn og litli vísir-
inn."
„Heyrðu já, og ein
spurning enn: Er Vísir
frjálst og óháð blað?"
— EA