Vísir - 22.05.1976, Blaðsíða 11
VISIB
Popp á Lístahátíð
Hljómleikar meö islenskum
hljómsveitum og listamönnum
sem spila tónlist fyrir yngri kyn-
slóðina, verða haldnir á vegum
listahátíöar i júni. Búiö mun vera
að tala við Spilverk þjóðanna og
Paradls i þessu sambandi, og
bendir allt til þess að þær muni
koma fram á þessum hljómleik-
um. Talað var við Gunnar
Þórðarson, i þvi skyni að fá hann
til aö koma fram sem „solo art-
ist”, en hann sér sér ekki fært að
koma vegna anna i stúdiói.
Spilverk og Paradis
Visir hafði samband við Hrafn
Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóra listahátiðar, og bað hann
aö segja nánar frá tónleikunum
og undirbúningi þeirra. Hann
sagði eftirfarandi: „Viö hjá
Listahátiö erum búnir að útbúa
bráðabirgöadagskrá yfir listahá-
tið, og i henni er gert ráð fyrir
tónleikum meö tveimur islensk-
um hljómsveitum, einni „per-
formance”, eða upptroðslu-
grúbbu, og einni rokkhljómsveit,
ásamt einum tónlistarmanni, er
kæmi fram einn sér eða með að-
stoðarmönnum. Þar sem svo
miklar hræringar virðast vera i
Islenskum hljómsveitum, menn
að koma og fara og hljómsveitir
að hætta, þá byrjaöi ég ekki aö
undirbúa þessa tónleika að ráði
fyrr en fyrir um hálfum mánuði
siðan. Ég hef talað viö Spilverkið
og Paradis, og báðir aöilar hafa
tekið vel I að koma þarna fram”.
Allt frumsamið
,,Það munu að sjálfsögðu gilda
sömu reglur um þessa hljóm-
leika, og fyrir allt annaö efiii
listahátiöar, þær eru, aö það efni
sem listamennirnir flytja verður
allt að vera frumsamið og frum-
flutt á þessum hljómleikum. Ef
hljómsveitirnar veröa klappaðar
upp, og flytja aukalag, þá mega
þær vikja frá þessum reglum”.
Hrafn sagði ennfremur: ,,Það
er ætlunin, aö ásamt hljómsveit-
unum, verði atriöi þar sem um
einhvern einn velþekktan popp-
hljómlistarmann verður að ræöa,
og höfum viö rætt bæöi viö Gunn-
ar Þórðarson og Sigurð Rúnar
Jónsson, en hvorugur sér sér fært
að koma fram. Sigurður Rúnar
verður um það leyti, er hljómleik-
arnir veröa haldnir, á hljómleika-
ferðalagi i' Danmörku og vill ekki
sleppa þvi tækifæri”.
í Háskólabiói
Það er gott aö vita af þvi, að við
fáum tækifæri til þess að heyra
þessar ágætu hljómsveitir flytja
nýtt og frumsamið efni núna i
júni, en þess má geta, að hljóm-
leikarnir verða I Háskólabiói, svo
að fyrirsjáanlegt er að fljótt verð-
ur að seljast upp á tónleika er
bjóða upp á þetta gott efni.
—GSL
„Bölvuð
vitleysa"
— segir Birgir Hrafnsson um
grein um œvintýri Hauka
„Þetta er mjög bagalegt fyrir
hljómsveitina, og fólk fær al-
rangar hugmyndir um hvernig
feröin var. Það má segja að
hver einasta málsgrein sé
meira eða minna vitlaus”.
Birgir Hrafnsson var þungur
á brún þegar Visis spurði hann
um langa grein sem virtist I
einu dagblaðanna um ævintýri
hljómsveitarinnar Haukar, sem
spilaði á Spáni fyrir nokkru.
Birgir spilaði með hljómsveit-
inni sem gestur.
Greinin er byggð upp á viðtali
við rótara hljómsveitarinnar,
Randver Jónsson.
„Það er hægt að taka hverja
einustu málsgrein, og afsanna
alla þá vitleysu sem þar er að
finna.
1 viðtalinu viö Randa er sifellt
klifað á drykkjuskap en drykkja
var ekki meiri en gengur og ger-
ist f Spánarferöum. Frekar má
segja að hún hafi verið minni,
þvi við vorum aö vinna þarna,”
sagði Birgir.
„Sérstaklega er farið illa með
Kristján pianóleikara, og sagt
að hann hafi veriö rændur þegar
hann hafi legið sofandi úti á
strönd eftir næturlanga
drykkju.
Staðreyndin var hins vegar sú
að Kristján týndi passanum sin-
u, það var allt og sumt.
Þá er það hin megnasta þvæla
að Ferðamiðstöðin hafi ekki
staöið sig I stykkinu. Þvert á
móti. Við höföum ekkert að
kvarta undan henni og heyrðum
heldur ekki óánægjuraddir frá
öðrum. Auðvitað komu upp
smávægileg vandamál, en er
Haukar. Ljósm. VIsis: LÁ.
ó Spóni
það eitthvað óalgengt við
Spánarferðir?
Randi segir að ekkert hafi
verið á hreinu með hvar við átt-
um að spila, og skellir skuldinni
á Feröamiðstöðina. Þaðer bölv-
uð vitleysa i honum, þvi við
vissum alltaf að það lá ekki ljóst
fyrir hvar viö áttum að spila.
Randi kvartar einnig undan
að erfiölega hafi gengið fyrir sig
að fá hljóðfærin leyst út. Var
það nokkur furða, hann haföi
engin plögg meö sér og kunni
varla orð i ensku.”
Birgir sagði að hann gæti
haldið áfram að taka þannig
hvert einasta atriði fyrir, og
sýna fram á að rangt væri farið
með.
„Ég skil ekkert i Randa að
vera með þessa þvælu, eða
blaðamanninum aö vera að
skrifa hana. Blaðamaðurinn
ætti að þekkja aðstæður nægi-
lega vel til að vera ekki að hafa
þétta eftir,” sagði Birgir
Hrafnsson.
Engilbert Jensen
stjarnan á Húna-
versgleði Ámunda
Spilverks-
plata
Spilverk þjóöanna hefur lok-
ið við upptöku á efni sem setja
skal á stóra plötu. Væntanlega
mun sú plata koma út bráð-
lega.
Það óvenjulega við fram-
kvæmd á upptöku efnisins er
það, að upptökurnar tóku i
heild sinni ekki meira en tutt-
ugu tima, sem þykir mjög
stuttur ti'mi fyrir plötuupptök-
ur nú til dags. Mun þetta koma
til af þvi, að platan mun verða
að miklu leyti „live” þ.e. lögin
eru tekin upp aðeins einu sinni
i stúdióinu, hvert fyrir sig.
Spilverksmenn munu hafa
stefnt að þvi að ná inn á plöt-
una sérstakri stemmningu
með þessu móti. Gaman
verður að heyra hvort þeim
hefur tekist þetta þegar platan
kemur út. — GSL.
Engilbert Jensen
verður stjarna Húna-
versgleðinnar sem
Ámundi Ámundason
umboðsmaður heldur i
fjórða sinn i röð dagana
9., 10. og 11. júli nk.
„Þessar hátiðir hafa tekist
geysivel,” sagði Amundi þegar
við spjölluðum við hann.
„Ég stefni að þvi að fólk hafi
nóg af skemmtunum bæði á dag-
inn og kvöldin á þessari hátið. A
daginn verða útiskemmtanir og
iþróttir, en á kvöldin dansleikir
með skemmtikröftum og þekkt-
um hljómsveitum.”
Amundi sagði aö ekki væri búið
að fastákveða hvaða hljómsveitir
spiluðu, en Cabaret, Paradis og
Fress kæmu helst til greina.
„Svo verður hinn árlega fót-
boltakeppni milli minna manna
og keppinauta minna i bransan-
um. Við unnum siðast, en það gaf
ekki nógu góöa raun, þvi keppi-
nautarnir og áhangendur þeirra,
samtals 25 manns, þorðu ekki að
láta sjá sig á ballinu um kvöldið.
Þess vegna ætlum viö aö leyfa
þeim að vinna núna. En þú mátt
engum segja frá þessu.”
11
Auglýsing
í samþykkt borgarstjórnar um umhverfi
og útivist er áætlað að koma upp ýmiss
konar leiktækjum (t.d. minigolf) i skrúð-
görðum, eða á opnum ræktunarsvæðum
borgarinnar.
Þeir sem áhuga hafa á að koma upp og
starfrækja slík skemmtitæki eru vinsam-
legast beðnir að hafa samband við garð-
yrkjustjóra borgarinnar i Skúlatúni 2, 3.
hæð. Simi: 18000.
Borgarverkfræðingurinn i Reykjavík.
Skólavist í menntaskólum
Umsóknarfrestur um skólavist I menntaskólum og
menntadeildum næsta skólaár er til 10. júni n.k. AUar
umsóknir um menntaskólavist i Reykjavik skulu sendar
til Menntaskólans I Reykjavik, við Lækjargötu, en aðrar
umsóknir til viðkomandi skóla.
Tilskilin umsóknareyðublöö fást I gagnfræðastigsskólum
og menntaskólum.
Menntamálaráðuneytið, 18. mai 1976.
Lousar
Eftirtaldar stöður við fjármálaráðuneytið eru lausar til
umsóknar:
1. Staða launaskrárritara.
2. Staða fulltrúa við launadeild.
3. Staða fulltrúa við skjalavörslu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 1. júni n.k.
STILLANLEGIR
Útsogsventlar
i eldhús, böð og víðar
3 stœrðir
0 100 mm
0 150 mm
0 200 mm
Bíldshöföa 12
Símar: 36641 — 38375
HÚSEIGNIN
Sími 28370
3ja—4ra herbergja íbúðir
Geitland, Furugrund, Safamýri, Hraun-.
bær.
5 herbergja ibúð og stœrri
Flókagata, Barmahlíð, Holtagerði, Safa-
mýri, Sólvallagata.
Einbýlishús
Fokheld, Garðabær, Barrholt (Mosfells-
sveit), AAerkjateigur (AAosfellssveit).
Tilbúin
Lækjargata Hafnarfirði,
AAánabraut Hafnarfirði.
Húseignin, fasteignasala, Laugavegi 24, 4. hœð
Pétur Gunnlaugsson lögfr. Símar 28370 - 28040