Vísir - 22.05.1976, Síða 23
♦
Oft getur lítil „hola” velt.
Holóttur Hafnarfjörður
Ólafur Sverrisson sendi Visi
þessar myndir:
„Á annan mánuö hafa þess-
ar tvaír holur veriö i Hjalla-
brautinni. önnur þeirra er viö
Gatnamót Reykjavikurvegar
og Hjallabrautar, en hin á
mótum Breiövangs og Hjalla-
brautar.
Það er furöulegt hvað tekur
langan tima að koma þvi i.
verk aö gera viö þetta. Þaö
hefur ekki einu sinni verið
keyrt neitt i holurnar. Þarf
virkilega að veröa slys áður en
gert er við svona nokkuö? Að
visu valt billinn á myndinni
ekki beint út af holunni, en
hann gæti hafa gert það. Eða
einhver annar. Mönnum getur
auðveldlega fipast aksturinn
þegar þeir koma að svona
djúpum holum sem þeir vita
ekki um.”
Þessi hola er á mótum Reykjavikurvegar og Hjallabrautar, þar
sem ibúar i norðurbænum i Hafnarfirði þurfa allir að fara um.
Hekla býður upp á
sýningu og reynslu-
akstur VW og Audi
Svik og prettir
Svanhildur Vagnsdóttir
hringdi:
„Hvernig er það, ná engin lög
yfir mpnn sem auglýsa þjónustu
sem siðar reynist ekki vera ann-
að en svik og prettir.
Maður nokkur hér i bæ hefur
auglýst að hann taki að sér að
gera við sjónvörp. Ég fór eftir
auglýsingu hans. Hann kom og
sagði að það þyrfti að skipta um
lampa i tækinu minu. Það gerði
hann setti gamlan lampa i — án
þess ég vissi — og tók fyrir það
átta þúsund krónur.
Siðar kom annar maður og
skipti sömuleiðis um lampa. En
munurinn var sá að hann tók að-
eins 2.500 krónur fyrir það.
Þetta finnast mér bara vera
svik og engin ástæða til þess aö
þau fái að blómstra.
Þetta er i annað sinn sem Visi
berst kvörtun vegna þessa sama
manns. Eftir að fyrra bréfið
birtist, sendi Meistarafélag út-
varpsvirkja blaðinu bréf það
sem birtist hér fyrir neðan.
Einnig birtum við merki
Meistarafélagsins, þannig að
fólk geti greint það frá öörum
merkjum sem á stendur að við-
komandi sé útvarpsvirkja-
meistari.”
Auglýsandinn
er ekki í
Meistarafélagi
útvarpsvirkja
UTVARPSVIRKJA
MEISTARI
Meistarafélag útvarpsvirkja
vill taka fram f tilefni af marg i-
trekuðum fyrirspurnum og
skrifum i dagblöðum, nú síðast
undir yfirskriftinni „Auglýsir
svik og pretti” i VÍSI 15/5 s.l.
„Þeir sem auglýsa í dagblöð-
unum viðgerðarþjónustu á sjón-
varps- eða öðrum útvarpstækj-
um i heimahúsum og sýna ekki
með auglýsingum sinum merki
Meistarafélags útvarpsvirkja
eru félaginu óviðkomandi og
hefur meistarafélagið ekki tök á
að koma á framfæri kvörtunum
frá neytendum til leiöréttingar
hjá viðkomandi viögerðar-
manni.”
Hver er þessi
Svarthöfði?
Kona er nefndi sig húsmóður
úr vesturbænum hringdi:
„Ég vildi fá aö vita hver það
er sem skrifar Svarthöfða i Visi.
Skrif hans eru með þeim
endemum að mér finnst ekki
furða þó hann vilji fara huldu
höfði. Ég þarf ekki að nefna nein
sérstök dæmi máli minu til
stuðnings. Yfirleitt eru skrif
hans slik að þau eru sist til aö
hæla sér af.”
Svar:
en tveir, sem leggja Svart-
höfða-þættinum til efni hér i
blaðinu. Það er raunar augljóst
mál, að enginn einn maður get-
ur daglega skrifað slikan þátt,
svo fjölbreytilegan aö efni. Von-
andi er þetta fullnægjandi svar
til hinnar gamalkunnu „hús-
móður úr vesturbænum”, en um
nöfn þeirra, sem skrifa Svart-
höfða-þættina er það segja, að
leynd þeirra verður ekki rofin
nema þeir óski þess sjálfir.
Þeir eru fleiri en einn og fleiri
Bflasýningunum
linnir ekki, bilaáhuga-
mönnum til mikillar
ánægju. Hekla hf.
heldur sýningu á bilum
sinum i dag og á
morgun, i sýningar-
salnum Laugavegi 172.
A bilasýningu Heklu veröa
sýndir Volkswagen, Audi, Golf
og Passat bilar, og sérstök
kynning verður á nýjum LT
sendiferðabíl.
Hekla býður mönnum upp á
að reynsluaka bilunum, en það
hefur ekki verið gert á þeim
bilasýningum sem haldnar hafa
verið i ár.
Sýningin verður opin frá kl. 12
til 19 I dag, laugardag, og kl. 10
til 20 á morgun, sunnudag.
—ÓH
Utanáskríft: Vísir — Lesendabréf
Síðumúla 14 Reykjavík