Vísir - 24.05.1976, Blaðsíða 19
Sjónvarp, kl. 22
Ægilegar staðreyndir og
enganveg við hœfi barna
eða viðkvœms fólks
Þátturinn „Útrýming” sem
sýndur veröur i sjónvarpinu i
kvöld er engan veginn við hæfi
barna eftir þvi sem auglýst er i
dagskránni. Er hann sagður
lýsa svo ægilegum staðreyndum
og er viðkvæmu fólki eindregið
ráðið frá að horfa á hann.
í þessum þætti er lýst skipu-
lagðri útrýmingarherferö þjóð-
verja á hendur gyðingum og
öðrum kynþáttum. Sýndar
verða myndir frá hinum
illræmdu fangabúðum i
Auschwits, Belsen og Buchen-
wald, þar sem sex milljónir
gyðinga voru teknar af lifi.
Andstyggð manna á þessum
viðburðum i sögunni er gifurleg
og eftir þátt sem þennan má
búast við aö hún vaxi, þvi ef til
vill hafa ekki allir gert sér fulla
grein fyrir þeim hörmungum
sem þarna áttu sér stað. — EA
UTVARP, A MORGUN KL. 14,
MIÐDEGISSAGAN:
„MYNDIN AF DORIAN GRAY"
EFTIR OSCAR WILDE LESIN"
„Myndin af Dorian
Gray” sú fræga saga
eftir Oscar Wilde,
veröur nú miödegis-
saga útvarpsins og
hefst lestur hennar á
morgun. Það er Valdi-
mar Lárusson sem
byrjar lesturinn.
Talið er að i þessari sögu hafi
Óskar Wilde að einhverju dregið
upp mynd af sjálfum sér. Saga
segir frá ungum og saklausum
pilti, Dorian Gray, sem þykir
ákaflega fallegur. Fegurð hans
er slik að allir hrifast af piltin-
um.
Það gerir Henry nokkur
lávarður — og Dorian verður
fyrir miklum áhrifum af hon-
um. Lávarðurinn er einstaklega
mælskur og fáir eiga jafn
auðvelt með að svara hnytti-
lega. Spekin streymir frá hon-
um og Dorian gleypir i sig hvert
orð.
Frægur málari málar af
honum mynd og Dorian óskar
þess að fegurð hans megi endast
honum að eilifu, en myndin-
eldist þess i stað. Ósk hans
rætist og Dorian heldur fegurð
sinni. En lif hans er ekki alltaf
jafn fagurt. Og hann horfir á
málverkiö breytast og maður-
inn á myndinni verður eldri og
ljótari. Hver synd hans i lífinu
sést á myndinni.
Ekki borgar sig að segja
meira, en við bendum þeim sem
eiga þess kost að hlusta á
söguna þvi að hún er vel þess
virði. —EA
Gerð hefur verið kvikmynd eftir sögunni „Myndin af Dorian Gray.”
Þar fer Helmut Berger meö aöalhlutverkið. Meðfylgjandi myndir
sýna atriði úr kvikmyndinni. Sá á sundský|;unni er Helmut Berger.
A hinni er málverkið fræga af Dorian Gray.
Sjónvarp, kl. 21, 10: „Leitað hófanna..."
Breskt sjónvarpsleikrit er á dagskránni I kvöld. „Leitaö hófanna” heitir það og er eftir Donald
Churchiil. 1 leikritinu segir frá erfiðleikum Nigel nokkurs Dawsons sem skilur við konu sina eftir langt
hjónaband. Nigel á i talsveröum erfiðleikum I samskiptum sinum við hitt kynið.
Meö aðaihlutverk fara Michael Bryant og Wendy Gifford. Þýöandi er Dóra Hafsteinsdóttir. —EA
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Gestur
i blindgötu” eftir Jane
Blackmore Þýðandinn,
Valdis Halldórsdóttir lýkur
lestri sögunnar (11).
15.00 Miðdegistónieikar.
Concert Arts hljómsveitin
leikur þrjá Gymnópediur
eftir Erik Satie, Vladimir
Golschmann stjórnar.
Filharmomusveit Lundúna
leikur „I Suðurhéruðum”
hijómsveitarverk op. 50eft-
ir Edward Elgar, Sir Adrian
Boult stjórnar. Earl Wild og
Sinfóniuhljómsveitin i
Boston leika Pianókonsert
nr. 1 í b-moll op. 32 eftir
Xaver Scharwenka, Erich
Leinsdorf stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphom. 17.10 Tónleik-
ar.
17.30 „Sagan af Sejoza” eftir
Veru Panovu. Geir Krist-
jánsson lesþýðingusina (9).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Guðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Pétur Guðjónsson forstjóri
talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.25 „Grafarraus” smásaga
eftir Sigurð Brynjóifsson.
Höfundur les.
20.50 Mozart og Webern: Til-
brigði i taii og tónum.
Flytjendur: Úrsúla og Ketill
Ingólfsson. a. Tilbrigði um
franskt barnalag eftir
Mozart. b. Erindi um Anton
Webern. c. Tilbrigði op. 27
eftir Webern.
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
l'reistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (31).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaðar-
þáttur öttar Geirsson ráðu-
nautur talar um framræsl-
una i sumar.
22.35 K völdtónieikar. a.
Cóncerto grosso iF-dúr eftir
Marcello. I Musici leika. b.
Konsertsinfónia fyrir tvær
flautur og hljómsveit eftir
Cimarosa. Ars Viva hljóm-
sveitin i Gravesano leikur,
Hermann Scherchen stj. c.
óbókonsert i C-dúr eftir
.Haydn. Kurt Kalmus og
Kammersveitin i Munchen
leika, Hans Stadlmair stj.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður
20.3Ö Augiýsingar og dagskrá
20.40 iþróttir. Umsjónar-
maður Bjarni Felixson.
21.10 Leitað hófanna. Breskt
s jónvarpsleikrit eftir
Donald Churchill. Aðalhlut-
verk Michael Bryant og
Wendy Gifford. Nigel Daw-
son skilur við konu sin a eftir
langt hjónabarrd. 1 leikritinu
er lýst erfiðleikum hans i
samskiptum við hitt kynið.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
22.00 lieimsstyrjöldin siðari.
Útrýming. Lýst er skipu-
legri útrýmingarherferð
þjóðverja á hendur gyðing-
um og öörum kynþáttum og
sýndar myndir frá hinum
illræmdu fangabúðum i
Auschwitz, Belsen og
Buchenwald, þar sem sex
miljónir gyðinga voru tekn-
ar af lifi. Þessi þáttur lýsir
svo ægilegum staðreyndum,
aðhann er engan veginn við
hæfi barna, og viðkvæmu
fólki er eindregiö ráðið frá
að horfa á hann.Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
22.55 Dagskrárlok
PASSAMYIVDIR
teknar i litum
tilbúnar strax I
bartia * flölskyldu
ljosmyndir
us
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
Engin smíði
of erfið
fyrir okkur
Bíldshöfða 12
Simar: 36641-38375