Vísir - 24.05.1976, Page 23
Eru lœknar
of örlótir
á pillurnar?
„Saumakona” hringdi:
Mig langar til að koma þeirri
fyrirspurn á framfæri hvernig
hægt sé að koma i veg fyrir það
að fólk fái of mikið af pillum hjá
læknum.
Kona, sem er i fjölskyldu
minni tekur pillur i geysilegu ó-
hófi og hefur allt verið gert sem
fjölskyldunni dettur i hug til að
draga úr þessu. Við höfum talað
við starfsfólk göngudeildar
Landspitalans, en þar hefur hún
mjög oft fengið pillur. Einnig
höfum við talað við heimilis-
lækni hennar og aðra þá lækna,
sem við vitum að hún fær pillur
hjá. En ekkert virðist geta kom-
ið i veg fyrir að hún fái pillur
eins og hún vill. Þær pillur sem
hún fær og eiga að endast henni i
mánuð, eru búnar eftir vikuna
og alltaf nær hún þá strax i
meira.
Við höfum spurt starfsfólkið á
þessum spitölum ráða i þessu
máli, en fáum þau svör að það
sé ekki hægt að hjálpa fólki sem
se háð pillum, nema það vilji
sjálft láta hjálpa sér. En þegar
fólk ekki skilur að það á við
vandamál að striða, eða viður-
kennir það ekki verður eitthvað
annað að koma til. Annars er
ekkert eftir nema uppgjöf.”
Visir hafði samband við Ólaf
Ólafsson, landlækni vegna
þessarar fyrirspurnar.
Hann sagði, að að-
standendurnir geti sent sér bréf
um þetta mál. I þvi þurfa að
vera upplýsingar um þá lækna
sem hafa látið konuna fá pill-
urnar. Einnig um hvað mikið
magn sé að ræða og þá helst
hvaða tegundir.
Siðan myndi hann skrifa þess-
um læknum bréf þar sem farið
væri fram á að gefnar væru
upplýsingar um hvað væri að
konunni og hvort hún þyrfti á
þessum lyfjum að halda. Enn-
fremur kvaðst ólafur geta
skrifað öllum læknum bréf
vegna málsins, ef ekki væri
vitað um alla þá lækna sem
konan hefði fengið pillur hjá.
Þetta bréf væri auðvitað al-
gert trúnaðarmál. Ef það
reyndist vera rétt að konan fái
óeðlilega mikið magn lyfja, yrði
farið fram á það að læknar
skrifuðu ekki lyfseðla á pillur
handa henni. Þó væri nú svo, að
oft þyrfti fólk á þeim lyfjum að
halda sem þvi væri gefið, þótt
aðstandendum sjúklinganna
þætti nóg um.”
Spara
stórfé
með
flötum
þökum
Erla Einarsdóttir hafði sam-
band við blaðið:
„Hvernig getur staðið á þvi ó-
réttlæti, að þeir sem byggja hús
sin með hallandi þaki, þurfa að
greiða hærra lóðargjald og hærra
fasteignagjald en þeir sem hafa
þökin slétt?
Flöt þök eru þekkt fyrir það að
þau vilja leka. Þess vegna velja
flestir þann kostinn að hafa þökin
hallandi, þótt það verði til þess að
ónotað rými myndist fyrir ofan
loftplötu. Það kostar auðvitað
meira i byggingu, en þó kastar
fyrst tólfunum þegar á að skatt-
leggja húseigendur fyrir þetta
rými, sem að engu gagni getur
komið, öðru en þvi að koma i veg
fyrir að þakið leki.
Þessi gjöld eru nefnilega reikn-
uð út frá rúmmetrastærð húsanna
i heild, en ekki ibúðarrýmis.
Þetta getur munað stórfé fyrir
húseigendur og fer það þá vitan-
lega eftir þvi hversu mikill hall-
inn er á þakinu.”
m SAMA srko
ÍfiiHJALlíSSO^
HRINGVEGURINN
8 daga hópferð um hringveginn kringum landið dagana 21. — 28. júní.
Ekið í þægilegri langferðabifreið, gist og borðað á hótelum. Fróður
leiðsögumaður verður með í ferðinni. Verð kr. 49.150 á mann, allt
innifalið. Kynnið yður nánar ferðatilhögun á skrifstofu vorri að Reykja-
nesbraut 6, símar 11 540 og 25855.
Nú er hver
síðastur
að tryggja
sér Skoda.
Síðustu sendingarnar
á hinu einstaklega lága
afmælisverði eru
að verða uppseldar.
TEKKNESKA B/FREIÐA UMBOÐIÐ
Á ÍSLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44 KÓPAVOGI SÍMI 42600
AKUREYRI:
SKODA VF.RKSTÆÐIÐ A AKUREYRI H.lf. OSEYRI 8.
EGILSTAÐIR:
VARAHLUTAV. GUNNARS GUNNARSSONAR.