Vísir - 24.05.1976, Qupperneq 24
VtSIR
Mánudagur 24. mal 1976
Nóg oð gero
hjó laganna
vðrðum...
Talsvert var að gera hjá
laganna vörðum um helgina.
Nokkuð var um innbrot. Til
dæmis var tilkynnt um þjóln-
að á hljómburðartækjuin á
lláteigsvegi.
bá viðurkenndi maður að
hafa brotist inn i kjallara 'við
Kambsveg.
Skemmdarverk voru unnin
um helgina. Tvö rúðubrot áttu
sér stað i Breiðholti. Rúða var
brotin i Breiðholtskjöri og
önnur i' Kron við Norðurfell.
Þá var maður tekinn á BSl á
laugardagskvöldið, eftir að
hafa brotið spegil þar.
Teknir í
morgun
Þrir menn voru handteknir
snemma i morgun. Voru þeir
grunaðir um að hafa stolið
peningaveski af öðrum inanni
um helgina. i veskinu munu
liafa verið fimm tíl tiu þúsund
krónur. Stuldurinn var til-
kynntur i gærmorgun.
— EA.
Slðkkviliðið
kallað
tvisvar út
■ gœr
Slökkviliðið var tvisvar kallað
út i gærdag vegna elds.
Hvorugt tilfellið reyndist þó
alvarlegt. Rétt eftir klukkan
fimm var kveikt i tjörupappa i
kjallaratröppum Hótel Hofs,
en rétt eftir klukkan ellefu
kveikti ungur maður i ösku-
tunnuvið bakhús á Laugaveg-
inum.
—EA
Árekstur og
slys í morgun
Arekstur varð á áttunda
timanum í morgun á Ijósunum
á mótum Laugavegs og
Kringlumýrarbrautar.
Fólksbill kom akandi austur
Laugavegog ætlaði áfram, en
jeppi kom akandi suður
Kringlumýrarbrautina og ætl-
aði yfir á ljósunum. Bilarnir
lentu saman og er fólksbillinn
nánast ónýtur. ökumaður
hans var fluttur á slysadeild.
—EA
Bílvelta ó
Álftanesvegi
BDvelta varð á Álftanesvegi
á móts við Selskarð aðfaranótt
laugardagsins. t bilnum voru
tveir, farþegi og ökumaður. og
leikur grunur á að Bakkus hafi
veriö meö i ferðinni.
Billinn stórskemmdist og
farþeginn slasaðist eitthvað.
Báðir forðuðu sér af slysstað,
en farþeginn áttaði sig
skömmu siðar og lét lög-
regluna vita. Farþeginn var
fluttur á slysadeild.
—EA
ÆFINGIN TÓKST
VEL í HEILD
— en ýmsa galla þarf að lagfœra
„Við liöfum að visu ekki enn
getað farið i gcgn um skýrslur,
en i heild virðist æfingin hafa
heppnast vel”, sagði Guðjón
Petersen hjá Almannavörnum
cr Visir spurði hann í morgun
hvernig hann teldi að til hefði
tekist með æfinguna sem gcrð
var á Reykjavikurflugvelli á
laugardaginn.
„Gallar þeir sem komui ljós á
laugardaginn verða lagfærðir.
Þarna komu i ljós fjarskipta-
örðugleikar milli lögreglu og
flugumferðarstjórnar, sem
sköpuðu vandræði við umferð-
arstjórn. Ennfremur þótti okkur
greiningarlæknirinn koma
seint. Nú er unnið að þvi að
finna ástæðuna fyrir þvi.
Kerfi það sem setthefur verið
upp ef slfkt slys bæri að höndum
virtist reynast vel, bæði hvað
snertir viðbragð og aðbúnað.
Þeir sem iéku slasaða voru al-
veg sammála um að viðbrögð
slökkviliðsmanna hafi verið
rétt. En það verður að hafa lika
i huga hve aðstæður eru allar
erfiðar við svona kringumstæð-
ur.”
Útvarpið tilkynnti
um æfingu
Er ekki hætta á að skelfing
gripi þá sem ekki vita hvað er á
ferðum?
,,Við létum tilkynna i útvarpi
rétt áður en æfingin hófst að
ekkert væri að óttast. En ekki
hlusta allir á útvarp þannig að
minnsta kosti i húsunum i kring
greip einhver ótti um sig.
Flugvélum átti að vera full-
kunnugt um hvað var að gerast,
i gegnum radióviðskipti. Enn-
fremur tók Flugfélagið beinlínis
þátt i æfingunnni. Það er ekki að
furða þó farþegar hafi verið
gripnirskelfingu. Þar sem jafn-
vel þeir sem tóku þátt i æfing-
unni fylltust óhugnaði.
Það verður að hafa i huga
þegar þessi mál eru rædd að æf-
ingin var framkvæmd til þess að
tryggja öryggið ef slys yrði.
Flestir hefðu bjargast
Tilkynnt var um sprengingu i
vélinni og að hún væri alelda.
Mér virðist sem viðbrögð
slökkviliðsinshafi veriðgóð. Að-
eins einni til tveimur minútum
eftir að tilkynning barst voru
slökkviliðsbilarnir komnir að
vélinni.
Ef þetta hefði verið alvöruslys
tel ég að flestir hefðu bjargast.
— Endanlegar niðurstöður
um hvernig til tókst við æfing-
una liggja væntanlega fyrir i
vikulokin”, sagði Guðjón Peter-
sen. „Við þurfum að ræða við
marga aðila sem þarna komu
nálægt.” —EKG
Læknar komu seint á vettvang.
En þegar þeir loks komu fengu
þeir nóg að gera viö að aðstoða
hina „siösuðu”.
Vel tókst til við að ná þeim „slösuðu”, úr flugvélinni.
Tilkynnt var um aö flugvélin væri alelda. Slökkviliðið brást fljótt við
og hóf strax aö sprauta froðu á vélina.
Sjúkrahús í samvinnu
við AA-samtökin
Yfirmaður meðferðardeildar
Freeport Hospital fyrir áfengis-
sjúklinga i New York, prófessor
Joseph P. Pirro, er nú staddur
hér á landi. i þessari viku mun
hann haida nokkra fyrirlestra
fyrir ýmsa starfshópa. Einnig
mun hann halda fundi meðAA
og Al-Anon samtökunum. Allir
þessir fundir verða einnig opnir
almenningi.
Freeport Hospital er eina
sjúkrahúsið i Bandarikjunum,
sem aðeins meðhöndlar á-
fengissjúklinga. Þangað koma
sjúklingar viðs vegar að og hafa
m.a. margir Islendingar leitað
sér lækninga þangað. Sjúkra-
húsið hefur nú starfað i 14 ár.
Þar hefur verið mótað ákveðið
méðferðarkerfi og byggist eftir-
meðferðin á þátttöku sjúkling-
anna I AA-samtökunum.
Prófessor Pirro er félags-
fræðingur að mennt og hefur
hann starfað að meðferð og end-
urhæfingu áfengissjúklinga um
aldarfjórðungsskeið. Visir átti
viðtal við hann i gær, að loknum
mjög vel sóttum fundi fyrir al-
menning að Hótel Loftleiðum.
Viðtal þetta mun birtast i blað-
inu á morgun.
—SJ
Maður í skúpnum
spillti sölunni
Það var eins og i hrollvekju
cftir Edgar Allan Poe. Húsmóð-
irin var að sýna væntanlegum
kaupendum húsið nú um helg-
ina. Þau voru komin niður i
kjallara og var gengið framhjá
nokkuð stórum skáp.
„Hér er nú ekkert nema rör”,
sagði húsmóðirin og opnaði
skáphurðina. Kaupendurnir
stirðnuðu upp I skelfingu og hún
lika, þvi innan um rörin stóð
maður, teinréttur.
Þessi óboðni gestur var sjúkl-
ingur af Kleppi og hafði haldið
til i kjallaranum i tvo sólar-
hringa án þess að nokkur hefði
hugmynd um. Húsið seldist ekki
þá ferðina.
—ÓT
Humarstríð í
Yestmannaeyjum
Tveir humarbátar, Emma VE
219 og Reynir VE 120, sigldu frá
Vestmannaeyjum um kl. 3 i nótt
með afla frá 5 humarbátum
innanborðs.
Var förinni heitið til Þorláks-
hafnar þar sem átti að afhenda
aflann kaupendum i Reykjavik
og Kópavogi. Astæðan er sú að
humarveiðimenn i Vestmanna-
eyjum eru afar óánægðir með
mat á humri þar, en aðeins fara
15-20% I fyrsta flokk. Humarinn
er flokkaður i vélum og halda
humarveiðimenn þvi fram, að
vélarnar i stöðvunum séu mis-
munandi stilltar og eftirlit með
þeim ekkert.
Þeir hafa nú fengið betra til-
boð i humarinn og þær ýmsu
fisktegundir sem villast með i
humartrollin. úr Reykjavik og
Kópavogi.
1 fyrra fóru allir humarbátar i
Vestmannaeyjum i tveggja
daga verkfall vegna óánægju
með matið. Var þá samið um
hærra verð á humri I fyrsta
flokki, en matið ekki bætt.
—GS
Innri Njarðvík:___
Vélsmiðjan
brann í morgun
Eldurkom upp i Vélsmiðjunni
Kópa sf i Innri Njarðvik á átt-
unda timanum i morgun. Húsið,
sem er timburhús, eyðilagðist
að mestu i brunanum og féll
þakið að miklu leyti niöur.
Ekki er vitað nákvæmlega um
tjón, en i húsinu var mikið af
verðmætum vélum, nokkurra
milljóna króna virði. Skemmdir
á þeim höfðu ekki verið kannað-
ar i morgun.
Eldur var orðinn laus þegar
menn mættu til vinnu rétt fyrir
kl. 8 i morgun. Slökkviliðið kom
fljótt á vettvang og gekk
slökkvistarf vel. Klukkan rúm-
lega 9 var þvi lokið. Talið er að
kviknað hafi i út frá kyndingu i
húsinu. —SA