Vísir - 25.07.1976, Síða 5

Vísir - 25.07.1976, Síða 5
VISIR Sunnudagur 25. júli 1976. 5 Haraldur er búinn aö missa bæöi nýrun en tækiö sem sést á myndinni kemur i staö þeirra, þar tii nýra veröur grætt i hann. Þeir eiga tœkinu líf sitt að launa ,,Þetta venst og veröur eins og vinna”, sagöi Hafsteinn Ómar. Kristinu kvaöst liöa mun betur eftir aö hún fór aö koma i gervinýrað. Eflaust hafa margir heyrt minnst á gervi- nýrað i Landsspitalan- um, en sennilega eru þeir færri sem vita hvernig starfsemi þess fer fram og hverjir þurfa á þvi að halda. Visismenn lögðu leið sina I Landspitalann fyrir skömmu til að for- vitnast um tæki þetta og rabba við læknana Pál Ásmundsson og Þór Halldórsson sem starfa við gervinýrað. Aö sögn þeirra var gervinýraö fyrst tekiö I notkun hér á landi 1968 i Landspitalanum, sem jafn- framt er eina sjúkrahúsiö hér- lendis sem ræöur yfir slikum tækjum. Þar eru nú þrjú tæki fyr- ir hendi og aöstaöa fyrir sex sjúklinga. Gervinýraö er allflókin vél sem starfar eins og nýra, þ.e. hún hreinsar blóösjúklingsinsog skil- ur út úrgangsefni likamans eins og heilbrigö nýru. Starfsemi þessi, sem kölluö er blóösiun fer fram á þann hátt, aö skoriö er á slagæö sjúklingsins og mjó plastslanga tengd æöinni. Sföan rennur blóö sjúklingsins gegnum vélina, þar sem þaö hreinsast og siöan aftur I sjúkl- inginn. Þetta hefur yfirleitt ekki nein ó- þægindi í för meö sér fyrir sjúkl- inginn og getur hann lesiö, boröaö og „má yfirleitt gera allt nema rifa slönguna úr sambandi”, eins og Páll komst aö oröi. Áður fyrr dóu sjúklingarnir Páll og Þór sögöu okkur, aö þeir sem þyrftu á þessari blóösiun aö halda væri fólk sem fengiö heföi slæma nýrnasjúkdóma meö þeim afleiöingum aö nýrun heföu oröiö óstarfhæf. Sem dæmi um þessa sjúkdóma má nefna nýrnabólgur, bakteriu- sýkingar og nýrnasteina. Fyrir kemur aö nýru veröa ó- starfhæf eftir slys, en I flestum tilfellum lagast þau aftur eftir nokkur skipti i gervinýra”. Aöspuröir sögöu þeir Páll og Þór, aö sjúkdómseinkennin lýstu sér á mismunandi hátt, svo sem meö almennum slappleika, blóö- leysi, eggjahvitu I þvagi og upp- götvaöist sjúkdómurinn yfirleitt viö læknisskoöun. Þór Halldórsson Aö sögn þeirra er lífshættulegt þegar nýrun veröa óstarfhæf og geta ekki losaö likamann viö úr- gangsefni. „Aöur en þessi tæki komu til sögunnar dóu þessir sjúklingar og myndu deyja á örfáum vikum, ef tækiö væri ekki til staöar”. Aöspuröir um, hve lengi sjúkl- ingur þyrfti aö vera I gervinýr- anu, sögöu læknarnir, aö sjúkl- ingurinn yröi aö koma tvisvar i viku og vera i tækinu i sjö klukku- stundir i senn þangaö til hann fengi nýtt nýra. Þá má geta þess, aö á milli þess sem sjúklingarnir eru 1 blóösiunni veröa þeir aö vera á sérstöku fæöi heima fyrir og mega þá ekki boröa mat sem inniheldur eggja- hvltu og sölt né drekka mikinn vökva. Augljóslega veldur þetta sjúkl- Spjallað við lœkna og sjúklinga um gervinýrað í Landspítalanum Læknar og hjúkrunarkonur sem starfa við gervinýraö. Sóiveig Pétursdóttir, Páll Asmundsson, Þór HalldórssorvHaliveig Finnbogadóttir og Helga Guðnadóttir. (Myndir Jens) Páll Ásmundsson læknir ingunum verulegum óþægindum og kemur i veg fyrir aö þeir geti lifaö fullkomlega eölilegu lffi, en yfirleitt geta þeir þó unniö alla léttari vinnu. Blða eftir nýju nýra Þeir sjúklingar sem þurfa á gervinýra halda biöa flestir eftir nýrnaígræöslu og er þessi blóösi- un eins konar millistig milli sjúk- dómsins og igræöslunnar. Ariö 1970 fór fýrsti sjúklingur- inn til London I nýrnalgræöslu, en sú aögerö er nú gerö I Kaup- mannahöfn og þessa dagana er sjöundi sjúklingurinn úti i aögerö. Aö sögn læknanna hefur þeim sjúklingum sem nýru hafa veriö grædd I heilsast vel, en eftir i- græösluna þurfa þeir aö vera á sérstakri lyfjameöferö sem i sumum tilfellum getur haft slæm áhrif á heilsufar sjúklingsins þeg- ar til lengdar lætur. ,,Þaö getur veriö nokkuö löng biö fyrir sjúklinginn eftir nýra”, sögöu þeir Páll og Þór, þegar viö spuröum, hvort erfitt væri aö út- vega nýru. „Yfirleitt eru þaö nýru úr ný- látnu fólki, sem hefur svipaöa vefjasamsetningu og sjúklingur- inn, sem grædd eru i sjúklinginn, en einnig kemur fyrir, aö ættingj- ar sjúklingsins gefi annaö nýra sitt”. „Gott dæmi um norræna samvinnu” „Allir þeir sjúklingar á Noröur- löndum sem blöa eftir nýrnai- græöslu eru á skrá hjá samnor- rænni stofnun sem heitir „Scandia transplant”, og þar eru allar nauösynlegar upplýsingar um sjúklingana”. „Stofnun þessi er I beinu sam- bandi viö öll helstu sjúkrahús á Noröurlöndum og fær þegar i staö upplýsingar frá þeim um hugsan- lega nýrnagjafa. Og sem dæmi getum viö hugsaö okkur þaö, aö I Finnlandi látist maöur sem hefur svipaöa vefja- samsetningu og sjúklingur hér á Islandi, þá er haft samband viö okkur og viö sendum sjúklinginn þegar I staö til Kaupmannahafn- ar þar sem grætt er I hann nýtt nýra”. Páll sagöi, aö starfsemi þessar- ar stofnunar væri aöslnuáliti eitt besta dæmiö um norræna sam- vinnu, eins og hún ætti aö vera. Aöspuröir um tiöni nýrnasjúk- dóma hér á landi sögöu þeir, aö hún væri svipuö hér og i Noregi, en mun lægri hér en i Danmörku. Hérlendis bætast aö meöaltali þrfr nýir sjúklingar I hópinn á ári, en ef miöaö væri viö Danmörku ættu þeir aö vera niu eöa tiu tals- ins. Læknarnir tjáöu okkur enn- fremur, aö tæki þessi sem nú væru til staöar f Landspitalanum fullnægöu þörfinni á meöan tiönin yröi ekki hærri en hún hefur veriö til þessa. „Vantar bara stereogræjur” Daginn sem viö heimsóttum Landspitalann voru þrir sjúkling- ar I gervinýra og spjölluöum viö litillega viö þá. „Þaö er auövitaö bindandi aö veröa aö koma hingaö tvisvar i viku og liggja hér allan daginn”, sagöi Hafsteinn Ómar Arnason sem er yngstur sjúklinganna og eraöeins nítján ára gamall. Hann hefurþurftá blóösfunni aöhalda i þrjú ár eöa frá þvi aö hann var sextán ára gamall. „Annars venst þetta smám saman og veröur eins og hver önnur vinna. Þaö er lika ágætt aö vera hér i Landspitalanum hjá svona góöu fólki og þaö eina sem vantar hérna eru stereogræjur”, sagöi Hafsteinn ómar. Haraldur Hákonarson sem er tuttugu og niu ára gamall tjáöi okkur, aö hann heföi fyrst byrjaö aö finna fyrir veikindum sfiium fyrir tveim árum og þaö heföi svo endaö meö þvi, aö taka varö bæöi nýrun fyrir rúmu ári siöan. Hann sagöist ekkert hafa getaö unniö siöan, en hygöist nú hefja störf viö keyrslu von bráöar. Þá hittum viö aö lokum Krisönu Pétursdóttur aö máli, sem kvaöst vera miklu betri til heilsunnar eftir aö hún fór aö koma i þetta „undratæki”. KrisÖn sagöist aö sjálfsögöu hlakka til aö fá nýtt nýra og von- aöist til aö þau fengju öll nýru sem fyrst. —SE

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.