Vísir - 01.09.1976, Page 7
I
VISIR Miövikudagur 1. september 1976
Um s jón :
Guðmundur Pétursson
„Aðskilnaðarstefnan
ómannúðleg'
— segir dr. Kissinger, áður en hann
heldur til fundar við John Vorster
Utanrikisráðherra
Bandaríkjanna hefur
varað hvita ibúa
Ródesiu og Namibiu við
þvi, að hjá þvi verði ekki
komist, að meirihluti
ibúa þessara rikja fái
stjórn landanna i hend-
ur.
„Eina spurningin er sil, meö
hvaöa hætti þaö veröur”, sagöi
dr. Henry Kissinger á fundi i
Flladelfiu i gær meö samtökum,
sem styöja blökkumenn.
Hann á fyrir dyrum fund með
John Vorster, forsætisráðherra
Suöur-Afriku um næstu helgi.
Lýsti ráðherrann þvi yfir , að
sUður-afrikustjórn hefði sýnt rétt
hugarfar, þegar hUn lýsti yfir
stuðningi við meirihlutastjórn i
Ródesiu og að ákveöinn yrði sá
dagur, sem Namibia fengi sjálf-
stæði.
„Ofugt við Ródesiu og Namibiu
er ekki hægt að lita á Suö-
ur-Afriku sem ólöglega rikis-
stjórn,” sagði Kissinger, og benti
á, aö flestir leiðtogar blökku-
manna viðurkenndu tilverurétt
hvitra i S-Afriku eftir margra
alda dvöl hvitra manna þar.
Hann veittist hinsvegar hart að
„aðskilnaðarstefnu” sem hefur
verið leiðarljós s-afrikustjórnar.
Sagði hann að „apartheid” stefn-
an væri ómannúðleg.
„Þjóðfélagsleg uppbygging
S-Afriku er ósamboðin mannlegri
viröingu. Hryggir okkur mjög að
heyra af si'ðustu átökum I útborg-
um blökkumanna, ” sagði Kiss-
inger.
FuUtrúar afrikuþjóða standa
saman um tillögu, sem borin var
upp I öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna i gær. Þar er skorað á
þjóðir heims að beita Suð-
ur-Afriku efnahagslegum refsiað-
gerðum vegna aðskilnaðarstefnu
hennar, sijórn hennar á Namibiu
og stuðning við hvita minnihlut-
ann i Ródesiu.
Ber af sér múturnar
Andreotti, forsætis-
ráðherra ítaliu neitaði i
gær harðlega ásökunum
italsks blaðs um að hann
hefði þegið mútur frá
Lockheed flugvélaverk-
smiðjunum sem að
undanförnu hafa orðið
frægar fyrir hvert mútu-
hneykslið af öðru.
Andreotti var ráðherra viö-
skiptamála áriö 1968 og hafði
sem slikur mikil áhrif á hvaða
flugvélategundir italski flugher-
inn keypti. ttalska blaðið
L’ésspresso heldur þvi fram að
það hafi i fórum sinum tvö bréf
sem sanni að Andreotti hafi verið
boðnar mútur fyrir að mæla með
kaupum á Orion flugvélum
Lockheedverksmiðjanna. Vélar
þessar voru aldrei keyptar, en
komu til álita á sinum tima.
Andreotti segist hafa látið yfir-
menn flughersins ráða hvaða
flugvélar keyptar voru til hersins
og segist hafa fylgt þeirri reglu
um öll hergagnakaup itala meðan
hann sat i embætti.
L’esspresso viðurkenndi i gær
að bréfin gætu veriö fölsuö og
þeim ætlað að veikja stöðu
stjórnar kristilegra demókrata,
en hún nýtur hlutleysisi
kommúnista.
Saka kínverja um fíkni-
smygl til Sovétríkjanna
Rússar hafa sakað
kinverja um að skipu-
leggja eiturlyfjasmygl
til Sovétrikjanna.
Isvestia sagði i gær að
vaxandi magn
smyglaðra eiturlyfja,
sem fundist hefur að
undanförnu á flug-
völlum landsins, kæmi
frá S-A Asiu. Höfuð-
stöðvar smygl-
starfsemi kinverskra
maóista eru i Hong
Kong að sögn Isvestia.
Að undanförnu hafa tollgæslu-
menn á flugvöllum i Sovétrikj-
unum fundiö mikið magn
smyglaðra eiturlyfja I fórum
ferðamanna sem þar hafa
millilent á leið sinni til Vestur-
landa. Eiturlyfin munu öll hafa
verið ætluð til sölu á mörkuðum
V-Evrópu en engu aö siöur hafa
sovésk yfirvöld vaxandi
áhyggjur af þessu smygli.
Astæðan fyrir þvi aö
smyglarar kjósa aö fara i
gegnum Sovétrikin á leíö sinni
frá Asiu er sú, að tollgæslumenn
á Vesturlöndum lita farþega frá
Sovétrikjunum ekki hornauga á
flugvöllum og telja ekki miklar
likur á aö menn reyni að smygla
einhverju úr þeirri áttinni.
Einnig mun ódýrt að fljúga milli
Asiu og Evrópu með millilend-
ingu I Sovétrikjunum.
Stærsta smyglmálið fram aö
þessu er handtaka þriggja
bandarikjamanna á Moskvu-
flugvelli en þeir höföu I fórum
sinum 28 klló af heróini. Menn-
irnir voru dæmdir I 5-8 ára
nauðungarvinnu i Siberiu.
SKOÐUN LURIE'S
IUa meiddur blökkumaður
horfir i sjónop myndavélar
fréttamannsins, meðan fé-
lagar hans stumra yfir
honum. — Sviðið er Soweto,
útborg svertingja I Jóhann-
esarborg i óeirðunum á dög-
unum. Kissinger lét svo um-
mælt i gær, að þjóðfélagsleg
uppbygging S-Afriku væri ekki
samboðin mannlegri virðingu.
sér að
þess öryggis sem nærvera bresks
herafla veitir þeim fyrir hugsan-
legri ihlutun frá Libiu og Alsir.
Malta hallar
„En hver verður á vinstri væng?”
Alsír oo Líbíu
Malta mun lýsa sig hlutlaust
riki I náinni framtið og munu
nokkur af grannrikjum eyjarinn-
ar ætla að taka að sér gæslu á
hlutleysi eyjarskeggja. Bretar
hafa mikla flotastöð á eyjunni og
greiða sem svarar 5 milljörðum
islenskra króna i afgjald af að-
stöðu sinni þar. Mintoff, forsætis-
ráðherra Möltu, hyggst láta ioka
flotastöðinni árið 1979, en stöðin
gegnir þýðingarmiklu hlutverki i
varnarkerfi Nato á Miðjarðar-
hafi.
Löndin sem ætla aö gæta hlut-
leysis Möltu eru Alsir og Li bía en
vinstrisinnaðar herstjórnir eru
við völd i báðum ríkjunum. Hafa
ráðamenn I Libiu verið kunnir af
öðru en hlutleysi I alþjóðamálum,
og hafa þeir margsinnis reynt aö
hlutast til um málefni nágranna-
landa sinna. Mintoff forsætisráö-
herra hefur verið I opinberri
heimsókn að undanförnu i Alsir,
og hélt I gærkvöldi til Libiu i
stutta heimsókn en Gaddafi, þjóð-
arleiðtogi lýbiumanna var nýlega
á ferð um Möltu. í þeirri ferð
sinni reifaöi hann hugmyndir um
nánari samvinnu möltubúa og
libiumanna og kvaðst fylgjandi
sameiningu landanna i eitt riki i
fyllingu timans.
Kosningabarátta stendur nú yf-
ir á Möltu en margir eyjaskeggja
tortryggja mjög aukið samstarf
við Liblu og eru andvigir lokun
herstöðva breta á eyjunni vegna
Styðja ekki
Jimmy Carter
Jimmy Carter beið aivarlegt
áfall I gær eftir langar viðræður
við forsetaefniö. Það munu hafa
verið viðhorf Carters til fóstur-
eyðinga sem missættinu ollu, en
Carter er fylgjandi sem mestu
frelsi konum til handa i þessum
efnum.
Ford forseti mun hitta bisk-
upana I næstu viku og biðja þá
liðsinnis i baráttunni gegn Cart-
er. Carter var aö sögn frétta-
manna greinilega vonsvikinn
vegna ákvörðunar biskupanna
og neitaði hann að ræða málið
viö blaöamenn.
Carter hefur á hinn bóginn
gengiö vel á öðrum vigstöðum
að undanförnu. Alþýðusamband
Bandarikjanna hefur Itrekað
stuðning sinn við hann og lofað
honum fulltingi I kosningabar-
áttuþeirrisem hann nú heyr við
Ford. Þá hefur Edward
Kennedy tekið Carter i sátt og
sat fyrir með Carter hjá ljós-
myndara i gær.