Vísir - 13.09.1976, Blaðsíða 2

Vísir - 13.09.1976, Blaðsíða 2
Mánudagur 13. september 1976. VISIR Hlustar þú á morgun- stund barnanna i út- varpinu? Guömundur Þorsteinsson, 12 ára: — Nei. Ég er 1 skólanum á þeim tima og get þvi ekki hlustað á út- varpið. A sumrin nenni ég ekki heldur að hlusta. Runólfur Viðar Sturluson, 14 ára: — Ég sef alltaf frameftir á morgnana. Þó hlustaði ég á morgunstundina þegar ég var á sjúkrahúsinu i sumar. Þá fannst mér hún ágæt. Harpa Maria Sturludóttir, 12 ára: Já, ég hlusta stundum á morg- unstundina. Ég hef þó ekki heyrt söguna sem er núna. Yfirleitt finnst mér sögurnar ágætar. Ómar Valdimarsson, 6 ára: — Já, ég hlusta alltaf þegar ég get. Kristrún Marvinsdóttir. — Jíá , ég hlusta stundum. Þó er ég ekki alltaf vöknuö þegar hún er. Mér finnst morgunstundin skemmti- leg. FRAMKVÆMDIR HAFNAR VIÐ KVARTMÍLUBRAUT Enn einpm áfanga við lagn- ingu kvartmflubrautarinnar var náð i fyrradag. örvar Sigurðs- son, formaður klúbbsins, tók þá fyrstu skófiustunguna að nýju brautinni. „Nú geta framkvæmdir hafist af krafti við brautina”, sagði örvar er Vi'sir ræddi við hann. „Það á að vera hægt að ljúka ýtuvinnu á næstu tveimur eða þremur vikum. Ætlunin hjá okkur er að ljúka allri vinnu við undirbygginguna i vetur. Ef allt gengur að óskum og ekki stendur á nauðsynlegi fjármagni á að vera hægt að byrja að malbika næsta vor”. örvar sagði að siðan yrði tek- ið til óspilltra málanna við að snyrta umhverfið og sá i jarð- veginn i kring. Bjóst hann við að hægt væri að byrja að spyrna á brautinni næsta vor. Undanfarið hefur verið unnið að margs konar undirbúnings- og verkfræðivinnu vegna braut- arinnar. Góð aðstaða Eins og Visir hefur skýrt frá er brautin sem spyrnt verður á um 400 metrar. Siðan koma um husriiiílLbrauiii Feitletruðu linurnar marka sjáifa spyrnubrautina. Teikning af kvartmilubrautinni. 600 metrar, ekki eins sterklega lagðir, sem bilarnir geta stöðvað sig á. Gert er ráð fyrir að góð að- staða verði fyrir áhorfendur við kvartmilubrautina. Bilastæði verða fyrir fjölda bila og einnig er ætlunin að þarna verði veitingasala. Þá verður reynti að gera brautina þannig úr garði að sem haganlegast sé fyrir keppendur. Sérstakt svæði verður þar sem menn geta hitað bilana. Góð að- staða verður til að skipta um dekk. En slikt er sem kunnugt er mjög nauðsynlegt i kvart- milukeppni þar sem oft eru not- uð sérstök dekk. Þarna verður öryggisútbúnaður og sérstök braut fyrir bilana til að aka á þegar þeir fara til baka að rás- markinu úr spyrnunni. örvar Sigurðsson, formaður Kvartmfluklúbbsins, tekur fyrstu skóflustunguna að kvartmílubrautinni. Ljósmynd VIsis Jens Nýr sendiherra Nýskipaður sendiherra Bandarikjanna, hr. James L. Blake, afhenti fyrir helgi forseta tslands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Ólafi Jó- hannessyni, viðskiptaráöherra, er gegnir störfum utanrfkisráð- herra i fjarveru Einars Agústssonar. AMERÍKANÍSERING Á HÚSI ORANÍU Bandarikjamcnn hafa ætið borið litla virðingu fyrir kon- ungum og prinsum, og talið við- hald konungsætta ekki annað en eitt dæmið um ihaldssemi Evrópu sem seint gengur að gera að Bandarikjum Evrópu þrátt fyrir Efnahagsbanda- lagiö og Evrópuráðið og aðrar stórar tilraunir til að sveigja Evrópubúa undir ameriska stjórnarháttu. Konungar og prinsar hafa löngum verið hafðir að gamanmálum i bandariskum bókmenntum og blaðaskrifum. Rithöfundurinn Damon Runyon skrifaði eitt sinn smásögu, sem hann nefndi „Gentleman, the King”, þar sem hann lætur einhvern Saro Greifa halda til Philly (Filadelflu) I leit aö leigumorð- ingjum. Þessum Saro greifa er lýst þannig, að hann hafi verið i röndóttum buxum með hvltt skyrtubrjóst og einglyrni, og hann hafi verið fulltrúi pólitlsks flokks, sem vildi losna við kon- unginn, af þvi kóngar væru að fara úr móð i Evrópu, enda kæmist ekkert land lengur úr sporunum, sem væri að burðast með kóng. Leigumorðingjarnir höfðu oft fengið tilboð um að kála fólki, en aldrei kóngi fyrr. Þeir óttuðust að málið vekti at- hygli, en Saro greifi fullvissaði þá um að þarna væri um litið út- kjálkaland aö ræða, og það yrði séð um að loka simanum. Hvort sem þessi saga Damon Runyon verður sögö lengur eða skemur, þá ber hún ýmis óviröingarein- kenni þeirra mála, sem nú herja á hollendinga vegna mútufjár- ins, sem borið hefur verið á Bernharö prins. Hann er jafnvel ekki lengur talinn ekta prins heldur launsonur rússnesks hvitliðaforingja, auk þess i kvensamara lagi eins og titt er, svo fyrir utan að varpa skugga á hollensku konungsættina, hefur hann hvergi reynst trúr húsi Oraniu. Júliönu lýsa bandarikjamenn á þann veg að hún beri meiri svip matráðskonu en drottn- ingar, og hirða litt um ætt hennar, en hún verður rakin til ársins átta hundruö, eða eitt þúsund árum lengra aftur en saga Bandarikjanna. Að visu er drottningin af tveimur húsum eða lénum, Oraniu og Nassau. Auðvitað varðar nútimann ekkert um þá frönsku hreppa lengur. Eftir stendur aðeins svolltið aumkvumarverð drottning með pinulitið skáld- aðan prins óvissrar ættar. Við I Evrópu teljum, að ekki verði borið fé á forseta, konunga eða prinsa, vegna þess að þeir hljóti að vera hafnir yfir slikt veraldarumstang. Auk þess eru þetta ekki persónur I venju- legum skilningi, heldur imynd þjóða. Þegar Locheed-fyrir- tækið bandariska bauð Bern- harði prins eina milljón dollara til að koma á flugvélavið- skiptum við hollendinga, var fyrirtækið I rauninni aö bjóða hollendingum mútur sem þjóð. Þetta er auövitað skortur á kurteisi og skilningi á þvi, til hvers þjóðir kjósa að hafa prinsa. Hér er þvi ekki um að ræða mál Locheed og húss Ora- nlu, heldur mál hollensku þjóð- arinnar og Bandarlkjanna, og eðli sínu samkvæmt er það svo dæmalaust, að hollendingar gerðu réttast I þvi að slfta stjórnmálasambandi við bandarikjamenn, sem mundu eflaust ekki telja það til kurt- eisi, ef hollenskur túlipanasali sneri sér til Bettyar forseta- frúar og bæri á hana fé til að gera hana að gangandi auglýs- ingu fyrir túlipana. Amerikanlseringin á húsi Oraniu hefur tekist fullkomlega. Gömul virðuleg konungsætt er komin á Watergate-stigið og „litið útkjálkaland” liggur i sárum, svo notuð séu orð Damon Runyon af öðru tilefni. Viðskipti Locheed við Bernharö prins sýna, að bandarikjamenn ætla seint að láta af svertingja- viðhorfinu til þjóða, sem eru ekki af engilsaxenskum upp- runa. Svarthöfði

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.