Vísir - 13.09.1976, Side 3
iYlánudagur 13. september 1976.
3
FJÓRIR BRÚARSTÖPLAR
AF TÓLF KOMNIR UPP
veður fer að versna og ishrafl að
myndast á firðinum.
I sumar hafa starfað hér á
milli sjötiu og áttatiu manns,
þegar allt er meðtalið. Nú hefur
starfsfólkinu aftur á móti fækk-
að, þvi að skólafólkið er farið,
og starfa hér nú um fimmtiu
manns.
Það hefur allt gengið hjá okk-
ur samkvæmt áætlun, og það
sem betra er, án þess að nokkur
— og tveir í viðbót eiga
að verða tilbúnir óður
en ís og sjór stöðva
framkvœmdir við
Borgarfjarðarbrúna
/,Við settum okkur það
markmiðað Ijúka við sex
stöpla á þessu ári, og við
erum komnir langt með
það", sagði Jónas Gísla-
son, brúarsmiður við
Borgarfarðarbrúna, er
við ræddum við hann i
gær.
Jónas er yfirmaður við þessa
miklu brúargerð i landi, en yfir-
maður úti á firðinum er
Haukur Karlsson. 1 hann gátum
við ekki náð, en Jónas gat leyst
greiðlega úr spurningum okkar.
„Við höfum þegar lokiö við að
steypa og ganga frá fjórum
stöplum og þessa dagana er
verið að vinna við stöpla númer
fimm og sex. t allt verða þeir
tólf talsins — og ljúkum við þvi
helmingnum i ár.
Það er reiknað með að unniö
verði við þessa stöpla sem eftir
Það fer ekki öll vinnan við nýju Borgarf jarðarbrúna fram út á firðinum. Uppi á landi er lika unniö baki
brotnu og það bæði innan dyra og utan. Ljósmynd Loftur.
eru fram i miðjan október. Eftir úr vinnunni úti á firðinum, þvi alvarlega slys hafi orðið á
þann tima förum við að draga að hæpið er að vinna úti þegar fólki”. —KLP
Það er unniö á fullum krafti við að byggja stöplana undir Borgarfjarðarbrúna. Fjórir þeirra eru þegar komnir upp.
Hross utan fyrir 100 milljónirr
Tekjur islenskra
bænda af hrossasölu til
útlanda munu nema
nálægt eitt hundrað
milljónum á þessu ári.
Verð á hrossum virðist
vera nokkuð svipað þvi
sem það var i fyrra.
tslenskir hestar eru aðallega
fluttir út til Þýskalands, Hollands
og Danmerkur og einnig hefur
eitthvað af Islenskum hrossum
verið selt til Norður-Ameriku á
undanförnum árum.
Núorðið eru þaö svo til ein-
göngu tamin hross sem flutt eru
utan, en þaö hækkar þau að sjálf-
sögðu talsvert I verði. Þá er sú
breyting á oröin, að nú eru nær
eingöngu fluttir út geltir hestar,
en ekki stóðhestar og fylfullar
merar eins og áður tiðkaðist. Var
það reyndar mikið deilumál á sin-
um tima hvort leyfa ætti slikan
útflutning, þar sem hann kæmi 1
veg fyrir framhaldssölu siðar.
Reynslan virðist þó hafa sannað
aö það hefur ekki skaðað markað-
inn, enda talið aö eðliseiginleikar
islenska hestsins erfist ekki nema
I fáa ættliði á erlendri grund.
Nú á næstunni verða flutt utan,
flugleiðis á vegum Búvörudeildar
SIS um 80 hross, en það hefur
færst i vöxt hin siöari ár að flytja
hrossin flugleiðis utan.
— AH
Frá l.ágúst s.l. yfirtókum vid
einkaumbod fyrir Avery
verdmerkivélar og mida.
Veitum jafnframt alla
varahluta- og vidgerdar-
þjónustu.
Grensasvegi 7, simi 82655