Vísir - 13.09.1976, Síða 13

Vísir - 13.09.1976, Síða 13
 Mánudagur 13. september 1976. VISIR VISIR Mánudagur 13. september 1976. 6. Ómar Einarsson, fram- kvæmdastjóri og Theódór Gunnarsson, einn af starfs- mönnum Tónabæjar. Hvar eru allir strákarnir eiginlega? AÐ HÆGT AD FARA IN NKMffi A HALLÆR- Hér dunar dansinn, og ekki annað að sjá en allir skemmti sér hið besta. „Vildi ekki deginum leng- ur treysto eingðngu á guð Og gœfuna" segir Davíð Oddsson augu Davíðs sagðist hann ekki deginum lengur vilja „treysta eingöngu á guð og gæfuna”. Um afskipti lögreglunnar af gestum staðarins sagði Davlð, að lögreglan segðist hafa nóg að gera við aðra staði I borginni á þessum tima, og sjálfsagt væri það rétt. „Að minnsta kosti vil ég ekki segja að lögreglunni sé neitt um að kenna. Auk þess mætti svo benda á, að þessi staður er undir umsjá opinberra aðila, svo ekki ætti að þurfa að hafa þar öfluga löggæslu. A næstunni verður unnið að frágangi á lóð og ytra útliti Tónabæjar, og ef til viíi eitthvað innandyra, að sögn Davíðs. Annars sagði hann að ekkert yrði að frétta af þessum vett- vangi fyrr en nefndin sem gera ætti tiliögur um framtíð Tóna- bæjar hefði skiiað áliti. —AH „Komast þarf fyr- ir rœtur vandans" segir Margrét Margeirsdóttir fulltrúi í Æskulýðsráði „Astandið fyrir utan Tónabæ undanfarin föstudagskvöld hefur verið þannig, að hætta virtist á aö ógnvekjandi at- burðir gætu gerst, og þvi var ekki um annaö að ræða en að ioka staönum um tvær helgar,” sagði Margrét Margeirsdóttir fulltrúi I Æskuiýðsráöi, er Visir ræddi vö hana um lokun Tóna- bæjar. Hún sagöi að iögregian virtist ekki ráða við ástandiö, og Æskuiýðsráö gæti ekki tekið á sig þá ábyrgð að eitthvert stór- slys hiytist af skemmtunum þess við húsið. Margrét sagði ennfremur, að margar ástæður væru að baki þessu ófremdarástandi sem þarna rikti, t.d. mætti nefna að unglingar væru nú að byrja i skólanum aftur eftir sumar- vinnuna, og hefðu þvi meiri fjárráð en áður. Einnig mætti nefna iokun Þórskaffis, en þann stað hefðu unglingar á þessum aldri sótt á föstudagskvöldum. Þá væru staðir fyrir unglinga alltof fáir, bæði i Reykjavik og nágrannabyggðarlögunum og spyrning væri hvort skólarnir gætu ekki leikiö stærra hlut- verk. Raunar væri Tónabær eini staðurinn á öliu þessu svæði. Þaö væru þvi ekki aöeins ungl- ingar úr Reykjavik sem kæmu i Tónabæ. Margrét sagðist ekki telja aö þaö væri neir lausn á vandanum að loka Tónabæ til frambúöar, þó að nauðsynlegt hefði verið aö gripa til þess ráðs nú. Aðalat- riðið væri að komast fyrir rætur vandans, þvi að þaö hlyti aö vera stórt vandamál þegar unglingar allt niður i 13 tii 14 ára aldur væru dauöadrukknir aö flækjast úti um nætur. Að lokum sagöist Margrét hafa sinar hugmyndir um hvernig leysa ætti þetta vanda- mál, en taldi ekki ráðlegt aö tjá sig um þaö fyrr en vinnunefndin heföi fengiötima til aö skila sinu áliti. —AH ÞJÓÐMÁLAFUNDIR VARÐAR: • Landsmálafélagið Vörður, samband félaga Sjálfstæðismanna I hverfum Reykjavikur, heldur almennan fund i Atthagasal Hótel Sögu þriðjudaginn 14. september kl. 20:30. • Ellert B. Schram, alþm. flytur framsöguerindi um efnið „Hvað er til úrbóta i meðferð dómsmála?” • A eftir framsöguræðu hefjast panel-umræður, sem i taka þátt auk framsögumanns: Magnús Thoroddsen, borgardómari, Páll S. Pálsson, hrl., Sigurður Llndal, forseti lagadeildar og Þor- steinn Pálsson, ritstjóri. • Panelstjóri: Jón Steinar Gunnlaugsson, lögfr. • Allir velkomnir. Stjórn Varðar. Þriðjudaginn 14. sept. kl. 20:30 Atthagasalur „KREBS" Málningarsprautur eru jafn handhægar og máhingarpenslar/ en margfalt hraðvirkari og gefa slétta áferð og möguleika að þekja fleti sem ekki er hægt að snerta á annan hátt. Fljótlegt að skipta um liti. Tonabær veröur ekki opmn til dansleikjahalds eða annarrar starfsemi á vegum Æskulýðsráðs næstu tvær helgar, hvað sem sfö- ar verður svo ákveöið. Var þessi ákvörðun tekin af Æskulýðsráöi eftir hina slæmu reynslu sem fengist hefur af drykkjuskap unglinga við staðinn á meöan dansleikir hafa staðið yfir i haust. Sérstaklega þótti keyra um þverbak á dansleikjum á tveim siöastliönum föstudagskvöldum. Hafa jafnvel sumir gengið svo langt að segja nánast hafi rikt neyöarástand fyrir utan húsiö eftir að dansleikjunum lauk, og langt fram eftir nóttu. Þar hafa verið slagsmál, rúður brotnar, og dauðadrukknir unglingar himt þar margar klukkustundir illa til reika i nánast hvaða veðri sem er. Það undarlegasta er, þegar þessi lýsing er höfð i huga, að áfengisneysla innan dyra Tóna- bæjar hefur ekki verið neitt vandamál. Heimsókn í Tónabæ Visismenn lögðu leiö sina i Tónabæ á siðasta dansleikinn og hittu þar aö máli bæði krakka sem þar voru að skemmta sér og einnig framkvæmdastjóra staöarins og starfsfólk. A þessu balli voru ekki sjáanleg áfengisáhrif á nokkrum manni, og allt var með kyrrum kjörum utandyra. Þarna voru að skemmta sér unglingar á aldrin- um 13 og 14 ára, en böll fyrir þann aldursflokk hafa verið á fimmtu- dagskvöldum I sumar. Hefur ekki komið til vandræða á þeim kvöld- um, svo aö þaö virðast vera þau sem eldri eru sem sett hafa svip drykkjusvalls og svinaris á Tónabæ. Nýstárlegur dansleikur Þegar komið er inn i danssalinn ber þar margt fyrir augu sem ekki gefur að sjá á danssam- komum fullorðins fólks. 1 fyrsta lagi var enginn undir áhrifum áfengis, en það þætti saga til næsta bæjar, gæti fullorðið fólk skemmt sér á þann hátt. Hins vegar vakti það athygli t ofsa stuði. hve margir reyktu, og yfir saln- um lá þykkt tóbaksský. Þegar það svo blandaðist allavega lituð- um ljósunum i salnum var ekki laust viö aö nokkuð skuggsýnt yrði, og einnig súrnaði manni i augum af öllum þessum reyk. Stór hluti ballgestanna dansaöi af miklum móði I mik- illi þvögu á gólfinu og virtist skemmta sér hið besta. Aðrir sátu og ræddu málin, gjarna yfir kókglasi og bakka af frönskum kartöflum, en sá réttur viröist njóta mikilla vinsælda gesta Tónabæjar. Enn einn hópurinn virtist aðallega æða um húsið án sérstaks fyrirheits, og virtist sá hópur nokkuö fyrir- ferðarmikill. Ekki fór hjá þvi að blaöa- mennirnir rækju augun i klæða- burð krakkanna, og þá sérstak- lega það, að stór hluti þeirra .klæddist þykkum kuldaúlpum inni i húsinu, þó að þar væri vel kynnt og hiti mikill léttklæddu fólki. En sinn er siður i landi hverju... ef Tónabæ verður lokað,” sögðu þær, og þá kváðust þær ekki hafa i nein hús að venda. „Ekki nema þá bió, og kannski Hallærisplan- ið”, sögðu þær. „Það hefur ekki verið neitt fylliri á þessum böllum hér, kannski einstaka sinnum verið einn og einn”, sögðu þær ennfremur. „Það er ekkert varið I skóla- böllin. Þar fáum við aldrei neinar hljómsveitir, og svo hanga kenn- ararnir yfir okkur allt kvöldið”, sögðu þær, en þær heita Hildur Betúelsdóttir, Asta Jónsdóttir, Gunnhildur Björnsdóttir, Ragna Áfengið ekki vandamál innan dyra „Afengið hefur aldrei verið neitt vandamál hér innan dyra. Það er það fyrst og fremst fyrir utan”, sagði Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri Tónabæjar er viö hittum hann frammi i eldhúsi. Sagði hann að vandamál 1 sam- bandi við drykkju heföu komið upp fyrir utan húsið undanfarin haust, og þetta væri e.t.v. ekki verra en áður, nema hvaö nú Þaö er ekkert eftir nema Hallærisplanið, sögðu þeir Sigurjón og Jóhann. Jóhannsdóttir og Guöriöur Bjarnadóttir. Þá er ekkert eftir nema Hallærisplanið Skammt frá stóðu þeir Sigurjón Asgeirsson og Jóhann Skarp- héðinsson, báðir 15 ára úr Lauga- lækjarskóla. „Það verður ekkert hægt að fara ef Tónabæ verður lokað”, sögðu þeir, „ekki þá nema Hallærisplanið. Við förum oftast hingað á ball svona einu sinni til tvisvar i viku”, sögðu þeir ennfremur. Þeir tóku undir það sem stelpurnar sögðu, aö það væri ekkert varið i skólaböllin, enda væru aldrei neinar hljóm- sveitir þar. byrjaöi þetta mun fyrr, eða i ág- úst I stað nóvember áöur. ómar sagöi að nú yrði bara aö biöa þar til nefnd Æskulýðsráös heföi komist að einhverri niðurstöðu, en þangað til yrði ekkert gert, hvorki haldnar skemmtanir né unnið i húsinu. Sjálfur kvaðst Ómar nú vera að hætta störfum. „Enda er best að hætta áöur en maður veröur leið- ur”. Vöruskipti viö rónana „Krakkarnir ná sjálfsagt i viniö meö ýmsum hætti. Eldri systkini kaupa fyrir þá, eða þá kunningjar sem náð hafa lágmarksaldri. Einnig vitum við til þess aö Það er ekkert gaman á skólaböllunum þvi að þar hanga kennararnir alltaf yfir okkur, sögðu Hildur, Asta, Gunnhildur, Ragna og Guðriður. Hvað er í meðferð til úrbóta dómsmóla? 40 vatta 4 mm. stimpill, afköst 9 Itr. klst. 60 vatta 5 mm. stimpill, afköst 12 Itr. kls. 80 vatta 5 mm. stimpill, afköst 18 Itr. kls. Þrýstingur við spiss 70 kg. sm Sveinn Egilsson h/f, Skeifan 17, Iðngörðum Kennararnir hanga yfir okkur Frammi i anddyri rákumst viö á fimm stelpur sem stóöu þar og ræddu málin, og eftir nokkra umhugsun áræddum við að biöja leyfis aö ónáða þær örstutta stund, og var það góðfúslega veitt. Þær kváðust vera á aldrinum 12 til 14 ára og vera i ýmsum skólum, m.a. úr Æfingadeildinni og Alftamýra- skólanum. „Okkur finnst það mjög slæmt, „Það fer auðvitað ekki hjá þvi að lokun Tónabæjar bitni að einhverju leyti á þeim er sist skyldi en við hreinlega þorðum ekki að hafa hann lengur opinn eins og ástandið þar var orðið”, sagði Davið Oddsson, formaður Æskulýðsráðs Reykjavfkur er Visir spurðist fyrir um lokun staðarins. Sagðist hann hafa verið viö staðinn milli kl. hálf tólf og hálf tvö á föstudagskvöldið fyrir rúmri viku, og ástandið hefði verið ógnvekjandi. „Ég get bara ekki tekið á mig ábyrgö á þvi sem þarna gæti gerst”, sagði Daviö. Sagði hann að það hefði að visu komið upp svona vandamál haustið áður, en nú byrjaöi þetta mun fyrr en áður, og hefði auk þess verið mjög slæmt i allt sumar. Þó hefðu böllin i miðri viku alltaf verið mun skárri. „En þarna á föstudaginn vor- um við bara á nálum um að orð- ið gæti stórslys”, sagði Daviö ennfremur. „Þarna var kastað til flöskum, rúður brotnar, og um allt voru logandi slagsmál. Svo var verið aö hleypa út ágæt- is fólki, og það samlagaðist þessu að einhvsrju leytierþað kom út. Eftir það sem þarna bar fyrir „NÚ ER EKKERT ANN- ISPLAN ## segja krakkarnir eftir lokun Tónabœjar Hvert fara ungling- arnir verði Tónabœ lokað endanlega? Hvar eiga unglingarnir að skemmta sér eftir að Tónabæ hefur verið lokað? Eru til ein- hverjir skemmtistaðir sem geta komiö i staðinn? Hafa þessir ung- lingar yfirleitt einhverja þörf fyrir slikan staö? Þessar og þvi- líkar spurningar hljóta óhjá- kvæmiiega að vakna ef af endan- iegri iokun Tónabæjar veröur. Þvi er fljótsvarað aö þessir ald- urshópar sem sótt hafa Tónabæ eiga ekki i önnur hús að venda hvað danshús snertir. Nánast öil önnur danshús i borginni eru vin- veitingahús þar sem miðað er viö 18 eða 20 ára aldurslágmark. Af flestum þeim er um þessi mál hafa fjallað er viöurkennd skemmtanaþörf þessara borgara ekki siður en annarra. Það hlýtur þviað vera brýn nauðsyn að opin- berir aðilar bregðist ekki þeirri krakkarnir kaupa spritt, og fá siöan rónana eða útigangsmenn- ina til aö kaupa fyrir sig áfengi i staðinn sem þeir siðan skipta við þá á. Alla vega er það ekkert vandamál fyrir krakkana að ná sér i brennivin, ef áhugi er fyrir hendi”, sagði einn starfsmanna Tónabæjar er við spurðum hann hvernig unglingar útveguöu sér vin. Lögreglan skiptir sér ekki af því Þá kom það einnig fram hjá starfsfólki Tónabæjar, að það er undrandi á vinnubrögðum lög- reglunnar sem oft kæmi að hús- inu. Virtust vinnubrögð lögreglu- manna vera mjög tilviljana- kennd, og væri það jafnvel breyti- legt eftir vöktum hjá þeim hvað þeir aðhefðust við drukkna ungl- inga. Þannig létust þeir t.d. ekki sjá það þó að unglingar á aldrinum 14 til 16 ára væru að slangra um fyrir framan þá með kannski fulla þriggja pela brennivins- flösku. Kváöust þeir starfsmenn Tóna- bæjar sem við hittum þó vera þess fullvissir að meiri harka i löggæslu hvers konar gæti bætt ástandið. Enginn vafiværit.d. á þvi að unglingarnir fyndu til þess ef hellt væri niður vini fyrir þeim fyrir nokkur þúsund krónur. Þá kom það einnig fram hjá einum þeirra er við ræddum viö, aö þaö að loka Tónabæ væri hrein uppgjöf, og það væri verið að flýja vandann i stað þess aö leysa hann. Enda bitnuðu þessar aðgerðir mest á þeim er ekkert hefðu til saka unnið. —AH skyldu sinni áö ieysa máliö far- sællega. Af viötölum sem Visir hefur átt við unglinga á „Tónabæjaraidrin- um” kemur fram, aö þeir eru sár- óánægðir með að missa staöinn og telja sig ekki hafa i önnur hús að venda. Er þci hætt við að nú muní fleiri þeirra verða á flakki um bæinn, m.a. niðri I miðbæ á hinu svonefnda Hallærisplani, og getur það varla talist heppilegasti staö- urinn þegar vetur gengur i garð. Þeir ungiingar sem ekki eru I iþróttum eöa skátahreyfingunni eiga vissulega skilið aö þeim sé einnig veitt einhver úrlausn. Þaö mætti vel hafa i huga þegar veriö er að úthluta fé til þeirra félags- samtaka, sem vissulega eru góð og giid, en ná ekki að leysa vanda nema örfárra unglinga. —AH

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.