Vísir - 13.09.1976, Qupperneq 24
VÍSIR
Mánudagur 13. september 1976.
Ellefu á
sjúkra-
hús eftir
árekstur
Ellefu manns var flutt á
sjúkrahús i Keflavík um
helgina eftir árekstur
tveggja bifreiða á Reykja-
nesbraut rétt við Voga-
stapa.
Bifreiðarnar óku hvor á möti
annarri á fullri ferð. Við árekst-
urinn kastaðist önnur bifreiðin út
af veginum og valt, en ökumanni
hinnar tókst að halda sinni bifreið
á veginum.
1 öðrum bilnum voru þrir far-
þegar auk ökumanns en i hinum
voru farþegarnir sex og öku-
maðurinn sá sjöundi. Allir til-
tækir lögreglu- og sjúkrabilar i
Keflavik voru fengnir til að flytja
fólkið á sjúkrahús. Niu fengu að
fara heim að lokinni rannsókn, en
tveir verða að vera áfram á
sjúkrahúsi, enda meiösli þeirra
töiuverð.
Ekki er vitað hvað slysinu olli.
Það eiga lögreglan og trygg-
ingarfélögin eftir að kanna, og
liklegt er að fulltrúar trygginga-
félaganna geri athugasemd við
það að i öðrum bilnum voru sjö
manns, þvi þarna var um fimm
manna bil að ræða. —KLP.
Stöðugir skjálftar
við Kröflu
„Það er nú alltaf einhver hreyf-
ing hérna i kringúm okkur”,
sagði Haraldur Stefánsson, verk-
fræðingur við Kröfiu i morgun, er
Visir spurðist fyrir um jarð-
skjálfta á svæöinu.
Sagöi hann að fæstir skjálft-
anna væru þó merkjanlegir, en
stöðugt kæmu skjálftar fram á
mælunum i Reynihlið.
Tveir borar eru nú i gangi við
Kröflu, stóri borinn Jötunn, og
gufuborinn Dofri. Er Jötunn nú
kominn niður á 1130 metra dýpi i
holu sjö, en Dofri er að komast
niður úr fóðringunni.
Enn er ekki vist hvernig hola
sex reynist, en hún er nú látin
blása, og beðið er til að sjá hvern-
ig hún reynist.
—AH
VERÐLAUNA-
SAMKEPPNIN:
Skilafrestur
lengdur til 15.
september
Vegna tilmæla viðs vegar að
af landinu hefur verið ákveðið
að veita viðbótarfrest til þess
að skila atkvæðaseðlum I
verðlaunasamkeppni VIsis um
fallegustu borðskrcytinguna,
sem kynnt hefur verið I
helgarblaöinu.
Skilafresturinn er til 15.
september, það er til næst-
komandi miðvikudagskvölds.
Fyrir þann tima þarf að skila
seðlunum til ritstjórnar eða
afgreiðslu Vísis I Reykjavfk
eöa til þeirra verslana, sem
selja Solarisborðbúnað úti um
land.
Notið tækifæriö og sendiö
inn atkvæðaseöla ykkar sem
allra fyrst þvi að góð verölaun
eru I boði, eins og fram hefur
komið hér I Visi.
Hellir lokaður af mannavðldum
o ,
fannst í Hafnarfjarðarhrauni
Fólk sem var á ferð i
hrauninu við Hafnar-
fjörð um helgina, kom
þar auga á einkenni-
lega gjótu, sem sýni-
lega hafði verið lokað
af mannavöldum.
Yfir hana hafði verið sett
grjót og spýtur og siðan mosi
lagður þar snyrtilega yfir.
Fólkið hreyfði ekki viö neinu á
staðnum og gerði lögreglunni I
Hafnarfirði þegar viðvart.
Þegar hún kom var gjótan
opnuð, og kom þa í ljós hellir,
sem fullorðinn maður gat
komist niður I og gengið um þar
inni. Var þetta þvi hinn ákjósan-
legasti felustaður fyrir hvað
sem var.
En ekkert grunsamlegt fannst
þarni inni eða I næsta nágrenni,
og enn ekki vitað til hvers hellir-
inn hefur verið notaður né
hver jir hafa gengið svona vel frá
innganginum
Þetta er i þriðja sinn á
skömmum tima sem lögregl-
unni hefur verið bent á grun-
samlega staði I hrauninu af
árvökulu fólki sem þar hefur
verið á ferð. í eitt skipti fundust
þar stórir plastpokar, sem mjög
vel hafði verið gengið frá, en
innihald þeirra reyndist vera
lítið annað en rusl er þeir voru
opnaðir.
—KLP.
Flugrœningjarnir geta
átt von á dauðadómi
Flugvélaræningjarnir verða
ákærðir i New York i dag. Fyrir
ránið sjálft geta þeir átt von á
að fá 20 ára til lifstiðarfangelsi.
Aður en króatarnir rændu
flugvélinni höfðu þeir komið
fyrir sprengjum i miðborg New
York. Ein þeirra sprakk með
þeim afleiðingum að lögreglu-
maður lést og þrir aðrir særð-
ust. Flugvélaræningjarnir fimm
geta nú átt von á að hljóta
dauðadóm vegna drápsins á
lögreglumanninum.
Þetta flugvélarán hefur vakið Tveir flugvirkjar frá Flugleiöum, þeir Haraldur L. Haraldsson og Guðjón Guðlaugsson fara með tvær
mikla athygli hér á landi sem töskur fullar af áróöursmiðum um málefni króata, um borö I fylgdarvélina, Boeing 707 þotu frá TWA.
Miðunum var dreift yfir London og Parls.
vonlegt er. Þetta er i fyrsta
skipti sem flugvél, er rænt hefur
verið, lendir hér á landi. Mikill
viðbúnaður var á Keflavíkur-
flugvelli fyrir hádegi á laugar-
dag þegar flugvélin lenti þar.
Þetta var Boeing 727 fiugvél frá
bandariska flugfélaginu TWA
og var Boeing 707 vél I fyigd
með henni, þar sem sú fyrri var
aðeins búin tækjum fyrir innan-
landsflug og flugmennirnir
reynslulausir i úthafsflugi.
Hér var vélin fyllt af bensíni,
ræningjarnir fengu svolltið af
mat og sendu áróðursbæklinga
yfir I 707 vélina til aö dreifa yfir
London og Parls.
Klukkan rúmlega eitt lögðu
vélarnar af stað héðan. Lenti
flugvél ræningjanna I Parls þar
sem þeir gáfust upp.
_______ _ _ Ræningjarnir fimm eru úr
hreyfingu króata sem vilja að-
skilnað Króatlu og Júgóslavlu.
Segja þeir að króatar séu mis-
rétti beittir af ráðamönnum I
Júgóslavíu og var flugránið
framið I þeim tilgangi að vekja
athygli umheimsins á baráttu
króata.
Ræningjarnir fimm eru
Zvonko Busic, þritugur leiðtogi
hópsins, kona hans Julienne Ed-
en Busic 27 ára, fyrrverandi
flugfreyja frá Þýskalandi, Pet-
er Matavic, 31 árs, Mark Vlasic
„ . . . 29 ára og Frane Pesut 25 ára.
Fylgdarþotan, Boeing 707, beiö viö flugstöövarbygginguna á Keflavikurflugvelli á meðan hin tók elds- —EKG
neyti, matur var fluttur um borð og dreifimiðar frá borði 10
Boeing 727 þota flugræningjanna á Keflavfkurflugvelli var látin staönæmast á brautarenda I öryggis-
skyni.
■
iiSaSi
Króatisku flugvéia-
ræningjarnir fimm
sem rændu flugvél i
innanlandsflugi i
Bandarikjunum og
lentu henni meðal ann-
ars hér á landi eru nú
komnir til Bandarikj-
anna. Ræningjarnir
gáfust upp fyrir lög-
reglunni i Paris i gær.
Lftil stúlka drukknaði í frárennslisþró
Það slys varð við bæinn Teig I
Mosfellssveit siðari hluta dags I
gær, að fjögurra ára gömul stúlka
drukknaði þar i frárennslisþró.
Litla stúlkan kom þangað I gær
ásamt foreldrum sinum, sem
voru i viðskiptaerindum, og ætl-
uðu aðeins að dvelja að Teigi
stutta stund. Fór hún út úr húsinu
án þess að nokkur vissi, og var
ekki saknað fyrr en foreldrar
hennar ætluðu að halda yf stað
nokkrum minútum slðar.
Var þá hafin leit að henni, og
fannst hún látin i frárennslisþró
frá hænsnahúsinu á Teigi, sem er
rétt við bæinn. Þró þessi er rúmur
metri á dýpt, og var opin og ógirt,
þar sem unnið er að framkvæmd-
um við húsið um þessar mundir.