Vísir - 15.09.1976, Blaðsíða 9
VISIR Miðvikudagur 15. september 1976.
9
í BÚÐARDAL FER VEL
UM ALLA FERÐAMENN
Borghildur i einu sjö herb-
ergjanna sem hún teiknaði
innanstokksmunina i en eigin-
maður hennar siðan smiðaði. Borghildur Hjartardóttir veitingakona fyrir utan gistiheimili sitt i Búðardal. Ljósmyndir Loftur.
Vísir rœðir við
Borghildi Hjartar-
dóttur veitinga-
konu, gistihúsinu
Bjargi í Búðardal
„Það er ekki hægt að segja að
þetta hafi verið gott sumar hjá
okkur, þvi veðriö hefur verið
svo leiðinlegt. Við getum sagt aö
það hafi verið þrjár vikur sæmi-
iega góðar í sumar, en það veg-
ur lítið upp á móti hinum fjöru-
tiu og niu sem einnig er opið hjá
okkur á hverju ári.”
Þetta sagði veitingakonan
Borghildur Hjartardóttir sem
ásamt eiginmanni sinum Ás-
Segja má að Búðardaiur sé þjónustumiðstöð fyrir bændurna I Döiunum. Þangað koma þeir bæöi akandi
og riðandi, og ef þeir ná ekki að Ijúka þvi sem gera skal I kaupstaönum á einum degi, er gistihúsið opið
— og þar er gott að hvila lúin bein.
geiri Guðmundssyni rekur gisti-
húsið Bjarg i Búðardal, er við
ræddum viö hana þegar við
gistum i Búðardal fyrir nokkr-
um dögum.
Þau hjónin reka þarna litið en
mjög snyrtilegt gistihús, og
gera það með slikum sóma að til
þess er tekið af flestum þeim,
sem hjá þeim hafa búið.
Þess ber gestabók „heimilis-
ins” glöggt vitni, en i hana hefur
ritað fólk viðsvegar að. Má
segja að sú bók sé samansafn af
nöfnum oghrósyrðum, og vafa-
mál að fleiri hrósyrði verði rituð
i eina bók hér á landi.
bau hjónin hafa starfað við
gistihúsarekstur i Búðardal i
meir en 20 ár. Fyrir 14 árum
urðu þau fyrir þvi óhappi að eld-
ur kom upp i gistiheimili þeirra,
Hafði kviknað i út frá vindlingi,
sem einn gestanna hafði lagt frá
sér.
Brann allt sem brunnið gat,
en þau gáfust samt ekki upp.
Þau hófust handa að nýju og
reistu það „Bjarg” sem nú
stendur.
Ágúst, sem vinnur við kjöt-
pokagerð i Búðardal — það er
einn iðnaðurinn sem þar er
stundaður — smiðaði allt sem
hann gat utanhúss og innan, og
Borghiidur aðstoðaði. Teiknaöi
hún meðal annars stóran hluta
af innanstokksmununum i hús-
inu, en hann smiðaöi þá si'ðan
eftir teikningum hennar.
Fengu litlar 200 þúsund
krónur fyrir árið.
„Við fengum SOOþúsund krón-
ur út úr tryggingunum eftir
brunann. Það nægði engan veg-
inn til að dekka kostnaðinn við
uppbygginguna, en okkur tókst
samt meö sameiginlegu átaki
að koma þessu aftur af stað.
Við erum með opiö allt árið.
Herbergin eru sjö og i allt
sextán rúm. Þar fyrir utan er
eldhús og matsalur, en við sjá-
um gestum okkar einnig fyrir
mat og kaffi þegar þeir óska
þess.
Þrátt fyrir að gestagangur sé
ekki mikill, hefur okkur enn tek-
ist að halda þessu gangandi, en
hvað það verður lengi, er ekki
gott að segja um.
Það er litið sem við fáum frá
opinberum aðilum, og með það
erum við mjög óánægð. A þessu
ári fengum við aðeins 200 þús-
únd krónur frá Ferðamálasjóði,
en sóttum um mun hærri upp-
hæð. Hún var skorin niður i
þetta, en á sama tima fá staðir
sem hafa aðeins opið yfir sum-
armánuðina allt að 700 til 800
þúsuno krónur.
Þetta teljum við vera mikið
óréttlæti. Én það er Utið mark
tekið á þvi sem við þessir litlu
aðilar höfum að segja i þessu
máli.”
GISTIHÚSÍÐ
BJARG
Á afgreiðsluborúiíiu ci geymu gesiaooKin, sem geymir flest hrós
yrði á islenska tungu.
í snyrtilegum matsainum er bæöi hægt að fá keyptan góðan mat og
kaffi og heimabakaö meðlæti.
. Ljósm: Loftur Ásgeirsson
Texti: Kjartan L. Pólsson