Vísir - 29.10.1976, Page 10
10
Föstudagur 29. október 1976 VISIR
VÍSIR
t'tgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvemdastjóri: DavföGufimi ndsson.
Ritstjórar: Þorsteinn Patsson. dbm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Um-
sjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guöfinnsson,
Guöjón Arngrimsson, Kjartan L. Pálsson, Oli Tynes, Rafn Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir. Akur-
eyrarritstjórn: Anders Hansen. iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjónsson. Otlitsteiknun: Jón Osk-
ar Hafsteinsson, Þórarinn j. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. SigurÖsson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgata 44.S(mar 11660,86611
Afgreiösla: Hverfisgata 44. Simi 86611
Ritstjórn: Sföumúla 14. Simi 86611, 7 linur
Akureyri. Slmi 96-19806
Askriftargjaid kr. 1100 á mánuöi innaniands.
Verö i lausasölu kr. 60 eintakiö.
Prentun: Blaöaprent hf.
,j
Hin einföldu viðhorf og
úlfakreppa sjónvarpsins
Sjónvarpsmál hafa mjög verið í deiglunni undan-
farna mánuði. Segja má, að stofnunin hafi verið í
hálfgerðri úlfakreppu. Koma þar m.a. til erfiðleikar
vegna launakerf isins, en einnig tæknileg viðfangsefni
eins og jarðstöð og útsendingar efnis í litum. Ljóst er,
að litaútsendingar eru nú í brennidepli.
Fram til þessa hefur sú framsóknarstefna verið
ríkjandi, að alls ekki megi hef ja útsendingar á efni í
litum, nema áður hafi verið komið upp fullkomnu
dreifingarkerfi um allt landið. Út af fyrir sig felst í
þessari afstöðu góð hugsun, ef menn vilja endalaust
skipa hinum einföldu viðhorfum í öndvegi.
Sannleikurinn er vitaskuld sá, að dreifikerfi sjón-
varpsins er á ýmsan hátt ófullkomið og enn eru nokkr-
ir staðir á landinu, þar sem ekki er unnt að sjá útsend-
ingar sjónvarpsins. Og um það er heldur ekki deilt, að
þessi áhrifamikli f jölmiðíII eigi að ná til landsmanna
allra. Álitaefnið er hins vegar hvernig því marki
verður náð.
Uppbygging dreifikerfis sjónvarpsins hefur m.a.
byggstá aðflutningsgjöldum af nýjum sjónvarpstækj-
um. Þessi tekjustofn var drjúgur á fyrstu árum sjón-
varpsins, en hefur nú eðlilega dregist saman. Nú
halda menn að sér höndum og draga að endurnýja
sjónvarpstæki sín þar til þeir geta keypt tæki, sem ná
útsendingum í litum.
En rikjandi framsóknarstefna segir, að ekki megi
fyrir nokkra muni leyfa útsendingar f litum og inn-
flutning á viðeigandi tækjum fyrr en dreifikerfið er
fullkomnað. Afleiðingin er sú, að það fást aldrei pen-
ingartil þessaðstyrkja og endurbæta þetta kerfi. Það
gerist ekki fyrr en innf lutningur á litasjónvarpstækj-
um verður gefinn frjáls. Þetta er kjarni málsins.
I sjálfu sér er þetta ekki flókið mál, ef rétt stjórn-
völd fengjust til að taka sjónaukann frá blinda aug-
anu. Varaformaður útvarpsráðs hefur nú riðið á vaðið
og fluttá Alþingi ályktunartillögu, þar sem skorað er
á ríkisstjórnina að stuðla að þvi að sjónvarpið geti
hafið reglulegar útsendingar á efni í litum með því að
samþykkja áfangaáætlun þar að lútandi, gefa frjáls-
an innflutning á litasjónvarpstækjum og ákveða að
tolltekjum af þeim innflutningi verði varið til
endurbóta á tækjabúnaði og dreifikerfi.
Sjónvarpið er óneitanlega i nokkurri úlfakreppu
vegna þessa máls. En lausnin virðist hvorki vera flók-
in né dýrkeypt. Ekki verður því séð, hvernig þau
stjórnvöld, sem hér eiga hlut að máli, geta staðið á
móti lausn máisins á þessum grundvelli, nema smá-
skammtahöft veiti ríkisstjórninni einhverja sérstaka
friðþægingu.
Varaformaður útvarpsráðs bendir á i tillögu sinni,
að öll framþróun í sjónvarpsmálum miði við útsend-
ingar í litum. Hann segir m.a., að sjónvarpið hafi
jafnvel orðið að láta sérsmíða varahluti í núverandi
tæknibúnað fyrir þær sakir, að lengur er ekki reiknað
með litlausu sjónvarpi. Aþaðber einnig að líta, að
megin hluti alls sjónvarpsefnis er framleitt í litum.
I raun réttri verður því ekki dregið lengur að taka á-
kvarðanir i þessum efnum. Engin skynsamleg rök
mæla með því að sjónvarpinu sé haldið áfram i úlfa-
kreppu að þessu leyti. Og formælendur hinna einföldu
viðhorfa i byggðamálum ættu í eitt skipti fyrir öll að
gera sér grein fyrir því, að með öllu er útilokað að
f jármagn fáist til að bæta og fullkomna dreifikerfið
fyrr en rikissjóður nær í tekjur af nýjum litasjón-
varpstækjum.
Út dráttur úr ræðu fjáí-
málaráðherra á Al-
þingi i gær:
Fjárlagafrumvarp fyrir áriö
1977 ber aö skoöa i ljósi þeirra
meginmarkmiöa, sem rikis-
stjórnin hefur sett sér i efna-
hagsmálum og útlit er fyrir aö
muni aö verulegu leyti nást á
þessu ári. Þessi markmiö voru:
1) aö draga úr viöskiptahallan-
um viö útlönd, 2) aö hægja á
hraöa veröbólgunnar og 3) aö
tryggja fulla atvinnu. Stjórn
fjármáia rikisins ásamt stjórn
peningamála og hóflegristefnu I
launamálum er mikilvægasta
tækiö til aö ná þessum mark-
miöum.
Tekjuáætlun rikissjóðs fyrir
árið 1977 er að venju reist ann-
ars vegar á endurskoðaöri áætl-
un um tekjur rikissjóös á liöandi
ári og hins vegar á ákveönum
þjóðhagsforsendum fyrir árið
1977, einkum þeirri, að almenn
þjóðarútgjöld aukist um 2% á
næsta ári, eða um likt hlutfall og
þjóðarframleiðslan. Verðlags-
forsendur tekjuáætlunar eru
hinar sömu og gjaldaáætlunar.
Innheimtar tekjur 1977 eru
áætlaðar samtals 84 milljarðar
króna samanboriö við 68,9 millj-
■
Fjárlagafrumvarpið
verður að skoða í
Ijósí meginmarkmiða
í efnahagsmálum
— segir fjármálaráðherra
arða i endurskoðaðri tekjuáætl-
un 1976 og 60,3 milljarða i fjár-
lögum ársins 1976. Hækkun
tekna frá 1976 til 1977 nemur
þannig 15,1 milljarði króna, eða
21,9%, en hækkun tekna frá
fjárlögum ársins 1976 nemur
23,6 milljörðum eöa 39,2%. Við
þennan samanburð verður að
taka tillittilþess, að 1% gjald á
söluskattsstofn til þess að draga
úr áhrifum verðhækkunar oliu á
hitunarkostnað er nú fært i fj-
arlagafrumvarpi, en þetta gjald
hefur ekki verið fært með rikis-
sjóöstekjum fram til þessa.
Þessar tekjureru áætlaöar 1.600
m.kr. á næsta ári og sé sú fjár-
hæð dregin frá heildartekjum
fjárlagafrumvarps verður
hækkunin milli áranna 1976 og
1977 13,5 milljarðar króna eða
19,6% og hækkunin frá fjárlög-
um 1976 verður 22 milljarðar
eöa 36,5%.
Gert er ráð fyrir óbeinum
sköttum óbreyttum eins og
nú gilda, þar með talið .18%
sérstakt vörugjald, að öðru
leyti en þvi að reiknað er
með 600 m.kr. lækkun toll
tekna vegna ákvæða samn-
inga við EFTA og Efnahags-
bandalagiö. Beinu skatt-
arnir eru áætlaöir á grundvelli
gildandi laga. Hins vegar verða
fyrir afgreiðslu fjárlaga flutt
frumvörp um breytingar á lög-
um um tekju- og eignarskatt,
þar sem meðal annars veröa ný
ákvæði um skattmeðferö á tekj-
um hjóna, einföldun á tekju-
skatti einstaklinga almennt og
breytta skattalega meðferö
þeirra, sem sjálfstæðan at-
vinnurekstur stunda. Einnig
veröa gerðar tillögur um nýja
skattmeðferð söluhagnaöar af
fyrnanlegum eignum i tengslum
viö breyttar fyrningarreglur til
skatts. Eignarskattsstiginn
veröur samræmdur nýju fast-
eignamati. 1 heild er ekki reikn-
að með verulegum breytingum
á skattfjárhæöum, en hins veg-
ar munu þessar breytingar
væntanlega hafa hafa áhrif til
þess að deila skattbyrðinni á
sanngjarnari hátt en gildandi
reglur fela i sér. Þá er einnig
rábgert að taka ákvarðanir um
lækkuð aöflutningsgjöld og sölu-
skatt af vélum, tækjum og hrá-
efnum til samkeppnisiðnaðar,
sem munu væntanlega fela i sér
einhvern tekjumissi fyrir rikis-
sjóð. Þetta mál verður þó ekki
metið til fulls fyrr en við endan-
lega afgreiðslu fjárlaga og i
tengslum við endurskoðun toll-
skrárlaga sem nú er unnið aö,
en frumvarp að nýjum toll-
skrárlögum, sem samið verður
með sérstöku tilliti til samning-
anna við EFTA og EBE, mun
verða lagt fram innan skamms.
Lánsfjáráætlun 1977
í tengslum við gerð fjárlaga-
frumvarps og i framhaldi af þvi
er unnið að samningu lánsfjár-
áætlunar fyrir árið 1977. Láns-
fjáráætlun 1976 var frumsmið
heildaráætlunar af þessu tagi og
er kappkostað að halda hana
eins og frekast er auðið, þótt
ekki verði komizt hjá þvi á heilu
ári að taka tillit til breyttra for-
sendna.
Viö samningu lánsfjáráætl-
unar nú fyrir áriö 1977 er höfð
náin hliðsjón af þeim megin-
markmiðum stefnunnar i efna-
hagsmálum að halda verðbólg-
unni I skefjum, komast sem
næst jafnvægi i utanrikisviö-
skiptum og hamla svo sem
verða má gegn frekari skulda-
söfnun við útlönd. í þessu skyni
verður aö beita hvers kyns fjár-
magnshreyfingar svo ströngu
aðhaldi, að fjárfestingu veröi
haldiö innan marka þjóðhags-
áællunar og þannig tryggt, aö
ði vakin ny þensla, sem stofna
myndi i hættu þeim takmarkaöa
áfanga i stjórn efnahagsmála,
sem þegar hefur náðst. Þá verð-
ur einnig að gæta þess, að ekki
verði svigrúm til frekari verö-
bólgu en þegar er til stofnað.
Lánsfjáráætlunin mun að
dómi fjármálaráðherra reynast
veruleg framför i stjórn
islenskra efnahagsmála og mun
vafalaust sanna gildi sitt eftir
þvi sem reynsla af þessari
vinnuaðferö verður meiri.
1 6. gr. fjárlagafrumvarpsins
að þessu sinni eru engar tillögur
gerðar um nýjar rikisábyrgðir.
Unnið er að þvi á vegum fjár-
málaráðuneytisins og Rikis-
ábyrgðasjóðs að kanna hin
margvislegu lagaákvæði sem
gilda um Rikisábyrgðasjóð og
skuldbindingar og vanskil sem
oröið hefur að mæta.
Nauðsynlegt er að setja hér
strangar reglur, þvl oft og ein-
att er ekki aöeins litið á rikisá-
byrgð sem tryggingu fyrir láns-
fé, heldur hefur stappað nærri,
að ýmsir aöilar hafi litið á
ábyrgð rikissjóðs sem fjárveit-
ingarigildi. Þetta er háskaleg
braut, sem ráðherra telur að
girða verði fyrir meö öllu, þvi
ekki verður framhjá þvi litið að
rikisábyrgðarveiting hefur
efnahagsleg áhrif ekki siður en
fjárveitingar og lántökur.
Langtímafjárlög
Stefnan i skattamálum ræðst
endanlega af ákvörðun um
skiptingu þjóðarútgjaldanna
milli hins opinbera og einkaað-
ila. öll umræða um skattamál
verður m.a. að byggjast á mati
áfjárþörf rikisins ekki aðeins frá
ári til árs heldur til langframa.
1 fjárlagaræðu fyrra árs gat
fjárm álaráðherra þess, að
rikisstjórnin hefði gert sam-
þykkt um að hefja undirbúning
að gerð áætlana um þróun út-
gjalda og tekna rikissjóðs á
næstu árum. Þetta verkefni er
nú hafið.
Undirbúningsvinna að undan-
förnu hefur aðallega beinst að
þvi aö kanna, hvernig staðið er
að langtimafjárlagagerð grann-
rikja okkar. Jafnframt þessu er
unnið að athugun á, hvaða form
langtimafjárlaga henti við
islenskar aðstæður.