Vísir - 29.10.1976, Síða 11

Vísir - 29.10.1976, Síða 11
vism Föstudagur 29. október 1976 11 TIL FLOKKS- LÝÐRÆÐIS FRÁ FLOKKSVELDI - TIL NÚTÍMA JAFNAÐARSTEFNU W • • FRA GOMLUM MARXISMA Flokksþing Alþýöuflokksins, sem haldiö var um siöustu helgi, var aö ýmsu leyti timamóta- þing. Þar var um nýungar og augljósan vaxtarbrodd aö ræöa. Sumir myndu eflaust nefna þær nýju hugmyndir, sem um var aö ræöa, frjálslyndar, aörir rót- tækar. En mestu máli skiptir, aö þær voru góöar. Eignir og skuldir Alþýðuflokksins Flokksþinginu var gerö ýtar- leg grein fyrir eignum og skuld- um flokksins, sumpart i hefð- bundnum efnahagsreikningi, og sumpartmeðsérstakri skrá yfir eignir og skuldir. Skrifstofu- áhöld og sjóðseign námu i spetemberlok 1976 489.000 kr., hlutabréf i Alþýðuprentsmiöj- unni, Alþýðubrauðgerðinni og Alþýðuhúsinu 107.000 kr., fram- lag til Blaðaprents 1,150.000 kr. og Minningarstjóöur Magnúsar Bjarnasonar 5.000.000 kr. eða samtals rúmar 6,7 millj. kr. Ógreidd laun reyndust 742.000 kr., en skuldir I fimm bönkum vegna útgáfu Alþýðublaösins 8.479.500 kr. Skuldir reyndust þvi 2,5 millj. kr. umfram bók- færðar eignir, en þegar þaö er haft Ihuga, aö hlutaféö og fram- lagiö til Blaöaprents er skráö á nafnverði, eins og venja er, þótt vitaö sé, að raunverulegt verö- mæti er miklu meira, er aug- ijóst, aö eignir flokksins eru mun meiri en skuldir hans. Sú stórmerka breyting var gerð á lögum flokksins, að ákveöið var, að framvegis skyldu framboð hans við Al- þingis- og sveitarstjórnarkosn- ingar ákveðin þannig, að allir kjósendur, sem eru eldri en 18 ára og eru ekki flokksbundnir I öörum flokkum eiga þess kost aö taka þátt i frjálsu prófkjöri um þaö, hverjir skipa skuli efstu sæti framboðslistanna. Með þessum hætti skal velja i jafn- mörg sæti framboðslistanna og fulltrúar flokksins urðu i næstu sambærilegum kosningum á undan, að einu viðbættu. Þar, sem flokkurinn hafði engan kjörinn fulltrúa, skal kjósa i eitt sæti. Er niðurstaða prófkjörs bindandi, ef sá frambjóðandi, sem kjörinn er, fær minnst 20% af kjörfylgi Alþýöuflokksins við siðustu sambærilegar kosning- ar. Framboð á vegum flokksins þarf siðan endanlega staðfest- ingu flokksstjórnar. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að prófkjör um frambjóðendur hafa farið I vöxt á undanförnum árum og þótt bera vott um við- leitni til þess að efla lýðræði. Allir flokkarnir hafa efnt til ein- hvers konar prófkjöra, nema — að þvi er ég bezt veit — Alþýðu- bandalagið. En Alþýöuflokkur- inn er fyrsti flokkurinn, sem tekur þaö I lög sin, aö opið próf- kjör þeirra, sem eru ekki i öör- um flokkum skuli ráöa skipun framboöslista flokksins.Hin ný- kjörna flokksstjórn hefur þegar kosiðnefnd til þess að setja nán- ari reglur um framkvæmd sliks frjáls prófkjörs. Flokkslýðræði i stað flokksveldis Hér er um merkilegt nýmæli að ræða i islenzkum stjórnmál- um. Flokkarnir hafa veriö gagnrýndir fyrir það að vera á valdi fámenns hóps manna, sem oft og einatt seti kjósendum — og jafnvel flokksmönnum — stólinn fyrir dyrnar. Þessi ákvörðun flokksþings Alþýðu- flokksins er stórt spor I átt að eflingu flokkslýðræöis á kostnað flokksveldis. Hún á eflaust eftir að verða öðrum flokkum fyrir- mynd, til eflingar almennu lýð- ræði i landinu. Þá samþykkti flokksþingið endanlega nýja stefnuskrá fyrir flokkinn, en hún hefur verið all- lengi i undirbúningi og vandlega Gylfi Þ. Gíslason skrifar: að henni unnið. Kjarni hennar felst i tveim setningum á fyrstu blaðsiðu hennar. En þær eru: „Alþýöuflokkurinn er stjórn- málaflokkur, sem starfar á grundvelli jafnaöarstefnunnar. Jafnaöarstefnan berst fyrir frelsi, jafnrétti og bræöraiagi, gegn einræði, kúgun, auövaldi og kommúnisma”. Þetta er fyrsta setning stefnuskrárinnar. En nokkru siðar segir: Andinn frá Bad Godesberg „Alþýöuflokkurinn er ábyrg- ur lýðræðisflokkur, sem vill efla mannúö og mannréttindi, tryggja persónufrelsi einstakl- inganna og stuðla aö efnahags- legum framförum i þágu heild- arinnar”. Grundvallaratriði þessarar nýju stefnuskrár eru hin sömu og nýjustu stefnuskránna eða stefnuyfirlýsinganna, sem hinir jafnaðarmannaflokkarnir á Norðurlöndum hafa sett sér á undanförnum árum, en grunn- tónn þeirra er hinn sami, sem mótar þá stórmesku stefnuskrá, sem þýzki jafnaðarmannaflokk- urinn setti sér á hinu fræga flokksþingi sinu i Bad Godes- berg 1959 og siðan er kennd við þá borg og nefnd Godes- berg-stefnuskráin. 1 áratugi hafði marxismisett svip sinn á stefnuskrár jafn- aöarmannaflokka á meginlandi Evrópu, aö Norðurlöndum meðtöldum. Marxismi náði hins vegaraldrei að móta stefnuskrá eða starfsaðferöir jafnaöar- manna á Bretlandi. Einkum þýzki jafnaðarmannaflokkurinn hélt hins vegar fast við kenning- ar marxismans sem hugsjóna- grundvöll stefnuskrár sinnar, og hið sama átti t.d. við um Norðurlönd. Hvarvetna varö þó þróun í þá átt, aö horfið var frá þvi aö boöa kenningar marx- ismans um óhjákvæmilegt hrun aiuövaldsskipulagsins I kjöifar óvæginnar stéttabaráttu. Þjóðfélagsþróunin . reyndist önnur en Karl Marx hafði spáö og höguðu jafnaðarmenn raun- hæfri baráttu sinni eftir þvi, sem við átti og liklegast var til framgangs hugsjónum, en miðuðu hana ekki við gamlar kennisetningar. Stefnuskrárnar héldust hins vegar að meira eða minna leyti á marxiskum grundvelli. Nýr hugsjónagrund- völlur Það er merkilegt, að sá jafn- aðarmannaflokkurinn, sem fastast hafði haldið i marxism- ann sem hugsjónagrundvöll, varð fyrstur til þess að hafna hónum i nýrri stefnuskrá, Godesberg stefnuskránni. Hún hefst á þessum orðum : „Jafnaöarmcnn berjast fyrir þjóðfélagi, þar sem sérhver maöur nýtur frelsis til þess aö þroska einstaklingseðli sitt og á þess kost að taka þátt i ábyrgu samslarfi viö aöra, þátt i mótun stjórnmálalifs, efnahagslifs og menningarlifs samfélagsins". Þessi nýja grundvallarstefna þýskra jafnaðarmanna hafði átt sér langan aðdraganda. Fyrsti leiðtogi þeirra eftir heims- styrjöldina, Kurt Schumacher sagði þegar 1946: „Einu gildir, hvort menn veröa jafnaöarmenn meö marxiskum athugunum á efna- hagsiífinu, af heimspekilegum eöa siöferöiiegum ástæöum eöa fyrir áhrif Fjallræðunnar.” Þróunin hefur orðið sú, aö á undanförnum áratugum hafa evrópskir jafnaðarmenn — og raunar jafnaðarmenn um heim allan —, verið að eignast nýjan hugsjónagrundvöll. Þaö er hann, sem mótar hina nýju stefnuskrá Alþýöuflokksins. Orsakir geta verið margvíslegar þegar steypuskemmdir verða „Sprungur I steinsteypu eru mjög algengar og viö höfum rannsakaö mörg tilfelli. Orsakir geta veriö mjög margvislegar og þvi þarf aö kanna hvert til- fclli út af fyrir sig,” sagöi Hákon ólafsson i samtali viö VIsi I gær. Hákon er yfirverkfræðingur Rannsóknarstofnunar bygging- ariðnaðarins og eins og fram kom hér að ofan kannar stofn- unin m.a. orsakir þegar steypa springur óeðlilega mikið. Eins og Visir skýrði frá I fyrradag hafa komið fram óeðlilegar sprungumyndanir i veggjum Slökkviliðsstöðvarinnar og I sundlauginni i Laugardal. Byggingareftirlit borgarinnar hefur hug á aö fá Rannsóknar- stofnunina til að kanna orsakir þessa. Það kom fram i samtalinu við Hákon, að sprungur mynduðust til dæmis ef steypa væri léleg eðagæðiefnis ófullnægjandi. En það þyrfti að kanna hvert tilfelli og enn hefði ekki borist beiðni um rannsókn vegna þessara bygginga sem rætt var um i frétt Visis. —SG Skemmdirnar viö Laugardalssundiaugina leyna sér ekki, en ástæö- urnarfyrir þeim eru ekkiljósar. — Vfsismynd: JA

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.