Vísir - 30.12.1976, Side 7
visiR
Fimmtudagur 30. desember 1976
Hvers er að minnast, og hvaða
vonir bindur þú við nýja árið?
Nú/ þegar árið 1976 er að hverfa f aldanna skaut/ höfðu blaða-
menn Vísis samband við forystumenn á ýmsum sviðum þjóðlífs-
ins og lögðu fyrir þá tvær spurningar.
Sú fyrri var:
— Hvað fannst þér mest um á árinu/ sem er að líða?
Og siðari spurningin:
„Fegurð
landsins lifir
lengst"
Aðalheiöur Bjarnfreðsdóttir,
formaöur Starfstúlknafélagsins
Sóknar:
„Þegar ég fer yfir atburði
ársins.sem snerta mig persónu-
lega, dvel ég lengst við sumar-
ferð okkar hjónanna um
norðurland.
Við höfðum hvorugt farið um
inorðurland fyrr, en sáum nú
landið baðað i sól. Dægurflugur
gleymast, en fegurð landsins lif-
ir i minningunum alla æfi.
Svo fékk ég enn eitt barna-
barnið á árinu, en ég bið alltaf
jafn spennt eftir nýrri útgáfu.
Við nýja árið bind ég þær von-
ir, að islensk verkalýðshreyfing
endurheimti virðingu sina i
næstu kjarasamningum.”
Hrœddur um
að þar dugi
enginn
kattarþvottur
Björn Dagbjartsson, forstjóri
Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins:
„Starfs mins vegna eru mér
hafréttar- og fiskveiðimál ofar-
lega i huga. t landhelgismálinu
höfum við tvimælalaust náð
geysimiklum árangri á þessu
ári. Ég vil ekki setja neinn-
ákveðinn atburð, eða dag, tii
minnis um „lokasigur” en mér
finnst að við höfum á þessu ári
færst nær þvi marki að öðlast
full yfirráð yfir okkar aðal auð-
Kjörin verði
ekki lakari
en 74"
Benedikt Davíðsson, formaöur
Sambands byggingamanna:
„Mér er efst i huga það sem er
næst mér i timanum og rúminu,
Alþýðusambandsþingið og mál-
efni verkalýðshreyfingarinnar.
Ég er ánægður með það hvað
mikil og góð samstaða virtist
vera i þvi stóra máli sem er
framundan hjá okkur, kjara-
málunum.
A nýja árinu vona ég fyrst og
fremst að okkur takist að verða
við þeim greinilega vilja, sem
fram kom á þinginu, að rétta
svo kjörin að þau veröi ekki lak-
ari en eftir samningana i febrú-
ar 1974.”
lind, fiskimiðunum, en á nokkru
öðru ári”.
„Ég er lika mjög ánægður
með það að fitjað hefur verið
upp á ýmsum nýjungum i fisk-
veiðum og fiskiðnaði á árinu,
sem ég fyrir mitt leyti bind
miklar vonir við. Það var t.d.
mjög ánægjulegt að fylgjast
með sumarloðnuveiðunum sem
skiluðu þessum ótrúlega góða
árangri og að taka þátt i þeirri
vinnu sem þar var unnin”.
„Á næsta ári vona ég að við
berum gæfu til að hlifa þorsk-
inum meira en við gerðum á
þessu ári. Ég vona lika, þó að
það sé óskylt efni, að það takist
að komast til botns i þeim af-
brota og fjársvikamálum, sem
eru að eitra þjóðfélagið. Ég er
hræddur um að þar dugi enginn
kattarþvottur.”
„Það hlýtur að vera óþolandi
fyrir fjölda manns að geta ekki
verið vissir um að jafnvel vinir
eða kunningjar geti verið sekir
um fjármálamisferli, yfirhilm-
ingu, eða þaðan af verri af-
brot”.
„Þakkarvert
meðan þeir
gera engar
vitleysur'
Björn Pálsson, fyrrverandi al-
þingismaður, Löngumýri:
„Landhelgissamningurinn er
merkasta málið, og það jákvæð-
asta fyrir okkur, á þvi er enginn
vafi”.
„Ég geri mér nú engar sér-
stakar vonir um næsta ár. Ég
vona bara að þeir sem stjórna
— Hvaða vonir bindur þú fyrst og f remst við næsta ár?
Svörín eru að sjálfsögðu eins mörg og mennirnir, sem spurðir
eru, og fara þau hér á eftir.
Texti: Edda Andrésdóttir, Guðjón Arngímsson, Kjartan L.
Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvins-
son.
landinu og þjóðinni geri sem
fæstar vitleysur. Þó þeir geri
kannski ekkert af viti, er það
þakkarvert meðan þeir gera
engar vitleysur”.
Við erum víst
að taka út
timburmenn
fyrri gerða
Guðlaugur Þorvaldsson, rektor
Háskóla islands:
„Enda þótt ýmislegt mark-
vert hafi gerst erlendis á þessu
ári, eru innlendir atburðir mér
efst í huga.”
„Breytt viðhorf, sem útfærsla
landhelginnar i 200 milur hefur
skapað hjá okkur sjálfum og
meðal annarra þjóða, tel ég
markverðustu tiðindi ársins
fyrir okkur islendinga. Hinu er
þó ekki að leyna, að önnur
tiöindi af innlendum vetvangi
eru mér ofar i huga. Islenska
þjóðfélagið er orðið sjálfu sér
svo hættulegt á mörgum
sviðum, að mér hugnast ekki að
þvi. Ef vel er að gáð, eigum við
flest nokkra sök á þvi. Mér
finnst Reykjavik i dag ekki hin
sama og i fyrra. Við erum vist
að taka út timburmenn fyrri
gerða.”
„Ég bind engar sérstakar
vonir við næsta ár, en leyfi mér
þó að ætla að okkur takist smátt
og smátt að skapa þjóðfélag
meira öryggis, réttlætis og
heiðarleika. Baráttan fyrir
stærrilandhelgihefur á margan
hátt sameinað okkur. Þess
vegna væri það hörmulegt, ef
ólikar hugmyndir um skynsam-
lega nýtingu hennar ættu eftir
að sundra okkur.”
##
Jarðskjálft-
arnir á Kópa-
skeri minni-
stœðastir'
Guðjón Petersen, fulltrúi AI-
mannavarna rikisins:
„Það sem ég man best frá
þessu ári er um leið persónulegt
ogtengt minu starfi. Það var 13.
janúar, þegar jarðskjálftarnir
urðu á Kópaskeri. Ég var að
koma þangað fyrir tilviljun
þegar þetta gerðist.”
„Persónulega var jarðskjálft-
inn mér auðvitað minnisstæður
atburður. En það sem ég lengst
man eru kannske erfiöleikarnir
við að koma hjálparstarfinu i
gang frá áfallsstaðnum, i
staðinn fyrir frá miðstöðinni i
Reykjavik. Það hefur mikið
mótað afstöðu mina til þessara
mála i framtiðinni.
„Hvað snertir næsta ár er von
min sú að sú siðferðilega
hnignun, spilling og tortryggni,
sem hrjáir þessa þjóð i dag,
verði upprætt. Að með samstöðu
heiðarlegra manna, hverfi
hún.”
sem rannsóknarlögreglumaður
i Keflavik sagði i viðtali i sjón-
varpinu þegar hann var spurður
að þvi hvers vegna ekki hefði
verið birt nýrri myndin af Geir-
finni Einarssyni frekar en ein-
hver gömul mynd sem birt var i
upphafi. Rannsóknarlögreglu-
maðurinn svaraði þvi til að þeir
hefðu ekki viljað rugla fólk i
riminu.”
„Ég hef velt þvi fyrir mér sið-
an i framhaldi af þessu hvort
nokkuð hefði verið skipt um
mynd þó óvart hefði verið birt
mynd af t.d. Júliusi Sesar eða
einhverjum öðrum, til þess að
rugla ekki fólk i riminu.”
„Hvaða vonir ég bind við
næsta ár? Að ekki verði reynt að
rugla fólk i riminu.”
„En svona i alvöru, þá vona
ég að þessum drunga og óhugn-
aði sem lagst hefur yfir þjóð-
félagið vegna þeirrar upplausn-
ar sem virðist rikja i dómsmál-
um verði svipt af með einhverj-
um hætti.”
„Landhelgin,
iðnaðurinn
og breyting
ríkiskerfisins"
„Vona að ekki
verði reynt að
rugla fólk í
ríminu"
Hrafn Gunnlaugsson, rithöfund-
ur:
„Ef ég ætti að nefna minni-
stæðustu setninguna sem sögð
var á árinu, þá er það setning
Jóhann Briem, framkvæmda-
stjóri:
„Ég tek mér þaö bessaleyfi aö
svara báöum spurningunum i
einu:
Það sem mér er efst i huga er
sá ótviræði sigur sem islending-
ar hafa unnið i landhelgis-
baráttu sinni og sú viðurkenning
sem 200 sjómilna fiskveiðilög-
saga hefur hlotiö. Það hlýtur að
vera stór stund i lifi allra islend-
inga að sjá á bak breska togara-
flotans sem i árhundruð hefur
stundað stórkostlega rányrkju á
Islandsmiðum. Með þeim sigri
sem þegar hefur unnist i land-
helgismálinu er séð fyrir að
veiðum útlendinga hér við land
muni ljúka innan tiðar og is-
lendingar þar með ráða einir
yfir auðlindum sem eru mikils-
verðari en auðlindir margra
annarra þjóöa.
Um leið og við ráðum yfir
fiskimiðum okkar verður
auðveldara að taka upp heildar-
stjórnun i fiskveiöimálum. Það
hefur þegar sýnt sig að slfk
stjórnun hefur verið okkur m jög
mikilsverð og má nefna sem
dæmi, að talið er að þeir fiski-
stofnar standi einna best sem
sókn i hefur verið stjórnað.
Möguleikarnir eru margir og
hlýtur að verða stefna fram-
tiðarinnar að taka upp hagnýt-