Vísir - 26.01.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 26.01.1977, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 26. janúar 1977 VISIB Notfærir þíi þér morg- unleikfimi útvarpsins? Rúnar Pálsson starfsmaður Flugleiöa: — Ekki beinlinis, en hressileg rödd Valdimars léttir störf dagsins. Bergur ólafsson, starfsmaður flugumferðarstjórnar: — Nei, ég nenni þvi ekki! Róbert Róbertsson, varöstjóri: — Nei, ég geri minar æfingar á kvöldin! Finnur Bjarnason fram- kvæmdastjóri: — Nei, hún er svo æðislega snemma. Hermann Nlelsson, iþrótta- kennari: — Já, ég hlusta oft á hana mér til fróöleiks, en geri ekki æfingarnar. Mér líst vel ó starfið segir nýjasti starfsmaður Sjónvarpsins ,,Eg verð að segja að mér llst mjög vel á þetta starf. Fólkið hérna hefur tekið vel á móti mér, og hjálpað mér á allan hátt eftir þvf sem ég hef þurft á að halda,” sagði Bogi Agústsson i Bogi Ágústsson við starf sitt á fréttastofunni. Ljósm. LÁ samtali við Vfsi. Bogi hefur nýlega verið ráð- inn til að annast erlendar fréttir hjá Sjónvarpinu og á hann þvi fljótlega eftir að koma sjón- varpsáhorfendum kunnuglega fyrir sjónir. Þá, sem vilja vita á honum nokkur deili, getum við frætt á þvi aö hann er 24ra ára gamall og hefur undanfarin ár stundað nám I sagnfræöi við Háskóla ís- lands. Hann segir ætlunina hafa veriö að ljúka BA-prófi I grein- inni I vor, en nú mætti búast við aö minni tlmi gæfist til lestrar og þvi yrði væntanlega á þvl einhver dráttur. Bogi er kvænt- ur Jóninu Mariu Kristjánsdótt- ur kennaranema. Bogi hóf störf á fréttastofunni I siðustu viku og þegar Visir leit þar inn tíl hans sagöist hann vera aðeins að komast inn i starfið. „Þaö felst aðallega I þvi að taka á móti fréttaskeytum og þýða texta með filmum. Gallinn við fréttakvikmyndirnar er sá að þær koma ekki fyrr en einum til 2 dögum eftir að atburð- irnir gerast og þá er fréttin ekki lengur ný. Þó virðist mér að oft sé hægt að b jarga þessu með þvi að lesa nýrri frétt af atburðin- um með myndinni. Það er auövitað misjafnt frá degi til dags hvað auðvelt er að fylla fréttatimann, en yfirleitt kemur það mikið efni að það er hægt að velja úr það sem er efst á baugi.” —SJ AKURNESINGAR RÆÐA ÖRYGGISMÁL SÍN öryggismái akurnesinga verða til umræðu I kvöld á borgarafundi sem veröur hald- inn i Bióhöllinni á Akranesi. Munu fulltrúar opinberra aðila sem að þessum málum starfa, það er frá akranesbæ, bæjar- fógetanum og slökkviliði mæta á fundinn. Það eru slysavarnardeildirn- ar á Akranesi og blaðið Umbrot sem að fundinum standa. Á borgarafundinum I kvöld munu koma fram upplýsingar um öryggismál akurnesinga og veröur þar svaraö fyrirspurn- um og ábendingum bæjarbúa. Þá verða bornar upp tillögur til úrbóta. öryggismál akurnesinga hafa verið mikið til umræðu síðan þar varð svipleg sprenging eins og kunnugt er. Hefur meðal annars komið I ljós að engin lög- regluvakt er á Akranesi fimm tima sólarhrings og að kalla til slökkvilið getur tekið langan ttma. Borgarafundurinn I kvöld hefst klukkan hálf nlu. EKG/BP Akranesi „Bændauppreisnin” á Islandi viröist ætla að fara hægt af stað, enda hafa ekki verið haldnir nema einir þrir bændafundir enn, þar sem afurðasölumálin hafa veriö á dagskrá og uppgjör fyrir kjöt- og mjókurafurðir. Virðist eins og allt kapp sé lagt á það um þessar mundir að letja bændur til frekari fundahalda meðan freistað er að gera upp við þá skuldamál frá árinu 1975-76. Má vera að bændur geri sér hin siöbornu uppgjör að góðu, og hliti þvi enn um sinn að lúta þeirri markaðslegu innilok- un, sem Samband islenskra samvinnufélaga býr þeim. A sama tima og þessu fer fram, mega bændur auk þess horfa upp á þá staðreynd, að félagsleg forsjá þeirra hefur brugðist að þvi leyti, að hún hef- ur beinst að boðun hugsjóna um byggðajafnvægi á kostnað byggðahagkvæmni og bundið þá við mörk og mið, sem hæfa ein- ungis kotbúskap. Þessum boðskap hafa bændur tekið athugunarlaust siðustu áratug- ina, og nú siöast lögum frá Alþingi um, að óheimilt sé að selja jaröir til aðila sem ætli að nota þær utan sviðs klassiskra búskaparhátta. Þessi lög eru sett á sama tima og efnahagur margra I þéttbýli Löggilding kotbúskapar er orðinn þannig, að eftirspurn eftir jörðum hefur farið vaxandi, og verð þeirra þvi vaxið um leið. Þau koma I veg fyrir að bændur fái notið venjulegra viðskiptakjara þá loksins að eignir þeirra byrja að stiga i verði, og verða nú og framvegis að sæta takmörk- uöum tilboðum ýmist frá einstaklingur kærir sig um að búa. Slíkar' jarðir eru margar og setnar af einstæðingum, sem gjarnan vildu komast yfir þó ekki væri nema litla kjallara- Ibúð I einhverju þorpinu fyrir andvirði landareignar sinnar. Yfirleitt eru þessar jarðir það svcitarfélögum eða aðilum, sem ætla sér að hef ja búskap á þeim. Þetta er svo sem I lagi hvað snertir verðháar vildisjaröir, nema hvað eigandi jarðar er sviptur frelsi til að taka hæsta hugsanlegu boöi. öðruvisi snýr þetta við hvaö snertir jarðir á útkjálkum landsins, þar sem sveitarfélagiö hefur ekki bol- magn til að kaupa og enginn langt frá þéttbýliskjörnum, að um þær gildir ekki votmúla- verð. Hins vegar er taugin römm, sem tengir fólk við gömul föðurtún, og margt er það ættmennið, sem i kaupstað býr, sem gjarnan vildi losa ein- stæðinginn frá þeirri kvöð að hokra einn, og gera honum um leið kleift að komast yfir ibúð I kaupstaö. En þetta virðist ekki vera hægt, og þar af leiðandi kemst einstæðingurinn hvorki lönd né strönd en verður aö deyja með jörð sinni bundinn á 11 h a g a f j ö t r u m vegna vanhugsaðra lagasetninga. Jarðakaupamálið er enn eitt gott dæmið um þá hérlendu venju að skammta fólki rétt með lögum, semstyðjast við loftháar hugsjónir en koma hvergi nærri raunveruleikan- um. Samtimis þessu heyrast raddir, sem halda þvi fram full- um fetum og sanna jafnvel með tölum, að stórbúskapur borgi sig ekki. Þó hefur búskap miðað það I áttina, að meðaltalsbú i landinu er orðið stærra og öflugra en visitölubúið, sem minnir á þann kafla jarðræktar- laganna, sem heimiluðu ekki opinber framlög til túnaræktar nema upp að vissu marki. Bændur hljóta að fara að verða næsta þreyttir á hinni opinberu forsjá, þegar ljóst er að hún hef- ur mistekist i alltof mörgum greinum, eða beinlinis snúist gegn hagsmunum þeirra. Markaðsmálin, visitölubúið og nú siöast jarðakaupalögin beinast að einu marki, þvi marki sem enginn þorir að nefna en er samt staðreynd — löggildingu kotbúskapar. Svarthöfði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.