Vísir - 28.01.1977, Page 24
VÍSIR
Föstudagur 28. janúar 1977
Umsókn
Arnarflugs
er enn til
athugunar
Flugráö hefur ekki ennþá
tekið afstöðu til umsóknar
Arnarflugs um að fá að stunda
áætlunarfiug. Leifur Magnás-
son, aðstoðarflugmálastjóri,
sagði Visi I morgun að málið
hefði verið tekið fyrir á fundi
fiugráðs strax eftir að um-
sóknin barst.
Siöan hefur ekki verið hald-
inn fundur, en verður á
fimmtudag i næstu viku. Þá
veröur umsóknin væntanlega
rædd aftur. Flugráð hefur
beðiö um umsögn Flugleiða
um málið og sú umsögn hefur
ekki enn borist, að sögn Leifs.
Stefna kaup-
manninum
sem hvarf af
landi brott
Birt hefur veriö i Lög-
birtingablaöinu stefna á hend-
ur kaupmanni, sem rak
verslun i nýja Iönaðarmanna-
húsinu við Hallveigarstigr en
hvarf úr landi rétt eftir ára-
mótin. Stefnan er vegna
ógreidds vixils, sem kaup-
maöurinn samþykkti upp i
húsaleigu, að upphæð 800 þus-
und krónur.
Umræddur kaupmaöur rak
verslun meö húsgögn og raf-
tæki I Iönaöarmannahúsinu.
Leigði hann þar hjá Húsfélagi
Iðnaðarins, sem nú hefur
höföaö mál gegn honum. Tekiö
er fram i stefnunni, að heimil-
isfang kaupmannsins sé nú
„óþekkt”.
Þær eignir sem vitað er til að
kaupmaöurinn hafi skilið eft-
ir, þegar hann fór af lendinu,
er bifreið, sem umrædd húsa-
leiguskuld mun hafa veriö
tryggö i.
ESJ.
Mondale
kemur tíl
íslands
Walter Mondale, hinn nýi
varaforseti Bandarikjanna,
kemur til tslands annað
kvöld. Ráðgert er að hann
standi hér stutt við en eigi við-
ræður við Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra, á Keflavik-
urflugvelli.
Mondale er nú á ferð um
Vestur-Evrópu. Frá tslandi
heldur hann tii Japans.
— EKG
Gœslufanginn ó Keflavíkurflugvelli:
Lœddist út meðan
hann var í bíó með
fangavörðunum
Aðstæður voru meö óvenju-
legum hætti i bandariska
fangelsinu á Keflavikurf iugvelli
kvöldið, sem bandariski her-
maðurinn C. Barba Smith, eða
„Korkurinn” strauk.
Það kom fram á blaöamanna-
fundi, sem Howard Matson,
blaðafulltrúi varnarliðsins, hélt
i gær, að sjónvarpstækið i
fangelsinu var bilað þennan
dag.
Fangaverðirnir ákváðu aö
sýna sjálfum sér og fanganum
kvikmynd um kvöldið. Þetta
var i fyrsta sinn, sem slikt var
gert.
öryggishurðin var höfð
opin
Kvikmyndasýningin fór fram
i gangi fangelsisins. Til þess að
fá sem stærsta mynd á tjaldið
var öryggishurö, sem aðskilur
aðsetur fangavarðanna og and-
dyrið frá öörum hlutum
fangelsisins, opnuö og sýningar-
vélin sett fram á fremri gang
ekki langt frá anddyrinu.
Þremenningarnir horfðu
siðan á sjónvarpiö og sat Barba
Smith við dyrastafinn á opnu
öryggisdyrunum hægra megin.
Annar varðmaðurinn var
vinstra megin við dyrnar, en
hinn nokkru innar á innri gang-
inum.
Vatt sér ut um dyrnar
og lokaði
Um kl. 20.30 til 20.35 gerðist
það svo að „Korkurinn” vatt sér
skyndilega út um dyrnar og
skellti þeim i lás, tók lykla af
bifreiö annars fangavarðarins
úr vasa á yfirhöfn hans, sem
hékk á snaga i fremri gangin-
um, hélt inn á skrifstofu fanga-
varðanna og reif simann úr
sambandi, fór siðan út og læsti
dyrunum i anddyrinu meö
hengilás er hann hafði meö-
feröis, fór inn i bifreið fanga-
varöarins og ók brott.
Fangaverðirnir gátu klifraö
yfir öryggisdyrnar og brotið upp
dyrnar i anddyrinu. Þegar þeir
komu út fyrir fangelsið sáu þeir
bil fangavarðarins hverfa fyrir
horn, væntanlega með „Kork-
inn” við stýri.
Tilkynntu atburðinn
Fangaveröirnir hlupu i næsta
hús og tilkynntu varðmönnum i
aðalhliði vallarins um atburðinn
og siöan bandarlsku lögreglunni
sem tók við tilkynningunni kl.
20.40. Bandariska lögreglan
hafði samband viö varðmenn i
svonefndu Njarðvikurhliöi einn-
ig-
Kl. 20.40 ók bifreið Ut um
siðarnefnda hliðið án þess að
stansa og islenskur lögreglu-
maður i hliðinu kvaðst fullviss
um, aö Barba Smith heföi verið
við stýrið. Bifreiöin ók niður að
vegamótunum og hvarf. Hún
fannst svo siöar við Grindavik,
en Barba Smith hefur ekki sést
siðan þetta gerðist á miðviku-
dag i siðustu viku.
Segjast ekki gruna
varðmennina
„Við höfum enga ástæðu til að
ætla aö varðmennimir hafi
hjálpað Smith til að strjúka,”
sagði Howard Smith á blaða-
mannafundinum.
Smith hafði veriö I þessu
fangelsi I um hálfan mánuð þeg-
arhann slapp. Aðspuröur sagði
Matson, að ekki væri vitaö til
þess að Smith hefði haft nokk-
urn kunningsskap við umrædda
fangaverði né þekkt þá fyrr en
hann var fluttur i iangelsiö á
vellinum.
Ýmsar spurningar
Það er ýmislegt, sem vekur
spurningar varðandi þessa at-
burðarrás. Eins og áður segir
var þetta I fyrsta sinn, sem
kvikmynd var sýnd i fangelsinu.
öryggishurð, sem yfirleitt á
að vera lokuö, var opin. Fang-
4nn var látinn sitja viö dyrastaf-
inn. Smith virtist hafa vitað
hvar lyklarnir að bifreiö fanga-
varðarins voru geymdir. (Það
kom að visu fram á fundinum,
að fangavörðurinn væri ekki
lengur alveg viss um hvort
lyklarnir heföu verið i vasanum
eða i bilnum). Hann vissi hvar
siminn var I húsinu. Og hann
vissi, aö hægt var að loka hurð-
inni I anddyrinu með hengilás,
þvi annars hefði hann vart haft
lásinn með sér.
Þegar þaö er haft i huga, að
Smith vatt sér út um dyrnar kl.
20.30-20.35 og að fangaverðirnir
eru komnir yfir i næsta hús og
búnir að hringja þar tvö simtöl
kl. 20.40 er ljóst að Smith hafði
mjög nauman tima til þess að
gera alla þessa hluti og aka á
brott i bifreið fangavarðarins.
Þekking á öllum aðstæðum hef-
ur þvi væntanlega skipt miklu
máli fyrir hann.
Matson blaðafulltrúi tjáði VIsi
i morgun, að „Korkurinn” hefði
ekki verið dæmdur fyrir nein af-
brot hingaö til, en hins vegar
lent I ýmsum minniháttar vand-
ræðum, m.a. fyrir að sýna yfir-
mönnum virðingarleysi
—ESJ
Þessi mynd sýnir ganginn I fangelsinu á Keflavikurflugvelli. Sýn-
ingargjaldið var framan á rimlahurðinni innst á myndinni, en sýn-
ingarvélin á ganginum neðst á myndinni. Miðhurðin var opin, og
„Korkurinn" sat innan við dyrastafinn hægra megin. Yfirhöfn
fangavarðarins þar sem billyklarnir voru geymdir, hékk á snaga á
veggnum til hægri. Ljósm. G.E.
Gunnar Thoroddsen
og Ragnar Arnalds:
Neituðu að
rœða við
krata um
Kröflu
Gunnar Thoroddsen, orku-
og iðnaðarráðherra, og
Ragnar Arnalds, formaður
Alþýðubandalagsins, höfnuðu
beiðni stjórnar Sambands
ungra jafnaðarmanna um að
mæta á almennum fundi um
„Stöðvun framkvæmda við
Kröflu?” Á fundinum áttu
einnig að mæta Eysteinn
Tryggvason, jarðfræðingur og
Kjartan Jóhannson, verkfræð-
ingur, sem báðir höfðu fallist á
að koma. Geir Gunnlaugsson
prófessor hafði samþykkt að
verða fundarstjóri.
Gunnar Thoroddsen tjáöi
stjórn SUJ, aö þeirra sögn, að
hann værí aðvinna við skýrslu
um Kröflu. A meðan væri hún
og ýmsar upplýsingar um
Kröfluvirkjun rfkisleyndar-
mál. Gæti hann þvi ekki tjáð
sig um málið að svo komnu.
Ragnar neitaði að koma á
þeirri forsendu að honum lik-
aði ekki fundarformiö, að sögn
ungra krata. —EKG
Stefón Jóhannsson félagsróðunautur ó Vífilsstöðum:
„HASSSALA I OLLUM
FRAM HALDSSKÓL UM
í REYKJAVÍK"
Hassneysla leiðir til ófengisneyslu barna og alkahólisma
„Hasssala fer fram I öllum
framhaldsskólum og flestum
unglíngaskólum i Reykjavik”,
sagði Stefán Jóhannsson félags-
ráðunautur á Vlfilsstaðahælinu
og ritari AA bókaútgáfunnar i
gær.
Stefán hefur mikla reynslu af
mönnum sem lent hafa i erfið-
leikum vegna áfengisneyslu. A
Vifilsstaði koma sem kunnugt
er menn sem þarfnast aöstoðar
þess vegna.
„Hassreykingar eru lykill að
drykkjunni” sagöi hann enn-
fremur. „Það er rekinn harður
áróður fyrir þvi að hass sé skaö-
laust og hafi engin eftirköst, en
vimuástandið kallar á annars
konar vimu”.
Stefán sagði að það hefði
komið yfir sig sem sjokk er
hann komst að þvi hver lykill
hassreykingar væru mönnum
að brennivinsdrykkju. Menn
sem koma á Vifilsstaði eru si-
fellt aö reyna aö telja mönnum
trú um að hass sé skaölaust, og
geta það með nokkrum rökum,
að sögn Stefáns.
Hass kemur mönnum á
brennivínsbragðið á ný
Siöan sagði Stefán að þeir
færu út og væru þá hættir að
drekka. Þeir snúa sér þá bara
að hassinu I þeirri góðu trú að
þaö sé vita skaðlaust. En nær
undantekningarlaust veröur
hassneyslan til þess að þeir
hefja neyslu léttra vina siöan
sterkra og að endingu hafna
þeir i gryfjunni sem alkahólist-
ar.
Stefán sagði að þvi færi f jarri
að hassneysla væri neitt skað-
laus. Hún bæöi kæmi mönnum
til aö byrja upp á nýtt á drykkju
og leiddi til þess aðbörn byrjuðu
fyrr að drekka. Börn byrjuðu I
hassi sem þeim hefði verið inn-
prentað aö væri skaölaust. En
bæöi vegna tilbreytingar og eins
hins að þau kjósa eitthvað
sterkara hefja þau vindrykkj-
una.
Stefán fullyrti aö hægt væri að
ganga inn á veitngastaöi I
Reykjavik og kaupa þar hass aö
vild. —EKG