Vísir - 03.02.1977, Blaðsíða 1

Vísir - 03.02.1977, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 3. febrúar 1977 31. tbl. 67. árg. Siödegisblad fyrir fjölskylduna allal Óska eftir athugun á gerð leirmyndarinnar Réttargæslumaöur Magnúsar Leopoldssonar, Hafsteinn Bald- vinsson hæstaréttarlögmaður óskaði eftir þvi við Sakadóm Reykja- vikur aðathugað yrði hvernig á þvistæði að leirmyndin væri jafn lik Magnúsi og raun bar vitni. Leirmyndin var gcrð eftir lýsingum fólks sem var i Hafnarbúðinni kvöid þaðer Kristján Viöar hringdif Geirfinn. Myndin er hins vegar alveg gjörólfk Kristjáni. Fljótlega eftir aö rannsókn Geirfinnsmálsins hófst bárust bönd að Magnúsi Leopoldssyni, enda kynnti Sævar Ciesielski sig alltaf sem Magnús Leopoidsson f viðræöum við Geirfinn. Ástæða er til að ætla að Geirfinnur hafi haft orð á þvi að hann ætlaði að hitta Magnús að máli. Það þykir nú upplýst að um samantekin ráð hafi verið að ræða að varpa grun á mennina fjóra sem sleppt var úr gæsluvaröhaldi f mai I fyrra vegna Geirfinnsmálsins. Hafsteinn Baldvinsson var að þvi spurður I morgun hvort gerð leirmyndarinnar væri aö hans dómi liður f þvf ráðabruggi. Hann kvaðst ekkert vilja tjá sig um það mál enda hefðu menn ekkert f höndunum er varpað gætu ljósi á það. „Maður hafði það alltaf á tilfinningunni að þessir menn væru ekki við málið riðnir”, sagði Hafsteinn. Hann sagði að sér væri ekki kunnugt um hvað athugun sakadóms á þessu liöi. Visir gerði itrekaðar en árangurslausar tilraunir i morgun til að ná tali af Halldóri Þorbjörnssyni yfirsakadómara og Erni Höskuldssyni rannsóknarstjóra I Geirfinnsmálinu til að fá fréttir af athugunum vegna leirhöfuösins. —EKG/SG Magnús Leopoldsson framkvæmdastjóri Leirstyttan sem gerö var I Keflavik Veggir þaktir í fundarherbergi sakadóms eru veggir þaktir kortum, uppdráttum og myndum i sambandi við hina umfangsmiklu rannsókn Geirfinnsmálsins. Sem dæmi má nefna ná- kvæma uppdrætti af akstursleiðum morð- ingjanna þar sem færðar eru inn timasetn- ingar hvar þeir eru staddir á hverjum tima. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri ívar uppdráttum Hannesson, Eggert Bjarnason, örn Höskuldsson, Halldór Þorbjörnsson, Karl Schutz, Renata Einarsdóttir og Pétur Egg- erz. Á borðinu má sjá Leirhausinn fræga og spjaldskrá er geymir 1200 nöfn er hafa verið nefnd i sambandi við rannsóknina. —SG (ljósm. Jens) Hvert finnst þér fallegasta frímerkið 1976? Þátturinn ,,Cr heimi frl- merkjanna” gengst fyrir skoðanakönnun á þvl hvert hafi verið fallegasta frl- merkiðsem út var gefiö hér á landi á nýliönu ári. Sjá bls. 17 Nýr þáttur hefst í dag I DAG HEFUR GÖNGU SIN'A VIKULEGUR ÞATT- UR HÉR I Y’ÍSI. HANN HEFUR HLOTIÐ HEITID „SÉÐ C R SJÓNVARPS- STÓLNUM” OG MUNU ÞAR VMSIR BORGARAR SEGJA ALIT SITT A DAG- SKRA CTVARPS OG SJÓN- VARPS. FYRSTUR SEST I SJÓNVARPSSTÓLINN EGILL EÐVARÐSSON, DAGSKRARMADUR. SJA BLS. 19 Corky flutti hassið inn sem varahluti - SJÁ BLS. 3 ........... Vilja hraða gerð hraðbrautar um Fossvogsdalinn — sjá bls. 11

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.