Vísir - 03.02.1977, Blaðsíða 24
„ Trúði því alltaf
að réttlœtið mundi
sigra að lokum"
VfSIR
Fimmtudagur 3. febrúar 1977
,¥ ...... « ,
„Korkurinn"
undir
ströngu
eftirliti
hjú hernum
Bandariski strokufanginn
Christopher Barba Smith er nú i
mjög strangri gæsiu i herfangels-
inu á Keflavikurflugvelli, en eins
og sagt var frá i Visi i gær, fannst
hann i vöruskemmu á Kcfla-
vikurflugvelii i fyrrinótt.
Tveir aörir bandarikjamenn
eru einnig I gæsluvaröhaldi i her-
fangelsinu vegna þessa máls.
Eruþeirgrunaöir um aö hafa aö-
stoöaö „Korkinn” og m.a. útveg-
aö honum húsaskjól yfir daginn,
þegar veriö var aö vinna i
skemmunni, þar sem hann faldi
sig á nóttunni.
Þegar „Korkurinn” fannst,
haföi hann rakaö af sér skeggiö
og litaö hár sitt. Var hár hans
appelsinugult á litin er hann
fannst, en var svo til svart er
hann strauk úr fangelsinu fyrir
hálfum mánuöi.
—klp—
— sagði Einar Bollason,
„Þetta er dagur, sem
maður er búinn að biða
eftir alltof lengi. En ég
hafði alltaf þá trú, að
réttlætið myndi sigra
að lokum”, sagði Einar
Bollason, kennari, i
viðtali við Visi þegar
niðurstaðan i Geir-
finnsmálinu hafði verið
tilkynnt.
„Þú hefur þá alltaf haft trú á
þvi, aö þetta mál myndi upplýs-
ast aö lokum, Einar?”
„Já, en ég verö aö visu aö
viöurkenna, aö ég var oröinn
Einar Boliason, kennari. Mynd-
in var tekin á heimili hans dag-
inn, sem honum var sieppt úr
gæsluvarðhaidinu.
Ljósmynd: Loftur.
kennari, í viðtali við Vísi
ansi svartsýnn á tima I sumar
sem leiö, og var jafnvel farinn
að óttast, að ég þyrfti aö fara i
málaferli til að hreinsa mig af
þessu”, sagði hann. „En svo
fékk ég mikla trú á aö málið
myndi leysast, þegar þýski
rannsóknarlögreglumaöurinn
kom til starfa”.
„Ég er alveg sannfæröur um,
aö þýski rannsóknarlögreglu-
maöurinn hefur gert stóra hluti i
þessu máii, en ég tel einnig, aö
allir þeir, sem aö rannsókninni
hafa starfaö, hafi unniö geysi-
lega mikið starf, þótt þeim hafi
oröiö á alveg hrapalleg mistök,
sem aðrir en ég munu dæma
um, hversu alvarleg eru frá
lagalegu sjónarmiöi.
Þetta var lifsreynsla, sem ég
óska ekki nokkrum manni”,
bætti Einar viö, „en þessi stóri
kunningjahópur i Iþrótta-
hreyfingunni og samkennararn-
ir við Flensborg hafa hjálpað
mér og fjölskyldu minni gifur-
lega mikið. Sú vinátta, sem
þessir félagar minir hafa sýnt,
gerði þetta léttbærara”.
Aðspuröur um hugsanlega
skaðabótakröfur á hendur rikis-
valdinu sagði Einar, aö hann
teldi, aö dómsmálayfirvöld ættu
aö sjá sóma sinn i þvi aö bæta
fyrir það tjón, sem hann heföi
orðið fyrirvegna þessa máls, án
þess að slikt' skaðabótamál
þyrfti að fara fyrir dóaistólana.
„Ég er reiðubúinn aö fara
samningaleiðina”, sagöi hann,
„og hef aðeins áhuga á aö fá
sanngjarnar bætur, ekkert
meira. Mér þætti eölilegast, að
dómsmálayfirvöld reyndu sjálf
að meta, hvað væru réttlátar
bætur og hefðu frumkvæöi aö
sanngjarnri lausn.
Hvorki ég né fjölskylda min
höfum áhuga á að fara i löng
réttarhöld til aö fá sanngjarnar
bætur fyrir það mannorðsmorö,
sem hér um ræðir, og þvi vona
ég að samkomulagsleiðin reyn-
istfær”, sagði Einar aö lokum.
— ESJ.
..Hvers virii
eru 105 daqar
í lífi manns?"
-Ég kann ekki að reikna
hvers virði 105 dagar í lífi
eins manns eru"/ sagði
Ingvar Björnsson réttar-
gæslumaður Einars Bolla-
sonar eins fjórmenning-
anna er sátu inni vegna
Geirfinnsmálsins er Vísir
ræddi við hann í gærkvöldi
að loknum blaðamanna-
fundi í sakadómi.
„Núna er manni efst i huga
ánægja yfir þvi að þeir skuli hafa
verið hreinsaöir af þeim hrika-
lega áburöi aö liggja undir grun
um að hafa verið valdir að dauöa
manns.”
Ingvar sagöi aö I framhaldi af
þeim upplýsingum sem nú liggja
fyrir heföu réttargæslumenn fjór-
menninganna komið sér saman
um aö rita fjármálaráöuneytinu
bréf og óska viðræðna um bætur
vegna gæsluvarðhaldsvistarinn-
ar.
Ingvar sagöi aö bæjaryfirvöld-
um Hafnarfjarðar yröi stefnt,
„fyriraö bregðast svo karlmann-
lega við að reka Einar úr starfi
forstööumanns Námsflokka
Hafnarfjaröar”, eins og hann
orðaði þaö. Einari var sem
kunnugt er vikiö úr þessu starfi
áöur en hinn frægi’ blaöamanna^
fundur I sakadómi I mars i fyrra
var haldinn. A þeim fundi var
skýrt frá þvi að fjórmenningarnir
hefðu verið leystir úr gæsluvarö-
haldi og ekkert komið I ljós er
tengdi þá moröinu á Geirfinni
Einarssyni.
— EKG
Þessi bifreið sem viö sjáum hér á myndinni var nokkrum tommum styttri og iiia farin eftir aö ökumaö-
ur hennar hafði misst vald á henni á Frfkirkjuvegi i gærkvöldi og ekiö á staur. ökumaöuinn slapp alveg
ómeiddur, og þótti vegfarcndum þaö undrum sæta. Grunur leikur á aö „Bakkus” hafi veriö meö I þess-
ari ökuferö — oger þá ekki aö sökum aöspyrja.
Fréttir Vísis réttar - því miður!
••
— segir Orn Höskuldsson, fulltrúi
Þýskar
aðferðir
Þaö kom fram hjá Karli Schutz,
aö viö yfirheyrslur yfir moröingj-
um Geirfinns hafi aö nokkru veriö
notaöar sömu aöferðir og i
Þýskalandi. Schutz skýröi þaö
ekki nánar, en bætti þvi viö að
alltaf heföi verið fariö aö lögum.
Visi er kunnugt um, aö Schutz
beitti sér fyrir þvi aö fangarnir
hafa fariö I ökuferöir um borgina
i öruggri vörslu óeinkennis-
klæddra lögreglumanna. Slfk hlé
á algjörri einangrun hafa gefið
mjög góöa raun og hafa fangarnir
jafnan reynst samstarfsfúsari á
eftir.
— SG
Fréttir Visis undan-
farnar vikur af gangi
rannsóknar Geirfinns-
málsins virðast hafa
valdið nokkrum óróleika
hjá rannsóknaraðilum.
Á fréttamannafundinum
i gær sagði örn
Höskuldsson meðal ann-
ars, að „því miður”
hefðu fréttir Visis verið
réttar. Þær hefðu því
getað haft áhrif á gang
rannsóknarinnar.
Hann nefndi sem dæmi, aö Visir
birti frétt þess efnis aö Kristján
Viöar segöi Geirfinn hafa hrapaö
ofan af kletti þegar átök áttu sér
stað. örn staöfesti að þetta heföi
veriö framburöur Kristjáns á
þessum tima, en þetta var áöur
en Guöjón var handtekinn.
Þegar örn var spuröur hvers
vegna Guöjón Skarphéöinsson
heföi ekki verið handtekinn þegar
hann var yfirheyrður I mai, kvað
örn rannsóknarmenn hafa veriö i
„lamasessi” vegna blaöaskrifa
um þaö er fjórmenningarnir voru
látnir lausir.
örn Höskuldsson sagöi aö blöö-
in hefðu ekki verið samstarfsfús i
þessu máli. Af þessum oröum
mætti ætla, að örn heföi viljaö
hafa sem best samstarf viö blöð-
in, en þvi miöur munu blaöamenn
almennt vera annarrar skoöunar.
— SG
Mótfallinn sameiningu"
u
— seglr formaður œskulýðsrúðs
„Ég tei þessa sameiningu
ekki liklega til aö veröa til hag-
ræöingar og er henni þvi mótfall-
inn,” sagöi Daviö Oddsson for-
maöur æskulýösráös i samtali
viö Visi i morgun, en á fundi
borgarstjórnar I dag verður
tekin fyrir tiiiaga um samein-
ingu æskulýösráðs og iþrótta-
ráös.
Alfreö Þorsteinsson ber þessa
tillögu fram og er I henni gert
ráö fyrir að breytingin taki gildi
voriö 1978. Meginhlutverk nýja
ráösins veröi að efla starfsemi
hinna ýmsu iþrótta- og æsku-
lýösfélaga I borginni eftir nán-
ari reglum sem settar veröi.
Davið sagðist telja að það
margt væri ólikt I skipulagi
þessara tveggja stofnana aö
breytingin yrði tæpast til bóta.
Hins vegar væri sjálfsagt aö
efla samstarfiö þeirra á milli.
-SJ