Vísir - 20.03.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 20.03.1977, Blaðsíða 2
2 PS: meðan ég man.. eftir Pétur Gunnarsson Augnablik var eins og konan steinrynni þarna á gólfinu, tók svo fyrir augun og hljóp út. Engin viöbrögö i sturtunum. Gömlu kallarnir voru dálitið eins og litlir strákar á nýjan leik: hlógu, hrintust og lá ekkert á. Töluöu i hálfkæringi um al- varlegustu málefni, til dæmis voru þrir að hlæja sig máttlausa yfir innbroti i kaupfélag út á landi. Það hafði veriö framið á laugardagskvöldi á meðan dansleikurinn stóð sem hæst, hljómsveit Ragnars Bjarnason- ar. 1 volga kerinu voru tveir strákar að tala við þann þriðja: Hvað ertu gamall? Segi það ekki. Sjöára? Nei. Niára? Nei. Ellefu? Tólf? Nei. Þrettán? Fjórtán? Nei. Hvað ertu þá eiginlega gam- all? Attára Miðaldra kona sat á bretti, nýkomin upp úr heitasta pottin- um og stóö dampurinn upp af henni. Hún var orðin meö öllu ónæm fyrir heitu og köldu eins og maður sem er dáinn og graf- inn og stiginn upp til himna. Himnarnir voru eitt endalaust ský og hún horfði á litla tveggja hreyfla flugvél koma syndandi og eins og oft i þoku er lifsins Sunnudagur 20. mars 1977 ! VÍSER Sðgur úr Ástandinu r I sundlaugunum 1 sundlaugunum hvarflaði að mér aö svona væri ágætt að hafa himnariki. Kannski af þvi að allt leysist upp I gufu og fólk veröur ekki ósvipað englum — er það hlutleysissvipurinn? Staöreynd að um leið og maöur afklæðist fötunum afklæðist maður hluta af stööutáknum sinum. Sumir fatta ekki að þeir eru komnir úr, eru miklir á floti og taka jafnvel bilinn meö sér i heitakerið. Yfirleitt fær heita- kersfólk samt á sig þennan sjaldgæfa svip manneskjunnar, það þarf ekki aö vera annað en manneskja. í sundlaugunum gufa peningarnir upp eins og vonandi lika i himnariki: fólk liður um eða syndir I volgu hlut- leysi. Samt er nú ekki allt jafn hlut- laust, til dæmis flæktist mið- aldra kona inn i karlmanna- sturtuna, hún var meö sund- hettu og átti sér einskis ills von. Alltieinu stendur hún andspænis röð af tippum af öllum stærðum og gerðum, sum hvit og saklaus, önnur velkt og lif:reynd. VÍSIR Clgefandi:Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davfft (juAiuundssun Kilstjórar:Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson ». Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guftmundsson. Kréttastjóri erlendra frétta: Guömundur Pótursson. Um- sjón meft helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaftamenn: Edda Andréádóttir, Einar Guftfinnsson, Elias Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guftjón Arngrimsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guftvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gyifi Kristjðnsson Akur- eyrarrititjórn: Anders Hansen. Ctlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magntls ólafsson. I-jós- myndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurftsson. Dreifingarstjóri: Sigurftur R. Pétursson Auglýsingar: Slöumúla 8. Slmar 11(60, 8M11. Afgreiftsla : llverfisgala 44. Slmi X6611 Kitstjón íSfftumúla^l.'SImi 86611,7 llnur Akuréyri. Slmi 96-I980G Askriftargjald kr. 1100 á mánufti innanlands. N'erft I lausasölu kr. <>o eintakift. Prentun: Hlaftaprent hf. Áskriftarsími Vísis er 86611 Hringið strax og tryggið ykkur eintak af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar fyrir aðeins 1100 krónur ó mónuði Togaramenn i langvinnu og harðvitugu verkfalli og menn skotnir i bakið i enn einu blóð- baðinu i Algeirsborg. Þannig leit forsiða Ví.iis út fyrir 15 ár- um eða 27. mai s 1962, eins og sjá má á myndinn.. En það sem mesta athygli vekur er stórfréitin á miðri for- siðunni, — fimi't dálka frétt undir fyrirsögninai: „Eiturlyf i Reykjavik — Lögreglan hand- samar stúlku.” Svo var það fyrir 15 árum: Það óefnilega og það efnilega.... Það er fróðlegt fyrir okkur á þessum timum sérstaks fikni- efnadómstóls og fullyrðinga um stórfellda fikniefnaneyslu og sölu innan uppfræðslustofnana islenskrar æsku, að kynnast þvi hvernig á slika hluti var litið fyrir einungis 15 árum siðan, — þ.e. áðuren fikniefnaaldan skall yfir. Svo hljóðar frétt Visis þennan dag: „Vlsir spurðist fyrir um þaö hía löBreelustjóranum i ReykjavIk.STgurjóníSigurðssyni hvort lögréglan hefði orðið nokkurs visari um eiturlyfja- notkuni borginni að undanförnu (orðin „ávana- og fikniefni” hafa þá vart verið komin inn I málið, og alltaf einfaldlega talað um eiturlyf”). Orðrómur meiri en stað- reyndirnar Lögreglustjóri kvaðst hyggja aö orörómur væri meiri um þessi mál heldur en staöreyndirnar sjálfar séu, a.m.k. meiri en komið heföi til kasta lögreglunnar. Lögreglu- stjóri gat þess jafnframt að starfsmenn sinir fylgdust af áhuga með öllum þessum mál- um vegna þessa gruns sem al- mannarómur hefur vakið. Þvi væri heldur ekki að leyna að i einstöku tilfellum hafi lögreglan fundið grunsamlegar pillur i fórum fólks, slðast I gær hjá stúlku staddri i einu veitinga- húsi bæjarins. Skömmu áöur haföi lögreglan einnig tekið mann undir annarlegum áhrif- um og hafði sá einhverjar töflur I vörslu sinni. Lögreglustjóri kvað það ófrá- vlkjanlega reglu að öll slík mál væru jafnharðan send saka- dómaraembættinu til frekari rannsóknar, en a.m.k. stundum hefði það komið i ljós við frekari rannsókn aö mál þessi væru ekki jafn alvarlegs eðlis og lög- reglan hefði haldiö I fyrstu. En hvaö sem öðru liði, þá væri lög- reglan vel á verði og gerði skyldu slna eftir fremsta megni...” //Efnilegur unglingur" Vart væri nú slikri flugufóts- frétt slegið upp með þessum hætti i blöðunum i dag. A þess,- um stutta tima hefur staöa fikniefnamála — og staða blaöa- mennskunnar — breyst það mikið. En þá eins og nú var lika litið á bjartari hliðar mannlifsins og til að halda slíku jafnvægi i þessum pistliskal klykkt út með tilvitnun I Visi nokkrum dögum áður eöa 21. mars 1962. Þá hóf göngu sina i blaðinu nýr þáttur er nefndist „Ahugamál æskunn- ar.” Annar um&jónarmanna siðunnar, Pétur Sveinbjarnar- son skrifaði klausu á þessa fyrstu siðu ásamt meðfylgjandi mynd, undir yfirskriftinni: „Efnilegur unglingur”. Hún hefst svo: „Það er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur með þvi að kynna fyrir lesendum siðunnar Her- mann Gunnarsson. Þeir sem fylgst hafa 'meö leikjum yngri flokkanna I knatt- spyrnu eða handknattleik hafa án efa flestir tekið eftir þessum ljóshærða og snaggaralega pilti. Likt og með marga aðra tók hugur hans allur knattspyrnuna og aðeins 5 ára gekk Hermann i Viking, en stuttu slðar vatt hann kvæöi sinu i kross og innritaðist i Val og hefur æft og leikiö með Val siðan. Fljótlega tók að bera á hæfi- leikum hans og hefur Hermann ætið leikið með besta liöi I sinum aldursflokki...” jón töó M Þeim fjölgar sífellt í aðgerðarleysinu! Þannig ernú útfits i höfn- inni» Stendur verkfallið i mánuði? EITURL YF / REYKJA VÍK - LÖG- REGLAN HANDSAMAR STÚLKU Blóðbað í Algeirsborg menn skotnir / bakið Qerviskegg kc.u upp um 0AS foringjann * 16. s. Þá var Hermann 15 ára. Og varla þarf að minna á að þetta fyrirheit um framtið Hermanns Gunnarssonar i knattspyrnunni hefur rætst. —AÞ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.