Vísir - 20.03.1977, Blaðsíða 15

Vísir - 20.03.1977, Blaðsíða 15
vism Sunnudagur 20. mars 1977 15 Richard, með myndir af spámönnum mormóna. Yfirleitt eru menn mjög ungir þegar þeir fara sem trúboðar, sem dæmi má nefna að þeir sem hér starfa eru á aldrinum frá 19 til 23 ára, að Byroniundanskild- um auðvitað. Piltarnir gera þá hlé á námi sinu eða starfi, en hefja það aftur aö tveimur árum loknum. Og þeir greiða SJALF- IR kostnaðinn af trúboðsstörf- um sinum og ferðalögum. Það liggur þvi I augum uppi að menn verða að byrja að leggja fyrir ansi ungir ef þeir ætla að eiga til ferðarinnar og tveggja ára uppihalds um tvitugt. Tæplega nægir spar- semin I öllum tilfellum, en þá hleypur fjölskyldan undir bagga. Meiriháttar framkvæmdir, svo sem kirkjubyggingar, sér þó kirkjan um sjálf. Og hennar fjárhagur byggist á tiundinni sem mormónar greiða af telým sinum, þvi þeir halda þann gamla sið I heiðri. Það hjálpar mönnum til að standa undir þessum „auka- skatti” að mannsllkaminn er mormónum heilagur og þaö er litið á reykingar, áfengisneyslu og fiknilyfjaneyslu hverskonar, sem saurgun á þessum helgi- dómi. Mormónar eru þó ekki neinir ofsatrúarmenn i þessu fremur en öðru, og menn eru ekki settir út af sakramentlnu þótt þeir fái sér neðan I þvi. Hinsvegar minnka slik frávik möguleika þeirra á þvi að starfa fyrir kirkjuna. En þótt menn bæði reyki og drekki, geta þeir lifað mjög svo venjulegu llfi I félags- skap við aðra mormóna, þótt þeir séu bindindismenn. „Við litum ekki niöur á nokk- urn mann. Það er ekki okkar að áfellast eða dæma. Ef menn vilja lifa samkvæmt ströngustu boðum kirkjunnar þá er það okkur gleðiefni. En ef þeir vilja það ekki þá er það þeirra einka- mál og þeir eru jafningjar okkar og bræður engu að siöur.” Reynslan sýnir þó að mormónar virðast nokkuð almennt virða það musteri sem likaminn er þeim, þvi heilbrigðisskýrslur sýna að þeir eru langlifari, hraustari og heilsubetri en annað fólk. Fékk //útkall" sextugur.. En snúum okkur aö Byron. Eins og aðrir ungir mormónar fór hann út I heim til að boöa trúna, þegar hann var rétt af táningaskeiðinu. Hann þjónaði sin tvö ár og sneri svo til Banda- rikjanna aftur, og gerðist kenn- ari. Hann kvæntist Melvu, þau eignuðust börn og fóru að búa um sig, eins og hjónafólk gerir. Byron varð kennari og siðar skólastjóri trúarbragðaskóla sem mormónar ráku. Hann var orðinn sextugur og þau voru ný- búin að fá sér draumahúsið þegar kallið kom aftur. Hann átti að fara til Islands og stjórna þar trúboösstarfinu. Þetta var svo sem engin herkvaðning og hann hefði get- að neitað. En honum datt það ekki i hug. „Vist var það erfitt aö rlfa sig upp og koma hingað. Ég skal ekki neita þvl. Við vorum búin að búa um okkur I húsinu okkar og horfðum framá róleg og góð ár. En viö töldum það ekki eftir okkur.Fórnirl þágu kirkjunnar eru blessun og margir hafa fært stærri fórnir en við.” Trúfrelsi eralgert. Eitt af þvl sem trúboðar verða að leggja á sig er aö tala mál „heimamanna”. Byron talar islenskuna ágætlega þótt hann muni aðeins óljóst eftir henni frá unglingsárunum. Davið og Daniel tala einnig ágæta islensku. Og þeir tala llka kóreönsku (Davið) og japönsku (Danlel). Þetta er nefnilega annað tveggja ára þjónustu- timabil þeirra. Þeir voru búnir að boöa trúna i fyrrnefndum löndum, en buöust til aö bæta við sig tveimur árum þegar foreldrarnir fóru til íslands. Robert Mikkelsen og Teryl Roper eru aðeins búnir að vera hér I nokkra mánuði, en þeir geta þegar gert sig skiljanlega og stunda Islenskunámið af kappi. En hvernig gengur svo að boöa mormónatrú á Islandi? „Trúboðsstarfiö er með ýms- um hætti. Viö göngum hús úr húsi, höldum samkomur og kynnum trúna niðri I bæ. Ot- gáfustarfsemi er töluverð. Það eru þegar komnir út sjö bæklingar á islensku og von á fleirum.” „Yfirleitt er okkur vel tekið. Viö reynum að vera ekki ágeng- ir þvi við trúum á algert trú- frelsi og ekkert væri fjær okkur en reyna að neyða trúna uppá einhvern. Hinsvegar höfum við mikinn fagnaöarboðskap, og aö við teljum, lifshamingju að færa fólki og gleöjumst ef það vill ræöa viö okkur —ÓT rP — Hér er mynd af kommni minnl. kasettan? Við vitum að svo er ekki og þekktir atvinnutónlistarmenn eru þvísammála. En þú! EMim^ X1000 60 — 90mín Einnigtil: EMIW Hy —Dynamic 60 — 90 — 120 min Gerið verð og gæða samanburð Er dýr chrome — kasetta helmingi meira virði en nýja XI000

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.