Vísir - 20.03.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 20.03.1977, Blaðsíða 3
vTsnt ; Sunnudagur 20. mars 1977 3 ómögulegt ab segja til um hvort hlutur fer upp eöa niöur. Þessi litlu Piper CuP gat þessvegna veriöaö koma nebanaö,meö ný- dána eilifa sál innanborös sem horföi meö eftirvæntingu út um gluggann og sá ekkert nema sundlaug og búningsklefa. Það voru braskarakellingar i heitakerinu. Allt oröiö fullt af laxi hjá þeim eftir sumariö og þær voru aö bjóöa þetta hver annarri en þvi miöur eins komiö fyrir kistunum hjá þeim öllum. Þær voru i einhverskonar leik: Já. Þaö má nú segja. Hann blæs. Samt svo fallegt. Haustblærinn i loftinu. Já. Þegar fólkiö labbaöi burt, var þaö aftur komiö i föt sin og stööutákn, bila og stresstöskur. A nokkrum minútum fylltust hreyfingar þeirra af þessu sjúka æði, ekki lengur mögulegt aö vera bara maöur sjálfur — lif- andi. Dœmisaga úr verð- bólgunni Frystikistur sjást hvergi nema hér á jöklinum. Algerlega tilbúin þörf af veröbólgunni sem rekur þá islendinga sem flokk- ast undir nautgripi og sauöfé i hjöröum ofan i þessar kistur. Eina fjölskyldu hef ég heyrt um sem átti troðfulla 1000 litra kistu inn i barnaherbergi. Dag- inn sem þau fóru I sumarfri var lokað fyrir rafmagniö. Þegar þau komu heim eftir þrjár á Torremolinos var kistan full af blómum, ibúðin af vatni og lykt. Eina gamla konu hef ég heyrt um sem eftir margra ára pressu lét undan og keypti sér kistu þegar siðasta veröbólgu- holskefla reiö yfir. Þau voru tvö i heimili hún og maðurinn henn- *ar en börnin þeirra auövitaö með sin verðbólguheimili. Gömlu hjónin voru upphaflega úr sveit og höföu vanist búri. Eftir aö þau fluttust til Reykja- vikur notuðust þau viö útveggs- skápinn sem starfaöi á sama grundvallarlögmáli og búr. Þegar þau áttu brúðkaupsaf- mæliö gáfu börnin þeim isskáp. Þótti þeim tæknin, þessi höfuö- skepna, heldur en ekki hafa tek- iö sér bólfestu á heimilinu. Tiu árum seinna lenda þau i miöri verðbólguholskeflunni sem lét greipar sópa um allt lauslegt, sérstaklega innistæöur bankabóka. Fólk reyndi að bjarga þvi sem bjargaö varö, hentist inn i búöir og hrópaöi: Einn isskáp strax! Allt búiö, svaraði afgreiöslu- maöurinn. Þá eldavél! Allt búiö, svaraöi afgreiöslu- maöurinn. Gömlu hjónin voru eins og hverjir aörir korktappar I stór- sjó, en þegar rikisstjórnin hót- aöi aö láta 40% greipar sópa um innistæöuna þeirra, vissu þau ekki fyrr en frystikistu haföi skolaö á land hjá þeim. Lengi stóö hún i ganginum og ef bjóða má lesendum upp á hvaö sem er gætum viö sagt aö stundum hafi gestir sofiö i henni. 1 hæsta lagi aö gamla konan setti i hana gamalt skó- tau eða eitthvaö, bara ekki mat, þvi gamli isskápurinn var alltaf hálf tómur. Sennilega hefði þessi frysti- kista bara endað undir skótau ef gömlu konunni heföi ekki hug- kvæmst aö geyma i henni bakk- elsi. Siöan var aldrei svo gest- kvæmt hjá henni, meiraösegja ekki þegar maöurinn hennar var jarðaður, aö hún ætti ekki fimingar af bakkelsi. 1000 litrar af pönnukökum, jólakökum og kleinum sem hún veiddi upp úr kistunni og skerpti ögn undir áö- ur en hún bar þaö fram, ferskt og ilmandi. Seinna fór þessi gamla kona á Bingó og fékk vinming til Kanarieyja og slag og l'.vilir nú i trékistu i Fossvoginum. The Exorcist hét lítil sakleysis- ieg hrollvekja sem fyrir nokkr- um árum kom islensku kirkju- þingi úr jafnvægi, eins og menn muna. Kirkjuþing taldi kvik- mynd þessa óholla, og skoraöi á jarönesk máttarvöld aö heimila ekki sýningar á henni hérlendis. Ailt kom þó fyrir ekki og Exor- cist var sýnd i Austurbæjarbiói hávaöalaust. Kvikmyndin varö eins og mörgum er kunnugt einhver mesta gróöamyndailratima. Og einsog viö eraö búast þegar svo vel tekst tilákváftuHollywood- garparnir snarlega aö fylgja þessu eftir og láta gera fram- haldsmynd. Slikt hefur nú sjaldnast heppnast vel þótt • undantekningar séu frá regl- unni, eins og t.a.m. French Connection II, sem varö mun betri mynd en fyrirrennari hennar. Um þessar mundir er veriö aö ganga frá Exorcist II. Má binda nokkrar vonir viö aö hún muni veröa betri en sú fyrri, sem aö visu var ekki sér- lega beysin. Þar skiptir mestu máli aö leikstjórinn er maöur sem kann betur til verka en flestir aörir núlifandi kvik- myndaleikstjórar. — John Boorman. Hann á aö baki prýöi- legar myndir eins og Point Biank og Deiiverance (Leikiö viö dauöann) . Hér er þvi nokkurt tilhiökkunarefni fy/ir hroll- vekjuunnendur. Ls |; Sí Boorman leikstýrir Lindu Blair. EXORCIST SNÝR AFTUR Max von Sydow kemur að nýju fram sem séra Merrin I bakskotum (Flash-backs), sem lýsa yngri árum hans i særingabransanum. William Fraker, kvikmyndatökumaöur, Richard Burton (séra Philip Lamont) og John Boorman, leikstjóri aö störfum viö upptök- Framhaldiö af Exorcist heitir fullu nafni Exorcist II: The Heretic, eöa Trúvillingurinn. Upptökum lauk aö mestu i nóvember s.l. en miklar tafir hafa hrjáö kvikmyndageröar- mennina m.a. vegna þess aö Boorman, leikstjóri varð að liggja á sjúkrahúsi með sjald- gæfan sjúkdóm i mánuö, og vegna þess aö nákvæmni hans i vinnubrögðum kraföist endur- tekningar ýmissa atriöa. Allt þetta stórhækkaöi kostnaðinn viö myndina. Hann er nú kom- inn yfir 11 milljónir dollara, sem er þd ódýrara en fyrri myndin, sem William Friedkin stjómaöi. Súmynd halaöi inn 120 milljónir doliara, og er enn aö. John Boorman var á sinum tima boöið aö stjórna gerö Exor cist, þ.e. fyrri hlutans, en hann hafnaði þvi. Hann og fram- leiðandi myndarinnar, Richard Lederer, halda þvi ákveðiö fram, aö framhaldinu sé ekki ætlaö aö ganga lengra i óhugnaöi, klúrheitum og guð- lasti en fyrri hlutinn geröi, enda þótti mörgum nóg um þaö Þvert á móti sé ætlunin að reyna mun finlegri, flóknari tegund af hrollvekju. M.a. verða sumir kaflar myndarinnar sýndir frá sjónarhóli púkans sjálfs (eins og margir mun fjallaði The Exorcist um unga stúlku sem haldin er illum anda eða púka). Við kvikmyndagerð á íslandi! Handritahöfundurinn, William Goodhart byggir að mjög litlu leyti á skáldsögu William Peter Blattys, sem fyrri myndin var gerö eftir. I upphafinýju myndarinnar segir frá þvi aö oröstir séra Merrins, sem i þeirri fyrri beiö bana viö særingar yfir ungu stúlkunni, Regan, fer hrakandi. Nafn séra Merrins (sem leikinn var af Max von Sydow) verður aöeins hreinsaö ef tekstaö færa sönnur á að særingarathöfnin yfir Reg- an hafi borið árangur. Ella stöðvar páfagaröur útgáfu á verkum Merrins og lýsir hann villutrúarmann og satanista. Rannsókn málsins er falin séra Philip Lamont, sem leikinn er af Richard Burton, I hlutverki ungu stúlkunnar, Regans, er sem fyrr Linda Blair. Regan er núoröin 18ára, man ekkert eftir þeim óhugnanlegu atburöum sem geröust i æsku hennar, en heyrir hins vegar raddir og sér sýnir sem aörir gera ekki. Móðir hennar leikkonan er ekki með i þessari mynd og er sögð vera viö kvikmyndagerö á ís- landi þar sem veriö er að filma hamfarastórmynd (!) En hér sem fyrr er þaö glima þeirra séra Lamonts og Regans viö púkann sem er efnisuppistaöa myndarinnar og gerist sú glima næsta tvisýn undir lokin. Ekkiveröur efniö rakiö frekar hér, en meöal annarra ágætra aðalleikara eru Louise Fletcher, sem fékk Oscarsverö- laun i fyrra fyrir Gaukshreiöriö og James Earl Jones. Ummyndina segir John Boor- man, leikstjóri: „Viö munum notfæra okkur nánast öll hugsanleg tæknibrögö til þess að gera kvikmynd sem teyma mun áhorfandann inn i óþekkta afkoma mannshugarins og furðuveraldir sem hann hefur aldrei kynnst fyrr. Viö munum faraum ganga helvitis. Þetta er ferð inn i mannssálina... Þessi kvikmynd á aö kaffæra áhorf- andann i heimi draums og martraðar.” Þaö veröur spennandi aö sjá hvort þetta tekst. Boorman vinnur um þessar mundir að samsetningu myndarinnar og hún á samkvæmt áætlun aö sjá dagsins ljós i júni I sumar. ÁÞ tók saman

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.