Vísir - 20.03.1977, Side 14
14
Sunnudagur 20. mars 1977
vísm
vægi f jölskyldunnar, og faöirinn
sé höfuö hennar, er auöséö aö
samband ungu mannanna viö
hann er frjálslegt. Þeir gripa aö
visu aldrei frammi fyrir honum,
en þá gripa þeir reyndar heldur
ekki frammi hvor fyrir öörum.
Hins vegar bæta þeir oft ein-
hvérju við, eins og til frekari út-
skýringar, eða þeir gripa spurn-
inguna og svara henni fyrst, án
þess aö hika. A nútima mæli-
kvarða teljast sjálfsagt sumar
hugmyndir mormöna um fjöl-
skyldulifiö gamaldags, en faðir-
inn er greinilega enginn alráöur
ógnvaldur.
-O-
„En fyrst þiö grundvalliö á
Guðstrú, af hverju getið þiö ekki
bara kallaö ykkur kristna
menn’”
„Mormónar er i rauninni
aðeins nafn, sem kannske gefur
ekki rétta hugmynd um söfn-
uðinn. Mormóni er orð sem i
daglegu tali er notað um þann
sem er i „Kirkju Jesú Krists af
Siðari Daga Heilögum.” Þaö er
nafniö sem viö notum, þótt viö
höfum ekkert á móti þvi aö vera
kallaðir mormónar.”
„Til skýringar er rétt að geta
þess aö orðið „heilagur” á
þarna ekki að útleggjast i sam-
ræmi við erfðir og siöi
rómversk-kaþólskrar trúar. Við
leggjum i það hina almennu
merkingu sem Páll postuli lagði
i orðið þegar hann ritaði þeim
sem voru i frumkirkjunni.
Mormónar lita aðeins á sig sem
heilaga, i þeim skilningi að þeir
trúa á Jesú Krist og tilheyra
kirkju hans.”
„OK, en mér sýnist nú samt
sem þið séuð bara kristnir?”
Mormónarnir sex hlæja, en
halda svo áfram útskýringun-
um.
„Mormónar eru oft flokkaðir
sem mótmælendur, þar sem
þeir eru ekki kaþólskir. í raun-
inni eru þeir þó engu nær mót-
mælendatrú en kaþólsku.”
„Meðal trúarreglan mormóna
eru allar siðferðilegar kröfur og
undirstöðukenningar Nýja
Testamentisins. Trúin á upphaf
sitt i kenningum Bibliunnar, en
við þær hafa mormónar bætt þvi
sem þeir kalla nútima opinber-
un”.
Hefur Guð ekki
málfrelsi?
„Meginreglan um opinberun
á okkar timum er grundvallar-
atriði i guðfræði mormóna. „Við
trúum öllu sem Guð hefur opin-
berað, öllu sem hann opinberar
nú, og við trúum, að hann eigi
enr> eftir að opinbera marga og
mikilvæga hluti.” Þetta er hin
opinbera yfirlýsing kenningar-
innar”.
„Kristnir menn og gyðingar
halda þvi yfirleitt fram að Guð
hafi birst og leiðbeint útvöldum
mönnum fyrr á öldum.
Mormónatrúin heldur þvi fram
að þörfin fyrir guðdómlega
handleiðslu sé eins mikil i hin-
um flókna heimi nútimans og
hún var á tiltölulega fábrotinni
öld hebrea.”
„Grundvallarsannindi sem
sett eru fram i Gamla- og Nýja
Testamentinu, eru eins bind-
andi á okkar dögum og þau voru
þann dag sem þau voru boðuð.
Samt skapar lifið okkur nú
vandamál sem voru allendis
óþekkt fyrir mörgum öldum.
Þar við bætist að ýmsar kenn-
ingar Bibliunnar hafa verið
túlkaöar á svo marga og ólika
vegu, að margt hugsandi fólk
veit ekki hverju þaö á að trúa.”
„Hafi Guö talað áður fyrr, er
þá eðlilegt að trúa þvi að hann
geti ekki talað á okkar timum?
Hvaða manni kæmi til hugar að
neita Guöi um rétt til að tjá
sig?”
Lifandi spámaöur.
„1 samræmi við kenninguna
um ðpinberun á okkar timum
hafa mormónar alltaf sinn „lif-
andi spámann” sem er æðsti
tengiliður þeirra við Guð.
Jóseph Smith var fyrsti
spámaðurinn og sá sem nú er
heitir Spencer W. Kimble. Hann
£r*F nsguf
O&JI 0<»»
ÖV&*
Ad skilja ci oð hluslu einkuro inntro (jölskyldunnar
1 í ' "í
í'f
t
1. . ■9 Srs
,,fs
Robert, Daniel, Byron, Melva, David og Teryl.
Vlsismyndir Jens.
hefur tvo sérlega ráðgjafa óg
þessir þrir menn mynda Æðsta
forsætisráðið.”
„Meö þeim starfar Tólf-
postularáðið, þar fyrir neöan
kemur Sjötiundarráðiö og svo
framvegis. Þannig starfa
mormónar með sama skipulagi
og rikti i kirkju þeirri sem
Frelsarinn stofnaði.
„Hvað Bibliuna snertir hafa
mormónar þrjár bækur til við-
bótar við hana. Þær eru
„Mormónsbók,” „Kenning og
Sáttmálar” og „Hin dýrmæta
perla.” Þessar bækur ásamt
Bibliunni eru grundvallarrit
mormónakirkjunnar. Kenn-
ingarnar i þessum þremur bók-
um okkar eru ekki i mótsögn við
kenningar Bibliunnar. Þær
staðfesta að hin hebresku rit eru
guðdómleg að uppruna og skýra
til muna margar kenningar sem
þar er að finna og menn hafa
deilt um öldum saman.”
Fjölkvæniö...
„Nú voru mormónar lengi
ofsóttir, viða um heim og
ein kveikjan að þeim ofsóknum
var fjölkvær.iö. Hvað viljið þið
segja um það?”
„í margra augum hefur
mormónatrú táknað aöeins eitt
— fjölkvæni. Um það voru sagð-
Melva og Davift: „Fjölskyldan er eitt hift mikilvægasta.”
Byron: „Vift trúum öliu sem
Guft hefur opinberaft”.
„Vift erum hvorki mótmælendur
né kaþólskir”
Teryl meft myndir af hofum
mormóna.
Daniel: „Vift lltum ekki niftur á
nokkurn mann....”
ar margar sögur I öllum heims-
hlutum, og þær svæsnar. Þær
heyra nú timanum til, sem
betur fer.”
„Sannleikann um og ástæð-
una fyrir fjölkvæninu er að
finna I trúarboðskapnum. Þvi er
,,-haldið fram að mormónatrú sé
endurreisn verka Guðs á öllum
timum fagnaðarboðskaparins.
Gamla Testamentið kennir að
öldungarnir, þeir menn sem
Guð hafði velþóknun á, hafi átt
fleiri en eina konu, með guðlegu
samþykki.”
„Við þróun Mormónakirkj-
unnar á nitjándu öld, var það
opinberað leiðtoga hennar að
slikir hjúskaparhættir skyldu
teknir upp á ný”.
„Boðun þessarar kenningar
var mikið áfall. Skömmu eftir
að Brigham Young frétti um
hana sá hann likfylgd fara um
götu. Og þá á hann að hafa sagt
að heldur vildi hann láta grafa
sig i stað þess sem I kistunni
væri, en að þurfa að gangast inn
á þessa kenningu. Þrátt fyrir
þetta var hún samþykkt sem
boðorð Guðs.”
„Þetta þýddi þó alls ekki að
allir karlmenn safnaðarins
gripu sér samstundis fjölda
kvenna til fylgilags. 1
framkvæmd var þetta mjög
erfitt. Eftirlit var strangt og það
var aðeins örlitið brot karl-
manna, sem tóku sér fleiri en
eina konu.”
„Þeim einum sem voru stað-
fastir og höfðu fært sönnur-að
þeir væru færir um að sjá fleiri
en einni fjölskyldu farboða, var
heimilað fjölkvæni. Það urðu
aldrei meira en þrjú prósent
fjölskyldna innan kirkjunnar,
fjölkvænisfjölskyldur og sá
háttur var talinn trúarlegs eðlis,
eingöngu.”
Hlýðum landslögum
„Siðla á niunda tug siðustu
aldar samþykkti svo banda-
rikjaþing ýmis lög, sem bönn-
uðu þennan sið. Hæstiréttur
kvað upp þann úrskurð að lögin
brytu ekki i bága við stjórnar-
skrána og þá tilkynnti kirkjan
að hún væri fús til að beygja sig
I þessu efni.”
„Hún hefði heldur ekki verið
sjálfri sér samkvæm ella, þvi
ein undirstöðukenning hennar
er að menn hlýði landslögum.
Þetta var árið 1890 og siðan hafa
embættismenn kirkjunnar ekki
framkvæmt slikar vigslur.
■ Einstaklingar sem hafa stofnaö
til þessháttar hjúskapar, hafa
verið settir út af sakrament-
inu.”
„En þetta allt varð til að
dreift var mörgum hlægilegum
firrum sem hafa reynst furðu
lifseigar. Þær hafa villt mönn-
um sýn að þvl er snertir hina
raunverulegu hjúskaparkenn-
ingu siðari dags heilagra.”
„1 guðfræði mormóna er
hjónabandið heilagur samning-
ur sem er gerður að guðlegum
fyrirmælum. Samkvæmt valdi
prestdæmisins eru maður og
kona ekki aðeins gefin saman i
þessu lifi sem lögleg hjón,
heldur og um alla eilifð”.
„Kirkjan leggur mikla
áherslu á helgi heimilisins og
kennir að börn séu blessun frá
Drottni. A enga meginreglu
leggja mormónar meiri áherslu
en helgi hjúskaparsáttmálans. í
guðfræði mormóna er hórdómur
svo alvarlegt brot að hann
gengur morði næst.”
Meira krafist.
Mormónakirkjan leggur tölu-
vert meira á sina óbreyttu safn-
aðarmeðlimi, en kristin kirkja
og Byron og fjölskylda hans eru
e.t.v. ágætt dæmi um þaö. Ef
menn lifa i samræmi við kenn-
ingar kirkjunnar geta þeir orðið
þeirrar blessunar aðnjótandi að
starfa fyrir hana á einhverju
sviði.
Það er nokkuö almenn regla
að karlmenn verji tveimur ár-
um af ævi sinni i einhverskonar
störf fyrir kirkjuna. Oftast eru
það trúboðsstörf erlendis, þvi
mormónar eru fjórar milljónir
talsins I flestum löndum heims-
ins og leita stöðugt eftir þvi að
breiða trúna út.