Vísir - 20.04.1977, Page 17

Vísir - 20.04.1977, Page 17
VISIR Miðvikudagur 20. aprll 1977 ÞAÐ ER BARA GIGT I ÞÉR Vísir rœðir við Guðjón Hólm formann Gigtarfélags íslands í tilefni alþjóðlegs gigtarórs „Það er staðreynd aö gigtar- sjúkdómarnir hafa verið van- ræktir. Þegar miðað er viö að gigtarsjúklingar eru stærsti ein- staki sjúklingahópurinn sem leitar læknis, erauðséð aö mikið vantar á aö nóg sé gert I þessum málum,” sagði Guöjón Hólm formaður Gigtarfélags islands i viðtali við Visi. Gigtarfélag Islands er ný- stofnað félag leikmanna, en fyrir var hér til og er enn félag gigtarlækna. Guðjón sagði aö það sem hefði gert þessa félags- stofnun aö knýjandi nauðsyn hafi verið að árið 1977 var valið alþjóölegt gigtarár. „Gigtarfélögin sjá hvert I sinu landi um kynningu á mál- efnum gigtsjúkra af þessu til- efni. Fyrsta og stærsta verkefni félagsins er því að sinna þessari kynningu.” Stærsti sökudólgurinn Það er ekki öllum ljóst hve mikill skaðvaldur gigtin er frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Guðjón sagði aö t.d. væri nær helmingur allra öryrkja komnir i þá aðstæðu vegna gigtar. Þá eru fjarvistardagar úr vinnu einna flestir vegna gigtar. Og þaö eru ekki margir sem sleppa alveg við þessa plágu. Samkvæmt skýrslum lækna nær aðeins einn af hverjum tiu á sjötugsaldri án þess aö hafa nokkurn tima leitað læknis vegna gigtar. Sem dæmi um það hve mikið vinnutap hlýst af gigtinni má nefna að niðurstaða rannsókn- ar, sem enska tryggingamála- ráðuneytið gerði fyrir um ára- tug var sú að á hverja 100 vinnandi menn væru 57 fjar- vistardagar á ári vegna gigtar- sjúkdóma. Eðli vinnunnar hefur mikil áhrif á tiðni gigtsjúkdóma og kom i ljós i þessari rannsókn að hjá verkamönnum voru 154 veikindadagar á ári, á móti 15 veikindadögum hjá þeim sem unnu að huglægum störfum. Börnin sleppa ekki heldur Gigt birtist I hinum margvis- legustu myndum, sem I höfuð- dráttum greinist hún I þrennt — liöagigt, vöðvagigt og slitgigt. Af þessum sjúkdómum eru þó talin vera 170-180 afbrigði. Gigtarsjúkdómar eru al- gengari meðal fullorðinna, en börn fá oftar liðagigt en viö gerum okkur grein fyrir. Fyrir fimmtán árum gerði finnskur læknir rannsókn á þvi hversu mörg gigtartilfelli kæmu fram i Finnlandi á börnum yngri en 15 ára. Kom I ljós að á hverja 100.000 Ibúa koma upp 6-8 ný gigtar- tilfelli hjáþ þessum aldursflokki árlega. Þetta svarar til 14-15 nýrra tilfella á hverju ári, ef ástandið á þessum málum er sambærilegt hér á landi. Sam- kvæmt heimildum frá Noregi hafa á siðustu árum komið fram 50 ný gigtartilfelli hjá börnum árlega. Guðjón Hólm: „Raunar skortir hér allar rannsóknir á sjúkdómnum”. Mynd:JA Engar slikar rannsóknir hér Þegar allar tegundir gigtar- sjúkdóma eru teknar meö i dæmið er taliö aö i Noregi séu um 100.000 menn gigtsjúkir. En hvernig er ástandið hér á landi? „Þvi miöur hefur aldrei verið gerö rannsókn á tiöni sjúkdómanna hér á landi sagði Guöjón”. Raunar skortir hér allar rannsóknir á sjúkdómnum. Nú eru aöeins þrjú ár liöin siöan fyrsti kenn- arinn I gigtarlækningum var ráðinn til starfa viö Háskólann. Aðstaöan til rannsókna er lika svo til engin. Þess vegna var þaö valið sem eitt fyrsta verkefni Gigtarfé- lagsins að safn fé til kaupa á rannsóknartækjum til rannsóknar á sjúkdómnum. Þau tæki er ætlunin aö gefa rannsóknardeild i ónæmisfræö- um sem starfar á Landspitalan- um. Þetta teljum viö mjög mikilvægt verkefni, þar sem rannsóknir á þessu sviöi stuöla aö þvi að fyrirbyggja sjúkdóm- inn, sem aö sjálfsögðu er þaö sem allir óska eftir.” „Þetta er bara gigt i þér” „ÞaÖ er auðvitaö margt fleira sem vantar hér. Til dæmis vantar tilfinnanlega göngudeild fyrir þessa sjúklinga. Þessi sjúkdómur veldur ekki dauða, en getur þjáö fólk mjög lengi. Aðalatriöið er þvl aö komast fyrir sjúkdóminn á byrjunar- stigi. Sjúklingarnir geta hjálpar mikið til sjálfir I samvinnu við lækna og þvi á Gigtarfélagið að vera nauösynjafélag frá þjóöhagslegu sjónarmiði. En það er nú svo að auk þess sem aöstaöa til meöferðar gigt- arsjúkra er léleg, er þjónustan það einnig. Hér vantar tilfinnanlega sjúkraþjálfara og sérfræðingar eru alltof fáir. Þó eru nokkrir ljósir punktar I þessum málum. Rannsóknum hefur fleygt fram á slöustu árum. Það er ekki út i bláinn sem þetta ár var valið ár gigtar, þvi menn' hafa gert sér grein fyrir þvi á siðustu árum að gigt er mikið þjóðarmein og þess virðiaðhennisé gaumur gefinn. Enda vonum við að sá timi sé liðinn að læknir segi eitthvað á þessa leið viö sjúkling: „Það er bara gigt i þér”, ” sagði Guöjón Hólm að lokum. —SJ HÚSBYGGEJNDUR-Einangrunarplast Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi-föstudags. Afhendum vöruna á byggingar- stað, viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi B orga rpl ast Borqarneti j| «ími 93-7370 kvöld og belqarsimi «3-7355 Sigtúni 3 Erum fluttir í Sigtún 3 Chevrolet Vega G.T. árg. 74 Faílegur sportbíll. Oskum eftir Cortinu 1600 árg. 72 2ja dyra. Einnig vantar okkur japanska, sænska og þýska bíla af öllum gerðum Tökum litmyndir. Nœg bílastœði. Kaffistofa og bílaþvottastöð i sama húsi. Opið fró kl. 9-7 KJORBILLINN . 11 in x Sigtúni 3 Laugardaga kl.10-4 144^ Sumardagurinn fyrsti Skrúðgöngur: kl. 13.00 Tívolí við Austurbœjarskóla: kl. 13.30 Unglingadansleikur: kl. 21.00 Dagskrá dagsins í Reykjavík Lagt verður af stað frá Sjó- mannaskólanum og Sóleyjagötu, við Hljómskálann. Skátar og lúðrasveitin Svanur og lúðrasveit verkalýðsins, Ieiða göngurnar. Gengið verður að Austurbæjar- skóla. Svæðið opnað Inngangseyrir fyrir fullorðna kr. 100.- Inngangseyrir fyrir börn kl. 50.- Skemmtidagskrá á palli kl. 14.00, 15.00 og 16.00 Ýmsir skemmtikraftar leika listir sinar. Útidansleikur fyrir unglinga i porti Austurbæjarskóla. Hljóm- sveitin Póker leikur fyrir dansi. í Tivoliinu verða á boðstólnum ýmsir frumlegir tivolipóstar m.a. skotbakkar, spákonur, ótemja, boltaspil, tuskukast og margt fleira. Sérstakir peningar gilda i Tivoliinu eða sumarkrónan og kostar hún 25 kr. Barnagæsluvöllur verður starfræktur á svæðinu fyrir börn 2-5 ára. Þá verður og veitingasala Skátasamband Reykjavíkur — Sumargjöf — St. Georgsgildi

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.