Vísir - 30.04.1977, Síða 4
4
Laugardagur 30. april 1977
VISIR
TR VANN
Skákþingi Hafnarfjarðar 1977
lauk fyrir skömmu. Keppendur
voru 25 talsins og tefldu I A og B
riðli. Að undanrásum loknum
tefldu 4 efstu til úrslita um efsta
sætið, og varð röð þeirra þessi:
1. AsgeirP. Asbjörnss. 3v.
2. Stigur Herlufsen 2v.
3. AgústS. Karlss. lv.
4. Jóhann Jónsson Ov
1 B-flokki sigraði Ragnar
Konráðsson og næstir urðu
Guðmundur Karlsson og Hauk-
ur Gislason. Hraðskákmót
Hafnafjaröar verður haldið i
dag, laugardag, og hefst kl.
14.00 í Góötemplarahúsinu.
Um sibustu helgi mættust tvö
efstu liðin I deildarkeppninni,
Taflfélag Reykjavfkur og Skák-
félagiö Mjölnir. tlrslit uröu
þessi:
T.R.
1. borö Guðmundur Sigurjóns-
son.
2. borð Ingi R. Jóhannsson
3. borö Helgi ólafsson
4. borð Margeir Péturssön
5. borö Jón L. Arnason
6. borö Stefán Briem
7. borð Jónas P. Erlingss.
8. borð Asgeir Þ. Arnason
Mjölnir.
Ingvar Asmundsson 1:0
Björgvin Viglundsson 1:0
ÓlafurMagnússon 1:0
Magnús Sólmundarson 0:1
Jónas Þorvaldsson 1:0
Bragi Halldórsson 1/2:1/2
Þórir Olafsson 1/2:1/2
Haraldur Haraldsson 1:0
6:2
Lokastaðan f keppninni varð þá
þessi:
T.R. stillti upp sterkara liði en
nokkru sinni fyrr, eins og best
sést á því, aö íslandsmeistarinn
tefldi á 5. boröi.
A 1. borði tapaði Ingvar
illilega gegn Guömundi, eftir aö
hafa teflt Alechines vörn á held-
ur hæpinn veg. Ingi R. var vel
með á nðtunum I slafneskri
vörn, vann strax peð í byrjun
sem hann nýtti til vinnings.
Skák þeirra Helga Ólafs var i
jafnvægi framan af, en I tíma-
hraki missti Ólafur tökin á stöð-
unni og tapaöi liði.
Þeir kollegar Bragi og Stefán
teflduskemmtilega skák eins og
sjá má.
Orlofshús V.R.
DVALARLEYFI
Frá og með 2. mainæstkomandiverðí.afgreidddvalarleyfi
i orlofshúsuin Verslunarmannafélags Reykjavikur að
Ölfusborgum i Hveragerði, Illugastöðum i
Fnjóskadal, Svignaskarði og Húsafelli i
Borgarfirði.
Þeir sem ekki hafa áður dvaliö I orlofshúsunum á timabil-
inu frá 2. mai til 15. sept., sitja fyrir dvalarleyfum til 9.
mai næstkomandi. Leiga verður kr. 9.000 á viku og greiðist
við úthlutun.
Dvalarleyfi verða afgreidd á skrifstofu V.R. að Hagamel
l'rá og með mánudeginum 2. maí næstkoniandi.
Úthlutað veröur eftir þeirri röö, sem umsóknir berast.
gegn framvisun félagssMrtcina. Ekki verður tekið á móti
umsóknum hréflega eða simleiðis.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
MJÖLNI
Hvítur:Bragi Halldórsson
Svartur: Stefán Briem Hollensk
vörn
1. d4 f5
2.g3 Rf6
3. Bg2 g6
4. h4 Bg7
5. Rh3 d6
6. d5 c6
7. c4 8. Rc3 e5
(Svartur fær gott tafl eftir 8. dxe6 Bxe6 9. Dc2 Ra6, og getur
siöar meir leikið d6-d5.) 8. 0-0
9. Dc2 De7
10. Bd2 e4
11.RÍ4 Rg4
(Hótar 12 e3)
12. Rdl Ra6
13. Re3 14. 0-0-0! Re5
(Leiðir til skarpra átaka og
undirstrikar meiningu 4. h4)
14. Bd7
15.h5 g5
16. h6 Bh8
17. Rh5 Ha-c8
18Kbl b5
(Ef 18.... f4 19. gxf4 fxg4 20. Hd-
gl fxe3 21. Bxe4-F Kf7 22. Bxe3
og hvitur hefur mjög hættuleg
færi fyrir manninn)
19. g4 Rxc4
(öllu hættulegra virðist 19... f4
20. Rf5 Bxf5 21. gxf5 cxd5).
20. gxf5 Rxe3
21'. Bxe3 cxd5
22. Dd2 Hxf5
(Einar leiðin til völdunar peðinu
á g5)
23. Bh3 Hc4
(Svartur fórnar skiptamun og
treystir á að Hb4 og sóknar-
þunginn niður á b2. vegi þar upp
á móti.)
24. Bxf5 Bxf5
25. Dxd5+ Be6
26. Dxd6 Kf7
27. Dxa6?
(Ilvitur er of bráður. Sjálfsagt
var 27. Dxe7+ Kxe7 28. Bxg5+
Kf7 29. Hcl Hb4 30. Rg7 og sókn
svarts fjarar út. Eftir hinn
gerða leik þvingar svartur fram
jafntefli.)
27. Ha4!
28. Dxb5
(Ekki 28 Dc6? Bxa2+ 29. Kal
Bd5+ eða 29 Kcl Hc4+ og
vinnur.)
28. Hb4
29Dc5 Hxb2 +
30. Kcl
JL
1 JL ± t
t
±
JL
t E t t a-
ABCDEFGH
f
Jóhann Örn
[son skýrir
Sigurjóns
30. Hbl+!
31. Kc2 \
(Ef 31. Kxbl Db7+ 32. Kc2 Db2
mát.)
31. Hb2+
32Kcl Hbl +
Jafntefli. i
Jóhann örn Sigurjónsson.
Landskeppni við
breta í telex-
skák í dag
Landskeppni Islendinga og
englendinga I telex-skák hefst
klukkan 13.30 I dag. tslenska
sveitin veröur I samkomusal
Ctvegsbankans og verða leikir
sendir á milli um telex. Báðar
Deildarkeppni Skáksambands tslands. 1976-’77 1. deild.
/4s ýn. 4. z 3. * é. 7. 2. toi.
/. Taii.fc1.a7 AedfciavíjruY* % 4 4 5 ? ?A % (!z 44 1
J—+7 -T.Skátféíaqií MiöLnir Z w 4 4 7/1 s 4 l Uo’/l Z.
J J Lf.TafLféLaj Kópai/oqs z Z m Hk hk Jk S& 7 31 3.
V. Ská.kféLaq /jkureqrav' 3 z 4 4 4 z? 4.
-TSkákfiLaj Hafnarijarijr 1 % 3’M 4 hk 4 23 S.
\ó- SkákíéLa<j K’efLaáhur 'U. '3 Z‘k Z 2 € (>ít m 4 /9 4.
7. SkábambaneJ S:iíu>La»is 0 z z% 4 \3k 5 l&h 7.
S. TafLféUj HríjfiLs I íi ~ o L 4 \k 4 3 !}% t
þjóöirnar mæta með sitt sterk-
asta liö, en hámarkstimi keppn-
innar er átta klukkustundir.
Fyrirliði islensku sveitarinn-
ar er Högni Torfason,,en i sveit-
inni eru Friðrik ólafsson, Guð-
mundur Sigurjónsson, Ingi R.
Jóhannsson, Jón L. Arnason,
Ingvar Asmundsson, Asgeir Þ.
Arnason, Guðlaug Þorsteins-
dóttir og Margeir Pétursson.
Breska sveitin er skipuö þeim
Miles, Keene, Hartston, Stean,
Nunn, Mestel, Sheila Jackson og
Goodman.
Fulltrúi breta hér veröur Ottó
Jónsson menntaskólakennari en
fulltrúi okkar I Englandi er
Baldvin Einarsson.
Sextán sólarferðir
í vinninga
Þessar dömur eru meðal þeirra,
sem ötullega hafa gengiö fram i
sölu happdrættismiöa fyrir Gigt-
arfélag islands undanfariö og nú
er salan komin á lokastig þar sem
dregið verður i dag.
Það eru hjúkrunarnemar sem
annast sölu miðanna en félagið
hyggst gefa Landspitalanum
rannsóknartæki á sviði gigtar-
sjúkdóma.
Salan hefur gengið vel, enda til
mikils að vinna þar sem hvorki
meira né minna en 16 sólarlanda-
ferðir eru meðal vinninga.
Týndi launum
systur sinnar
Litill drengur varð fyrir þvi ó-
happi um kl. eitt i gær að týna
launaumslagi systur sinnar. Hún
hafði sent hann eftir þvi inn að
Kirkjusandi. 1 umslaginu voru 23
þúsund krónur i peningum.
Umslagið er merkt Kirkjusandi
hf. og ef einhver hefur verið svo
heppinn að finna það, getur lög-
reglan gefið upplýsingar um
eigandann.
—SJ
Menntskœlingar fró Akureyri
gera víðreist með „Stríðið"
Þeir eru nú komnir
suður og sýna í
Félagsheimili
Kópavogs
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri er nú I heimsókn sunn-
anlands meö söngleikinn ó,
þetta er indælt strið. Verða tvær
sýningar á leiknum I Félags-
heimili Kópavogs á mánudagog
þriöjudag kl. 20:30.
Theater Workshop I Lundún-
um vann söngleikinn undir
stjórn Carles Chilton og Joan
Littlewood. Þýðingu gerði Indr-
iði G. Þorsteinsson fyrir Þjóð-
leikhúsiö, sem sýndi leikinn
1966.
Leikstjóri menntskælinga er
Þórhildur Þorleifsdóttir, bún-
inga gerði Messiana Tómas-
dóttir og tónlist annast Thomas
Jackman. ó, þetta er indælt
strið fjallar um styrjöldina
1914-1918. Ivafið er gamansemi
og háð, en uppistaöa leiksins er
þung alvara og ádeila á blekk-
ingu striðsins og tilgangsleysi
þess.
Leikurinn hefur verið sýndur
á Akureyri, Isafirði og Bolung-
arvik við mjög góða aðsókn og
ágætar undirtektir og hafa leik-
arar hlotið góða dóma i blöðum.
,,Ó, þú mátt ekki týnast...” Inga
Aradóttir og Friðrik Rafnsson i
„Striðinu”.