Vísir - 30.04.1977, Síða 13
Laugardagur 30. april 1977
17
Tvísýn keppni
í Butlernum hjá BR
A6 þremur lotum loknum i
Butlertvimenningskeppni
Bridgefélags Reykjavikur hafa
Daniel og Steinberg tekiö for-
ustuna.
Röö og stig efstu para er
þessi:
1. Daniel Gunnarsson —
Steinberg Ríkarösson 260
2. Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson 259
3. Asmundur Pálsson —
EinarÞorfinnsson 257
4. Alfreö G. Alfreösson —
Helgi Jóhannsson 252
5. Ólafur H. Ólafsson —
JónG.Jónsson 245
6. Magnús Aspelund —
Steingrimur Jónasson 241
7. Jakob Armannsson —
PállBergsson 230
8. Logi Þormóösson —
Þorgeir Eyjólfsson 226
Siöasta lotan veröur spiluö
fimmtudaginn 5. mai i Snorra-
bæ.
í ráöi er aö halda árshátiö fé-
lagsins og veröur hún i Snorra-
bælaugardaginn 14. mai. Nánar
veröur skýrt frá tilhögun henn-
ar siöar.
Gestur og Sigurjón
enn efstir hjá TBK
Ennþá halda Gestur og Sigur-
jón öruggri forustu I Barometer
keppniTafl- og bridgeklúbbsins.
Röð og stig efstu para er annars
þessi:
1. Sigurjón Tryggvason — Gest-
ur Jónsson 337
2. Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson 297
3. Kristján Kristjánsson —
Haukur Gunnarsson 297
4. Kristján Jónasson — Guðjón
Jóhannsson 209
5. Rafn Kristjánsson — Þor-
steinn Kristjánsson 191
6. Guömundur Benediktsson —
Bragi Björnsson 165
7. Kristin Þóröardóttir — Jón
Pálsson 148.
Spilað er á fimmtudögum i
Domus Medica.
Finnbogi vann
einmennings-
keppni Barð-
strendingafélagsins
Úrslit i þriöju og siöustu um-
ferö einmenningskeppni Barö-
strendingafélagsins i lteykja-
vík.
Staða efstu manna er þessi:
Stig:
1. Finnbogi Finnbogason 293
2. Hermann Ólafsson 293
3. Guðlaugur Brynjólfsson 289
4. Ragnar Þorsteinsson 289
5. Stefán Eyfjörð 288
6. Sigurbjörn Armannsson 285
7. Arnar Ingólfsson 284
Stefán Guðjohnsen ]
skrifar: J
V
Sveit Magnúsar
Oddssonar
sigraði hjá BDB
Fyrir stuttu lauk hraösveitar
keppni hjá Bridgedeild Breið-
firöinga og sigraði sveit ölagn-
úsar Oddssonar glæsilega.
Auk hans eru i sveitinni
Magnús Halldórsson. Guðjón
Kristjánsson og Þorvaldur
Matthiasson. Röð og stig efstu
sveitanna var þessi:
1. Sveit Magnúsar Oddss. 2285
2. Sveit Jóns Stefánss. 2183
3. Sveit Ólafs Gislas. 2166
4. Sveit Elisar Helgas. 2120
5. Sveit Óskars Þráinss. 2109
6. Sveit Hans Nielsen 2106
S.i. fimmtudagskvöld hófst
einmenningskeppni hjá deild-
inni og er staöan þessi eftir
fyrstu umferð:
1. Jón Þorleifsson 120
2. Magnús Halldórsson 115
3. Ólafur Guttormsson 110
4. JónMagnússon 106
5. Bergsteinn Breiðfjörö 105
6. Guðrún Bergsdóttir 104
Olafur Lárusson
enn efstur
í keppni um
íslandsmeistaratitil
í einmenningskeppni
Tvcimur umferöum cr nú
lokiö i kcppni um íslandsmcist-
uratitilinn i eininenning og
vcröur úrslitaumferöin spiluö
n.k. miövikudagskvöld.
Tveir efstu riðlarnir spila um
gullstig en 16 efstu eru þessir:
1. Ólafur Lárusson 242
2. Jóhann Jónsson 238
3. Sævar Þorbjörnsson 221
4. Hilmar ólafsson 219
5. HörðurSævaldsson 218
6. Jón Asbjörnsson 213
7. Jóhanna Isebarn 212
8. Garðar Þórðarson 211
9. örn Guðmundsson 210
10. Magnús Oddsson 210
11. Zophonias Benedikts. 209
12. Magnús Halldórsson 208
13. Jón Hermannsson 207
14. Gestur Jónsson 206
15. Stefán Guðjohnsen 203
16. örn Arnþórsson 203
Firmakeppni
Bridgefélags
Kópavogs
hefst í dag
i dag (laugardaginn 30. april)
h e f s t cinmenningskeppni
Bridgcfélags Kópavogs og
veröur spilaö tvo laugardaga 1
röö.
Þessi keppni verður jaln-
iramt firmakeppni félagsins og
eru menn hvattir iii þéSS :'ð
mæta, þótt þeir geti ekki spilað
bæöi skiptin.
llæsta skor i bæði skiptin mun
gilda i firmakeppninni og
samanlagður árangur tveggja
skipta ræöur úrslitum i ein-
menningskeppninni.
Keppnin hefst kl 13.30 og
verður spilað i Félagsheimili
Kópavogs (efri sal) i þetta
skipti.
Batnandi nagur
Alþýðubankans
- Innlón jukust á síðari hluta
órs í fyrra
Aðalfundur Alþýðubankans
h4f. var haldinn að Hótel Sögu i
Reykjavik 23. april.
A fundinum flutti formaður
bankaráðsins Benedikt Daviös-
son skýrslu þess og bankastjór-
inn Stefán M. Gunnarsson las
upp reikninga bankans og út-
skýrði þá.
Helstuatriðisem fram komu i
skýrslu stjórnar bankans voru.
ínnlán minnkuðu verulega
fyrstu sex mánuði ársins eða
um 12,9% 1 júli snérist sú þróun
við og varð aukning innlána
milli áranna 1975 og 1976 2,9%
og heildar innlán i árslok 1976
voru 1.141 millj. kr. Útlán bank-
ans námu 1.044 millj. kr. i árslok
1976 og jukust um 21,3% á árinu.
Lausafjárstaða bankans var
erfiö gagnvart Seölabanka Is-
lands á árinu og nam skuld Al-
þýðubankans við Seðlabankann
224 millj. kr. 31. des. 1976. Bund-
in innistæöa Alþýðubankans hjá
Seðlabankanum var 232,8 millj.
kr. á sama tima.
Rekstrarafgangur bankans
fyrir afskriftir var 5.1 millj. kr.
Á árinu var afskrifuð 0,7 millj.
kr. af vélum og húsbúnaði.
Rekstrarkostnaður bankans
varð 78,4 millj. og hafði aukist
um 26,8% frá fyrra ári.
Rekstrarafgangi var ráðstafað i
varasjóð bankans.
Eigið fé bankans þ.e.a.s. eign-
ir bankans umfram skuldir
námu 112 millj. kr. i árslok 1976.
Hlutafé bankans var 67,1 millj.
kr. i árslok og hafði aukist um
11,5 millj. kr. á árinu. Þann 15.
april 1977 rann út frestur sá,
sem hluthafar höfðu til að neyta
forkaupsréttar sins að hluta-
fjárauka, sem boðinn var út
1975. Bankaráðið hefur nú
ákveðið að bjóða það sem eftir
er af hlutafjárútboöinu kr. 23.
millj. hluthöfum án tillits til
hlutafjáreignar þeirra, og skulu
hluthafar hafa tilkynnt óskir
sinar i þessum efnum til banka-
ráðsins eigi siðar en 1. október
1977. Verði eitthvað óselt af
hlutabréfum þá verða þau boðin
þeim sem ekki eru hluthafar en
geta orðið það samkvæmt sam-
þykktum bankans.
Bankaráð bankans var ein-
róma endurkosiðá fundinum og
skipa það þau Benedikt Daviðs-
son, Ragnar Guðmundsson,
Þórunn Valdimarsdóttir, Hall-
dór Björnsson og Bjarni
Jakobsson. Einnig voru Magnús
Geirsson og Böðvar Pétursson
endurkosnir sem endurskoð-
endur bankans.
A fundinum, sem var fjölsótt-
ur, fóru fram umræöur um hlut-
verk og framtiöarhorfur bank-
ans. Kom fram sú skoðun hjá
fundarmönnum að bankinn
hefði nú komist yfir mestu erfið-
leikana vegna þeirrar lægöar,
sem var i starfsemi hans i lok
ársins 1975 og upphafi ársins
1976 og verkalýöshreyfingunni
bæri að vera einhuga i aö efla
hann.
Handhafar Silfurbilsins frá upphafi, talið frá vinstri: Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri,
Sigurjón Sigurösson lögreglustjóri, Óskar Ólason yfirlögregluþjónn, Helgi llannesson formaður
BFÖ, Lýður Jónsson fyrrverandi yfirvegaverkstjóri og Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi.
Óskar Ólason hlaut
silfurbílinn 1977
Silfurbil Samvinnutrygginga i
ár hlaut Óskar Ólason yfirlög-
regluþjónn fyrir framlag til
aukins umferöaröryggis. Er
þetta i sjötta skipti sem þessari
viðurkenningu er úthlutaö.
Landssamtök klúbbanna
öruggur akstur hafa þingað i
Reykjavik siðustu tvo dagana
og við Iok fundar i gær fór verð-
launaafhendingin fram.
Valur Fannar gullsmiður
hefur smiðað silfurbilinn nú eins
og áður, en eins og með aðra
bila þá eru gerðar breytingar á
honum milli ára.
Nánar verður skýrt frá fundi
Landssamtakanna eftir helgi.
Nýskipaöur sendiherra Sviss hr. Hans-Conrad Cramer afhenti fyrir helgina forseta Islands trún-
aðarbréf sitt aö viðstöddum Einari Agústssyni utanrfkisráðherra. Siödegis þáöi sendiherrann boö
forsetahjónanna i Ráöherrabústaönum ásamt nokkrum fleiri gestum.