Tíminn - 07.08.1968, Page 1
Gerizt áskrifendur að
Túnanum.
Hringið í síma 12323
Auglýsing í Hmanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
163. tbl. — Miðvikudagur 7. ágúst 1968. — 52. árg.
Jafnve! á hæstu hnjúka
fU!
. . ■ ;■:. ..
FjórSungur íslendinga fór í útilegu um helgina, og má segja að fólk hafi farið um land allt og jafnvel upp
á hæstu hnjúka, eins og myndin sýnir, en hún var tekin er fólk í Skíðaskólanum í Kerlingarfjöllum kleif
Snækoll (um 1500 m.) á mánudaginn. Veður var þá hið fegursta þar, og víðsýnt mjög ofan af Snækolli, Nán
ari frétt er um ferðalög á baksíðu. (Tímamynd: Kári)
205 ÞÚSUND KRONUR
IVERDLAUN FYRIR
ÆSKULÝÐSHEIMILI
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Borgarstjórn Reykjavíkur
hefur ákveðið að efna til sam
keppni um Æskulýðsheimili
á lóðinni Tjarnargötu 12, þar
sem gamla slökkvistöðin var.
Er heitið alls 205 þúsund kr.
í verðlaun, og þar af eru
fyrstu verðlaun 105 þús. kr.
Æskulýðsheimilið á að verða
miðstöð æskulýðsstarfseminn
ar í borginni og á þar m.a. að
vera samkomusalur, tóm-
stundaherbergi og önnur að-
staða fyrir Æskulýðsráð
Reykjavíkur. Ákveðið hefur
verið að nýbyggingin sem
þarna á að rísa verði 3000
rúmmetrar, og þar af verði
samkomusalurinn 280 fer-
metrar.
f verkefnislýsingunni eru á-
kvæði um ýmsa hluta þessa heim
ilis, auk salarins. Þar er gert ráð
fyrir eldihúsi og mjólkurbar, leik
sviði í sal, tómstundaherbergjum
og fleiru.
Rétt til þátttöku í þessari sam-
keppni hafa allir félagar í Arki-
tektafélagi fslands og íslenzkir
námsmenn í byggingalist, sem lok
ið hafa fyrrihlutaprófi við viður-
kennda háskóla í þeirri grein.
Skilafrestur er til 4. nóv., en
trúnaðarmaður dómnefndar er
Ólafur Jensson hjá Byggingaþjón
ustu Arkitektafélagsins. Dóm-
nefnd skipa þessir menn: Þór
Sandholt, arkitekt, formaður; —
Reynir G. Karlsson, framkvæmda-
stjóri Æskulýðsráðs, Styrmir
Gunnarsson, lögfr., Jóhann Eyfells
arkitekt, Helgi Hjálmarsson,
arkitekt.
HÆTTIR ÖLL FISK-
VINNSLA I ÁGUST?
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
★★★ Hér á eftir fara tvær
fréttatilkynningar, sem Tímanum
hafa borizt. Er önnur frá Sam-
bandsfiskframleiðendum, en hin
frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
f báðum þessum fréttatilkynning-
um er tekið fram að síðustu mán-
aðamót, júlí—ágúst, hafi verið úr-
slitatími í fiskvinnslunni.
irirk f tilkynningu Sambands-
fiskframlciðenda segir, að sölusam
tökin treysti sér ekki til að standa
við núverandi uppígreiðsluverð
frá og með 1. ágúst 1968, og því
blasi við alger stöðvuu fiskvinnslu
fyrirtækja eftir þann tíma.
icirk í tilkynningu SH, þar sem
skýrt er frá viðræðum við ríkis-
stjórnina, segir, að óskað hafi ver-
ið eftir því að veitt yrði verð- og
sölutrygging á öllum frystum bol-
fiskafurðum eftir 31. júlí 1968, og
öðrum i áðstöfunum, er tryggðu
stöðu hraðfrystihúsanna.
★★★ Ekkert hefur heyrzt um,
að vandi fiskvinnslustöðva og hrað-
frystihúsa hafi verið leystur á
þeim tíma, sem liðinn er frá mán-
aðamótum.
Það er því auðséð að fisk-
vinnslufyrirtækin eru komin í
greiðsluþrot. Sambandsfiskfram-
leiðendur og Sölumiðstöðin hafa
tilkynnt með ákveðnum dagsetn-
ingum, svo aðeins munar degi,
að þau geti ekki meira og við
það situr.
Fundur Sambandsfiskfram-
leiðenda haldinn á Hótel Sögu,
mánudaginn 29. júlí, 1968, vill
benda á eftirfarandi:
1. Þrátt fyrir óvenjulega hag-
stæða þróun markaðsverða erlend
is á árunum 1962—66, reyndist
Framhalri á bls 15
SLYSIN
VIÐAÐ
MÆTAST
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Alls hlutu fimm manns
meiðsli í umferðarslysum
núna um verzlunarmanna-
helgina, f jórar konur og einn
karlmaður. í öll skiptin urðu
umferðarslysin með þeim
hætti, að bílar voru að mæt-
ast.
Á sunnudaginn varð harð-
ur árekstur við Þverá í Staf-
holtstungum, við það að bif-
reiðarstjóri vék til vinstri í
stað hægri. Þrjár konur
slösuðust við áreksturinn.
Mun ein hafa handleggs-
brotnað, önnur skarst í and-
liti og tennur brotnuðu í
þeirri þriðju.
Um kvöldmatarleytið á
sunnudag varð svo harður
árekstur á Mývatnsöræfum,
á Hámóum svokölluðum, um
það bil miðja vegu milli
Reykjahlíðar og Grímsstaða
á Fjöllum. Þarna rákust sam
Framhald a bls. 15
Sambandsfisktramleiðendur á fundi sinum.
(Tímamynd: GEb