Tíminn - 07.08.1968, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.08.1968, Blaðsíða 8
8 TIMINN MIÐVIKUDAGUR 7. ágúst 1968. „Hvar, sem þar var bezt að mest var þörf vera“ á þér Þessi vísuorð Stephans G. Stepfa anssonar komu í huga minn dag- stundina sem ég spijallaði við hjón- in Hólmfríði og Hjiálm Daniels- son frá Winnipeg. Önn þeirra hefur verið mikil, þörfin kallað hart að, verkefnið fyrst og frémst kynning og efling íslenzka menningararfsins, sem landnemarnir í Vesturheimi elsk uðu og virtu. Hjálmur var að vísu kominn í þá trúnaðarstöðu að vera smali vestur á Snæfellsnesi áður en hann flutti af landinu, ellefu ára gamall. Hólmfríður var aðeins á öðru ári þegar foreldrar henn'ar fluttu vestur og var bam að aldri þegar faðir hennar andaðist. Hjálmur ólst upp í Grunnavatns- byggð í Manitoba, en eftir að hann lauk háskólaprófi í búfræði, flutt ist hann til Árborg og starfaði sem landlbúnaðarráðunautur á veg um Manitobastjórnar. í fyrri heimsstyrjöldinini var hann sjálf boðaliði I sjúkradeitd Kanadahers, en flutti aftur til Árborg. Þar ólst Hólmfríður upp og þar áttu þau heimili sitt þangað til þau fluttu til Winnipeg árið 1939. Þau eiga einn son, sem var forstjóri hjá Hudson Bay Mining & Smelt ing Company, en er nú mennta- skólakennari í Winnipeg. — Leiklistin hefur verið mitt kærasta viðfangsefni alla tíð, seg ir frú Hólmfríður. Hefur hún komið víða við á þeim vettvangi, allt frá unglingsárum. í Árborg voru venjulega flutt tvö leikrit á hverjum vetri af álhugamannahóp- um á vegum safnaðarkvenfélag- anna. Félag yngri kvennanna sýnd ensk leikrit, en félag eldri kvennanna sýndi alltaf íslenzkt leikrit. Hólmfríður tók ekki ein- asta þátt í leiksýningunum, heldur h-efur hún skrifað leikrit og stiórnað leiksýningum og hátíða- s/ningum við ýmis tilefni. — Ég fór snemma að afla mér tilsagnar í leiktækni og raddþjálf un segir frú Hólmfríður, — og eft ir að við fluttumst til Winnipeg veitti samband leikfélaga í Mani toba mér styrk til leiklistarnáms við listaháskólann í Banff. Að vlsu var ég búin að læra það mikið, bæði af sjálfri mér og öðrum, að í mörgum greinum vissi ég eins mikið og kennararnir. — Þú hefur verið forseti leik TROLOFUNARHRINGAR — afgreiddir samdægurs. Sendum um allt land. H A L L D Ö R Skólavörðustig 2 URA- OG SKARTGRIPAVERZL KORNELÍUS JÓNSSON SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 - SÍMI: 18588 félagasambands Manitoba. Er þáð víðtækt samiband? — Jlá, í því eru 23 héraðsdeildir. Allt eru það auðvitað áhugaleikar ar. Við efnum til samkeppni milli deilda og meðan ég var í Árborg, þá unnum við slíka keppni og var boðið til Ottawa til að taka þátt i ríkissamkeppni. Þvi miður gátu ékki allir farið, svo ekki varð af þótttöku, en við ferð uðumst til nœstu borga og höfð um mikla ánægju af þessu starfi. Ég hef víða kennt fram.sögn og leiklist í Manitoiba. Sem dœmi um hvað við lögðum á okkur skal ég segja þér, að þegar Jóns Sigurðs sonar Chapter, sem er íslandsd-eild in í samtökuMum Imperial Order Daughters of the Empire, ákvað að efna til leikritasamkeppni í tilefni af krýningu Elísabetar þá skrifaði íslenzk kona í Edin- ararnir höfðu aldrei leikið áður, en ég var vön þvi, ef um nýliða var að ræða, að taka þá heim til mín og æfa þá sérstaklega. Ekki nóg með það, Hjálmur fór með leiktjöldin á vöruíbíl á undan okk ur og setti þau upp fyrir hverja sýningu. — Skrifaðir þú ekki textann fyr ir sögulegu sýninguna, sem Jóns Sigurðssonar félagið efndi til, þeg ar verið var að safna fé til að stofna kennarastól í íslenzkum fraeðum við Manitohaháskóla? — Jú, það gerði ég, sýningin þótti takast vel og urðu af henni ágætar tekjur. Cþmur sýning, sem ég útbijó og vakti mikla athygli var liður í þriggja daga hátiða höldum í Spanish Fork í Utah 1955, þegar íslendingar þar minnt ust þess, að hundrað ár voru lið in frá hinu fyrsta landnómi ís- þátt — og ég held að Hjálmur ætti nú áð tala fyrir sig — þá vil ég fyrst taka fram, að Þjóð- ernisfélagið hefur unnið mikið og gott starf. Af þeim störfum, sem mér eru minnisstœðust er kvöldskólinn, sem Þjóðræknisfé- lagið og The Icelandic Canadian Cluib, stofnuðu saman, en þá var ég forseti Icel. Can. Club. Sá skóli starfáði í 4 ár. Ýmsir ágætir menn fluttu fyrirlestra og svo var kennd íslenzka. Um 70 manns sóttu íslenzkukennsluna, en miklu fleiri komu til þess að hlusta á fyrirlestrana. Margir höfðu spurn ir af þessum fyrirlestrum og sendú mér tilmæli um áð láta prenta þá. Við Skúli Johnson pró- fessor unnum saman að útgáfu þeirra sem fjölluðu um sögu og bókm-enntir íslendinga. Er bókin löngu uppseld og sendi- Hólmfríður og Hjálmur Danielsson. burg í Norður-Dakota 1-eikrit, sem lýsti lífi íslenzku frumbýlinganna í Vesturheimi, og vann það sigur í samkeppninni. Þetta var gott leikrit og við sýndum það sjö sinnum. Lék ég aðalhlutverkið og stjórnáði sýningunni. Fjórir leik Skúlavörðnstig 3 A DL hæð Söluslmi 22911 SELJENDUR Látið okkur annast sölu ð tast- eignum yðar Áherzla lögð ð góða fyrirgreiðslu Vinsamlep ast hafið samband við sterif. stofu vora er bét ætlið að selja eða teaupa fasteigntr sem ávallt eru fyrir hendi t miklu úrvali hlá okteur JÓN ARASON. HDL Sölumaður fasteigna Torfi Asgeirsson. lenzku Morimónanna. Sú sýning kostaði mikla vinnu og ég varð að rannsaka margt áður en ég taldi mér fært að semja texta og velja Ijóð og tónlist. Um hundrað manns tóku þátt í sýningunni og áhorfendur voru um tvö þúsund. Sjónvarp, útvarp og blöð gerðu sér ákafl-ega títt um mig í því sambandi og þótti einkennilegt að sótt skyldi vera kona til Kanada til að sjá um þetta. Auðvitað vann ég þetta, eins og önnur slörf mín við leiklistina, án þess að taka gjald fyrir, en ég fékk ákaflega fallega gjöf frá þeim, sem um hátíðina sáu. — Hefur þú ekki líka lagt stund á söng? — Jú ég hef bæði sungið og stjórnað söng og oft hefur verið yndislega gaman að starfa með skólabörnum og öðrum, sem sung- ið hafa íslenzka söngva við ýmis tækifæri. — Ég veit, að okkur endist ekki tími til þess að nefna helminginn af þeim málefnum, sem þið hjón in hafið starfa'ð að í Þjóðernisfé iaginu og fleiri samtökum ís- lendinga Viltu ekki segja mér það, sern þér er minnisstæðast og kærast frá þeim störfum? •— Ef ég á að tala um minn ráð íslands í Washington keypti 400 eintök til þess að senda út um heiminn. Engin kennslubók í ís- lenzku var fyrir hendi, svo ég samdi og fjölritaði verkefnin í ísl-enzku: Einnig þau fóru víða, því margir báðu um þau, sumir vest- an af Kyrrahafsströnd. Ég fékk mörg bréf útaf bókinni og einna vænst þykir mér um bréf frá Columibia í Suður-Ameríku, og fylgdi því ritdómur um bókina á spænsku. Ég var ritstjóri The Icelandic Canadian tímaritsins í sjö ár og þá vann ég mikið að því að rannsaka og koma á fram- færi heimildum um íslenzku frum byggjanna í Kanada. Það starf var mér ákaflega hjartfólgið. Já, ég hef oft talað um íslenzk mál- efni í útvarp og flutt erindi á ótal stöðum, auk þess, sem ég hef skrifað. Ég hef alltaf viljað vinna í þeim anda, að nauðsynlegt væri fyrir okkur að kynnast upp runa okkar til þess a'ð þekkja sjólf okkur. Við verðum að þekkja fortíðina til þess að skilja hvað í okkur sjálfum býr. Ég hef stundum sagt við ungt fólk. sem ég hef rætt við um íslenzka menn ingu: Þið gerið það ekki fyrir ís- íendinga. heldur fyrir ykkur sjálf að kynnast sögunni og bókmennt unum. Það víkkar sjóndeildar- hringinn og gerir líf ykkar sjálfra fj'ölhreyttara. — Þú munt hafa gert annað og meira til þess að kynna íslenzk málefni en að aka leiktjöldum fyr ir leikflokka konu þinna, Hjálmur. Hvað er þér hugleiknast af því, sem þú hefur fengizt við á þeim vettvangi? — Það er stofnun og útgáfa tímaritsins The Icelandic Canadi an, segir Hjálmur. Þegar Icel. Can. Cluh var stofnaður 1938, þá var það gert til þess að efla samband ið við þá, sem ekki gátu lesi'ð og talað íslenzku, en vildu þó við halda menningartengslunum. Menn fundu fljótlega, að æskilegt var að hafa málgagn og þegar ég kom í stjórn klúibbsins 1941, iagði ég til að fenginn væri dálkur í íslenzku dagblöðunum, Lögbergi og Heimskringlu, til a'ð flytja efni á ensku. Það reyndist ófullnægj andi, svo rá'ðist var í útgáfu tíma ritsins 1942. Ekki var fjárhagur inn beisinn, enda ekki verið að hugsa um laun fyrir starfið. En ég var að heiman aila virka daga vegna atvinnu minnar, svo ég vann allar helgar við tímaritið og í 26 ár hefur öll afgreiðsla þess farið fram á heimili okkar. Þegar ég komst á eftirlaun varð hæg- ara um vi'k fyrir mig að snúast í þessu. Nú er ég nýbúinn að segja þessu star.fi af mér. Mig langar til þess a'ð segja þér eina sögu í samibandi við ritið. Milljónamœr ingur af þýzkum ættum kom einu sinni til fslands og varð hrifinn af landi og þjóð. Stúlka, sem hann var ástfanginn af, neitaði að gift ast honum fyrr en 'hann hafði lofað að verja auðæfum sínum til mienningar- og mannúðarstarfa. Þau hjónin hittu á ferðalagi ís- lenzkættaða Bandaríkjastúlku og h-ún sendi honum árs áskrift að The Icelandic Canadia-n. Hann gerði sér lítið fyrir og keypti rit- ið handa fimm kanadískum og fimm bandarískum háskólum. Þetta gerðist fyrir f.jórtán árum, en fyrir fimm árum bætti hann við niu háskólum í Vestur-Evr- ópu. Áður en hann andaðist 1966, greiddi hann ritið fyrirfram handa þessum nítján háskólum í allmörg ár. Háskólinn í Kiel hefur alltaf keypt ritið og pólskur háskóli fær það í skiptum fyrir annað rit. Ellefu aðrir háskólar eru kaup endur ritsins og mörg 'bókasöfn, svo að þarna er vettvangur til þess að kynna íslenzka m-enningu og bókmenntir á stöðum, sem gagn er að fyrir þjóðina og þetta lang ar mig til þess að þeir viti, sem vilja koma á framfæri fræðsiu um það, sem íslenzkt er. Okkur larigar bœði til þess að biðja Tímann að skila kæru þakk læti okkar til Þjóðræknisfélagsins, Húnvetninga- og Snæfellingafélags ins, sem hafa sýnt okkur þann óver'ðskuldaða heiður og ástúð, að bjóða okkur að koma heim. Þá fáum við ekki fullþakka'ð gest- risni þeirra hjónanna Kristínar Sölvadóttur og Garðars Þórhalls- sonar, sem við höfum búið hja í heilan mánuð. Og öllum íslend ingum viljum við þakka fyrir elsku legar viðtökur, sem við eigum eng in orð yfir. Ég segi þetta ekki af því, að allir segja það, — bætir frú Hólm fríður við. — Þetta er bara satt. — Ég þakka hjónunum ánœgju- lega samverustund og óska þeim góðrar ferðaí, er þau hverfa aftur til anna sinna í þá-gu íslenzkrar arfleiðar í Vesturheimi. Sigríður Thorlacius.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.