Tíminn - 22.08.1968, Qupperneq 12
12
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 22. ágúst 1968.
m m
INNRASINITEKKOSLOVAKIU
Formenn stjórnmálaflokkanna
fordæma árásina á Tékka
Formenn stjórnmálaflokk-
anna hafa komið fram í dag,
Ólafur Jóhannesson
og tjáð sig um innrásina í
Tékkóslóvakíu. Hér á eftir
fara ummæli þeirra.
Hlýtur að vekja viðbjóð
lýðræðissinnaðra manna
Ólafur Jóhannesson formaður
Framsóknarflokksins sagði:
„Þessi óvæntu tíðindi vekja
ógn og skelfingu Menn höfðu
vænzt þess að mesta hættan væri
liðin hjá. Árás á þessa friðsömu
þjóð, sem var að breyta stjórnar-
háttum sínum i lýðræðisátt og
vildi skipa málum sínum á þann
hátt sem hún ta'di sér henta, hlýt
ur að vekja viðbjóð allra lýðræðis
sinnaðra manna og þeir hljóta að
fordæma hana. Hún er eins og
hnefahögg í andlit þeirra manna,
sem trúðu því. að farið væri að
birta til og smám saman myndi
takast að draga úr spennunni milli
austurs og vesturs. Það er ómögu
legt að segja, hvern dilk þessir við
burðir munu dr?ga á eftir sér, en
augljóst er, að rfleiðingarnar geta
orðið mjög alrarlegar og víðtæk
ar. Um það verður ekki sagit á
þessu stigi hvcr þróunin verður.
Hér hefur einræðisríki lyft grím
unni og sýnt sitt rétta andlit. Það
ætti að vera ýmsum lærdómsríkt.
AUir góðgjarnir menn hljóta að
votta tékknesku þjóðinni samúð.
Það sem mest ríður nú á er, að
skapa svo sterkt almenningsálit í
heiminum gegn þessu atferli, að
innrá»arríkið verði nauðbeygt að
slaka til.
Bjarni Benediktsson forsætisráð
herra sagði m. a.:
Ástæðulaust er að tjölyrða um
hversu þessir atburðir eru ömur
legir. Fyrst og xremst bitna þeir
auðvitað á hinni tékknesku þjóð,
og allir góðir menn hvar sem
er í heiminum hafa hina dýpstu
samúð með öriógum hennar. Sum
ir leggja áherziu á að þarna sé
verið að hindru framkvæmd sósí
alismans og allir eigi að hafa rétt
til að framkvæma sósíalisma á
þann hátt sem hverjum og einum
þykir bezt við e:ga.
í dag sýnast menn aftur vera
staddir á sama ttað eins og þegar
Tékkóslóvakía var svipt frelsi
1948, eða þegar innrásin var gerð
í Ungverjaland 1956. Við skulum
vona að afleiðirgarnar fyrir sam-
komulag í heimirum í heild verði
ekki jafn ömurlegar, en svona
horfir málið við í dag, að það
‘er stígið stórt skref, eða réttara
sagt mörg skref aftur á bak,
margra ára vinr.a að því að eyða
tortryggni og natri sýnist nú hafa
verið unnin fyrir gýg.
Lúðvík Jósefsson sagði:
Ég undrast stórlega þessar frétt
ir og lýsi bæði andúð minni og
andstyggð á því sem þama hefur
gerzt, það er hertöku Tékkóslóv-
akíu af herliði Varsjárbandalags-
ins. Mín skoðun er sú, að ljóslega
hafi komið fram í fréttum að
undanförnu, að tékkneska þjóðin
standi heilshugar að baki forystu
manna sinna í ríkisstjórn og komm
únistaflokki landsins. Ég tel
að ekkert ríki háfi leyfi til að
blanda sér í næanríkismál þessa
lands, né annarra sjálfstæðra landa
og að forystumenn í Tékkóslóvak-
íu hafi ótvíræðan rétt til að vinna
að framkvæmd sósíalisma í land
inu á þann hátt sem þeir telja
réttastan og mest í samræmi við
þarfir og óskir þjóðarinnar.
Emil Jónssoo kvaðst vera bæði
undrandi og hr>'ggur yfir því sem
gerzt hefði í Tékkóslóvakíu.
/
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
★ Frjálsir menn um allan lieim
hafa í dag fordæmt hina svívirði-
legu innrás sovéthersins í Tékkó-
slóvakíu, og frekleg afskipti all-
flestra Varsjárbandalagsríkjanna
af innanrikismálum Tékka og
frelsissviptingu þjóðarinnar. Blöð
og útvarpsstöðvar hafa flutt frétt-
. ir af atburðunum og fólk er bæði
undrandi og óttaslegið vegna þess
nakta ofbeldis sem mesta herveldi
heims sýnir vinveittri smáþjóð,
sem ekki megnar að verja hend-
ur sínar, og óskar þess eins að
sjálfsákvörðunarréttur um innan-
ríkismál sín séu virt.
★ En ofstæki og þrællyndi eiga
sér engin landamæri. Jafnvel á
jíslandi eigi kúgarar og þjóðar-
morðingjar sína formælendur og
má ekki hlandkollan hallast svo
Tekur þátt í
jarðfræðiþingi
í Tékkóslóvakíu
O-Reykjavík, miðvikudag.
Alþjóðaþing 'arðfræðinga stóð
yfir í Tékkóslóvakíu þegar landið
var hernumið. Hófst þingið fyrir
nokkrum dögum og er haldið i
borgunum Prag og Bratislava.
Sóttu það milli j500 og 2000 jarð
fræðingar frá flestum löndum
heims. Frá íslandi sótti einn jarð
fræðingur, Jens Tómasson, þingið,
en hann er enn í Tékkóslóvakíu
eftir því sem bezt er vitað, enda
var þingstörfum ekki lokið þegar
innrásin var gerð
A þingi þessu munu rússneskir
og bandarískir jarðfræðingar vera
fjölmennastir, eða nukkur hundr
uð frá hvoru iandi. en alþjóða
þing jarðfræðinga eru haldin
fjórða hvert ár Jens Tómasson,
jarðfræðingur, er starfsmaður
Orkustofnunarinnar.
að út úr fljóti, og að þessi ömur-
lega manngerð fari á stúfana til
að verja ofbeldið og mótmæla
að frá því sé sagt, enda er sann-
leiksást þessa fólks í réttu hlut-
falli^ við þrællyndi þess.
í dag og kvöld hefur varla
linnt símahringingum í frétta-
stofu og dagskrárdeild útvarpsins
vegna frásagna af athurðunum í
Tékkóslóvakíu í nótt og í dag.
Telja þeir sem hringja að hlut-
leysis útvarpsins sé ekki gætt sem
skyldi og að ekki séu notuð viður
kvæmileg lýsingarorð um tiltæki
hinna dýrðlegu Sovétríkja sem
fórna hluta af herafla sínum til
að frelsa Tékka undan oki lög-
lega kjörinna leiðtoga sinna. Eft-
ir fréttaflutning í hádegisútvarpi
og á eftir sjö-fréttunum flutti Har-
aldur Ólafsson, dagskrárstjóri,
fréttaskýringar og ræddi um á-
standið í Tékkóslóvaldu. Þykja
slíkar fréttaskýringar sjálfsagðar
og nauðsynlegar í útvarpsstöðvum
um allan heim. Þessar fréttaskýr-
ingar útvarpsins virðast aðallega
hafa snert viðkvæma strengi í
brjóstum aðdáenda ofbeldisins.
Strax eftir fréttirnar í hádegis-
útvarpinu byrjuðu símahringing-
arnar og reiðir menn og konur
helltu úr skálutn reiði sinnar
vegna „hIutleysisbrots“ útvarpsins
og kröfðust afsökunarbeiðni fyrir
hönd Sovétmanna og leppa þeirra.
Þegar á daginn leið linnti látun-
um nokkuð, en eftir fréttaskýring
ar, sem fluttar voru á eftir sjö-
fréttunum, hófst djöfulgangurinn
í símum stofnunarinnar aftur og
enn var mótmælt þeim gróflegu
móðgunum, sem fréttaskýrandinn
átti að hafa sýnt innrásarherjum
Sovétríkjanna og leiðtogum
kommúnistaflokka þeirra landa
sem að innrásinni standa.
★ Fæst af því fólki sem þóttist
eiga erindi við fréttaskýrandann
og starfsmenn fréttastofunnar við
hafði þá sjálfsögðu kurteisi að
segja til nafns, heldur belgdi sig
út af vandlætingu og reiði.
■k Ekki er ótítt að fólk kvarti
yfir „hlutleysisbrotum“ útvarpsins
og sýnist þá sitt hverjum, og
þykja þessi brot sjaldnast alvar-
leg, nema sneitt sé að skoðunum
þeirra sem helzt kvarta yfir þess
um vanköntum stofnunarinnar í
flutningi frétta og frásagna. Má
nefna að fyrrgreindur fréttaskýr-
andi sá eitt sinn um vikulegan
þátt í útvarpinu, sem nefndist Víð
sjá, ásamt Jóni heitnum Magnús-
syni, fréttastjóra. í þeim þætt!
var oft vikið að alþjóðamálum
á einarðan og skorinorðan hátt
og var ekki ósjaldan rætt um
Vietnamstríðið og fóru þeir sem
um þáttinn sáu ekki í neinar graf
götur um skoðanir sínar á því
máli, og létu útvarpshlustendur
, Framhald á bls. 14
Karel Jordan og Cyrll Kaspar í tékkneska sendiráðinu I gær.
(Ttmamynd Gunnar)
Rætt við tvo meðlimi Kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu:
Hug fólksins verður ekki
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Við erum þrumulostnir yfir
þeim atburðum sem eru að
gerast í heimalandi okkar,
undrandi en umfram allt hármi
slegnir. Leiðtogar Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna hafa
gengið á bak orða sinna og
svikið nýgerða samninga við
löglega stjórn lands okkar og
níðst á tékknesku þjóðinni, sem
sténdur einhuga með leiðtog
um sinum og þráir ekkert heit
ara en frelsi og lýðræði og
góða sambúð við nágrannaþjóð
ir sínar eins og reyndar allar
þjóðir heims. — Þetta sögðu
þeir Karel Jórdan og Cyril
Kaspar, sem eru verzlunarfull
trúar í sendinefnd Tékkóslóvak
íska sósíalska lýðveldisins í
Reykjavík, er fréttamaður Tím
ans hafði tal af þeim um kl.
15 i dag.
Ambassador Tékka á fs-
landi hefur aðsetur í Osló, en
sendifulltrúinn, Jaroslav Pis-
arik, dvelur i Prag um þessar
mundir. Verzlunarfulltrúarnir
tóku mjög vinsamlega á móti
blaðamanni Tímans, er hann
kvaddi dyra í sendiráðinu, og
kváðust fúsir að svara spurn
ingum um viðhorf sitt til inn-
rásar herja Varsjárbandalags-
ríkjanna í Tékkóslóvakíu í
breytt
nótt. Hins vegar tóku þeir
fram að þeir séu ekki dipló-
matar í stjórnmálalegum skiln
^ ingi og störf þeirra i sendiráð
inu væru eingöngu verzlunar-
legs eðlis og að það sem þeir
létu sér um munn fara væri
eingöngu þeirra persónulega
álit og bæri efeki að túlka skoð
anir þeirra á aninan veg.
Verzlunarfulltrúarnir eru
Framhald á bls. 15.