Tíminn - 22.08.1968, Síða 15
i
CTMMTUDAGUR 22. ágúst 1968.
TIMINN
HÖTEL
GARBIIR
1 m. herb. kr. 300.-
2 m. herb. kr. 400.-
Veitingasalurinn op-
inn alla daga frá
7.00 — 23.30
HÓTEL GARDUR* HRINGBRAliT -SlM 115918
HUG FÓLKSINS
Framhald al bls. 12.
báðir meðlimir í Kommúnista
flokki Tékkóslóvakíu og kváð
ust ekki hafa farið dult með
að þeir væru báðir fylgjandi ;
stefnu Dubceks og auknu lýð
ræði í landinu og að þeir hafi
stutt hina frjálslyndu leið-
toga af heilum hug, bæði sem
tékkneskir þjóðfélagsþegnar
og innan kommúnistaflokksins.
Jtarfsfólk tékkneska sendi-
sins í Reykjavík heyrði
fyrst fréttirnar um innrás Var
sjárbandalagsríkjanna inn í
Tékkóslóvakiu í miorgun.
—• Við vitum yfirleitt ekki
meira um þessi mál en það
sem komið hefur fram í frétt-
um. Sendiráðið hefur ekkert
samband haft við Tékkóslóva
kíu síðan innrásin var gerð og
við getum ekkert gert nema
bíða og sjá hvernig framvinda
mála verður. Pisarik sendifull
trúinn. dvelur nú í Prag og
ætllaði hann að koma til Reykja
víkur um miðjan næsta mánuð,
en við vitum ekkert um hvort
hann kemur fyrr eða síðar, eða
hvort hann kemur yfir'leitt aft
ur til íslands.
Tékkarnir kváðust ekkert get
að sagt um hvað yrði um
þá eða hvað þeir taka sér nú
fyrir hendur. Er þeir voru
spurðir hvort þeir mundu
halda áfram störfum sínum ef
ný stjórn tæki við völdum í
Tékkóslóvakíu, svöruðu þeir,
að núverandi stjórn væri hin
eina löglega stjórn landsins.
Þótt ný stjórn verði sett á
laggirnar verður hún alla vega
ólögleg, og tékkneska þjóðin
mun ekki sætta sig við lepp
stjórn erlendra aðila. Stjórn
sem ekki nýtur trausts þjóð
arinnar eða samþykkis þings
ins verður aldrei viðurkennd
sem lögleg stjórn landsins af
tékknesku þjóðinni.
Jordan kom frá Tékkóslóva
kíu s. 1. sunnudag. Sagði hann
að þá hafi gætt mikillar bjavt
sýni meðal fólksins og hafi eng
um dottið í hug að atburðir
þeir sem nú hafa átt sér stað
gætu skeð. Tékkar fylgdu hinni
frjálslyndu stefnu Dubceks eiij
huga og heilshuga og eftir
fundi kommúnistaleiðto^anna í
Cierna og Bratislava hafi ver
ið sem fargi væri létt af tékk
nesku þjóðinni og hafi fólkið
trúað þeim loforðum vússneskra
kommúnistaleiðtoga að Tékkar
fengju að halda frelsi sínu og
móta sjálfir stefnu sína í efna
kagsmálum innan ramma
»ó«t:3lisks þjóðskipulags. Fólkið
var ról.agt og varð ég hvergi
var við nokkurn æsing eða
uppreisnaranda. Tékknesk blöð
hafa aldrei ráðist á Sovétríkin
með illyrðum síðan Dubcek tók
við stújórn kommúnistaflokks
ins og hin frjálslynda stjórn
við völdum landsins. Þau hafa
að vísu syarað upplognum ásök
unum en varast að troða itl-
sakir við forystu menn ná-
grannaþjóðanna.
— Við getum fullyrt að
tékkneska þjóðin og kommún
istaflokkurinn stendur einhug
að baki Dubceks og öðrum leið
togum okkar. Þótt við viljum
meira frelsi og lýðræði í land
inu höfum við ekki áhuga á
að breyta þjóðskipulaginu. Við
viljum vera áfram í Varsjár-
bandalaginu og Kominform. Við
viljum aðeins sameina sósial
isma og lýðræði. Tékkar eru
lýðræðisþjóð og hafa atburðir
undanfarinna mánaða sannað
svo ekki verður um villzt að
fólkið er fylgjandi hinni nýju
stefnu og hug fólksins verður
ekki breytt á fáeinum klukku
stundum, dögum eða vikum,
þótt lýðræðið sé fótum troðið.
Tékkarnir kváðust þess full
vissir að Rúmenar og Júgóslav
ar stæðu með tékkneskum for
ystumönnum, en þessar þjóðir
geta litið að gert, annað en
mótmæla. — Og við erum þess
fullvissir að þjóðir heims munu
mótmæla því ofbeldi sem ver
ið er að fremja á þjóð okkar.
Við biðjum ekki um hernaðar
legan stuðning eða íhlutun ann
arra um málefni okkar, heldur
siðferðilegan stuðning og við
eigum enga ósk heitari nú, en
að þróun mála í Tékkóslóvjkíu
verði sú að erlendir herir
haldi á brott sem f”rst og að
vi'ð fáum sjálfir að framkvæma
þann sósíalisma sem við vitum
a'ð tryggir tékknesku þjóðinni
gifturíka framtíð. í dag setum
við ekkert gert nema bíða og
vona.
MARGIR MEIDDIR
Framhaiö al Dls 16
hve alvarleg meiðslin eru, einnig
kviðslitnaði hann. Hinir lögreglu
mennirnir eru minna meiddir.
Nokkrir unglinganna voru einnig
fluttir á slysavarðstofuna, en að-
eins einn þeirra hafði hlotið al-
varleg meiðsl. Var hann handleggs
brotinn. Þá voru nokkrir óláta-
seggir teknir úr umferð. Klukkan
rúmlega 1, réðst drukkinn maður
að starfsmanni sendirá-ðsins sem
var að loka ‘ garðshliði. Tók lög- j
reglan árásarmanninn höndum, I
handjárnaði hann og flutti í fanga
geymslu.
— 3. júlí: Rá'ðstefnan í Brat
islava hefst. í yfirlýsingu ráð
stefnunnar er þvi haldið fram
að sérhver kommúnistaflokkur
verði að taka tillit til sérstöðu
sinnar þjóðar þegar um þróun
sósíalismans væri að ræða. f
yfirlýsingunni er lögð áherzla
á rétt hvers ríkis til þess að
finna sína eigin leið til þess að
þróa sósíalismann og einnig er
stungið upp á a'ð efnahagsráð
stefna austan-tjialds landanna
verði haldin innan skamms.
— 8. ágúst: Stungið er upp
á Vaclav Prohlik, sem settur
var af eftir gagnrýni hans á
Varsjárband'alaginu, sem full
trúa í miðstjórn tékkneska
kommúnistaflokksins.
— 9. ágúst: Tito, forseti
Júgóslavíu og leiðtogi júgóslav
neska kommúnistaflokksins fær
stórkostlegar móttökur vi'ð
komuna til Prag.
— 10. ágúst: Tito segir að
ráðstefnan 1 Bratisilava hafi
verið pólitískur stórviðburður
og hann væri þvi sammála að
það væri réttur sérhvers komm
'únistaflokks að finna sína eig
in lei'ð til socíalisma.
— 12. ágúst: Daginn eftir að
heimsókn Titos lauk kemur
Walter Ulbricht til Tékkóslóva
kíu til viðræðna við tékkneska
ráðamenn í Karlovy Vary um
sambúð Austur-Þýzkalands og
Tékkóslóvakíu. Ulbricht fékk
„ískaldar“ viðtökur.
— 13. ágúst: Dubcek kveður
fast á orði um það að Tékkó
slóvakía sé sjálf fuli fær að
sjá um varnir á landamærum
ríkisins.
15. ágúst: Forseti Rúmeníu
og leiðtogi rúmenska komm-
únistaflokksins, Nicolae Ceau-
sescu, fær hjartanlegar móttök
ur í Prag.
— 16. ágúst: Nýr vipáttu
og stuðninsssáttimáli milli Rú
meníu og Tékkóslóvakíu undir
ritaður.
— 18. ágúst: Pravda byrjar
á ný heiftarlegar árásir á gagn
byltingaröfl í Tékkóslóvakíu.
Pravda segir frá þriggja daga
heræfingum Sovéthersins í
Vestur-Böhmen. Síðan 11. ágúst
hefur herlið' Varsjárbandalags
ins verið að æfingum og hem
a'ðarstörfum við landamœri
Tékkóslóvakíu.
— 21. ágúst; Tékkóslóvakía
hernumin.
kommúnisma geta ekki þolað
mönnum, sem þeir þykjast
hafa öll ráð yfir, að hugsa
sjálfstætt, hvað þá meira. —
Samningar og hátíðlegar yfir-
lýsingar eru heldur ekki meira
virði í þeirra augum en þær
voru í augum Hitlers á sínum
tíma.
SAGAN UNDANFARIÐ
Framhald aí ^bls. 7.
yfirlýsingu sýndu . æfingarnar
sem stóðu í einn dag áð flug-
sveitirnar væru í góðri æfingu
og vel útbúnar.
— 1. ágúst: Fundinum í
Cierna lýkur. Sovézk blö'ð
gagnrýna stjórnina í Prag harð
lega. í lokayfirlýsingunni frá
Cierna fundinum er boðaður
nýr fundur í Bratislava, með
Tékkum, Sovétmönnum, Búl
görum, Austur-Þjóðverjum og
Ungverjum. Almenningur í
Tékkóslóvakíu er hræddur um
að tékknesku leiðtogarnir hafi
svikið þjóðina og gengið að
afarkostum. Þa'ð vekur reiði og
þykir sýna að Tékkar hafi lát
;ið undan síga að þeir samþ.
að koma til fundar við rétttrún
aðarflokkana fimm án þess að
hafa sér til stuðnings Tito og
j Ceaucescau.
— 2. ágúst: Dubcek fullyrðir
i enn að tékkneski herinn geti
sjálfur varið landamæri ríkis
! ins.
í Þ R 6 T T I R
Framhald af bls. 13.
Guðmundsson þriðja markinu við.
Leikurinn í 5 flokki var ekki
síður spennandi Það var barizt
hart á báða bóga og komu Vest-
mannaeyingar skemmtilega á ó-
vart, en fyrufram hafði verið
reiknað með KR ingum sem sterk
ari aðilanum. Mátti engu muna,
að Eyjamönnum tækist að sigra
undir lokin, þegar hörkuskot
langt utan af velli small í slá,
en knötturinn fór yfir
Hinir ungu Eyjamenn gistu í
Reykjavík í nótt og munu mæta
KR-ingum í annað sinn í dag.
Fer leikurinn fram á Melavellin-
um.
A VÍÐAVANGI
Framhald at bls. 5
til Ungverjalands 1956, a» eng
inn aðili hér á landi treystir
sér til að verja ofbeldi Rússa
nú. Þessir atburðir ættu að
geta orðið lærdómsríkir fyrir
ýmsa, sem í sífellu hafa dregið
taum Rússa í nær hverju ein
asta máli og talið þeirra fram
komu á alþjóðavettvangi og
þeirra þjóðskipulag til mestr
ar fyrirmyndar með þjóðum
heimsins. Gríman er fallin.
Leiðtogar hins alþjóðlega
Árásin á
drottninguna
(Assault on á queen)
Hugkvæm og spennandi amer.
ísk mynd í Technicolor og Pana
vision.
Gerð eftir skáldsögu Jack
Finney.
Leikstjóri: Jack Donohue
Aðal'hlutverk: Frank Sinatra.
Virna Lisi.
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5 7 og 9
Bönnuð innan 12 ára
Leyndarmál
Dr. Fu Manchu
Sérstaklega spennandi ný ensk
kvikmynd i litum og Cinema
Scope.
Christopher Lee
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl- 5 og 9
^ÆJApiP
Slmi $0184
Maður og kona
Hin frábæra franska verðlauna
mynd í liturn.
fsl. texti
Sýnd kl. 9
Bönnuð börnum
Sítðustu sýningar
LAUGARAS
Slmar 3207$ og 38150
Hetjur sléttunnar
fsl. texti.
Sýnd kl. 5 7 og 9
Bönnvjð innan 12 ára
mrwmm
Sumuru
Spennandi ný ensk þýzk
Cinema-Scope litmynd með
George Nader
Frankie Avalon og
Shirley Eaton
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 7 og 9
íslenzkur texti.
Áfram draugar
(Carryon Screaming)
Ný ensk skopmynd með Isl.
texta.
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð innan 14 ára.
Síðasta sinn.
Sími 50249.
Sjö hetjur. koma
aftur
Yul Brynner
ísl. texti
Sýnd kl. 9
T ónabíó
Slm «118*
íslenzkur texti
Skakkt númer
(Boy, Did I get a wrong Numb
er)
Víðfræg og framúrskarandi
vel gerð, ný amerísk gaman
mynd
Bob Hope
Sýnd kl. 5 og 9
I
41985
TTTT
íslenzkur texti.
Með ástarkveðju
frá Rússlandi
Heimsfræg og snilldar vel
gerð ensk sakamálamynd.
Sean Conmery
Endursýnd kl. 5,15 og 9
Bönnuð innan 14 ára.
18936
Tundurspillirinn
Bedford
íslenzkur texti
Afar spennandi ný amerísk
kvikmynd með úrvalsleikurun
um Richard Widmark, Sidney
Poitier.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Slmi 11544
EL GRECO
íslenzkur texti
Stórbrotin amerísk-ítölsk lit-
mynd í sérflokki um þætti úr
ævi listmálarans og ævintýra
mannsins.
Mel Ferrer
Rosanna Schiaffino.
Sýnd kl. 5, 7 og 9