Vísir - 01.06.1977, Blaðsíða 3
VISIR Miðvikudagur 1. júni 1977.
3
!
Vertíðin á Vestfjörðum:
LÍNUBÁTAR VIIDDU
HELMING AFLANS
— Fjögur þúsund tonna aflaaukning
Um helmingur þess fiskafla
sem barst á land á Vestfjörðum á
þessari vertið var veiddur á línu.
Er þaö heldur aukning frá þvi I
fyrra. ■ Alls nam lfnuaflinn á
vertfðinni 14.839 lestum.
Togaraaflinn var 14.665 eða 46
prósent aflans var 40 prósent
aflans i fyrra. Þá var netaaflinn
2318 lestir og hafði heldur dregist
saman miðað við árið i fyrra.
Heildarafli vestfirðinga á
þessari vetrarvertið var 31,822
tonn, en var 27142 tonn i fyrra.
Yfirleitt var aflaaukning i ver-
stöðvunum sérstaklega á nyröri
miöunum.
Tiöarfar var óhagstætt til sjó-
sóknar I janúar en gæftir voru
góðar eftir það. Afli linubáta var
jafn alla vertiðina. Steinbits-
vertíðin var ekki jafn afgerandi
og oft áöur hjá linubátunum. 1 lok
vetrarvertiðarinnar fengu linu-
bátarnir hins vegar góðan þorsk-
afla. Afli netabátanna var fremur
rýr, en hjá togurunum svipaður
og I fyrra. —EKG
Nú fara strœtisvagnarnir
nýjar leiðir
Frá og með deginum I dag
breytist leiðakerfi SVR á þeim
leiðum sem ganga I Breiðholts-
hverfi i Reykjavik.
1 höfuðdráttum verði
breytingar þannig að leið 14 og
15 verði lagöar niður, bætt viö
vagni á leiö 11, leiö 13 verði gerð
að hraðferð allan daginn með 30
min. tlðni er ekur að Lækjar-
torgi og hættir viðkomu á
Hlemmi.
Leið 11 Hlemmur — Breiðholt
verði þannig að hætt verði að
aka Arnarbakkahringinn og I
stað þess ekið inn að Breiöholts-
kjöri, þaöan verði leiðin lengd
frá 1. júni '77 upp að öldusels-
skóla annars vegar og upp að
Flúöaseli hins vegar. Bætt veröi
inn vagni á leiðina svo um 15
min. tiðni verði að ræöa fyrir
Breiðholt I sem áður hafði 20
min. tlðni. 1 haust verður mögu-
legt að aka frá Stekkjarbakka
sunnanverðum (öldusel) að
Flúðaseli og þá verði ekið I
hring um Seljahverfi, rangsælis
og réttsælis.
Leiö 12 Hlemmur-Vesturberg
verði eins og nú nema biðtlmi
verði styttur I Suðurhólum og
lengdur sem þvi nemur á
Hlemmi. Ekið veröi um
Stekkjarbakka-Alfabakka-
Reykjanesbraut i staö Stekkjar-
bakka-Breiðholtsbrautar--
Reykjanesbrautar.
Leið 13 Breiðholt-Miöbær
verður með 30 mln. tiðni frá
07-01 alla daga vikunnar.
Vagninn ekur I gegnum
Breiðholt I á leiö i Breiðholt III
og hefur timajöfnun viö Suöur-
hóla. Hætt verði að láta vagninn
aka Hverfisgötu að Hlemmi og
suður Snorrabraut. I stað þess
aki vagninn Lækjargötu-Vonar-
stræti-Suðurgötu-Hringbraut.
Frá Breiðholti Hringbraut—
Suðurgötu-Aöalstræti-Hafnar-
stræti aö Lækjartorgi. Meö
akstri um Suðurgötu næst teng-
ing við Háskólasvæðið og hluta
af vesturbænum.
Á það skal lögð áhersla, að
hér er um að ræða reynslu-
akstur á timabilinu .1. júni — 1.
október.
Sérstakt leiöakort, timatöflur
og aðrar upplýsingar um
breytingarnar hafa verið sér-
prentaðar. Verða þær afhentar
endurgjaldslaust i vögnum á
leið 11 og 12, 13,14 og 15 og i far-
miðaafgreiðslum SVR á
Lækjartorgi og Hlemmi.
Þá er þess að geta, að á leiö 7
verða frá og með 1. júni n.k.
litilsháttar breytingar á tima-
töflu.
Ný leiðabók er væntanleg
innan fárra daga, ef ekki koma
til frekari tafir vegna yfirvinnu-
bannsins.
—GA
Flugfélag Norðurlands flutti 10.553 farþega í fyrra
Hœttir áœtlunarflugi
til Sigluf jarðar
Aætiunarflug Flugféiags
Norðurlands milli Akureyrar og
Siglufjarðar leggst niður 15.
júni, og er óvist aö það verði
tekið upp aftur.
Að sögn Sigurðar Aðalsteins-
sonar hjá FN er orsökin sú, að
flutningar á þessari leið megna
ekki að greiða kostnaðinn af
fluginu.
Félagið á von á nýrri Piper
Chieftain 10 sæta flugvél i júni,
en Beachcraft-flugvél FN
veröur seld i haust.
A siðasta ári voru farþegar i
áætiunarflugi hjá FN 10.553
talsins, en vörur og póstur var
318 tonn. ESJ
Hinn ungi islandsmeistari I skák Jón L. Arnason.
Jón L. Árnason tal-
inn stórmeistara-
íslandsmeistarinn ungi teflir fjöl-
tefli á höfuðborgarsvœðinu í sumar
tslandsmeistarinn i skák Jón L.
Árnason mun I sumar efna til
fjöltefla á Stór-Reykjavikur-
svæðinu milli þess sem hann
sækir erlend mót. Hér er um að
ræða hverfafjöltefli og fer skipt-
ingin i hverfi eftir póstnúmer-
um. Þannig verður fyrsta fjöl-
teflið á Seltjarnarnesi, sem hef-
ur póstnúmer 170 og annað fjöi-
teflið i Mela- og Hagahverfi,
sem hefur póstnúmer 107. Skal
fólki bent á, aö póstnúmera-
skiptinguna má sjá aftast I
simaskránni.
Fjölteflin fara fram á laugar-
dögum og sunnudögum I hverf-
unum sjálfum og hefjast þau kl.
14, en verði þátttaka mikii hefst
önnur umferð ki. 17 sama dag.
Viðurkenningarskjöl
fyrir þátttökuna.
Fjöltefli islandsmeistarans
standa öllum opin, en þátttöku-
gjald er kl. 500. — og skal það
greiðast við innganginn. Þátt-
töku skal skrá I sima 18027
næstu þrjá morgna fyrir fjöl-
teflin frá kl. 9-12.30 eða á móts-
stað milli ki. 13 og 14 fjölteflis-
dagana. Þess skal getið að þeir
sem hringja inn þátttöku hafa
forgang i fjölteflunum ef þátt-
taka verður of mikil, eða yfir 80
manns. Þessi tala gildir i öllum
hverfunum nema Breiðholts-
hverfi, þar sem hámarksþátt-
taka er 160 manns, enda er þar
teflt báða dagana.
Allir þátttakendur fá sérstakt
viðurkenningarskjal fyrir þátt-
tökuna.
Helgar sig skáklist í sum-
ar.
Jón L. Arnasnn, sem er 16 ára
að aldri, vann islandsmeistara-
titilinn i skák s.l. vor er hann
bar sigur úr býtum i landsliðs-
flokki á Skákþingi islands. Jón
hefur tekið ótrúlegum framför-
um á siðasta ári og er þar á
ferðinni stórmeistaraefni aö
margra áliti. Jón hefur ákveðið
að helga skákinni krafta sina ,i
sumar og m.a. af þvi aö sumar-
vinna hans er við taflborðið
heima eru þessi fjöltefli sett á
fót. Er þess að vænta að fólk
styðji við bakið á þessum unga
og efnilega skákmanni með þvi
að taka þátt i fjölteflunum og
veita sér um leið þá ánægju að
tefla við Islandsmeistarann.
Júni fjöltefli ákveðin
Niðurröðun fjölteflanna i júni-
mánuði hefur verið ákveðin, en i
lok mánaðarins heldur Jón til
Bandarikjanna á opið mót sem
fram fer i Philadelpiu og nefnist
,,World Open”. Verður fjöltefl-
unum haldið áfram i júli og
ágúst.
Þessi fjciltefli verða i
júnimánuði:
1. Seltjarnarnes (póstnúmer
170) laugardagur 4. júni kl. 14 i
Valhúsaskóla
2. Mela- og Hagahverfi (póst-
númer 107) sunnudagur 5. júni
kl. 14 i Hagaskóla
3. Miðbæjarhv' j-fi (póstnúm -
er 101) laugardagur 11. júni kl.
14 i Casa Novn Menntaskólans i
Reykjavik
4. Hliða- og Teigahverfi (póst-
númer 105) sunnudagur 12. júni
kl. 14 i Laugalækjarskóla
5. Smáibúða- og Fossvogs-
hverfi (póstnúmer 108) laugar-
dagur 18. júni kl. 14 i Skák-
heimilinu Grensásveg 46
6. Langhoits- og Vogahverfi
(póstnúmer 104) sunnudagur 19.
júni kl. 14 i Vogaskóla
7. Breiðholtshverfi (póstnúm-
er 109) laugardagur og sunnu-
dagur 25. og 26. júni kl. 14 I
væntanlega Fellahelli.
Þykkan reykjarmökk lagði yfir borgina sfðdegis I gær, og héldu margir, að um alvarlegan bruna væri að ræða. Svo reyndist þó ekki vera, heldur hafði kviknað i dekkjahaug
á athafnasvæði Hiaðbæjar i Kópavogi og gekk erfiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Siökkviliðsmenn urðu að lokum að nota froðu til að kæfa eldinn.
Myndirnar hér að ofan sýna dekkjabrunann, og eins og sjá má létu kartöfluræktendur þar I nágrenn inu sé fátt um finnast. Ljósmyndirnar tóku Bragi og Jens. ESJ.
I