Vísir - 01.06.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 01.06.1977, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 1. júni 1977. VISIR Umsjón: Óli Tynes Ródesísku hersveitimar áframí Mozambique Vfirmaður hers Ródesiu hef- ur sagt að hersveitirnar verði þarna áfram um stund eða þar til þær hafi upprætt alla skæruliöa- starfsemi á þessu svæði. Þær eru þegar búnar að þurrka út fjórar stöövar skæruliða og fella 32 þeirra. Mapai er um 75 kilómetra innan landamæra Mozambique og er stærsti bærinn sem er á milli landamæranna við Ródesiu og höfuðborgarinnar Mapai, sem er lengra i suðaustur. Litiö hefur heyrst frá „fram- linurikjunum” fimm, sem hafa tekið að sér það sérstaka hlutverk aö fella stjórn hvitra manna i Ródesiu. Þessi riki eru auk, Mozambique, Zambia, Tanzania, Angóla og Botswana. Það er yfir- lýst stefna þessara rikja að árás á eitt þeirra skuli skoðast sem á- rás á þau öll og að þau skuli I sameiningu snúast gegn árásum frá Ródesiu. Ekki er þó búist við að þessi riki sendi heri sina gegn innrás- arsveitum Ródesiu. Vestrænir diplómatar benda á aö þótt skæruliðar geti gert usla á af- skekktum bæjum i Ródesiu, þýði litið fyrir þá að reyna að mæta her Ródesiu á opnum vigvelli. Það þykir þvi óliklegt að nokkur reyni að hrekja ródesisku her- sveitirnar á brott. Breska stórblaðið ,/The Times" gerði harðorða at- lögu að rússnesku stjórn- inni í forystugrein i gær og sagði meðal annars að hún sýndi þjóðinni óþolandi fyrirlitningu. MOLUKKARNIR VIRÐAST AÐ LOTUM KOMNIR Hellenska stjórnin hefur tekið kuldalega i þá beiðni mólúkkanna að fá sátta- semjara í samningavið- ræðurnar milli sín og ríkis- stjórnarinnar. Þykir nú ýmislegt benda til þess að mólúkkarnir séu alveg að gefast upp. Þegar þeir fyrst tóku skólann og hraðlestina voru hryöjuverka- mennirnir mjög stórorðir og hót- uðu aö skjóta alla menn sem nálguðust þá. Sérstaklega tóku þeir fram að þeir myndu skjóta hvern þann sáttasemjara sem stjórnvöld reyndu að senda þeim. Nú virðist sem þeir sjái sina sæng út breidda og séu að gera siöustu tilraun til að bjarga and- litinu. Hollensk yfirvöld hafa að visu ekki beitt valdi, en þau hafa veriö mjög hörð i horn að taka. Skæruliðunum voru I upphafi sett nokkur skilyrði og sagt að ekkert yrði rætt við þá fyrr en gengið heföi verið að þeim. Meðal annars var það skilyrði að börnunum yrði sleppt og að mólúkkarnir hættu aö gæla við þá hugmynd að taka glsla með sér úr landi. Ródesískar hersveitir héldu enn bænum Mapai í Mozambique i morgun og sýndu ekki á sér neitt far- arsnið. Ekki hefur heldur bólað á hersveitum til að reka þá úr landi. Hinsveg- ar hafa Bandarikin, Bret- land, Sameinuðu þjóðirnar og ýmsir fleiri aðilar, for- dæmt og harmað innrás- ina. Fjallafantur á ferðinni Það tók Georg Willig þónokkrar klukkustundir að klifra upp hundrað og tiu hæðir „World Trade Cent- er” skýjakljúfsins iNew York. Lögregiuíi var þvi löngu komin á eftir honum. Hún elti hann þó ekki á átta hófahreinum heldur i málaralyftu, en komst ekki að honum. Þúsundir manna höfðu safnastsaman niðri á götu til að fylgjast með Gogga og það urðu mikil fagnaöarlæti þegar hann komst upp á þak. Bilar flautuðu og fólk blistraði og klappaði. Lögreglan var ekki eins hrifin. Goggi var handtekinn á staðnum og sektaður um mörgþúsund dollara. Borgarstjórinn I New York mildaði dóminn: Fjallagarpurinn slyldi borga tiu sent fyrir hverja hæð sem hann kleif og iofa að gera þetta aldrei aftur. TheTimes sagði meðal annars: „Stefna og takmark Sovétrikj- ■ anna kemur öllum mönnum við. Til þess að skilja stefnu þeirra þarf að skilja hvernig þau (Sovét- rikin) starfa. Samt gera Sovétrik- in allt sem i þeirra valdi stendur til að hindra að menn geti öðlast þennan skilning. Leynimakkið er jafnvel enn meira en fyrr á ár- um.” The Times segir að þetta leyni- makk leiði til þess að menn liti á Sovétrikin með undrun og tor- tryggni. Menn fáist ekki til að treysta stefnuyfirlýsingum sem komi úr einhverju ósýnilegu tómi. Blaðið tekur sem dæmi leynd- ina sem hvilir yfir Nicolai Pod- gorny, forseta landsins. Hann var „hreinsaður” úr æöstaráði Sovét- rikjanna I siöustu viku, en enginn hefur fengið að vita ástæðuna. Málverk og höggmyndir af for- setanum eru aö hverfa af opin- berum stööum i Sovétrikjunum, en enginn veit hvers vegna. in 18. fyrra mánaðar af þeim Podgorny, (lengst t.v.) Kosygin og Brezhnev. örfáum dögum siðar var búiö að „hreinsa” Podgorny og hann viröist nú eiga að falla i gleymsku. Engan frest á fangelsun Hæstiréttur Banda- rikjanna hefur neitað að fresta fangelsun tveggja fyrrverandi ráðgjafa Nixons, for- seta. Það eru þeir John Mitchell, fyrrverandi dómsmálaráðherra og H.R. Haldeman, fyrrum yfirmaður starfs- mannahalds Hvíta húss- ins. Þeir voru báðir dæmdir i þrjátiu mánaöa til átta ára fangelsi fyrir aðild sina að Watergate. Hæstiréttur hefur áöur neitað beiðni um að endurskoöa þann dóm. Michell og Haldeman eiga að byrja aö afplána fangelsis- vist sina á næstu vikum. írókgheifum KREML SYNIR ÞJ0Ð- INNI FYRIRLITNINGU — segir The Times um „hreinsun" Podgornys The Times segir að þetta sýn fyrirlitningu fyrir þjóðinni,, sen hlýtur að gera sér það vel ljóst al henni er ekki treyst fyrir upplýs ingum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.