Vísir - 10.06.1977, Síða 5
VISIR Föstudagur 10. júnl 1977
Drottningin i viðhafnarvagni sinum... .....og lundúnabörn við veisluborð i lokuðum götum.
GUUVAGNAR OG GUDITÁR
Xugþúsundir hylltu Elisabetu
drottningu og Philip. prins, þegar þau
óku um götur Lundúna i viöhafnarvagni
drottningarinnar á þiöjudaginn.
Gullskreyttur vagninn var svo skinandi
bjartur aO menn fengu næstum ofbirtu I
augun, þótt sumir hafi kannske bara
verið aö þerra tár.
Börnin hafa ekki gleymst á þessu
silfurbrúökaupi drottningarinnar og
bresku þjóöarinnar. Mörgum götum I
London hefur veriö lokaö og þar sett upp
veisluborö fyrir börnin aö sitja viö. Þau
fá skemmtilega hatta og blistrur og for-
eldrar og nágrannar setja á sviö alls-
konar skemmtiatriöi til aö hafa ofan af
fyrir þeim.
Göturnar eru skreyttar fánum og
myndum af drottningunni og þaö má
segja aö hátiöastemming mikil riki
London. Og þaö er reyndar ekki bara I
London.
Eldur flugleiöis
Hátlöin hófst I byrjun vikunnar meö
þvl aö drottningin k.veikti grlöarmikinn
varöeld I garöi Sandringham kastala.
Þegar eldurinn sást, var kveikt I bál-
köstum á nærliggjandi hæöum, svo á
hæöum i grendinni viö þær hæöir og
þannig kviknuöu varöeldarnir um allar
Bretlandseyjar.
Þau samveldislönd sem best unna
drottningunni tóku llka þátt I þessu.
Kyndill sem drottningin tendraöi fór
flugleiöis til Astraliu og þar voru
kveiktir þrjúþúsund varöeldar. Annar
kyndill fór til Nýja Sjálands. Þetta eru
alveg eldfjörug hátlöahöld.
Gabriel
Góður
stcuMKuhir
Nýi starfskrafturinn í farskrárdeild er sér-
staklega fljótur og öruggur, hann vinnur sitt
verk af stakri nákvæmni yrðir aldrei á neinn,
en svarar á augabragöi ef hann er spurður.
Hann er ekki í starfsmannafélaginu og hann
vantar alveg þetta hlýlega viömót sem einkennir
allt starfsfólk okkar. Þú kynnist honum ekki
”persónulega” þú nýt.ur aöeins afburöa hæfi-
leika hans.
Þessi nýi starfskraftur er Gabríel, rafeinda-
heili í tölvumiðstöð í Atlanta í Bandaríkjunum -
sem tengdur er viö farskrárdeild og allar
söluskrifstofur okkar jafnt á íslandi, sem annars
staöar í heiminum.
Gabríel tekur viö öllum bókunum frá sölu-
skrifstofum og farskrárdeild og geymir þær
upplýsingar, og svarar því samstundis hvort þaö
eru laus sæti í þeirri ferö sem þú hefur hug á.
Þannig finnur Gabríel alla feröamöguleika
fyrir þig á augabragöi - og þegar þú hefur
ákveöiö þig þá bókar hann þig.
Gabríel og sú aukna og bætta þjónusta viö
farþega sem tilkoma hans hefur haft í för meö
sér er einn ávinningur af sameiningu okkar.
loftieidir
/SLAJVDS