Vísir - 24.06.1977, Blaðsíða 9
9
VÍSIR
„Fellur verst við heimskuna"
— segir þýski
listamaður-
inn Andreas
Paul Weber
sýningunni kom upphaflega frá
dr. Schwabe, góövini Webers.
Dr. Schwabe hefur margsinnis
dvalist hér á landi viö jaröfræöi-
rannsóknir, m.a. I Surtsey.
Með Weber komu hingaö
starfsmenn þýska sjónvarpsins
vinna þeir aö gerö myndar um
listamanninn, meö Island sem
bakgrunn, en Weber er nú 83ja
ára gamall. I Þýskalandi hefur
hann verið viöurkenndur
listamaöur á siöari árum og er
stööugt opin sýning á verkum
hans f nágrenni heimabæjar
hans. A stríðsárunum átti hann
hins vegar erfitt uppdráttar,
þar sem hann var ekki vel séður
hjá nasistum. Gaf hann út and-
spyrnublað gegn þeim ásamt
öörum manni og sat i fangabúð-
um um rúmlega eins árs skeið.
Fjallar um manninn
Viöfangsefni Webers er fyrst
og fremst manneskjan. Er ekki
margt sem hann tekur ekki fyrir
henni viðkomandi. I mörgum
myndanna er heimskan táknuö
meö dýrum. Þarná er manna-
garöur, (sbr. dýragaröur),
herra heimsins, fangar, sendi-
herrar sem leikbrúöur, o.s.frv.
Listspekingar.
Skákin skipar mikiö rum f
verkum hans, enda segist hann
hafa mikinn áhuga á henni.
Hann fjallar um umhverfis-
verndun og er þar á meöal 20
ára gömul mynd þar sem hann
bendir á mögulegar afleiöingar
mengunar vatns. Hann deilir á
ofmenntun, sjónvarp, styrjald-
ir, jafnvel reykingar lætur hann
sig skipta.
Weber segir að sér liki vel við
fólk, sem hafi augu i höfðinu og
skilji myndirnar rétt, bæöi tem-
aö og uppbyggingu myndanna.
„Er enginn spámaður"
Hann segist ekki reyna aö
vera spámaöur.
„Ég er ekki aö segja aö ég viti
hvernig hlutirnir eigi aö vera.
Ég er ekki i þeim skilningi aö
reyna aö bæta heiminn. Mér
finnst þaö hins vegar vera
mikill árangur, ef mér tekst að
trufla áhorfandann og fá hann
til aö hika við og hugsa,” segir
hann.
Andreas Paul Weber: „Reyni aöeins aö trufla áhorfandann”
Ljósm. JA
,/Heimskan er það sem
mér fellur verst við í fari
mannsins," sagði
Andreas Paul Weber,
hinn þekkti þýski teiknari
og graf íklistamaður, sem
nú sýnir verk sín á Kjar-
valsstöðum.
„Hvort mikið sé um heimsku i
heiminum? Ja, við skulum
segja aö hún nægi alveg.”
Weber sýnir hér 160 mynda
sinna og er þaö stærsta sýning á
verkum hans til þessa. Um
fjölda verka sinna sagöist hann
ekki geta sagt annað en aö þær
væru óteljandi.
Myndirnar á sýningunni eru
geröar á 45 ára timabili og eru
þær allar lithografiur. Þaö var
þýska bókasafniö i Reykjavik
og Félagið islensk grafik sem
gengustfyrir þvi aö fá myndirn-
ar hingaö, en hugmyndin að
FARA SYNGJANDI UM IANDIÐ
Blandaöur kór frá skólabænum
Haslev á Sjálandi veröur á ferö og
flugi um tsland næstu vikuna.
Veröur fyrsta viökoma kórsins I
Reykjavik, þar sem hann heldur
tónieika á laugardaginn kl. 5 f Há-
teigskirkju á vegum Menntaskól-
ans i Hamrahlfö.
Kórfélagar eru 34 á aldrinum
15-32 ára og stunda þeir nám, eða
hafa þegar lokið námi, viö
menntaskólann i Haslev. Kórinn
hefur fariö víöa, m.a. haldið tón-
leika i Austurriki, Póllandi og
Sovétrikjunum. A siðasta sumri
tók hann þátt i alþjóðlegri kóra-
keppni i Vin og hlaut þar mjög
góöa dóma. A gamlárskvöld fékk
danska sjónvarpiö kórinn til aö
flytja nokkur lög i sjónvarpsdag-
skrá. A söngskrá kórsins hér
eru þjóðlög, negrasöngvar og lög
eftir Bach, Bellman, Mozart,
Nielsen, Gunnar R. Sveinsson
o.fl.
Fyrstu tónleikarnir eru I
Reykjavik, eins og áöur sagöi, en
á sunnudaginn syngur kórinn i
Skálholti, á mánudag I Skjól-
brekku, Mývatnssveit, á þriðju-
dag i Húsavikurkirkju, á miö-
vikudag i Tjarnarborg á ólafs-
firði og lokatónleikar kórsins
veröa sföan i Akureyrarkirkju á
fimmtudaginn, 30. júni. A norður-
landi annast félagar úr Passiu-
kórnum og Tónlistarskólanum á
Akureyri móttöku kórsins.
Sumarsýning í
Lista-
safninu
Erlendir ferðamenn eru tiöir
gestir i Listasafni tslands þessa
dagana. Þar er nú sýning á
verkum eftir fjölmarga isienska
listamenn. Þar á meöal eru
nokkrar myndir sem Listasafn-
ið keypti á þessu og siðasta ári.
Safnið er opiö daglega kl. 13.30-
16. — Mynd: JA
Ólafur Lárusson, Nfels Hafstein, Rúri.Heigi Þorgiis Friöjónsson og
Þór Vigfússon sýna um þessar mundir nútimalist f Norræna húsinu.
Hér er Ólafur við myndir sem heita allar: „Where The Roses
Meet”. Ljósm. JA