Vísir - 24.06.1977, Blaðsíða 21

Vísir - 24.06.1977, Blaðsíða 21
VISIR Föstudagur 24. júní 1977 21 Trésmiðir þenja raddböndin í Noregi Bretar geri fiskveiði - samning við Sovétríkin „Forsvarsmcnn launþegasam- takanna átelja harðlega þá hótun sem felst i þvi að senda til íslands sendinefnd til viðræðna um tolla- samning íslands og Efnahags- bandalagsins, á sama tima og rætt skal um fiskveiðimái.” bannig segir meðal annars i bréfi, sem samstarfsnefndin til verndar landhelginni sendi Finn Olav Gundelach og Frank Judd þegar þeir voru staddir hér á landi fyrir skömmu. Ennfremur segir i brefinu að koma þeirra félaga til Islands virðist sanna, að Efnahagsbanda- lagið geri sér ekki ljóst, að um gagnkvæma fiskveiðisamninga milli Islands og Efnahagsbanda- lagsins geti ekki verið að ræða, þvi að Efnahagsbandalagið eigi ekkert til að láta á móti fiskveiði- réttindum við Island. „Þann vanda, sem alþjóðleg þróun i efnahagslögsögu strand- rikja hefur orsakað fyrir ákveðna útgerðarbæi i Bretlandi er auð- velt að leysa með gagnkvæmum fiskveiðisamningum við Sovét- rikin, en þau fiskuðu við Bret- landsstrendur á siðastliönu ári á fjórða hundrað þúsund lesta, og þau eiga mikil togaramið i Barents- og Hvitahafi sem breskir togarar hafa stundað i meira en hálfa öld.” Samkór Trésm Iðafélags Reykjavikur heldur til Osló á miövikudaginn til þátttöku { samnorrænu tónlistarmóti alþýöukóra. Mótið i Noregi er hið 7. sinnar tegundar. Þar koma saman á sjötta þúsund áhugamenn, er eiga þaö sameiginlegt að syngja og spila i kórum og hljómsveit- um, sem starfa i tengslum við verkalýðshreyfingar Norður- landa. Það er haldið á vegum „Nordisk Arbeid'ersanger: og Musikerforbund”, en kynni Is- lendinga af þeim samtökum hafa m.a. leitt af sér stofnun Tónlistarsambands alþýðu fyrr i þessum mánuði. Samkór Trésmiðafélags 1 Ijósmyndaþjónustunni eru filmurnar geymdar I kæliborðui ------yj------- Geyma filmur í kœliskáp Ljósmyndaþjónustan s/f Mats Wibe Lund flutti nýlega i ný og glæsileg húsakynni aö Lauga- vcgi 178. Um leið færir fyrir- tækiö út kviarnar með þvi aö opna nýtiskulega ljósmynda- vöruverslun, þar sem höfuö- áhersla er lögö á faglegar leiö- beiningar. Ein helsta nýungin, sem fyrir- tækið hefur tekið upp er sala á kæligeymdum filmum, en gæði þeirra eru alltaf meiri en filma sem geymdar eru við venjuleg- an lofthita, auk þess sem þær endast mikið lengur. Að öðru leyti er lögð áhersla á vandaðar ljósmyndavörur og að sjlfsögðu er boðin venjuleg úr- vinnsla þ.e.a.s. framköllun og kóperingar. Einnig er lögð áhersla á stór-stækkanir, en stærsta litstækkunin sem ljós- myndastofan hefur gert úr 35 mm filmu er 6 fermetrar, en annars eru tæpast takmörk fyrir þvi, hve mikið er hægt að stækka. Ljósmyndaþjóúustan rekur eina opna ljósmyndasafnið á landinu, en i það geta allir ljósmyndarar lagt myndir sinar I umboðssölu. Hefur þessi þátt- ur starfseminnar þróast mjög ört með sölu jafnt á innlendan sem erlendan markað. Auk ljósmyndasafnsins hefur fyrir- tækið símsendi sem þjónar erlendu fréttastofunum. —GA Nýsóknarkirkja Breiðholts reist í mjóddinni Urslit liggja nú fyrir I sam- keppni um gerö kirkjubygging- ar i Breiöholti, sem sóknarnefnd og kirkjubyggingarnefnd Breiö- holtssóknar efndu til ekki alls fyrir löngu. Nitján tillögur bárust I keppn- ina, en fyrstu verðlaun hlaut til- laga arkitektanna Guðmundar Kr. Kristinssonar og Ferdi- nands Alfreðssonar. Samstarfs- maður þeirra var Hörður Björnsson tæknifræðingur. önn- ur verðlaun voru veitt Birgi Breiðdal arkitekt og þriðju verðlaun Benjamin Magnússyni arkitekt. Fyrstu verðlaun námu sjö hundruð þúsundum króna, önnur verðlaun fjögur hundruö þúsundum og þriðju verölaun þrjú hundruð þúsundum. Hin nýja sóknarkirkja Breiö- holtssóknar verður reist i Mjóddinni svokallaðri, en hún er svæði noröan Breiðholts- brautar og austan Reykjanes- brautar. Dómnefndina i sam- keppninni skipuðu Sigurður E. Guðmundsson framkvæmda- stjóri, Björn Björnsson prófesS1- or, Helgi Hafliðason arkitekt, Hilmar ólafsson arkitekt og Kristinn Sveinsson bygginga- meistari. — AHO Framhaldsnóm í héraðs- Reykjavikur var stofnaður 1973, og hefur á undanförnum árum lagt iæ viðameiri verkefni. M.a. tók hann þátt I samnorrænni dagskrá sem útvarpað var frá öllum Noröurlöndunum 1. mai sl. Kórinn heldur tónleika i Menntaskólanum i Hamrahlið 23. júni n.k. Söngstjóri er Guðjón Böðvar Jónsson —HHH VÍSIR smáar sem stórar! SIÐUMOLl 8 &14 SIMI 86611 skólum Héraðsskólarnir hafa fengiö heimild menntamálaráöuneytis- ins til þess aö bjóöa upp á nokkrar námsbrautir á framhaldsskóla- stigi næsta skólaár. Er einnig gert ráð fyrir að skól- arnir hafi fornám fyrir þá nem- endur sem ekki hafa náð tilskild- um árangri til framhaldsnáms i einni eða fleiri námsgreinum. Þau skilyrði eru sett af hálfu menntamálaráðuneytisins að skólarnir hafi fullnægjandi kennsluaðstöðu og að nægur fjöldi nemenda sæki um námið. Að þeim skilyrðum uppfylltum geta skólarnir boðið upp á eftir- taldar námsbrautir: Reykholtra) Almenn bóknáms- braut b) Heilsugæslubraut c) Uppeldisbraut d) Viðskiptabraut lteykir: a) Almenn bóknáms- braut b) Uppeldisbraut c) Við- skiptabraut Núpurra) Heilsugæslubraut b) Viðskiptabraut Laugar: a) Iðnbraut b) Bún- aðarbraut c) Uppeldisbraut d) Hússtjórnarbraut i samvinnu við hússtjórnarskólann á staðnum Eiðar: a) Almenn bóknáms- braut b) Uppeldisbraut Skógar: a) Almenn bóknáms- braut b) Viðskiptabraut Laugarvatn: a) Uppeldisbraut Meó stærra og rúmbetra húsnæói er okkur unnt aó veita mun betri þjónustu en áóur. Verió velkomin, lítió inn eóa hringió, símanúmerin eru þau sömu 24460»28810 Bílaleigan GEYSIR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.