Vísir - 24.06.1977, Blaðsíða 10

Vísir - 24.06.1977, Blaðsíða 10
10 VÍSIR tlnefandi: Ht>ykjapr«‘iU lif Framkvæmdasljóri: Davift (lUÓniundsson Hitstjórar: l>orst(‘iiin Pálsson ábm. Olafur Hat'narsson. Hitsljórnarfulllrúi: Bragi (iuftmundsson. Krottastjóri crlrndra frctta: (iuftmundur G. Péiursson. L msjón mcö llelgarhlafti: Arni Dórarinsson. lilaftamcnn: Anders Hansen, Anna Heiftur Oddsdóttir, Kdda Andrésdottir, Kinar K Guftfinnsson. Elias Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guftjón Arngrimsson. Hallgrimur H. Helgason. Kjartan L. Pálsson. Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sveinn Guftjónsson. Sa*mundur Guftvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal. Gylfi Kristjónsson ( tlitstciknun: Jón Oskar Hafsteinsson. Magnús OJaísson. I.jósmyndir: Einar Gunnar Einarsson. Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Siilustjóri: PáH Stefánsson Auglvsingastjóri: Porsteinn Kr Sigurftsson Drcifingarstjóri: Sigurftur K. Pétursson. Auglýsingar: Siftumúla x. Simar X'2«0. XOfill. Askriltargjald kr. KJOO.á mánufti innanlaiids. Afgrciftsla: Stakkholti 2-1 slmi XOIill Vcrft i Liusasölu kr. 70 cintakift. Hitstjórn : Síftumiila II. Sími XOlíll. 7 llnur. Prcntun: Blaftaprcnt lil. Heilbrigð útivera og virðing fyrir landinu útivistog feröalög landsmanna hér innanlands eiga siauknum vinsældum að fagna# og er þaö vel. Náin kynni af náttúru landsins/ sögu og sérkennum þess gera hvern mann að meiri og betri íslendingi auk þess sem útivera í faðmi náttúrunnar er fólki andleg og líkamleg heilsubót. Svo virðist sem viðhorf manna hérlendis til ferða- hátta séu að breytast, minna sé um það að fólk verji fristundum sínum um helgar til langaksturs, en í stað- inn sé meira lagt upp úr gönguferðum og hvers kyns útiveru. Fagna ber þeim áhuga, sem opinberir aðilar hafa sýnt þessum málum, bæði forráðamenn sveitarfélaga og þeir, sem sæti eiga í ríkisskipuðum nefndum og ráðum, er bætt hafa mjög aðstöðu fyrir þá er stunda útivist og ferðalög innanlands. Komið hefur verið á fót þjóðgörðum, fólkvöngum, og friðlöndum viða um land.. Þá hefur víða í þéttbýli verið lögð alúð við að f jölga grænum svæðum, gróður- setja tré og útbúa vistlega staði þar sem íbúarnir geta notið útiveru í næsta nágnágrenni heimila sinna. Slík svæði eru aftur á móti of lítið notuð og virðist fólk almennt þurfa eitthvert tilefni til að leggja þang- að leið sína. Vísir hyggst nú leggja sitt að mörkum til þess að fá ibúa höfuðborgarinnar til þess að njóta hollrar útiveru á morgun með þvi að efna í öskjuhlið til nýstárlegs leiks, sem hlotið hefur nafnið ratleikur. Hefur tilhög- un leiksins verið kynnt í blaðinu undanfarna daga, en um framkvæmd þessarar útivistarhugmyndar hefur tekist samstarf við Bandalag íslenskra skáta. Ef heppnin er með geta þátttakendur unnið til veglegra verðlauna, en aðalatriðið er þó að fólk fáist til þess að hreyfa sig, vera úti á fridegi og njóta nýstárlegrar af- þreyingar frá daglegu amstri og streitu. Vísir hefur síðustu daga kynnt búnað þann sem fólk þarf að eignast til þess að geta notið þess að fara í úti- legur, og gert verðkannanir á viðlegubúnaði í verslun- um í því sambandi. Þá hefst í dag kynning blaðsins á áningarstöðum ferðamanna víðs vegar um land. I þessum þáttum er sagt frá því, sem þar getur að líta, og möguleikum til stuttra ferða út frá þessum stöðum. Þessari kynningu verður haldið áfram í sumar. Þannig leggur nú Visir sitt af mörkum til þess að stuðla að hollri útivist og ferðalögum um landið. Fjölmargir aðilar vinna um þessar mundir að mál- efnum þeirra sem stunda útilíf hér á landi. Á vegum Landverndar, Náttúruverndarráðsog Ferðamálaráðs var fyrir skömmu haldin ráðstefna um útilíf og tóku þátt i henni fulltrúar ýmissa félaga og samtaka, sem sinnt hafa þessum málefnum. Voru þátttakendur ráðstef nunnar á einu máli um að þau landgæði, sem nýttust í þágu útilífsiðkana, hefðu orðið sífellt þýðingarmeiri á undanförnum árum. Yrði því aðtaka aukið tillit til hagsmuna þeirra, sem útilíf stunduðu við ákvarðanir um landnýtingu á næstu ár- um. Slíkum gæðum mætti ekki fórna vegna skamm- vinns efnahagslegs ávinnings. Þvert á móti töldu menn þörf á að vernda þau og viðhalda þeim og nýta þessi gæði á skynsamlegan hátt, fyrst og fremst í þágu landsmanna sjálfra. Ástæða er til að taka undir þessi sjónarmið, en hvetja fólk jafnframt til þess að sýna fulla nærgætni í samskiptum sínum við íslenska náttúru og valda ekki eyðileggingu á þeim stöðum, sem það leggur leið sina um. Ef landsmenn læra að bera virðingu fyrir náttúr- unni gæðum hennf, r og fegurð þurfum við ekki að ótt- ast spjöll á viö. væmum gróvi oo ás:ónu landsins. Föstudagur 24. júní 1977 VISIR Ratleikur Visis og Bandolags íslenskra skáta hefst í Öskjuhlíð kl. 13. á morgun, laugardag. Hér eru upplýsingar um allt það sem viðkemur leiknum ALl Áður en lagt er af stað í ratleikinn er sjálfsagt að skoða kortið af öskjuhlíðinni og leggja kennileiti á minnið. Kortiðgetur einnig komið í góðar þarf ir ef einhver villist og hittir ekki á rétta vörðu. Kortið er þó ekki nauðsynlegt til þátttöku í ratleiknum, þar sem allar áttavitastefnur verða gefnar upp á spjaldi sem hverjum þátttakanda verður afhent. Ratleikurinn hefst við Dælu- stöðina i öskjuhlið. Þar fá þátt- takendur úthlutað spjöldum sem segja þeim til um hvaða stefnu skuli taka fyrst og hvaða stefnu skal taka eftir að komið er að hverri vörðu. Þegar búið er að finna stefn- una, annað hvort með þvi að nota réttvfsandi eða misvisandi stefnu (nánari skýring i boxi að neðan) er um að gera að finna eitthvað gott kennileiti i þá átt. A þessari mynd er kennileitið t.d. vatns- geymarnir í öskjuhlið. Ekki er víst að kennileiti verði alltaf svona auðfundin. En alltaf er eitt- hvað til að miða við, steinnibba, tré, laut, girðingarstaur o. sv. frv. Og svo er að ieggja i hann, og gæta þess að fylgja áttavitanum nákvæmlega. Munið einnig aö traðka ekki á viðkvæmum gróðr- inum i öskjuhliðinni. — Visis- mvndir: ÓH Þannig á að nota spjaldið Þannig litur spjaldið út sem þátttakendur i ratleiknum munu fá i hendurnar. Kannski lítur það svolitiö flókið út i fyrstu, en þegar nánar er að gætt, er þaö sáraeinfalt. Fyrst er að skýra hina ýmsu dálka á kortinu: Vöröunúmer, Frá/Til: Efsti reiturinn undir þessum haus segir B/237. B þýöir Byrjun (við erum svo stuttorðir). Númeriö fyrir aftan er númer fyrstu vörðunnar sem farið verður á. Gefið er upp númer vörðunnar (237), og áttavitastefnan að henni, bæði réttvisandi og mis- visandi. t raun og veru þarf kortið ekki til að rata á réttan stað. Nógerað lita á áttavitann, finna f hvaða átt 190 gráður rétt- visandi (eða 214 misvlsandi) eru, finna eitthvað kennileiti I þeirri átt, og ganga aö þvi. Þannig gengur svo koll af kolli þangað til komið er að fyrstu vörðunni. Við fyrstu vörðuna (f þessu dæmi nr. 237), þarf að ganga i nýja stefnu til næstu vörðu. Eins og sjá má er sú stefna 180 gráö- ur réttvisandi (204 misv.). 1 hvert sinn sem komið er að nýrri vörðu er næsta stefna tek- in, eins og segir til á spjaldinu. Réttvisandi stefna og misvis- andi stefna: Þessir dálkar eru núekkitilað villa um fyrirnein- um eða gera leikinn erfiðari. Misvisandi stefna þýðir aö norð- ur er f þeirri átt sem rauða nálin á áttavitanum visar. Þannig er auðveldara að finna út áttirnar. En raunverulega visar átta- vitanálin ekki I norður, heldur i segulnorður. Mismunurinn hér i m L£l£> Z Nafn Vörðu- númer Fri/Til Rétívísandi stefna Misvlsandi stefna Attavita- stefna Kvittun B/237 190 gráður 214 gráður 237/236 180 gráður 204 gráður 236/231 195 gráður 219 gráður 231/Mark 20 gráður 44 gráður RÁS NR. Mark /3 5H Start /3/S Tími 0439 Reykjavik er 24 gráður. Fyrir þá sem kjósa að vera nákvæmir iþessu, og eiga að venjast þvi að nota segulnorður birtum viö þvi hina réttvisandi stefnu. Þar sem segulskekkjan frá norðri til segulnorðurs er 24 gráður, má sjá að mismunur á misvisandi og réttvisandi stefnum er alltaf 24 gráður. Semsagt, misvisandi stefna er þegarsegulnorðurerlátið tákna norður (og er einfaldara i notk- un), en réttvisandi stefna (eða áttavitastefna eins og hún er einnig kölluð) er þegar áttavit- inn visar i landnorður, en átta- vitanálin visar á segulnorður. Kvittun á vörðum: Á hverri vörðu sem komið er viö á þarf að láta kvitta á þátttökuspjaldið með viðeigandi merki. Þátttak- endur geta þá kannað hvort þeir hafi ekki örugglega ratað á rétta vörðu. Það er gert með þvi aö bera saman númer vörðunn- ar á spjaldinu, og númer þeirrar vörðu sem viökomandi er stadd- ur á. Mark, Start, Timi: 1 reitinn „Start” verður ritaður byrj- unartiminn. 1 reitinn „Mark” verður ritaöur timinn sem komið er I mark. Siðan geta þátttakendur dregið neðri tim- ann frá efri timanum, og fundið út hversu lengi þeir hafa verið. Ef þeir hafa verið innan við fimm minútur frá lágmarks- tima fá þeir tvo happdrættis- miða, og ef þeir hafa verið á styttri tima en lágmarkstima, fá þeir þrjá happdrættismiða. Upplýsingar um hver lág- markstiminn er verða gefnar við upphaf ratleiksins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.