Tíminn - 12.10.1968, Blaðsíða 3

Tíminn - 12.10.1968, Blaðsíða 3
VfP*Q T' W yffnmr< i LAUGARDAGUR 12. október WG8. TÍMINN • Þetta er hin nýja brú yfir Tun gnaá við Sigöldufoss. TUNGNAÁRBRÚ OPNUD 1 Vegagerð ríkisins hefur í sumar unniS að byggingu brúar ;á Tungnaá fyrir Landsvirkjun, og lauk brúarsmíðinni um ; s.L mánaðamót. Brúin er byggð fyrir neðan Sigöldufoss í ‘ um 440 m hæð ytfir sjó. Á brúarstað fellur áin í gljúfri, ! og er brúargólf um 20 m yfir vatnsborði árinnar. , A fimmtudag afhe'nti Vegagerð ; rfkisins Landsvirkjun brúna við 1 stutta athö'fn, sem fór fram á ýstaðnum. Meðal viðstaddra voru ! stjórn Landsvirkjunar og fram- } kvEemdastjóri hennar, vegamála- ; stjóri, oddviti Landmannahrepps i og nokkrir starfsmenn Landisvirkj iunar svo og Guðmundur Jónas- í son, öræfabílstj'óri. Dr. Jóihannes ! Nordal, stjórnarformaður Lands- | virkjunar, hélt við það tækifæri ' ræðu, þar sem hann þakkaði vega; í gerðinni vel unnin störf við brú- \ \ \ Hörpukonur í Hafn I arfirði, Garðahr. og Bessastaða h reppi ! Fundur verður haidinn þriðju- ! daginn 15. okt. n.k. kl 20,30 að . Strandgötu 33, Hafnarfirði — 1 Fundarefni: 1. Sagt frá félags- ! málanámsk. Framsójcnarkvenna. ! 2. Önnur mál. — Stjórnin. argerðina og lysti hlutverki bru- arinnar. Fól hann siðan Guðmundi Jónassyni, sem manna mest hefur ! istuðlað að öræfaferðum íslend- j inga, að opna brúna. Bnúin er stálbitabrú yfir þrjú 1 höf 17+34+17 m, og heildar- j lengd 68 m. Stálbiti hvílir á steypt um stöplum til endanna, en milli- | undirstöður eru stálstoðir, og eru þær hafðar hallandi til að minnka lengd miðhafsins. Þessar stálstoð ir hvíla á steyptum sökklum. Gólf ; er úr timbri, og er breidd þess ! 3,2 m milli bríka. i Með hliðsjón af virkjanafram- kvæmdum, er brúin reiknuð fyrir 70—90 tonna þunga. Stálbitar eru fluttir inn frá Engiandi og smíð aðir í Stálsmiðjunni h.f. Fram- kvæmdir hófust um 20. júlí, og hafa að jafnaði starfað um 25 manns að smíðinni. Verkstjóri var Hugi Jóhannes9on. Verkfræðingar Vegagerðar rikisins hafa hannað brúna og haft á hendi verkfræði- lega stjórn við brúargerðina. Kostnaður við brúargerðina er ekki endanlega upp gerður, en á- ætlast um 5 millj. króna. Brúin er gerð í þágu f'yrirhug- aðrar miðlunar úr Þórisvatni, en slí'k miðlun er einn liður í stækk- un Búrfellsvirkjunar. Jafnframt auðveldar brúin virkjunarrann- sóknir á svæðinu innan við Tungnaá, en í því sambandi má nefna, að Landsvirkjun er nú að ganga frá áætlun um virkjun Tungnaár við Sigöldu. Seinni hluti sýning- ar Magnúsar opnaður EKH-Reykjavík, föstudag. S'l. hálfan mánuð hefur listsýn ing Magnúsar Á. Árnasonar stað- ið yfir í „Hlið.s'kjálf“, að Lauga- vegi 30. Eins og skýrt var frá á sínum tíma var hér aðeins um að ræða fyrri hluta sýningarinnar. Seinni hluti hennar verður opn- aður á morgun kl. 2 og verða þá til sýnis í Hliðskjálf 33 mál- verk eftir Magnús auk fjögurra höggmynda hans. Framhald á bls. 14 Prinsinn átti hér viðkomu Hljómleikar og danssýning Á mánuadgskvöld, verða haldn ir hljómleikar og danssýning í Þjóðleikhúsinu. Er þetta framlag Musika Nova og Félags íslenzkra listdansara, í tilefni 40 ára afmæl is Bandalags íslenzkra listamanna. Öll verkin á leikskránni eru ís- lenzk, og hefur ekkert þeirra ver- ið flutt hér á landi áður. Tónskáldin sem þarna eiga verk 'eru . Þorkell Sigurbjörnsson, • Gunnar Reynir Sveinsson, Leifur , Þórarinsson, Páll Pampichler , Pálsson, Atli Heimir Sveinsson og ,Magnús Bl. Jóhannsson. Þunga- 'miðja kvöldsins er ballett, sem ' Ingibjörg Björnsdóttir hefur sam >ið við tónlist eftir Magnús Bl. . Jóhannsson. Tónlistin sjálf er „mixtúra" hljóðfæra- og rafmagnstónlisttar. ,Magnús hefur síðan samið við iþetta einskonar ljósatónverk, þar isem sviðsljósakerfið er tengt við pianohljómborðið, sem einn hljóð færaleikaranna leikur á. Dansinn sem Ingibjörg Björnsdóttir hefur samið, er einnig mjög í anda nú- ■ tímans, en hann flytja 9 stúlkur i úr ballettskóla Þjóðleikhússins. Að tónlistarflutningi standa 15 hljóðfæraleikarar ásamt söngkon- unni Ruth Little Magnússon. Viða Framhald á bls. 14 FB-Reykjavík, föstudag. Kl. 14,17 í dag lenti flugvél Filipusar prins, manns Breta- drottningar, á Keflavíkurflugvelli en prinsinn var á leið til Mexikó til þess að vera þar viðstaddur Olympíuleikana. Prinsinn hafði klukkustundar1 viðdvöl hér og fór áleiðis til Syðra Straumsfjarðar á Grænlandi kl. 15.18. SYNING A STEINLEIR FB-Reykjavií'k, föstudag. Á morgun, laugardag, verð ur opnuð sýning á munum úr postulini, steinleir og gleri eft- ir Jónínu Guðnadóttur. Jónína átti nokkra muni á sýningunni sem haldin var í Norræna hús- inu nú í haust, og um þessar mundir tekur hún einnig þátt í samsýningu í Svíþjóð. Þetta er I hims vegar fyrsta sjálfstæða sýningin hennar, og þar að auki mun þetta vera í fyrsta sinn, sem glermumir eru sýndir á einkasýningu hér á landi. Jónína er fædd í Reykjavík POSTULINI OG GLERI árið 1943. Hún hóf nám við Handíðaskólamn árið 1960 og stundaði þar nám og einnig í MyndliStarskólanum í samtals þrjú ár. Árið 1963 fór hún til náms við Konstfaek í Stokk- hólmi, og tók lokapróf þaðan vorið 1967. Veturinn eftir starf aði hún sjálfstætt en í tengsl- um við skólann. Jónína tók þátt í nemenda- sýningum í Sviþjóð og fékk Framhald á bls 14 Jónína með nnkkra af sýning armununum. (Tímam.:—GE) 3 IÐNÞINGI ER LOKID Fundur 30. Iðnþings íslendinga var haldið áfram í Félagsheimil- inu Stapa í Ytri-NjarSvík í gær. Tekin voru fyrir álit nefndar. Iðnþingið lýsti yfir ánægju með störf milliþinganefndar um trygg- ingarmál og undirhúning að stofn un Iðntrygginga hf. Þá voru sam- þykktar nokkrar breytingar á lög um Landssambands iðnaðar- manna en tillaga um að iðnþing yrðu framvegis haldin annað hvert ár náði ekki fram að ganga. Miklar umræður urðu um fræðslu mál iðnaðarmanna og stóðu þær yfir fram yfir hádegi. Síðdegis var tekið fyrir álit alls herjarnefndar um atvinnumál og urðu nokkrar umræður um það mál. Ennfremur lýsti iðnþingið yf ir eindregnum stuðningi við vænt anlegan enduhflutning á frúni- varpi til laga um löggildingu bif- reiðaverkstæða. Þá fóru fram kosningar. Úr Stjórn Landssambands iðlnað- armanna áttu að ganga þeir Jón E. Ágústs9on og Þórir Jónsson. Jón E. Ágústsson baðst eindregið undan endurkjöri og var Ingvar Jóhannsson fnamkvæmdastjóri Ytri-Njarðvik, kosinn í stjórnina og Þórir Jónsson, Reykjavik, end urkosinn. Ennfremur var kosið í ýmis önnur trúnaðarstörf og milli þinganefndar. í lok þingsins ávarpaði Vigfús Sigurðsson forseti Landssam- bands iðnaðarmanna þingheim og þakkaði iðnþinggfulltrúum góð stfirf og ' Jóni Ágústssyni fyrir langt og gott samstarf í stjórn Landssambandsins. Á þinginu var samiþykkt að sæma tvo menn heiðursmerki iðn FUF Akranesi Kaffifundur verð ur í dag laugard. 12. okt. kl. 4. Halldór E. Sig urðsson alþingis maður ræðir stjórnmálavið- horfið. Allir vel- komnir. Stjórnin. aðarmanna úr gulli, þá Guðna; Magnússon, málarameistara, Kefla Framhald á bls. 14 • Hver á frétta i vakt næst? i Það er nú almennt farið að ■ spyrja að því, hver ráðlherranna ; , eigi næstu fréttavakt í útvarp- ; inu. í krv'öldfréttatima í fyrra- i kvöld þuldi Jóhann Hafstein, ráðherra, lesturinn i einar tutt ugu mdnútur og í gærkyöldi 1 kom Gylfi á fréttavaktina og þuldi í nær st'Undarfjórðung. Nú er spurningin hvaða ráð- herra tekur að sér fréttavakt- j ina í kvöld. Starfisfólkið á fréttastofu út- ! varpsins getur hæglega brugðið ’ sér í vetrarfrí til heitari landa, • ' þegar svona er komið, enda i stunda ráðherrarnir fréttavakt ] ina hvert kvöldið á fætur öðru , af þeim áhuga að einungis er 1 hægt að skjóta inn í stærstu j geimskotunum og stöku flug- ) slysi. Bardagar í Biafra og Viet 1 nam verða al'gjörlega að þoka ] í skuggann fyrir hinni öflugu • fréttastarfsemi ráðherranna. Þar sem gjö ráðherrar eru í stjónninni, dugir það til að ’ leysa af allan starfskraft frétta r stofunnar og vel það. Dr. ' Bjarni, Ingólfur og Emil gætu • mœtt á morgunvaktinni, önn- ,• uðust kynningu á fiúarleikfim- \ inni .spiluðu jass og segðu okk ’ ur um veður og klukku, áður • en kæmi að síldarfréttum í há | deginu, en hinir fjórir tækju t að sér seinni vaktina. Hún gæti , varia auðveldari verið. Ekki • væri annað en fletta upp í H gömlum ræðum, eins og þeir - hafa verið að gera á fréttavökt i um sínum ráðherrarnir Jóhann ! og Gylfi. Segið svo að ekki sé •! hægt að spara í rekstri útvarps ' ins. Líklegast væri hægt að lækka afnotagjöldin um helm- ' ing með þessu móti. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.